Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
69
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ um aðgerðir ríkisslj ómarinnar:
Ytir undir reiði
fólks og vantraust
þess á stjómvöldum
ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti ASÍ, segir að nái ákvarðanir ríkis-
stjórnarinnar um skatt á matvöru og innflutning-sgjald á bifreiðar
fram að ganga, merki það að ekki sé mark takandi á yfirlýsingum
hennar og bendir á að ríkisstjórnin hafi heitið því í desembersamn-
ingunum að skattheimta og verðhækkanir á opinberri þjónustu
verði ekki í heild umfram almenna verðlagsþróun. '
í bréfi til Þorsteins Pálssonar,
forsætisráðherra, segir Ásmundur
að í komandi samningum eigi
verkalýðshreyfingin varla annan
kost en leggja áherslu á beinar
kauphækkanir og sjálfvirkt vísi-
tölukerfi.
í samtali við Morgunblaðið
sagði hann: „Þetta hlýtur að auka
spennuna gagnvart þeim samning-
um sem framundan eru, ýtir undir
reiði fólks og vantraust þess á
stjórnvöldum. Gerir því alla samn-
inga erfíðari og stillir málum
þannig upp að samningar um ann-
að en kaup eru nánast óraunsæi.“
Bréf ið til
f orsætisráðherra
Hér fer á eftir I heild bréf
Ásmundar Stefánssonar, for-
seta Alþýðusambands íslands,
til Þorsteins Pálssonar, forsæt-
isráðherra, vegna aðgerða
ríkisstjórnarinnar:
Fjölmiðlar bera okkur nú þær
fréttir að ríkisstjómin hafi þegar
tekið og sé í þann mund að taka
ákvarðanir um stórfelldar nýjar
álögur á almenning.
Af því tilefni hlýt ég að minna
á að í bréfi ríkisstjórnarinnar 6.
desember sl. til samningsaðila seg-
ir meðal annars:
„Stjórnvöld munu í verðlagn-
ingu á opinberri þjónustu og
skattlagningu fylgja þeirri stefnu
að hækkanir verði í heild ekki
umfram almenna verðlagsþróun.
Verð á áfengi og tóbaki fellur þó
ekki undir þessa skilgreiningu.“
Það liggur fyrir að töluverðan
hluta þeirrar verðhækkunar sem
staðfest var um fyrri mánaðamót,
umfram það sem áætlað var við
gerð samninga í desember, má
rekja til verðhækkana á vettvangi
hins opinbera og nýrrar skatt-
heimtu. Ákvarðanir stjórnvalda
áttu því stóran beinan þátt í þeim
verðbótum sem óhjákvæmilegar
voru um síðustu mánaðamót. Af
5,65% hækkuninni 1. október má
rekja 1,92% til hækkana á opin-
berri þjónustu og aukinnar skatt-
heimtu undangenginna mánaða og
er hækkun áfengis og tóbaks þá
ekki talin.
Enn eru nærri þrír mánuðir eft-
ir af yfírstandandi samningstíma
og engin rauð strik eru framund-
an. Sú verðhækkun sem nú verður
fæst því ekki bætt í kaupi fyrr en
með nýjum samningum. Ábyrgð
ríkisstjórnarinnar í þessu efni er
því enn meiri en ella.
Það leikur ekki vafi á því að
rangar ákvarðanir af þessu tagi
og almennt aðgerðarleysi stjórn-
valda hafa veikt tiltrú fólks á því
að raunhæft sé að treysta loforð-
um ríkisstjórnarinnar. Ef þær
ákvarðanir, sem nú er rætt um,
fara fram er líklegt að það traust
verði að engu. Verkalýðshreyfing-
unnar bíður þá ekki annar kostur
en að leggja þungann á beinar
kauphækkanir og sjálfvirkt vísi-
tölukerfi.
Það samningsform sem sam-
komulag náðist um á síðasta ári
gerir tilkall til þess áð allir aðilar
standi við sitt. Það virðist æ skýr-
ar koma í ljós að af þeim þremur
aðilum, sem öxluðu ábyrgð með
samningunum á síðasta ári, hefur
verkalýðshreyfingin ein staðið við
sitt. Við þær aðstæður verður
ábyrgðartilfinningin að ábyrgðar-
leysi.
Ég minni enn á bréf ríkisstjórn-
arinnar frá því í desember sl. og
geri tilkall til þess að málið verði
tekið til endurskoðunar. Sérstak-
lega hlýt ég að minna á skyldur
stjómvalda gagnvart þeim sem
minnst bera úr býtum í þessu þjóð-
félagi og munu verða verst úti ef
áformaður matvöruskattur verður
að raunvemleika. Áformuð hækk-
un matvöru um næstu mánaðamót
gæti leitt til um 1,3% hækkunar
á framfærslukostnaði meðalheim-
ilis og um 2% hækkunar á fram-
færslukostnaði lágtekjufólks. Ef
enn kæmi til 10% hækkunar á
matvömm um næstu áramót yrði
hækkun framfærslukostnaðar um
enn 2,3% hjá meðalheimili en um
3% hjá heimilum lágtekjufólks.
Virðingarfyllst,
Ásmundur Stefánsson.
Vona að framsókn-
armenn sjái að sér
- segir Stefán Valgeirsson sem hafnað hefur
samstarfi við Framsóknarf lokkinn á Alþingi
STEFÁN Valgeirsson hefur hafnað samvinnu við Framsóknar-
flokkinn á Alþingi. Hann segir að formaður þingflokks
framsóknarmanna hafi boðið sér sæti í að minnsta kosti tveim-
ur þingnefndum gegn því að hann styddi stjórnarflokkana við
kosningar í þinginu. Stefán segir að eftir að fréttir bárust um
aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi það hjns vegar ekki komið til
greina að eiga samstarf við þá sem að slíku stæðu. Er því ljóst
að stjórnarflokkarnir eiga ekki möguleika á að fá 4 menn
kosna i hluta af þeim 5 manna stjórnum og ráðum sem Al-
þingi kýs.
Stefán er fyrrverandi þing-
maður Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra en
þegar hann fékk ekki fyrsta
sætið á lista flokksins fyrir kosn-
ingamar í vor stofnaði hann
ásamt fleirum Samtök um jafn-
rétti og félagshyggju og var
kosinn á þing fyrir þau samtök.
Að undanfömu hefur Stefán og
samtök hans átt í viðræðum við
forystu Framsóknarflokksins um
hugsanlega samvinnu á þinginu.
Stefán segir að á fundi með
Páli Péturssyni þingflokksform-
anni um helgina hafi honum
verið boðið að taka sæti í að
minnsta kosti tveimur af þremur
eftirfarandi nefndum: landbún-
aðarnefnd, samgöngumálanefnd
og félagsmálanefnd. „Þegar við
fréttum af þessum ráðstöfnunum
ríkisstjómarinnar, meðal annars
söluskatti á öll matvæli, varð
strax ljóst að af þessu gat ekki
orðið. Við getum ekki stutt menn
sem standa að slíkum aðgerðum.
Fjármálaráðherra virðist nú ráða
öllu. Ég vona hins vegar að fram-
sóknarmenn sjái að sér og fari
eftir sannfæringu sinni og Fram-
sóknarflokkurinn standi við
stefnu sína,“ sagði Stefán.
Stefán sagðist vilja vera
óbundinn og ekki kæra sig um
samninga við minnihlutann við
kosningar í þinginu, enda hefði
minnihlutinn enga þörf fyrir sig.
Atkvæði Stefáns Valgeirsson-
ar skiptir ekki máli við kosningar
í þingnefndir. Með hans atkvæði
hefðu stjórnarflokkarnir hins
vegar fengið kastað hlutkesti á
milli síns 4. manns og 2. manns
stjómarandstöðunnar við kosn-
ingar í 5 manna stjórnir og ráð
sem Alþingi kýs. Stjómarand-
staðan á hins vegar trygga 2
menn í þessar nefndir ef Stefán
situr hjá. í þessum eða næsta
mánuði verður meðal annars
kosið í stjórn Byggðastofnunar,
menntamálaráð, tryggingaráð,
landskjörstjórn og yfirkjörstjórn-
ir, en þetta eru allt fimm manna
ráð og stjórnir.
........................................................................—..................................................................... ■'
lli
Jíafa Jioyal
i
?■
I 6
I
-------------------------
Powfeen
SUÐURLANDSBRAUT 10. S. 686499.