Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
47
Tvær stúlkur, ðnnur fötluð en hin ófötluð finna saman við tölvu. I Jowinoskóla eru börn látin vinna
saman um langt skeið tvö og tvö saman og myndast þannig vinátta milli þeirra og agnkvæmur skilningur
Dæmi um aðbúnað á stórri stofnun í Bandaríkjunum
að fyrir hvem einn fatlaðan sem er
á stofnun er einn jafn fatlaður utan
við stofnunina. Það eru ekki allir
inná stofnunum og hafa aldrei ver-
ið.
Þessi fimmtán ára tilraunastarf-
semi hefur skilað ansi miklu í
kringum þá háskóla sem öflugastir
eru, eins og t.d. Syracuse háskóla
í New York fylki, Oregon háskóla
í Eusene, í Madison háskóla og
víðar, eins og fyrr hefur komið
fram. í Syracuse tók Burton Blatt
við sérkennsludeildinni og fékk til
liðs við sig þá menn sem hæfastir
eru á þessu sviði í Ameríku. Undir
forystu Blatt elfdist þessi deild og
stofnaði Center of Human Policy
sem tók á sig pólitískan blæ í þeim
skilningi að barist var af hörku
fyrir réttindum fjölfatlaðs fólks.
Menn bera t.d. vitni fyrir dómstól-
um í málum einstaklinga. Þar er
líká að þróast upp þjónusta, bæði
leiðbeiningarþjónusta við Was-
hingtonstjómina og við hin ýmsu
fylki um gjörvöll Bandaríkin. Þama
vinna vangefnir, foreldrar, prófess-
orar, sérkennarar og áhugafólk
ýmis konar saman, að sameiginlegu
markmiði. Ég dvaldi þama í sex
mánuði og það sem dró mig þangað
var það að þau skrif sem ég var
hrifnust af í þessum fræðum vom
mest megnis frá Syracuse háskóla.
Ég rakst í upphafi á grein eftir
Burton Blatt og ákvað að lesa mér
meira til og það leiddi til þess að
ég ákvað að fara og athuga hvað
þama væri raunverulega að gerast.
Ég skoðaði þama áhrif svona sterks
háskóla á stefnumótun í málefnum
fatlaðra í fylkinu. Þau eru geysilega
mikil. Við hlið þessarar starfsemi í
Syracuse er svo auðvitað starfandi
stór stofnun fyrir fatlaða, með alla
þá galla og kosti sem slíkar stofnan-
ir hafa. Jafnframt eru svo þama
líka öflug stuðningskerfi við fatlað
fólk og fjöldskyldur þess, sem miða
að því að fatlaðir séu í venjulegum
skóla. Flestir vangefnir sem búa
heima hjá sér em í venjulegum
skólum í Syracuse, að vísu flestir í
sér bekkjum. Það er mikið farið að
bera á því að fatlaðir vinni við hlið
ófatlaðra á stöðum eins og bóka-
safni háskólans, skrifstofum,
tryggingafyrirtækum, atkitekta-
stofum o.s.frv.
Þeir sem standa fyrir þessari
deild háskólans hafa hugsjónir og
heimspeki sem er mjög vandlega
gmnduð, jákvæð og sterk og bygg-
ir á stefnu Burtons Blatt. Úr þessari
lind veita þeir nemendum sínum,
aðilum vinnumarkaðar, skólayfir-
völdum og foreldmm fatlaðra.
Einnig vom fengnir til samstarfs
sérfræðingar frá Madisonháskóla,
sem em komnir lengra á sviði
kennslutækni heldur en víðast ann-
arsstaðar. Þegar hugsjónir og
tæknikunnátta tengjast saman þá
getur árangurinn orðið góður. Há-
skólamir í Syracuse og Madison
hafa sannarlega haft mikil áhrif en
hlutur háskólans í Oregon er líka
umtalsverður. Deild þess háskóla,
sem sér um menntun sérkennara
fyrir alvarlega fatlaða, er í fara-
broddi í Bandaríkjunum, og er Tom
Bellamy fyrrverandi prófessor þar
nú sérkennslufulltrúi Bandaríkja-
stjómar. Árangurinn af kröftugu
starfi þar sér maður út um allt
Origon fylki. í Origon varð til hreyf-
ing sem heitir „People fírst" sem
er fyrsta hreyfing vangefinna
sjálfra til þess að berjast fyrir rétt-
indum sínum. Það er nánast sama
hvar borið er niður í háskólabæ eins
og Origon, alls staðar má sjá van-
gefið fólk vinna við hlið hinna sem
betur em í sveit settir greindarfars-
lega. Það er liður í námi sérkennara
í Eusene í Origon að styðja van-
gefna í slíkri vinnu, það er t.d hluti
af námi þeirra að vinna á pizzahús-
um, sjúkrahúsum eða bókasöfnum
og hjálpa fötluðum manni að ná
tökum á slíkri vinnu. í Eusene em
líka allir strætisvagnar með lyftu
og þar má sjá ákaflega mikið hreyfí-
hamlað fólk ferðast um með
strætisvögnum. Þeir sem era fatlað-
ir og búa heima hjá sér eða á
fósturheimilum þeir búa við miklu
meiri rétt en við þekkjum hér og
betri aðstoð. En þama á svipuðum
slóðum er líka ein allra versta stofn-
un fyrir fatlaða í Bandarikjunum.
Frá háskólanum í Madison í
Wisconse kemur mikil tæknikunn-
átta. Við þann háskóla starfar
prófessor að nafni Lou Brown.
Honum og starfsmönnum hans hef-
ur tekist að ná svo góðu sambandi
við skólayfirvöld og vinnumarkað
þar í borg að undanfarin fjögur ár
hefur enginn fatlaður maður út-
skrifast svo úr skóla í Madison að
hann hafí ekki farið beint í starf á
almennum vinnumarkaði. Þessi frá-
bæri árangur hefur vakið mikla
athygli manna sem áhuga hafa á
þessum málum. Það er draumur
minn,“ sagði Dóra að lokum, „að
Lou Brown verði gert kleift að koma
hingað til iands næsta vor. Þá hygg-
ur hann á Evrópuferðalag og ég
vona að hann geti komið hér við
og sagt okkur frá starfsaðferðum
þeim sem hefur skilað svo miklum
árangri þar sem þeim hefur verið
beitt í Bandarílq'unum."
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Noregnr:
Gro Harlem leið
á fréttamönnum
Ósló, Reuter.
GRO HARLEM Brundtland for-
sætisráðherra Noregs er orðin
þreytt á ágangi erlendra frétta-
manna sem sí og æ vilja fá fréttir
af starfi hennar og stallsystra
hennar í norsku ríkisstjórninni.
Ætlar Gro Harlem nú að láta búa
til myndband þar sem flest það
sem fréttamennina fýsir að vita
kemur fram.
Talsmaður norska forsætisráðu-
neytisins, 0ivind 0stang, segir að
um það bil tveir þriðju hlutar þeirra
0DEXION
léttir ykkur störfin
o
c
Q.
UJ
CC
APTON-smíðakerfið
leysir vandann
Fyrirliggjandi:
* Svörtstálrör
* Grá stálrör
* Krómuð stálrör
* Alrör - falleg áferð
* Allar gerðir tengja
Við sníðum niður eftir máli
Útsölustaðir:
LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun
Ármúla 23 - Sími (91 )20680
STRAUMRÁS SF. — Akureyri
Sími (96)26986
LANDSSMIÐJAN HF.
fyrirspurna sem berist ráðuneytinu
séu tengdar háu hlutfalli kvenna í
ríkisstjórn Brundtlands. í norsku
stjórninni em 18 ráðherrar, þar af
em 8 konur. „Við teljum að við
munum spara forsætisráðherra
mikið amstur með því að gera
myndband sem við getum afhent
erlendum fréttamönnum í stað þess
að hún endurtaki sömu hlutina hvað
eftir annað fyrir fréttamenn frá
ýmsum heimshomum," sagði'
0stang.
Ekkert vatn er í
veggrörinu, þegar
skrúfað er fyrir
VÁRGÁRDA
utanhússkranann.
Tvœr gerðir, önnur
fyrir lykil og skrúfhjól
(allt að 400 mm
veggi), hin með lykli
(allt að 600 mm
veggi).
^ VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SlMAR 686455 — 685966
Nfetti LYNGHÁLSI 3 SlMAR 673415 - 673416
VðNOUO VINNA - VANDAD VERK
SÓFASETT Á HEILDSÖLUVERÐI
30 % ÓDÝRARI!
Ðólstrun og Tréverk hf.
Síðumúla 33, simi 688599