Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
Grunnur Safnahússins á Egilsstöðum.
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Bygging Safnahúss á Egilsstöðum:
Ég hef ekkert rangt
gert í þessu máli
- segir Halldór Sigurðsson for-
maður bygginganefndar Safna-
stofnunar Austurlands
Byggingarnefnd Safnastofnunar Austurlands á Egilsstöðum
stendur nú í samningaviðræðum við það fyrirtæki sem átti
hærra tilboð í fyrsta byggingaráfanga Safnahúss á Egilsstöð-
um, eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins síðastliðinn
miðvikudag.
ég er búinn að byggja upp“, sagði
hann.
„Niðurstaða bygginganefndar-
innar varðandi tilboðin tvö í
Safnahúsið var sú að hafna þeim
báðum þar sem fram komu hug-
myndir um að byggja húsið í
einingum.
„Steinsteyptar ein-
ingar ódýrari“
Það eru fjögur til fimm ár síðan
Brúnás byrjaði að byggja eininga-
hús. Það var ákvörðun bygginga-
nefndarinnar að ganga til
samninga við það fyrirtæki um
byggingu Safnahússins í stein-
steyptum einingum. Það er
öruggt að það verður ódýrara
heldur en tilboð Baldurs og
Óskars hljóðar upp á.
Ég hef nú þegar haft samband
við Pál Pálsson, formann stjórnar
Minjasafnsins, og beðið hann um
að gangast fyrir því að fyrir mig
verði tilnefndur varamaður en
hann hafði ég engan. Þegar til
endanlegrar afgreiðslu málsins
kemur mun ég víkja úr sæti í
nefndinni fyrir þeim manni,“
sagði Halldór.
Guðmundur Magnússon, fyrr-
verandi sveitarstjóri á Egilsstöð-
um, sem er fulltrúi bæjarstjórnar
Egilsstaða í byggingamefndinni,
eins og áður sagði, sagðist hafa
vikið úr sæti í nefndinni er tilboð-
in voru afgreidd
Safnahúsið á að hýsa Minja-
safn Austurlands, Héraðsbóka-
safn og Héraðsskjalasafn
Austfirðinga. Greiðsluhlutfall
ríkisins í fýrsta áfanga hússins
er um 53%, Egilsstaðabæjar um
32% og Norður- og Suður- Múla-
sýslna um 15%.
í byggingamefnd Safnahúss-
ins sitja þeir Halldór Sigurðsson,
formaður, tilnefndur af stjóm
Minjasafns Austurlands, Guð-
mundur Magnússon, fyrrverandi
sveitarstjóri á Egilsstöðum, til-
nefndur af bæjarstjóm Egils-
staða, Vilhjálmur Hjálmarsson,
fyirum ráðherra, tilnefndur af
stjóm Minjasafns Austurlands,
og sýslumennimir Sigurður
Eiríksson fyrir Suður- Múlasýslu
og Sigurður Helgason fyrir Norð-
ur- Múlasýslu.
Byggingarnefndin efndi til op-
ins útboðs á fyrsta áfanga hússins
og buðu tvö fyrirtæki í verkið,
Baldur og Óskar sf. í Fellabæ,
sem buðust til að vinna verkið
fyrir 12,3 milljónir króna og
Brúnás hf., sem bauðst til að
byggja þennan áfanga fyrir 13,9
milljónir króna.
„Byggingancfndin
ekki hlutlaus“
Óskar Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Baldurs og Óskars
sf., sagði í samtali við blaðamann
að bygginganefndin gæti ekki
verið hlutlaus í þessu máli því
tveir af byggingamefndarmönn-
unum, þeir Halldór Sigurðsson
og Guðmundur Magnússon, væru
hluthafar í Brúnási hf. Ef Brúnás
hefði ekki fengið þetta verkefni
hefði það orðið gjaldþrota.
Halldór Sigurðsson, sem er
formaður bygginganefndarinnar,
eins og áður er getið, sagði það
rétt vera að hann væri hluthafi í
Brúnási. „En ég hef engan áhuga
á því að rífa Baldur og Óskar
niður. Ég hef allt gott um það
fyrirtæki að segja. Og ég er löngu
hættur að hafa afskipti af Brún-
ási. En lái mér hver sem vill að
reyna ekki að rífa það niður sem
Guðmundur Magnússon, fyrr-
verandi sveitarstjóri á Egils-
stöðum, fulltrúi bæjarstjórnar
Egilstaðakaupstaðar í bygg-
inganefnd Safnastofnunar
Austurlands.
Óskar Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Baldurs og
Óskars sf.
heyrði þá skoðun byggingar-
nefndarmanna að húsið yrði
ódýrara á þann hátt, sagði Guð-
mundur.
Bygg-ingíincfndar-
menn einhuga í málinu
Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrr-
verandi ráðherra, sem var til-
nefndur í bygginganefndina af
stjórn Minjasafns Austurlands,
sagði að með nefndarmönnum
Halldór Sigurðsson, stjórnarformaður bygginganefndar Safna-
stofnunar Austurlands.
Sveinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Brúnáss, sagði það rétt
vera að hann hafi átt sæti í bygg-
inganefnd Safnahússins. Hann
sagðist hins vegar hafa sagt sig
úr nefndinni í júní sl.
Hann sagðist ekki telja af-
greiðslu bygginganefndarinnar á
tilboðunum óeðlilega. „Það er
óskhyggja Óskars Bjamasonar
hjá Baldri og Óskari að Brúnás
hefði farið á hausinn ef það hefði
ekki fengið þetta verkefni", sagði
hann.
„Ákvörðun nefndar-
innar siðlaus“
Fyrirtækið Baldur og Óskar er
í Fellabæ eins og áður sagði.
Þráinn Jónsson, oddviti hrepps-
nefndar Fellahrepps, sagði, er
blaðamaður innti hann eftir skoð-
un hans á þessu máli, að sú
ákvörðun bygginganefndarinnar
að semja við Brúnás um byggingu
Safnahússins væri „siðlaus".
Hann sagðist ekki trúa öðru en
að menntamálaráðuneytið gripi
þama í taumana.
Hákon Torfason, deildarstjóri
byggingadeildar menntamála-
ráðuneytisins, sagði að ráðuneyt-
ið myndi að öllum líkindum ekki
skipta sér af þessu máli.
Hann sagði að landbúnaðar-
ráðuneytið og menntamálaráðu-
neytið hafi fyrir átta árum gert
samkomulag við Minjasafn Aust-
urlands, Héraðsskjalasafn Aust-
fírðinga og Bókasafn Hérðsbúa
um að ríkið greiddi eðlilegan
byggingarkostnað við 800 fer-
metra í safnabyggingu. Ákveðið.
hafí verið að byggja Safnahúsið
á Egilsstöðum sem hýsti ofan-
greind söfn.
„Úr ríkissjóði hefur alls verið
veitt tæpum Qórum milljónum
króna til byggingar Safnahúss-
insins. Á árunum 1983 til ’86 var
600 þúsundum króna veitt árlega
úr sjóðnum til byggingarinnar en
í fjárlögum fyrir árið 1987 er
gert ráð fyrir að ein og hálf millj-
ón króna renni til byggingar
Safnahússins", sagði Hákon.
Sveinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Brúnáss hf.
hefði verið einhugur um að hafna
báðum tilboðunum og ganga til
samninga við Brúnás um bygg-
ingu Safnahússins í einingum.
Hreppsnefnd Fellahrepps:
Mótmælir vinnubrögðum
by ggingarnefndarinnar
Þar sem það virtist hafa
gleymst að kjósa varamenn fyrir
bygginganefndina hefði hann
beðið bæjarstjómina um að kjósa
fyrir sig varamann áður en tekin
var ákvörðun um tilboðin í bygg-
ingu Safnahússins.
„Siguijón Bjarnason, bókari í
Trésmiðju Fljótsdalshéraðs, varð
fyrir valinu og hann sat fund
byggingarnefndarinnar í minn
stað er tekin var ákvörðun um
tilboðin. Ég sat hins vegar fund-
inn sem ritari.
Rönnuður hússins, arkitektinn
Stefán Jónsson, sat fundinn og
hann var hlynntur því að byggja
húsið í einingum þegar hann
Á FUNDI hreppsnefndar Fella-
hrepps, föstudaginn 9. október
síðastliðinn, var rætt um bygg-
ingu Safnahússins á Egilsstöð-
um og samþykkt einróma
bókun um það mál.
í bókuninni segir meðal annars
að hreppsnefndin mótmæli þeim
vinnubrögðum byggingamefndar-
innar að hafna tilboði Baldurs og
Óskars sf. í byggingu Safnahúss-
ins, þar sem tilboðið hafi verið
undir kostnaðaráætlun.
í stað þess hafí byggingar-
nefndin hafið viðræður við Brúnás
hf., án þess að á því hafí verið
gefnar nokkrar viðhlítandi skýr-
ingar. Það fyrirtæki hafí hins
vegar verið með tilboð yfír kostn-
aðaráætlun.
Jafnframt telur hreppsnefndin
óviðunandi að byggingamefnd,
sem framkvæmdastjóri og tveir
hluthafar Brúnáss hf. eigi sæti í,
sjái um samninga við fyrirtækið
um byggingu Safnahússins.
Þráinn Jónsson, oddviti hrepps-
nefndar Fellahrepps, sagðist, í
samtali við blaðamann, vera undr-
andi á þessari afgreiðslu bygging-
amefndarinnar. Hann sagði það
vera siðferðilega skyldu nefndar-
innar að nýta opinbert fé á sem
skynsamlegastan hátt.
„Það á ekki að vera tilgangur
byggingarnefndarinnar að vera
með atvinnumiðlun, enda eru
Brúnás og Baldur og Óskar á
sama atvinnusvæðinu. Ef það hef-
ur ekki verið til ijármagn til að
byggja þennan áfanga, þá átti
nefndin ekki að bjóða hann út.
Mig undrar það jafnframt að
Baldri og Óskari skuli ekki hafa
verið gefínn kostur á því að gera
nýtt tilboð í verkið, úr því að báð-
um tilboðunum var hafnað. Mér
fínnst þetta vera einkennilegur
hringlandaháttur í byggingar-
nefndinni og trúi ekki öðru en að
hún muni endurskoða afstöðu sína
í þessu máli“, sagði Þráinn Jóns-