Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
67
Þessir taringdu ...
Sýnið Intermezzo aftur
Eldri kona hringdi:
„Mig langar til að fara þess á
leit við sjónvarpið að kvikmyndin
Intermezzo, sem sýnd var laugar-
daginn 26. september, verði
endursýnd. Margir misstu af þess-
ari mynd og fjölmarga langar til
að sjá hana aftur. Endursýna
mætti myndina t.d. um eftirmið-
dag á laugardegi eða sunnudegi."
Gráyrjótt læða
Gráyrjótt læða tapaðist frá
Baldursgötu 12. Hún gegnir nafn-
inu Táta og er merkt með gulri
hálsól og spjaldi. Þeir sem hafa
orðið við kisu eru beðnir að
hringja í síma 25859. Fundarlaun.
Sveik - frábær
myndaflokkur
M.G hringdi:
„Austuríski myndaflokkurinn
um góða dátann Sveik sem sjón-
varpið sýnir um þessar mundir á
mánudögum er aldeilis frábær.
Aðaleikarinn er hreinlega fæddur
Sveik og meðleikarar hans standa
sig vel. Sjónvarpið á hrós skilið
fyrir að taka þennan myndaflokk
til sýningar."
Kvenhjól
Grátt og hvítt kvenreiðhjól af
gerðinni Tunturi var tekið að
Engjaseli 81 fyrir skömmu. Þeir
sem orðið hafa varir við hjólið eru
beðnir að hringja í síma 78954
eftir kl. 19.
Gullarmband
Gullarmband sett perlum tap-
aðist á Hótel Sögu laugardaginn
3. október. Skilvís finnandi vin-
samlegast hringi í síma 38660.
Fundarlaun.
Athyglisverð grein um hávaðamengun
HÁVAÐAMENGUN
1. ckUtxr d. M *■*
nnðmr nalrtwit að þ»rt
tejti, rfSS» þrf »» Xíftíþ^
éáati ftrrir «» ■««*» vainatB
«» fcMK <Mt> ■«
■þitu rimtt þ^fcr hogrriýr
naf .ðfcfcnn Igarnorku.
jmam------- íftwritar oufcr. Þ*U
tatu Bft rirtrit fcfca «*»r rkki
p> rir frt«o tftw þri, *!“"*■■*
m mðgmft cr »n> ír Sh> rridi
■msft \m ta gmftmn tmkjom. m
.................lenon teg-
giynwuuu ——----
f bn> rift rinmrrértjgný. ham»n-
bógg, gfcmmr f bin^fmi utv,
' ttm ogjato-
Hr og man nagrawa
bornum. Og kanmki viflgeÐgBt ihkt
ámtjmtídtr. Oftarenddrierhald-
ifl appi gjallandi tfloliat á vdtínga-
gtóflmn og í ájetiunarbflum og
afla konar bynnntnmgauMq-
A géflwðriadðgmn á anmrin
UL i ——------o-ri----
-Ir«#.twii hwian eyru nágranna
Og hver kannaat ekki rið
mftm sem láu átírarpataeki fafla
«j»m« ganga á ftiflu, ivo að beyrnl
mn afla gðtana og jafind lengra,
er þeir dytta afl faikoatunmn utan
aið háa afn?
Sjúkrahúain fara ekid heidur var-
hfaita af hávaflaplágunnL Nýiega
þurfti ég afl dvetjaat nokkra dagm
f igúkrahúaL Þar var ötl aflUynning
ágaet og ákvaeflum gegn reykmgnm
f qútaraatofnum og afltiggjandi
gðngum og aetuatoftim virtíat vera
vel framfyigt. Hina vegar undrafliA
ég, afl útvarp og qónvarp í aebi-
stofti vifl gangains voni
löngum atiflt svo hátt, að giynýand-
inn bant unnvörpum inn f qúkra-
atofumar. Og ekld nóg með það.
Tveir ungir menn sem unmi á dag-
inn við afl gera hreinar atoftur («ml
taemdar voru á meflan), hðflhi með
Til Velvakanda
Athyglisverð grein um
hávaðamengun eftir Sigfus Hauk
Andrésson birtist í Velvakanda
föstudaginn 9. október. Þar fjallar
Sigfus meðal annars um vandamál
sem stóraukist hefur með hinum
nýju útvarpsstöðvum. Hvarvetna
sem maður kemur hljómar þriðja-
flokks dægurlagagarg en mjög
sjaldan heyrist hins vegar leikin
klassísk tónlist. Af einhveijum
’ástæðum virðast öskurapamir nær
einráðir á þessum markaði. Þetta
er flestum til ama en af einhveijum
ástæðum lætur fólk þessi ósköp
yfír sig ganga án þess að bera hönd
fyrir höfuð sér. Næturútvarpið er
þó ef til vill mesta vandamálið því
það hlýtur að teljast réttur hvers
manns að hafa næði á nóttinni.
Dægurlagagarg hljómar nú hvar-
vetna langt fram eftir nóttu í
sambýlishúsum og heldur vöku fyr-
ir mönnum. Ég vil taka undir með
Sigfúsi: „Gegn þessu siðleysi þarf
auðvitað að setja skilmerkileg lög
og reglugerðir eins og annarri
mengun umhverfísins. En meira
þarf vitanlega til. Það er t.d. lág-
markskrafa að hávaðaframleiðend-
ur eins og útvarps og sjónvarps-
stöðvar minni fólk reglulega á að
stilla ekki tæki sín svo hátt, að
nágrannar verði fyrir ónæði".
Hvemig sem á því stendur virð-
ast hávaðaframleiðendur alveg
komast hjá að virða rétt þeirra sem
þurfa að sofa á nóttinni. Næturút-
varpið er orðin slík plága að full
ástæða væri að banna allt útvarp
frá kl. 23 til kl. 7 á morgnana, því
einhver hlýtur réttur fólks að vera
til að hafa næði á nóttunni. Gera
þarf átak í þessum málum og setja
nýja löggjöf svo fólk geti leitað rétt-
ar síns f þessum efnum með góðu
móti. Þarflegt væri að fleiri létu til
sín heyra um þessi mál.
K.S.
Frábær upplestur
Kæri Velvakandi.
Mér fínnst ég hafa orðið bam í
annað sinn við að hlusta á Þorstein
Thorarensen lesa Gosa á morgnana,
eftirlætissöguna frá bemskudög-
um. Sennilega hefír það verið
stytting, en ég man því miður ekki
nafti þýðandans, en bókin var bund-
in í grá spjöld, teikningamar svört
strik og sumar ógleymanlegar.
Hjartans bestu þakkir til þýðanda
og flytjandans Þorsteins Thorarens-
en. Það eru mörg ár síðan hejrrst
hefír betri flutningur fyrir böm, ef
þá nokkm sinni, og Þorsteinn hefír
einstakt lag á að segja fáein orð
til bamanna, sem verða mikilvæg,
skipta þau máli og skapa einhvers
konar trúnað milli sögumanns og
áheyranda. Þetta er ekki öllum gef-
ið. Ef ég væri ráðamaður í útvarp-
inu hefði ég látið endurtaka hvem
lestur síðdegis fyrir þau böm sem
ekki em vöknuð á morgnana. Það
er því miður stór hópur og í öðmm
er verið að jagast um að klæða sig,
fara að borða o.s.frv. Böm þurfa
næði til að hlusta á aðra eins perlu
og Gosa og kynnast flytjandanum,
sem gerir sér far um að nálgast
þau með fáum hnitmiðuðum setn-
ingum. Það er alveg óhætt að setja
þessar spólur f gang fljótt aftur og
ii.iuáiiE mu
lofa þeim sem misstu af morgun-
lestmnum að njóta sögunnar frægu
Til Velvakanda
Ég skrifa þetta bréf vegna sam-
gangna eða samgönguleysis við
fjölbrautaskólann á Akranesi, en
sá skóli heitir nú Fjölbrautaskóli
Vesturlands og á hann að þjóna
öllu Vesturlandi, m.a. Snæfellsnesi.
En samgöngur við Akranes héðan
af Snæfellsnesi eru þannig að ekki
er lengur við unandi ef skólinn á
að þjóna því hlutverki sem honum
er ætlað.
Undrar mig stóriega hve_ hljótt
hefur verið um þetta mál. Ég hef
haft tvö böm í þessum skóla síðast-
liðin átta ár og hafa samgöngur
lítið sem ekkert batnað á þessum
tíma. Unglingar sem koma af Snæ-
fellsnesi þurfa að ferðast á puttan-
um uppá von og óvon í náttmyrkri
og misjöfnum veðram frá Akranes-
vegamótum, nema svo vel vilji til
að þeir eigi kunningja á Akranesi
sem vilja eða geta sótt þá. Rútan
hefur ekki fastákveðinn komu né
„sbrml :nÍ9cj i maa -liiyl unnr
í frábærri þýðingu og flutningi Þor-
steins Thorarensen. Vonandi kemur
þessi þýðing fljótt út og þá verður
gaman hjá ömmunum að lesa fyrir
litla vini. Með þakklæti og aðdáun.
0374-8340
biðtíma á vegamótunum heldur
ræðst það eftir veðri og færð hven-
ær hún kemur. Þar er heldur ekkert
skýli fyrir þá sem þurfa að bíða.
Nú er komið að því að þriðja
bam mitt þurfí að fara í fram-
haldsskóla og hef ég alltaf búist
við úrbótum á hveiju ári. En nú
sætti ég mig ekki við þetta sinnu-
leysi lengur. Vil ég biðja þá sem
þessum málum geta eitthvað ráðið
að gera eitthvað raunhæft í málinu.
Rætt hefur verið um umferða-
miðstöð í Borgamesi og er það að
mínu áliti góð lausn, því allar rútur
af Snæfellsnesi koma við í Borgar-
nesi og væri það eðlilegt að sameina
farþega úr þeim rútum í eina sem
færi á Akranes. Vil ég skora á for-
eldra sem þetta mál varðar að láta
frá sér heyra. Hvað segja t.d. Dala-
menn, hafa þeir betir samgöngur
við Skagan en við Snæfellingar?
Móðir á Snæfellsnesi
r 1‘jstj 6b .tgatnrgiamfife iia 6wj I_
Erfiðar samgöngur
SUAAEMA
þvær og þurrkar
á mettíma
Árangur í hæsta gæðaflokki
Eumenia - engri lík
Rafbraut
Bolholti 4
® 681440.
SNIGILDÆLUR
OG KVARNIR
Seepex
eru tæknilega
mjög fullkomnar
og eru til í
fjölbreyttu úrvali
til mismunandi
nota.
Seepex er á
hagstæðu verði
og hægt að fá
með stuttum
afgreiðslufresti.
Kynntu þér Seepex,
áður en þú velur annað.
Þekking Reynsla Þjónusta
J