Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
Týndur skóli -
Fiskvinnsluskólinn
eftir Óskar
Skúlason
Fiskvinnsluskólinn? Iss, ojbara. Þeir
eru fáir fiskvinnsluskólanemar sem
ekki hafa heyrt þetta eða svipað í
gegnum tíðina.
I dag er það orðið þannig, að ef
einhver aulast til að viðurkenna að
hann gangi í FVS þá verður sá hinn
sami að hafa góð svör á reiðum
höndum til að réttlæta hvers vegna
hann gangi sjálfviljugur þennan
slori drifna slóða menntavegarins
þegar hann gætri tiplað létt í gegn
um virðingarfulla menntaskólana.
Fáfræði fólks er það mikil að í
sumra hugum eru þeir sem ganga
í FVS bara skítugir og slorugir
aumingjar, sem kunna eflaust
hvorki að lesa né skrifa. Hvemig
endar þetta? Nú eru allir að verða
of flnir til að dýfa hendi í kalt vatn.
Og, guð minn góður, nú má helst
ekki minnast á fisk þá kúgast ung-
dómurinn.
Þessu fólki þarf að snúa inná
rétta braut. Koma því í skilning um
að án flskvinnslunnar værum við
ekki neitt. Á íslandi er allt byggt
í kringum sjávarútveg. 011 þjón-
ustustörf, sem virðast vera að heilla
lýðinn upp úr skónum, eru byggð
í kringum þetta ógeðslega slor, sem
allir hræðast. Held ég að þeir, sem
dreymir hvað mest um að verða
læknar, kennarar, lögfræðingar eða
eitthvað í þeim dúr, ættu að minnast
þess næst þegar þeir fussa og sveia
yflr flskilykt.
En það er ekki bara ungdómurinn
sem þarf að læra. Ráðamenn þjóð-
arinnar eiga líka margt ólært og
þá er ég kominn að því sem mér
liggur mest á hjarta, Fiskvinnslu-
skólanum. Þetta er sá skóli sem
útskrifar fólk til starfa við undir-
stöðuatvinnugrein þjóðarinnar.
Nemendur sem ganga út úr flsk-
vinnsluskólanum, annað hvort sem
físktæknar eða fiskiðnaðarmenn,
ganga yfirleitt beint inní ábyrgðar-
stöður. Daginn eftir útskrift er sá
sem var nemi í gær stjómandi yfir
hundrað manns og ber ábyrgð á
hundruð þúsunda, jafnvel milljóna
króna framleiðslu á dag. Fram-
leiðslu, sem gefur síðan þjóðarbúinu
meiri aur í kassann en nokkur önn-
ur framleiðslugrein.
Og hvemig er svo skólinn verð-
launaður fyrir það ábyrgðarhlut-
verk sem hann gegnir? Jú, hann
er sveltur og virðist helst vera týnd-
ur og tröllum geflnn. Það er alveg
ótrúlegt hversu mikið skilningsleysi
ríkir í höfuðstöðvum þeirra er ráða
menntamálum í landinu. En nú er
ekki svo langt síðan að við fengum
nýja ríkisstjóm að kannski flnnur
sá sem ríkjum ræður í menntamála-
ráðuneytinu í dag kjark einhvers-
staðar innst inni til að ýta aðeins
við ríkjandi öflum, og allavega leita
að fískvinnsluskólanum til að vita
þá hvar á landinu hann er, ef ein-
hver spyrði (svona þeim sem ekki
vita til fróðleiks þá er skólinn að
Trönuhrauni 8, Hafnarflrði). Það
sem yrði gert skólanum í hag yrði
Óskar Skúlason
einnig þjóðinni í hag.
I framhaldsskólum landsins er
nú aragrúi nemenda, sem vita ekk-
ert hvað þeir ætla að gera í lífinu.
Skólarnir em oft á tíðum geymslu-
pláss fyrir þá sem flnnst öryggið
þar betra en alvörulífið út á vinnu-
markaðnum. Ég vil hvetja þá sem
ekki eru vissir um hvað þeir vilja
verða og þá sem horfa fram á of-
mettun í þeirri grein sem þeir stefna
á, að gefa Fiskvinnsluskólanum
heiðarlegan möguleika. Það yrði
ykkur og þjóðinni stórlega til góðs.
Ykkur get ég sagt það að FVS er
eini skólinn á landinu sem útskrifar
nemendur beint í topptekjur. Og
þó að fólk útskrifist úr Fiskvinnslu-
skólanum er ekki þar með sagt að
það standi í slori upp fyrir haus
alla ævi. Mikill hluti þeirra sem
útskrifast hafa útúr FVS eru fram-
kvæmdastjórar, rekstrarleiðbein-
endur, starfmenn rannsókna og
stjómendur í allskyns störfum inn-
an sjávarútvegs. Þjóðin þarfnast
þeirra sem útskrifast úr þessum
skóla og skólinn þarf hjálp frá þjóð-
inni. En eins og er gefur skólinn,
en fær lítið í staðinn.
Ég er nú samt svo bjartsýnn að
ég trúi því að ungt fólk í dag muni
sigrast á fáfræðinni, komi til með
að skilja hlutverk sjávarútvegs og
Fiskvinnsluskólans og leiðrétti
þennan misbrest sem orðið hefur í
gegnum tíðina.
En við þá, sem geta ekki og vilja
ekki skilja þessa staðreynd, segi ég
bara, næst þegar þið takið seðlana
ykkar og fyllist vellíðan yfir ríki-
dæminu, prófið að þefa af þeim,
en passið ykkur, ykkur gæti orðið
flökurt, því að það er svo stór pró-
senta af peningunum sem fór í
gegnum sjávarútveginn, að það
gæti verið megn fisklykt af þeim.
Höfundur er nemi í Fiskvinnslu-
skólanum.
Síminnkandi fjár-
magn til vegagerðar
Framlög til vegagerðar skv. langtímaáætlun (lá.) og raun-
Rauntölur
mkr. Hlutf.
Mismunur
mkr.
AÐALFUNDUR Félags héraðs-
og rekstrarstjóra hjá Vegagerð
ríkisins, haldinn á Hornafirði,
lýsir verulegum áhyggjum sínum
yfir síminnkandi fjármagni til
vegagerðar.
Þrátt fyrir viljayfirlýsingar Al-
þingis um að 2,4% af vergri þjóðar-
framleiðslu færi til vegagerðar, er
svo komið að á árinu 1987 ná fram-
lög til Vegagerðar ríkisins aðeins
milli 1,4—1,5% af vergum þjóðar-
tekjum.
Þessi samdráttur bitnar ekki síst
á viðhaldi malarvega sem víða er
orðið að verulegu vandamáli og fer
vaxandi. Þar sem til viðbótar versn-
andi viðhaldi koma auknar kröfur
vegfarenda um betri vegi, enda við-
miðun öll við bundin slitlög.
Vanefndir frá markmiðum
langtímaáætlunar nemur um 3
milljörðum króna á árunum
1983—1987. Til þess að skýra
tölur. 1983-1987.
Verðlag 1987 (vt. 2226).
Skv. lá.
mkr. Hlutf.
1983 2.690 2,2
1984 2.830 2,3
1985 3.010 2,4
1986 3.070 2,4
1987 3.410 2,4
framkvæmdamagn þessa niður-
skurðar má benda á: |
1. Km í bundnu slitlagi kostar
um 1,5 milljónir króna þannig að
fyrir þennan niðurskurð hefði verið
hægt að leggja um 2.000 km af
bundnu slitlagi.
2. Taliðeraðkostnaðurviðjarð-
2.280 2,0 410
2.640 2,0 190
2.460 1,8 550
2.490 1,6 580
2.150 1.260
gangnagerð hér á landi sé um það
bil 150 milljónir króna/km. Þannig
að fyrir niðurskurðinn frá því sem
að langtímaáætlun gerði ráð fyrir,
umreiknað í jarðgöng, hefði mátt
leggja 20 km af jarðgöngum.
(Frá héraðs- og rekstrarstjórum
Vegragerðar ríkisins.)
Frá keppni hjá Bridsfélagi Breiðfirðinga. Morgunblaðið/Amór
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 6. október var spil-
að í tveim riðlum. Hæstu skor fengu eftirtalin pör: A-riðiU: Eyþór Hauksson —
Lúðvík Wdowiak 127
Jóhannes — Þorbergur Hulda Hjálmarsdóttir — 127
Guðrún Jörgensen Hildur Helgadóttir — 126
Karólfna Guðmundsdóttir B-riðill: Jón Viðar Jónmundsson — 114
Þórarinn Andrewsson Sigmar Jónsson — 125
Sveinn Einarsson Sveinn Þorvaldsson — 118
Hjálmar Pálsson 107
Næsta þriðjudag 13. október
hefst þriggja kvölda hausttvímenn-
ingur og er skráning hafln hjá
Hjálmtý Baldurssyni í síma 26877
og Sigmari Jónssyni í síma 687070
og 35271. Spilarar eru beðnir að
mæta tímanlega því byrjað er að
spila klukkan 19.30 stundvíslega.
Spilað er í Drangey, Síðumúla 35.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Mánudaginn 5. október var spiluð
önnur umferðin í þriggja kvölda
Mitchell-tvímenningi félagsins.
Úrslit urðu eftirfarandi:
N-S riðill:
Ólafur Gíslason —
Sigurður Aðalsteinsson 350
Bjöm Amarson —
Guðlaugur Ellertsson 346
Óskar Karlsson —
Þorsteinn Þorsteinsson 346
Jón Sigurðsson —
Jens Sigurðsson 338
A-V riðill:
Guðlaugur Óskarsson —
Sigurður Steingrímsson 371
Karl Bjamason —
SigurbergElentínusson 361
Einar Sigurðsson —
Björgvin Víglundsson 342
Guðni Þorsteinsson —
Þórarinn Sófusson 328
Staðan fyrir síðustu umferð er
þannig:
Guðbrandur Sigurbergsson —
Kristófer Magnússon 716
Óskar Karlsson —
Þorsteinn Þorsteinsson 709
Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 688
Karl Bjarnason —
Sigurberg Elentínusson 673
Jón Viðar Jónmundsson —
Sveinbjörn Eyjólfsson 665
1 "
raðauglýsingar
radauglýsingar
raðauglýsingar
Landsmálafélagið Vörður
Almennur
félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 14. október
nk. kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, mun
ræóa um stjómmálaviöhorf i þingbyrjun.
Stjómin.
Félag sjálfstæðismanna
í Langholti
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn i Val-
höll, Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 15.
október kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf og skýrsla hús-
næðisnefndar félagsins.
Gesturfundarins verður Þorsteinn Pálsson,
forsætisráðherra og mun hann fjalla um
stjórnmálaviöhorfiö og stöðu Sjálfstæðis-
flokksins.
Kaffiveitingar og almennar umræður.
Stjórnin.
HPIMI5ALI.UK
Blaðamanna-
námskeið
Heimdallur gengst fyrir námskeiði í blaðmennsku og útgáfu. Nám-
skeiðið hefst fimmtudaginn 15. október kl. 20.00 i kjallara Valhallar,
Háaleitisbraut 1. Námskeiðtð stendur í tvær vikur og skiptist í nokk-
ur kvöld sem verða ákveöin af þátttakendum og leiðbeinendum.
Þátttakendur gefa út hiö vinsæla framhaldsskólablað, Nýjan skóla,
og vinna þaö aö mestu sjálfir með aðstoö leiðbeinenda, altt frá gagna-
öflun, Ijósmyndun, útlitshönnun til prentunnar. Leiðbeinendur á
námskeiðinu verða blaðamenn af Morgunblaðinu.
Allir áhugasamir velkomnir.