Morgunblaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
AF INNLENDUM
VETTVANGI
PÉTUR GUNNARSSON
NAGLADEKK—
óþarfi eða nauðsyn?
KOSTNAÐUR við að gera við
skemmdir sem notkun nagla-
dekkja veldur á götum borgar-
innar er áætlaður 60-80 milljónir
króna á ári. Gatnamálastjóri
gekkst nýlega fyrir umræðu-
fundi á Hótel Sögu um nagla-
dekk. Var fundurinn liður í
áróðursherferð sem miðar að því
að fækka nagladekkjum í um-
ferðinni og lækka með því
kostnað við gatnagerð. Erling
Hansen yfirverkfræðingi norsku
vegagerðarinnar var boðið til
fundarins og flutti hann erindi
um reynslu Norðmanna af notk-
un nagladekkja og lagðist á sveif
með gatnamálastjóra í því að
mæla gegn notkun þeirra. Heitar
umræður urðu á fundinum og
reyndust skoðanir skiptar á því
hvort unnt væri að draga úr
notkun nagladekkja án þess að
rýra öryggi vegfarenda í um-
ferðinni. Morgunblaðið sneri sér
til nokkurra manna sem telja
má fulltrúa þeirra aðila sem
málið brennur heitast á og innti
þá álits .
Notkun nagladekkja
fækkar óhöppum
Óli H. Þórðarson framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs tjáði Morgun-
blaðinu að hann teldi mikilvægt að
stuðla að lækkuðum kostnaði við
gatnagerð. Hins vegar mætti slík
viðleitni alls ekki bitna á öryggi
vegfarenda og því þyrfti að skoða
málið frá öllum hliðum. Oli sagði
það vera lykilatriði í umræðunni að
ef ísing væri á vegum eða hálka
þyrfti mun styttri vegalengd til að
stöðva bifreið á negldum hjólbörð-
um en ónegldum. Slík akstursskil-
yrði mynduðust oft við snögg
veðrabrigði, öllum að óvörum og
þá veittu nagladekk aukið öryggi.
ÓIi H. Þórðarson framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs
Jónas Bjarnason framkvæmda-
stjóri FÍB
Óli kvaðst þó vilja brýna fyrir mönn-
um að ofmeta ekki þýðingu nagla-
Arnþór Ingólfsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn
Valdimar Jónsson bifreiðastjóri
dekkja, ekkert gæti komið í stað
aðgátar og hraða skyldi alltaf miða
Ólafur Bergsson forstöðumaður
tjónasviðs Sjóvár
við aðstæður en notkun nagla-
dekkja að vetrarlagi stuðlaði að
færri óhöppum og því væri hann
hlynntur henni.
Fylgjandi herferð
g'atnmálastj óra
Arnþór Ingólfsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn sagðist vera fylgjandi
herferð gatnamálastjóra gegn notk-
un nagladekkja. Nagladekkin yllu
gífurlegum skemmdum á götum
borgarinnar. Mönnum hætti auk
þess til að ofmeta það öryggi sem
nagladekk veiti og aki í skjóli hins
falska öryggis langtum hraðar en
aðstæður leyfí. Arnþór sagði að
engar rannsóknir lægju fyrir um
samband færðar og búnaðar bif-
reiða annars vegar og fjölda
umferðaróhappa hins vegar og því
væri útilokað að fullyrða um hvort
áróðursherferð sem þessi skerti ör-
yggi vegfarenda. Um hitt væru
flestir sammála sem fjölluðu um
þessi mál að hraði væri aðalorsök
umferðaróhappa í borginni, hraði
væri of mikill, jafnt við bestu skil-
yrði sem við hin verstu, þessvegna
yrðu óhöppin. Arnþór sagðist gjam-
an vilja sjá færri bíla í umferðinni
með nagladekk en þó því aðeins að
menn drægju jafnframt úr hraða.
Ef sú yrði raunin væri áróðurs-
herferð gatnamálastjóra til góðs.
Arnþór sagði að ekki væri ástæða
til að óttast að menn sem lentu í
óhappi í hálku og væm með óneglda
hjólbarða yrðu sektaðir fyrir vikið.
Ekki ætti að þurfa að sekta ef barð-
arnir væru að öðm leyti góðir, með
grófu munstri og sams konar barð-
ar á hvomm öxli. Þá sjaldan að
aðstæður væm svo slæmar að búa
þyrfti bíla sérstaklega út þeirra
vegna gerðu keðjur sama gagn og
naglar.
Réttara að berjast fyrir
auknum fjárveitingum
Olafur Bergsson forstöðumaður
tjónasviðs Sjóvátryggingafélags Is-
lands kvaðst hafa áratugareynslu
af starfi við uppgjör tjóna en hann
minntist þess ekki að manni hafi
verið dæmd sök að óhappi vegna
þess að nagladekk vantaði. Hins
vegar komi fyrir að menn lendi í
sök ef talið sé að munstur á dekkj-
um hafi ekki verið eins og lög geri
ráð fyrir og sá vanbúnaður teldist
aðalorsök óhapps. Slíkt sé þó mjög
fátítt. Olafur kvaðst telja að áróður
gatnamálastjóra væri góðra gjalda
verður en þó væm forsendurnar um
sumt hæpnar. Réttara væri að betj-
ast fyrir auknum íjárveitingum til
gatnagerðar en að blása til atlögu
gegn nagladekkjum sem þrátt fyrir
ýmsa galla stuðluðu óneitanlega að
auknu öryggi vegfarenda. Olafur
kvaðst ekki telja rétt að slíta um-
ræðu um nagladekk úr samhengi
við umferðaröryggismál almennt.
Ef menn vildu fækka nagladekkj-
um, þyrfti jafnframt að reka harðan
áróður fyrir lægri umferðarhraða
og bættri umferðarmenningu. Hann
kvaðst ekki vera í vafa um að nagla-
dekkin yllu því að margur maðurinn
æki hraðar en ella og þá hraðar en
aðstæður leyfðu, þau stuðluðu að
falskri öryggistilfinningu „en kjarni
málsins er sá að því hægar sem þú
ferð, því minni öryggisbúnað
kemstu af með ,“ sagði Olafur
Bergsson.
• •
Oryg-g-issjónarmið
hafi forgang
Jónas Bjarnason framkvæmda-
stjóri FÍB kvaðst ekki trúaður á að
borgarstarfsmenn gætu saltað og
hreinsað götur svo ört að nagladekk
yrðu óþörf. Vissulega væru þær
skemmdir sem naglarnir yllu á göt-
unum áhyggjuefni en þeir væru
samt mikilvægur öryggisbúnaður í
vetrarakstri og það sjónarmið hlyti
að hafa forgang í málinu. Naglam-
ir hefðu þannig ekki einungis áhrif
á hemlunarvegalengd, þeir veittu
Nagladekk veita
falskt öryggi
- segir gatnamálastjóri
INGIÚ. Magnússon gatnamála-
stjóri segir það skoðun sína að
nagladekk séu óþarfur búnað-
ur fyrir þá ökumenn sem
sjaldan eða aldrei fari út fyrir
höfuðborgina. „Þau veita
falskt öryggi og gera það að
verkum að menn aka hraðar
en annars væri, hraðar en að-
stæður Ieyfa,“ sagði gatna-
málastjóri meðal annars í
samtali við Morgunblaðið.
„Það er sjálfsagt fyrir þá sem
mikið eru á ferðinni til dæmis á
milli Reykjavíkur og Keflavíkur
eða austur yfir fjall að nota nagla-
dekk en í borginni eru þau óþörf.“
Þá segir gatnamálastjóri að
reynslan sýni svo ekki verði um
villst að salt sé nauðsynlegt til að
halda umferðinni gangandi í
slæmri færð og að meira verði
saltað í vetur en undanfarin ár.
„Bætt verður við einum bíl sem
Hindrun séð
♦
km/klst.
60
Hemlun
Hraði ökutækis og stöðvunarvegalengd
með og án nagla
70 km/klst.
án nagla
65 km/klst.
án nagla
10 m ' 1 50
STÖÐVUNARVEGALENGD
90\^ 100 110 120
70 km/klst. MEÐ NÖGLUM
Á þessari mynd frá skrifstofu gatnamálastjóra sést hvert samband er milli ökuhraða, notkunar nagla-
dekkja og stöðvunarvegalengdar