Morgunblaðið - 20.09.1988, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
Tengiflugið til Reykjavíkur frá
áfangastöðum úti á landi er
innifalið í Saga Class far-
þess er tengiflug frítt til nokkurra
í Evrópu, aðallega í
Danmörku og Noregi.
FLUGLEIÐIR
-fyrfrþíg-
Skrifstofutæknir
Eitthvað
fyrir þig?
Nú er tækifærið til að mennta sig fyrir allt
er lýtur að skrifstofustörfum. Sérstök
áhersla er lögð á notkun PC-tölva. Námið
tekur þrjá mánuði. Námskeið þessi hafa
reynst mjög gagnleg fyrir skrifstofufólk og
þá er hyggja á skrifstofuvinnu.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, rit-
vinnsla, gagnagrunnur, töflureiknar og áætlunar-
gerð, tölvubókhald, toll- og verðútreikningar, almenn
skrifstofutækni, grunnatriði við stjórnun, útfylling
eyðublaða, verslunarreikningur, víxlar og verðbréf,
íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR
og geta að námi loknu tekið að sér rekstur tölva
við minni fyrirtæki.
Innritun og nánari upplýsingar
veittar í símum 687590 og 686790
Á skrifstofu Tölvufræðslunnar er hægt að fá bækl-
inga um námið, bæklingurinn er ennfremur sendur
í pósti til þeirra sem þess óska.
C3|
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir ALASTAIR MATHESON
Tsetse-flugan útbreiddari
í Afríku en nokkru sinni
MARGS konar aðferðum hefur verið beitt við að reyna að stemma
stign við skaðsemi tsetse-flugunnar í hitabeltislöndum Afríku,
en engar þeirra hafa borið árangur. í dag er flugan útbreiddari
í Afriku en nokkru sinni fyrr, og um 31 afbrigði hennar er orð-
ið ónæmt fyrir venjulegu skordýraeitri.
Sjúkdómurinn sem tsetse-flug-
an ber lýsir sér fyrst í áköfum
drunga. Síðar, þegar hann berst
í heilafrumumar og dregur þrótt
úr þeim, brotnar miðtaugakerfið
niður og dauði hlýst af.
Trypanosoma-sníkjusvipungur-
inn sem þessu veldur er jafnvel
enn þá torskildari en alnæmisveir-
an. Onæmiskerfí líkamans verkar
ekki á hann þar sem mótefnisvak-
ar (antigen) hans breyta sér örar
en vamarkerfí líkamans geta
framleitt ný mótefni. Þau lyf sem
nú eru notuð á síðari og lífshættu-
legri stigum sjúkdómsins eru svo
sterk að um leið og þau drepa
sníkjusvipungana drepa þau oft
einnig líkamsfrumur sjúklingsins.
í það minnsta 5% þeirra sem lyfin
taka deyja af völdum „lækningar-
innar“.
Um 50 milljónir manna í 36
Afríkulöndum eru berskjaldaðir
gagnvart þessum banvæna sjúk-
dómi. Arlega greinast 20.000 ný
tilfelli f Afríku.
Misheppnaðar tilraunir
Á sjötta áratugnum var hafízt
handa við að ryðja burt kjarr-
gróðri á stórum svæðum til að
útrýma þeirri skuggsæld sem
tsetse-flugunni er lífsnauðsyn.
Þetta voru aðgerðir sem Bretar
höfðu reynt í suðurhéruðum Tanz-
aníu eftir síðari heimsstyijöldina,
og var ætlunin að rækta jarð-
hnetur á kjarrsvæðunum. Sú
áætlun fór út um þúfur þar sem
jarðvegurinn þomaði upp og varð
óræktanlegur. Tsetse-flugan lifði
því af atlöguna.
Á sjöunda áratugnum hófst
umfangsmikil slátrun villtra dýra
á svæðunum allt ffá Uganda í
norðri suður til Zululands þegar
ljóst var orðið að þótt búfé væri
hætt við sýkingu af „nagana“-
sjúkdómnum frá biti tsetse-flug-
unnar, voru mörg villt dýr, ekki
sízt buffallinn, ónæm fyrir honum,
en gátu hins vegar smitað búfé.
Fjöldaslátrunin bar lítinn árangur.
Nú binda vísindamenn hins
vegar miklar vonir við að rann-
sóknir dýrafræðingsins Mary
Ogawa í Kenýa gætu reynzt
stærsta sporið sem stigið hefur
verið í 30 ára baráttu gegn flug-
unni. Ogawa komst að því að
tsetse-flugan laðast mjög að lykt-
inni af uppþomuðu þvagi buff-
alsins.
Lengi hefur verið vitað að
tsetse-flugur sveima oft í hópum
yfír kúamykju, og einnig í húsa-
kynnum Afríkubúa sem þekja
veggi og gólf híbýla sinna með
fljót-harðnandi mykju.
Mary Ogawa, sem ættuð er frá
ströndum Viktoríuvatns, þar sem
tsetse-flugan er á ný orðin plága
á síðari árum, komst að því í rann-
sóknum sínum hjá náttúrulífs-
stofnun Kenýa að tsetse-flugan
leggst á gný og buffal ekki síður
en nautgripi.
Hvað laðar að?
Hún fór að spyija sjálfa sig
hvað það væri sem laðaði fluguna
að þessum dýrum. Svo gerði hún
tilraunir með lyktina af loftinu
sem ýmis dýr anda frá sér, einnig
með saur dýranna og jafnvel með
vatnið sem þau höfðu baðað sig
úr.
Árið 1986 hafði hún komizt að
því að þvag buffalsins, sérstak-
lega ef það hafði legið um hríð í
jarðveginum, hafði ómótstæðilegt
er mikil breyting frá því fyrir 30
árum þegar vopnaðir verðir með
fíðrildaháfa gættu landamæra og
leituðu í bifreiðum að tsetse-
flugum sem stundum voru þar
óboðnir gestir.
Hið eina sem háir tsetse-flug-
unni er að hún getur ekki flogið
langar vegalengdir í mikilli sól.
Flugan vill skuggsæld, en þar sem
kjarrgróður er getur hún flogið
milli skuggabletta ef opnu svæðin
eru ekki of stór. Á svæðum þar
sem meira er af dýrum en bifreið-
Trypanosoma-sníkjusvipungar sjást á þessari mynd, sem er mikið
stækkuð, innan um rauð blóðkorn. Þeir berast með tsetse-flug-
unni og valda svefnsýki. Trypanosoma-sníkjusvipungurinn þykir
enn torskildari en alnæmisveiran og er ónæmiskerfi líkamans
um megn að ráða niðurlögum hans.
aðdráttarafl fyrir þessar flugur. Á
rannsóknarferðum um kjarri
vaxnar óbyggðir Masailands sá
hún hvemig tsetse-flugumar
þyrptust að bíl hennar þegar hún
var að flytja bufflaþvag.
Tilraunir með flugugildrur
sýndu að átta sinnum fleiri flugur
féllu fyrir freistingunni þegar
bufflaþvag var í boði en þegar
þvag nautgripa var notað.
í samvinnu við vísindamenn hjá
alþjóðastofnuninni ICIPE í Na-
irobi, sem vinnur að rannsóknum
á lífeðlisfræði skordýra, hafa
Ogawa og samstarfsmenn hennar
aðgreint þau efni sem eru í þvagi
bufflanna og reyna nú að vinna
gerviefni í skordýraeitur sem ekki
aðeins laðar fluguna að heldur
drepur hana einnig.
Vísindamaðurinn dr. Ahmed
Hassanali hjá ICIPE vinnur einnig
að blöndun ódýrrar tálbeitu fyrir
flugur — sem nefnd hefur verið
buffoline — úr sýnishomum sem
Ogawa safnaði í dýragriðlandinu
fræga hjá Nairobi.
Kostnaðurinn við aðrar bar-
áttuaðferðir gegn flugunni er að
verða flestum Afríkuríkjum of-
viða. Úðun eiturefna úr lofti og á
láði hefur verið beitt í áratugi án
verulegs árangurs. í Zimbabwe,
þar sem enn er notazt við úðun
úr lofti á flugnagerið í Zambesi-
dalnum, kom í ljós að þótt úðunin
geti svo til alveg útrýmt flugunum
um skeið, spretta þær upp á ný
í stórum hópum innan hálfs árs.
Þolir illa sólina
í Zimbabwe, eins og í Austur-
Afríku, em settar upp flugna-
gildrur úr þéttu neti sem gegn-
sýrt er með skordýraeitri. Þetta
um geturflugan „sníkt sér far“ —
til dæmis í skugganum á kviði
buffalsins — yfír opnu svæðin.
Ljósfælni flugunnar kemur sér
vel fyrir dýr með ljósa feldi, til
dæmis nautgripi af Boran-kyni í
Austur-Afríku. Flugan bítur frek-
ar svarta eða dökkbrúna naut-
gripi. í Vestur-Afríku eru tegund-
ir nautgripa eins og N’Dama-
ættstofninn sem eru ónæmar
gagnvart trypanosome-sníklinum,
en þessir gripir mjólka lítið og
kjötið er ekki mjög gott til mat-
ar. Nú er verið að gera tilraunir
með ræktun kynblendinga undan
N’Dama og harðgerðum tegund-
um eins og Boran, Sahiwel-kyni
frá Pakistan og nautgripum frá
Súdan.
250.000 létust
Þótt mönnum og skepnum stafí
enn hætta af sníklinum sem
tsetse-flugan ber tryggja nútíma
vamaraðgerðir að plágan getur
ekki aftur orðið jafn skæð og árið
1900 þegar 250.000 manns létust
úr svefnsýki (höfgasótt) í Bu-
soga-héraðinu í Uganda.
Baráttan beinist nú aðallega
að því að vemda gríðarmikla
nautgripastofna Afríku gegn sýk-
ingu. Áfurðir nautgripanna eru
helztu hvítugjafamir í fæðu ört
Qölgandi íbúa álfunnar, en dán-
artíðni gripanna er enn mjög há.
Ef unnt reyndist að nýta braut-
ryðjendastarf Mary Ogawa til að
útrýma tsetse-flugunni og sníklin-
um sem hún ber mætti ijölga
nautgripum í sveltandi Afríku um
100 milljónir dýra.
Höfundur er blaðamaður lyá
brezka blaðinu The Observer.