Morgunblaðið - 20.09.1988, Síða 33

Morgunblaðið - 20.09.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988 33 Stefán Valgeirsson: Ihuga framboð í öllum kjördæmum STEFÁN Valgeirsson, formaður og eini þingmaður Samtaka um jafinrétti og félagshyggju segist ekki hafa verið boðaður í stjómar- myndunarviðræður enn, en hann ræði nú við fólk um framboð Sam- takanna í að minnsta kosti fimm kjördæmum og hugsanlega öllum. „Ég tel eðlilegast að kosið verði sem allra fyrst, en það þarf þó að gera gera ráðstafanir til að halda þjóðfélaginu gangandi. Það er skylda hvers þingmanns að taka þátt í því ef menn eru þá ekki mjög ósáttir við það,“ sagði aðspurður um hvort hann vildi veita hugsan- legri sfjóm Framsóknar- og Al- þýðuflokks brautargengi. Stefán sagði að Halldór Ásgríms- son hefði boðað sig á fund þegar hann kom til Reykjavíkur í gær- morgun og kynnt honum efna- hagstillögur Framsóknar og krata. Þeir hefðu farið sameiginlega yfir tillögumar, en honum hefði ekki verið boðin þátttaka í stjómar- myndunarviðræðum á vegum þess- arra flokka. Hann hefði ekki stöðu til að breyta miklu og því ræddi hann nú við félaga sína um allt land um framboð í væntanlegum kosningum. " Morgunblaðið/Þorkell Frá viðræðufúndi fulltrúa Borgarflokksins og SjálMæðisflokksins á sunnudagskvöld. Friðrik Sophus- son og Birgir ísleifúr Gunnarsson ræða við Guðmund Ágústsson og Inga Björn Albertsson. Fulltrúar Borgaraflokks og Sjálfstæðisflokks ræðast við: Stoftiaði ekki Borgaraflokkiim til að koma hér á kommúnisma — segir Albert Guömundsson ALBERT Guðmundsson formað- ur Borgaraflokksins segist hafa tilkynnt forseta íslands í gær að sterkur samstarfsvilji væri nú milli Sjálfstæðisflokks og Borg- araflokks og ef til minnihluta- stjórnar kæmi hefðu þessir tveir flokkar fleiri þingmenn en Al- þýðuflokkur og Framsóknar- flokkur. Hann segir þó að einnig komi til greina að Borgaraflokk- urinn fari í stjórn með flokkum en það verði ekki sósialistisk vinstri stjóm. Albert og Þor- steinn Pálsson hittust á sunnu- daginn og ákváðu að fulltrúar flokkanna myndu ræða saman á grundvelli síðustu efnahag- stillagna Þorsteins Pálssonar f ríkisstjóminni sem sagði af sér á laugardag. Fyrsti fundurinn var á sunnudagskvöld og í gær hittust Þorsteinn Pálsson, Birgir ísleifúr Gunnarsson, Albert Guð- mundsson og Júlíus Sólnes í stjóraarráðinu. Albert Guðmundsson sagði um tildrög þessara viðræðna við Morg- unblaðið að sér hafí þótt þau um- mæli Ólafs Ragnars Grímssonar formanns Alþýðubandalagsins í fjölmiðlum sl. föstudag, að hægri- stefnan hefði borið afhroð og nú væri rétt að koma á sósíalisma, benda til þess að hann væri að boða hér kommúnisma í staðinn fyrir lýðræði. Albert sagðist því hafa lýst því yfír í sjónvarpsþætti á laugar- dagskvöld að Borgaraflokkurinn væri reiðubúinn að starfa með hveijum sem væri ef málefnagrund- völlur væri fyrir hendi og ekki síst Sjálfstæðisflokki. Eftir sjónvarpsviðtalið hafði Matthías Bjarnason samband við Albert Guðmundsson og við Morg- unblaðið sagði Albert að í því sam- tali hafí málin þróast þannig að Matthías hafi talið rétt að þeir Al- bert og Þorsteinn Pálsson ræddu málin. Friðrik Sophusson heimsótti Albert einnig um kvöldið og ræddi við hann og skýrði Þorsteini Páls- syni frá þeim viðræðum. Þorsteinn og Albert hittust siðan daginn eftir í Valhöll, húsi Sjálfstæðisflokksins og ákváðu að fulltrúar flokkanna myndu ræða saman. Um kvöldið hittust Friðrik Sophusson og Birgir Isleifur Gunnarsson fyrir hönd Sjálfstæðisflokks og Guðmundur Agústsson og Ingi Bjöm Albertsson fyrir hönd Borgaraflokks og ræddu saman í tvo klukkutíma. Albert Guðmundsson og Júlíus Sólnes áttu á meðan viðræður við Steingrím Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Friðrik Sophusson sagði við Morgunblaðið að á fundinum á sunnudagskvöld hefðu tillögur Þor- steins Pálssonar, sem lagðar voru fram í ríkisstjóm sL laugardag, verið lagðar fram og skýrðar út. Friðrik sagði um viðræðumar að verið væri að reyna að finna út hvar samkomulagsfletimir séu og hvað þurfí að gera svo flokkamir geti náð saman. „Ég held að allir flokkamir hljóti að gera sér grein fyrir að verið er að leita að meirihlutastjóm og ef það tekst ekki er verið að leita að minnihlutastjóm sem hefur traust eða stuðning meirihluta þingsins. Ef það tekst ekki heldur verður ein- hver að sitja í stjóm til að byija með. Ef að það gerðist erum við með 25 þingmenn samanlagt sem era fleiri en Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur. Þannig að það er ekkert sjálfgefíð að Alþýðuflokk- ur og Framsóknarflokkur fái til sín valdið eins og mér virðist að þeir hafí ætlað sér, án þess að þeir hafi annan flokk með sér,“ sagði Friðrik Sophusson. Albert Guðmundsson sagði að hann hefði í gær látið forseta ís- lands vita, af gefíiu tilefni, að möguleiki væri á minnihlutastjóm Borgaraflokks og Sjálfstæðisflokks. „Ég var búinn að lesa einhversstað- ar ummæli formanna Alþýðuflokks og Framsóknarflokks að komi til minnihlutastjómar væra þessir flokkar stærsta blokkin og því ættu þeir tveir að fá heimild fyrir mynd- un slíkrar stjómar. Ég benti forseta á það að það væri sterkur sam- starfsvilji milli Sjálfstæðisflokks og Borgaraflokks og sá minnihluti væri stærri en hinn,“ sagði Albert. Þingflokkur Borgaraflokksins ræddi á fundi I gær þær tillögur sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram og einnig sameiginlegar eftiahagstillögur Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Albert sagði aðspurður að til greina kæmi að Borgaraflokkurinn tæki þátt f meirihlutastjóm, með til dæmis Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki eða Framsóknarflokki, eða fjögurra flokka stjóm með Alþýðuflokki, Frámsóknarflokki og Alþýðubanda- lagi. „Ég óskaði eftir því að Steingrímur Hermannsson ræddi síðast við okkur; að hann ræddi fyrst við Alþýðubandalagið og reyndi að ná samkomulagi þar. Og ef það tekst og dömumar era ekki tilbúnar í stjóm 'er aldrei að vita hvað við geram." —En í Ijósi þeirra ummæla Ólafs Ragnars, sem þú segir hafa verið kveikjuna að viðræðum Sjálfstæðis- flokks og Borgaraflokks, getur Borgaraflokkurinn tekið þátt í stjóm með Alþýðubandalaginu? „Ekki til að mynda hér einhveija sósialistiska vinstri stjóm. Það kemur ekki til mála. Ég stofnaði ekki Borgarflokkinn til að koma hér á kommúnisma," sagði Albert Guð- mundsson. Matarskatturinn verulegnr þröskuldur Aðspurður um hvemig túlka ætti viðræður fulltrúa Borgaraflokks og Sjálfstæðisflokks, og hvort líta megi svo á að Þorsteinn Pálsson og Sjálfstæðisflokkurinn hafí með þeim viðurkennt Borgaraflokkinn, sagði Albert að slíkt værj ekki rétt. „Við Þorsteinn erum báðir í trúnað- arstöðu, hvor í sínum flokki, og við höfum enga heimild til þess að láta það sem gerst hefur í fortíðinni eyðileggja framtíðina. Við eram báðir reiðubúnir til þess að menn frá okkur setjist niður og reyni að ná málefnalegu samkomulagi." —Er það skilyrði fyrir málefna- grandvelli þessara flokka að matar- skatturinn verði lækkaður? „Nei. En tillaga forsætisráðherra um lækkun matarskattsins gerði það að verkum að Sjálfstæðisflokk- urinn færðist mun nær okkur og opnaði svo sannarlega möguleika á samstarfi því við eram sama sinnis og alltaf áður að matarskatturinn hefði aldrei átt að koma á.“ —Er það þá skilyrði Borgara- flokksins í stjómarmyndunarvið- ræðunum við Alþýðuflokk og Fram- sóknarflokk að þessi skattur verði lækkaður? „Ég hef sagt þeim báðum að þetta væri eitt af okkar skilyrðum til sljómarmyndunarviðraeðum. Þeir era ekki reiðbúnir til að afnema matarskattinn þannig að það er mjög erfiður þröskuldur. —Teldir þú eðlilegt að minni- hlutastjóm þessara flokka yrði und- ir forastu Sjálfstæðisflokksins og Þorsteins Pálssonar? „Ég veit ekki til þess að það hafi orðið forastuskipti í Sjálfstasð- isflokknum. Borgaraflokkurinn kemur ekki til með að skipta sér af því hvem Sjálfstæðisflokkur hefði í forastu. Við geram engar athugasemdir við þá forastu sem aðrir flokkar kjósa sér.“ —Kæmi jafnvel til greina að þess- ir flokkar sameinuðust? Nei, ég sé enga möguleika á því á þessu stigi," sagði Albert Guð- mundsson. o INNLENT Skoðannakönnun SKÁIS og Stöðvar 2: Yfírgnæfandi meirihluti vill ekki vinstri stjórn í SKODANNAKÖNNUN sem SKÁÍS gerði fyrir Stöð 2 á sunnu- dag kemur fram að yfírgnæfiandi meirihluta aðspurðra, eða 64,2%, list illa á meirihlutastjórn Fram- sóknarflokks, Alþýðuflokks og tveggja annara flokka. 35,8% að- spurðra Ust vel á slika stjóm. Starfsstjóm: Ráðherrar geta unn- ið sömu embættisverk HVORKI í stjómarskrá né lögum eru ákvæði um valdmörk starfs- stjóma og hefur skapast hefð fyrir því að ráðherrar í þeim geti fram- kvæmt sömu embættisverk og áður en þeim var veitt lausn. Starfs- stjómir hafa setið misjafnlega lengi. Um áramótin 1979/80 dróst það til 8. febrúar 1980 að mynduð væri stjóm en kosningar fóra fram 2. og 3. desember 1979 og sat þá minnihlutastjóm Alþýðuflokksins við völd sem starfsstjóm í rúma 2 mánuði. Eftir kosningar 1987 sat ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar sem starfsstjóm frá 28. apríl til 8. júlí. Þótt ráðherrar geti gegnt emb- ættisstörfum með sama hætti og áður en þeim var veitt lausn, hefur starfsstjóm ekki á bak við sig þing- meirihluta og þar skortir venjulega pólitíska samstöðu t.d. um efna- hagsaðgerðir. í könnuninni var einnig spurt hvenær menn vildu kosningar. I ljós kom að 39,3% aðspurðra vildu kosn- ingar strax, 9% fyrir áramót og 12,8% í vor. 38,8% gáfu annað svar. Ef fylgi flokkanna er skoðað sam- kvæmt niðurstöðum þessarar könn- unar kemur í ljós að Framsóknar- flokkurinn og Kvennalistinn bæta við sig fylgi en aðrir flokkar tapa. Samkvæmt könnuninni fengi Al- þýðuflokkur nú 13,5% atkvæða, FVamsóknarflokkur 22,6% atkvæða, Sjálfstæðisflokkur 25,6% atkvæða, Alþýðubandalag 10,8% atkvæða, Kvennalisti 21,3% atkvæða og Borg- arflokkur 3,5% atkvæða. Stefán Valgeirsson félli út af þingi miðað við niðurstöður könnunarinnar. AUs voru 630 spurðir um flokkana og tóku 370 eða 41,1% ekki afstöðu. Sami fjöldi var spurður hinna spuminganna og tóku 96,5% afstöðu til hvenær þeir vildu kosningar og 78,1% svöraðu spumingunni um meirihlutastjóm Framsóknar- og Alþýðuflokks ásamt tveimur öðram flokkum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.