Morgunblaðið - 20.09.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
Sovétríkin:
Mótmæli við kjam
orkuver í Litháen
Neftid á vegum SÞ ræðir
við andófsmenn á Kúbu
Havana. Reuter.
NEFND á vegum Sameinuðu þjóðanna ræddi við félaga í óopinberum
mannréttindasamtökum á laugardag við upphaf fyrsta yfiriits sem
gert er um stöðu mannréttindamála á Kúbu, að sögn taismanns
Sameinuðu þjóðanna. Tiu daga heimsókn sex manna nefndar hófst
á föstudag undir forsæti fuiltrúa Senegals, Aliounes Senes, sem jafn-
framt er formaður mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna i
Genf.
Moskvu. Reuter.
NOKKUR þúsund manns mynd-
uðu keðju með þvi að haldast i
hendur fyrir utan Ignalina-
kjamorkuverið í Sovétlýðveldinu
Litháen á laugardag, að sögn
sovésku fréttastofunnar TASS.
Verinu var að hluta lokað í þess-
um mánuði eftir að eldur braust
út í þvi en kjarnaofnar þess
inunu vera af sömu gerð og
kjamorkuversins f Tsjeraobyi
þar sem versta kjamorkuslys
sögunnar varð f apríl 1986.
TASS sagði að fólkið hefði kom-
ið frá öllum hlutum Sovétlýðveldis-
ins og sænska útvarpið hafði eftir
heimildarmönnum í höfuðborg
landsins, Vilnu, að §öldi þátttak-
enda hefði verið á milli 50 og 100
þúsund. Fulltrúi hreyfingar, sem
segist beijast fyrir umbótastefnu
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga, hafði
sagt fréttamönnum Reutersfynr
síðustu helgi að mótmæli væru fyr-
irhuguð enda þótt yfirvöld hefðu
lagt bann við þeim. í fréttum TASS
var ekki minnst á slíkt bann og
skýrt frá því að stjómendur versins
hefðu boðið fólkinu að skoða það.
Ignalina-kjamorkuverið er eitt
af þeim stærstu í Sovétríkjunum
en kjamaofnar þess, tveir að tölu,
hafa maigoft bilað síðan verið var
tekið f notkun árið 1983. í síðasta
mánuði var tilkynnt að byggingu
þriðja kjamaofnsins hefði verið
Bretland:
Líkklæðið
frá Tór-
ínó falsað
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðarí
Frímannfwyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
LÍKKLÆÐIÐ frá Tórinó, sem
talið hefur verið líkklæði Krísts,
er fölsun frá miðöldum, að því
er segir í Tbe Sunday Times
síðastliðinn sunnudag.
Nýlega vom þtjú sýni úr
líkklæðinu aldursgreind í þremur
rannsóknastofum, í Arizona í
Bandaríkjunum, í Zurich í Sviss
og i Oxford á Englandi. Blaðið
segir, að aldursgreiningunum hafi
borið vel saman. Það sé frá síðmið-
öldum, frá árabilinu 1000-1500.
Nánar getur blaðið ekki greint frá
aldri klæðisins, en segir, að Páfa-
stóll muni greina frá niðurstöðun-
um í smáatriðum í næsta mánuði.
í Markúsarguðspjalli er sagt frá
því, að Jósef frá Arimaþeu hafi
farið til Pílaíusar og beðið um
líkama Krists að kvöldi krossfest-
ingardagsins og fengið. Síðan seg-
ir (15,46): „Og hann keypti
línklæði, tók hann ofan og sveipaði
hann línklæðinu og lagði hann í
gröf, er höggvin var út í kletti, og
velti steini fyrir dyr grafarinnar."
Síðan heyrðist ekkert af líkklæð-
inu fyrr en um 1350, þegar Geof-
frey de Chamy uppgötvaði það.
Frá þeim tíma hefur helgi klæðis-
ins sífellt aukist.
Það var vitað fyrir fram, að sú
aðferð, sem beitt var við aldurs-
greininguna nú, gæti ekki sýnt,
að þetta væri líkklæði Krists. Hefði
klaéðið verið frá fyrstu öld eftir
Krist, hefði ekki verið hægt að
útiloka, að það væri af öðmm
krossfestum mönnum á þeim tfma.
En hún gat hins vegar sýnt, að
klæðið væri ekki frá tíma Krists,
svo að skeikar einni öld til eða
frá. Og nú hefur sú niðurstaða
fengist.
frestað eftir að sérfræðingar hefðu
varað við mögulegum hönnunar-
göllum.
Sænskar gervi-
hnattamyndir:
Eldflauga-
skotpallar í
Saudí-Arabíu
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKIR geimvísindamenn
birtu í gær gervihnattamyndir,
sem þeir sögðu sýna leynilega
eldflaugaskotpalla I Saudí-
Arabíu. Talið er að þar séu í
skotstöðu kínverskar eldflaugar,
sem hæft geta hvaða skotmark
sem er í Miðausturlöndum. Skot-
pallarnir eru við As Sulayyil-
vinina tæpa 500 km suðvestur
af Ryadh, höfuðborg Saudf-
Arabíu.
Saudf-Arabar staðfestu í mars
sl. að þeir hefðu keypt talsverðan
fjölda meðaldrægra eldflauga af
gerðinni CSS-2, en þær draga allt
að 3.200 km og geta m.a. borið
kjamaodda. Þær fregnir voru
Bandaríkjamönnum og ísraelum
síst að skapi og töldu bandarísk
sljómvöld að með þessu hefðu þeir
farið á bak við sig.
Bandaríkjamenn hafa undanfarin
ár selt Saudum mikinn vopnabúnað,
en kaupin á hinum kfnversku flaug-
um voru leynileg og má fullvfst telja
að Bandarfkjamenn hefðu sett
vopnasölu til Saudí-Arabíu meiri
skorður ef þeim hefði verið kunnugt
um þau. Það hefði þó varla haft
mikil áhrif því Bretar og Frakkar
vilja gjaman auka vopnasölu til
Arabiuskaga.
Sjálfskipuð mannréttindanefnd á
Kúbu, sem gamalreyndur andófs-
maður, Ricardo Bofill, veitir for-
stöðu, hafði áður afhent á skrif-
stofu Sameinuðu þjóðanna á Kúbu
110 síðna skýrslu um meint mann-
réttindabrot, einkum takmarkanir á
ijáningarfrelsi, ferðafrelsi og trú-
frelsi.
Nefndin hitti einnig að máli full-
trúa sameiningarráðs kirlcjunnar á
Kúbu.
Á bílastæði fyrir utan hótelið þar
sem viðræðumar fóm fram, biðu
20 manns sem vonuðust til að ná
tali af starfsmönnum Sameinuðu
þjóðanna. Þeir kváðust ekki hafa
mælt sér mót við þá en vonuðust
samt eftir tækifæri til að koma
málum sínum á framfæri. Lögregl-
an hafði ekki afskipti af hópnum
en útvegaði viðstöddum stóla.
Roger Hans-Moevi, talsmaður
nefndarinnar, sagði að aðgangur
að upplýsingum um viðræður þær
sem fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
ætla' að eiga við einstaklinga, kú-
banska ráðherra og fulltrúa stjóm-
mála— og grasrótarhreyfinga yrði
öllum fijáls.
Hans-Moevi, sem er aðstoðarfor-
stjóri upplýsingadeildar Sameinuðu
þjóðanna í Genf, sagði blaðamönn-
um að nefiidarformaðurinn Sene
héldi blaðamannafund í lok heim-
sóknarinnar. Hann lagði áherslu á
að sérfræðingamir frá Sameinuðu
þjóðunum væru komnir til að fylgj-
ast með og tók þar með undir með
kúbönsku ríkisstjóminni sem hefur
lagt þunga áherslu á að þeir væru
ekki „rannsóknaraðilar".
„Við komum til að fylgjast með
stöðu mannréttindamála. Við við-
höfum engar sérstakar starfsað-
ferðir, við emm hér til að fylgjast
með öllu því sem okkur er sýnt og
við ætlum að hitta alla þá sem hafa
með mannréttindamál að gera,"
sagði hann f viðtali við Reuter.
Kúbu hefur oftlega verið hall-
mælt af hinum vestræna heimi,
einkum af Bandaríkjastjóm, fyrir
meint mannréttindabrot. Þar með
er talið langt varðhald pólitískra
fanga og gerræðislegar handtökur.
Stjómarerindrekar á Kúbu segja
að ríkisstjóm kommúnista hafí fyrst
fallist óháða rannsókn eftir að
ályktun Bandaríkjanna á mannrétt-
indafundi Sameinuðu þjóðanna
1987 sem var afar andstæð Kúbu,
var felld með naumindum.
„Kúbönsk yfirvöld hafa greini-
lega látið undan alþjóðlegum þrýst-
ingi,“ sagði Vestur-Evrópskur er-
indreki. „Breytingar sem hér hafa
átt sér stað undanfama mánuði,
pólitískum föngum sem hefur verið
sleppt úr haldi og bættar aðstæður
í fangelsum era greinilega annað
og meira en bætt ásýnd, en kú-
bönskum yfirvöldum var þröngvað
til þessara breytinga."
Hópurinn frá Sameinuðu þjóðun-
um birtir niðurstöður athugana
sinna á næsta þingi mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna f febr-
úar.
Á sunnudag ætlaði hópurinn að
ferðast til Eyju Ungdómsins úti
fyrir ströndum Suður-Kúbu. Þar
hugðust þeir heimsækja 31 „bylt-
ingarskóla" fyrir nemendur þriðja
heimsins, sem þar era starfræktir
og era gæluverkefni kúbönsku bylt-
ingarinnar.
„Við megum ekki eingöngu líta
á neikvæðar hliðar Kúbu heldur
einnig jákvæðar afleiðingar bylting-
arinnar," sagði Hans-Moevi.
Var andstaðan við frið-
samlega sambúð kveikj-
an að falli Khrústsjovs?
Moskvu. Reuter.
ÍTARLEG frásögn af því þegar Níkita Khrústsjov var steypt af
stóli árið 1964 hefiir verið birt opinberlega i Sovétríkjunum í
fyrsta sinn. Segir höfundur greinarinnar, kunnur stjóramálafræð-
ingur, að fyrrum yfirmaður KGB, sovésku öryggislögreglunnar,
og þáverandi yfirmaður hennar ásamt nokkrum mönnum öðrum
hafi lagt á ráðin um valdaránið.
Fjodor Búrlatskíj, sem sæti átti
í framkvæmdaráði kommúnista-
flokksins á þessum tfma, segir í
greininni, sem birtist í vikuritinu
Líteratúmaja Gazeta, að höfuð-
paurinn í samsærinu gegn
Khrústsjov hafi verið Alexander
Shelepín og hafi það vakað fyrir
honum að koma aJftur á stalínísk-
um stjómarháttum. Hefðu sam-
særismennimir verið vanir að
koma saman f hinum ólíklegustu
stöðum og „ósjaldan á knatt-
spymuleikvöngum þar sem þeir
réðu ráðum sínum". Þá hafi Vlad-
imír Semítsjastníj, þáverandi jrfir-
maður KGB, sem Shelepín hafði
mælt með í stöðuna, verið látinn
sjá um að skipta um menn f ein-
kalífverði Khrústsjovs.
Er verið að vara
Gorbatsjov við?
Búrlatskíj er í flokki með þeim
frjálslyndu menntamönnum, sem
styðja Míkhaíl Gorbatsjov, leið-
toga Sovétríkjanna, með ráðum
og dáð, en ekki er Ijóst hvort
hann sé með greininni um leið að
mæla vamaðarorðum til Gor-
batsjovs.
Eftir valdaránið tók Leoníd
Brezhnev við leiðtogaembættinu
og segir Búrlatskíj, að þá hafi
Shelepín, sem var yfirmaður KGB
á áranum 1958-61, lagt á borðið
fyrir hann áætlun um „aukinn
aga“ og endurreisn Stalíns og
yfirlýsingu um endalok stefnunn-
ar um friðsamlega sambúð. Sov-
éskir menntamenn segja, að sams
konar kröfur séu nú á kreiki með-
al þeirra, sem andstæðir era Gorb-
atsjov.
Rússar almennt og vestrænir
sovétfræðingar hafa löngum talið,
að Míkhaíl Súslov, sem lengi var
hugmyndafræði ngur kommúni-
staflokksins, og Brezhnev sjálfur
hafi staðið fyrir aðförinni að
Khrústsjov en Búrlatskíj segir, að
Shelepín, sem þó átti frama sinn
Khrústsjov að þakka, hafí verið
upphafsmaðurinn og fengið hina
í lið með sér.
Afdrifarík ræða
í greininni segir, að einn at-
burður öðram fremur hafi ráðið
mestu um samblásturinn gegn
Khrústsjov: Ræða, sem Alexei
Adzhúbei, tengdasonur
Khrústsjovs og þáverandi ritstjóri
stjómarmálgagnsins, Ízvestíu,
flutti í Vestur-Berlín. Þar sagði
hann, að hugsanlega gætu Vest-
ur- og Austur-Þýskaland samein-
ast.
„Leiðtogar Austur-Þýskalands
reiddust þessu ákaflega og þetta
var neistinn,' sem kveikti bálið,“
segir Búrlatskíj.
Búrlatskíj segir, að Shelepfn
hafi ekki farið leynt með, að hann
liti á Brezhnev sem bráðabirgða-
leiðtoga og ætlaði sjálfum sér
embættið í fyllingu tímans. 1966
var hann gerður að fullgildum
félaga f framkvæmdanefnd
flokksins en ári síðar, þegar það
þótti orðið einum of ljóst að hveiju
hann stefndi, var hann skipaður
formaður sovéska alþýðusam-
bandsins. Er það algjörlega valda-
laust embætti. A sama tíma var
Semítsjastníj vikið frá sem yfir-
manni KGB og Shelepín var loks-
ins rekinn úr framkvæmdanefnd-
inni þegjandi og hljóðalaust í apríl
árið 1975. Var hann þá gerður
að varaformanni í starfsþjálfunar-
nefnd ríkisins en sagt er, að hann
hafi aldrei komið nærri því starfí
og síðan horfið sjónum.