Morgunblaðið - 20.09.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
41
Reykjalundur með al-
menningshlaup fyrír alla
REYKJALUNDARHLAUPIÐ '88
verður haldið laugardaginn 24.
september. Hér er um nýjan við-
burð að ræða, almenningshlaup
sem Reykjalundur gengst fyrir i
samvinnu við SÍBS.
Að Reykjalundi er rekin umfangs-
mesta endurhæfingastarfsemi hér
á landi og það er því stefnt að því
FLOKKUR mannsins hefur sent
forseta íslands frú Vigdísi Finn-
bogadóttur skeyti og skorað á
hana að rjúfa þing og skipa utan-
þingsstjórn þar til kosningar hafa
farið fram.
Skeytið er svohljóðandi: í tilefni
af því alvarlega ástandi sem nú hef-
ur skapast í þjóðfélaginu vegna
stjórnarslita, skorum við á yður for-
seti íslands að gera þegar í stað
eftirfarandi ráðstafanir til að koma
í veg fyrir upplausnarástand í
landinu:
1. Að ijúfa þing og efna til kosn-
inga umsvifalaust.
2. Skipa utanþingsstjóm þar til
kosningar hafa farið fram. I þeirri
stjóm verða að sitja fulltrúar verka-
lýðshreyfingarinnar, atvinnurek-
enda, kvenna, ungs fólks, bænda og
sjómanna til að ná samstöðu um þær
aðgerðir sem nauðsynlegar eru.
Að fela leiðtoga einhvers þing-
flokks umboð til stjómarmyndunar
sem myndi fara einhverskonar milli-
færsluleið með meðfylgjandi lqara-
skerðingu, myndi samkvæmt yfírlýs-
ingum verkalýðsforustunnar leiða til
allsheijarverkfalls og upplausnar.
að sem flestir geti tekið þátt í hlaup-
inu. Það verður reyndar ekki bara
hlaupið heldur er einnig boðið upp
á gönguleiðir og fólk í hjólastólum
og með önnur hjálpartæki er boðið
velkomið. Reykjalundarhlaupinu er
ætlað að höfða til sem flestra, fatl-
aðra sem ófatlaðra, keppnisfólks
sem skemmtiskokkara.
Þér hafið nú framtíð okkar lands-
manna í höndum yðar og við treyst-
um því að þér munið ekki bregðast
trausti þjóðarinnar á þessari örlaga-
stundu.
38. ÞING Sambands ungra
jafhaðarmanna var haldið í
Keflavík um helgina. Þar var
Birgir Araason, liagfræðingur,
kosinn nýr formaður sambands-
ins. í stj órnmálaályktun, sem
samþykkt var á þinginu, er farið
hörðum orðum um Sjálfstæðis-
Fjórar vegalengdir eru í boði fyr-
ir væntanlega þátttakendur. Sú
lengsta er 13 km, skemmtilegur
hlaupahringur sem liggur eftir
Hafravatnsvegi og Vesturlandsvegi
kringum Úlfarsfell. Þá verður einn-
ig hægt að skokka eða ganga 3 km
langan hring í nágrenni Reykja-
lundar og aðrir geta valið að fara
tvo þannig hringi og ljúka því við
6 km. Loks er að nefna einu leiðina
sem er öll á malbiki. Það er 2 km
leið sem gæti t.d. hentað fólki í
hjólastólum og með önnur hjálpar-
tæki.
Hlaupið hefst kl. 11 og fá þátt-
takendur boli til að hlaupa í og
rásnúmer. Boðið verður upp á léttar
veitingar að Reykjalundi eftir að
trimminu lýkur og þar verða veitt
verðlaun, ekki þó fyrir fyrstu sæti
heldur verða dregin út vegleg og
skemmtileg verðlaun en það er sið-
ur sem er vinsæll erlendis þar sem
almenningshlaup eru í hávegum
höfð.
Þeir sem áhuga hafa á að vera
flokk og Framsóknarflokk. í
ályktuninni segir að draumurinn
um viðreisn hafí verið tálsýn.
Sjálfstæðisflokkurinn sé „í upp-
lausn vegna innbyrðis sundur-
þykkju og hagsmunahópa og for-
ystuleysis". Framsóknarflokkur-
inn er sagður „málsvari rótgró-
inna hagsmunahópa í þjóðfélag-
inu og þröskuldur á vegi gagn-
gerrar uppstokkunar á ýmsum
sviðum".
Hér fer á eftir stjómmálaályktun
38. þings Sambands ungra jafnað-
armanna:
„Miklir óvissutímar era nú í
íslenskum stjómmálum. Þorsteinn
Pálsson hefur beðist Iausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Lítil eftirsjá
er í þeirri ríkisstjóm. Eftir rúmlega
árs setu var hún þrotin að kröftum.
Henni var orðið um megn að takast
á við aðsteðjandi efnahagsvanda
sem þó er síst meiri nú en endra-
nær. Að nokkra endurspeglaði þetta
getuleysi grandvallarágreining milli
Alþýðuflokks, Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks um afstöðuna
til þjóðmála en ekki síður sundur-
þykkju og foiystuleysi f stærsta
stjómarflokknum.
Þorsteinn Pálsson kórónaði sína
forsætisráðherratíð með því að
leggja fram öllum að óvöram tillögu
um aðgerðir í efnahagsmálum sem
miðaði að því að koma höggi á
Alþýðuflokkinn og ráðherra hans.
38. þing SUJ lýsir fullum stuðningi
við þá ákvörðun Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, að draga flokkinn út úr
stjómarsamstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn. Þing SUJ getur auðvitað
ekki tekið afstöðu til þeirra kosta
sem forystumenn flokksins standa
nú frammi fyrir en leggur ríka
áherslu á að þeir hviki ekki frá
grandvallaratriðum í stefnu Al-
þýðuflokksins. Millifærsla ásamt
verð- og launastöðvun geta aldrei
verið nema bráðabirgðalausn við
erfiðar aðstæður. Kosningar geta
því verið á næsta leiti. A slíkum
tímamótum sem þessum er brýnt
að jafnaðarmenn dragi rétta lær-
dóma af þátttöku Alþýðuflokksins
í ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar og
endurmeti stöðu sína í fslenskum
stjómmálum og afstöðu til sam-
með og blanda saman hreyfíngu og
útivera laugardaginn 24. september
geta tilkynnt þátttöku á virkum
dögum frá kl. 8 til 16. Þar verða
einnig veittar nánarí upplýsingar.
Þátttökugjald er kr. 400,- en í
því er innifalinn bolur svo og veit-
ingar að Reykjalundi. Væntanlegir
starfs við aðra flokka.
Jafnaðarmenn bundu miklar von-
ir við síðustu kosningar. Þeir gengu
til þeirra með nýja og nútímalega
stefnu sem byggðist á auknu fijáls-
ræði og meiri markaðsbúskap í at-
vinnulífi og á öflugra velferðarkerfi
fyrir fólkið í landinu. í aðdraganda
kosninganna boðuðu frammámenn
Alþýðuflokksins að mynduð skyldi
ný viðreisnarstjóm að þeim loknum.
Viðreisnarstjómin var á sínum tíma
mikil framfarastjóm einkum á sviði
efnahagsmála. Hún afnam haftabú-
skap og millifærslukerfi fimmta og
sjötta áratugarins og innleiddi
ftjálsræði f viðskiptaháttum hér á
landi. Það var því ekki að ástæðu-
iausu að margir talsmenn Alþýðu-
flokksins vildu á ný bindast samtök-
um við borgaralega Sjálfstæðis-
menn til þess að hrinda á stað nýju
umbótaskeiði í íslenskum efnahags-
málum. Úrslit kosninganna á
síðasta ári ollu vissulega vonbrigð-
um. Samsteypustjóm Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks virtist eini raunhæfi stjómar-
myndunarkosturinn þótt ekki væri
hann árennilegur enda höfðu fram-
bjóðendur Alþýðuflokksins haldið
því fram með gildum rökum í kosn-
ingabaráttunni að tímabært væri
orðið að þjóðin gæfi Framsóknar-
flokknum frí frá landsstjóminni.
Alþýðuflokkurinn hefur farið illa
út úr þátttöku f ríkisstjóm þessara
þriggja flokka síðustu misseri. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum hefur
flokkurinn misst um þriðjung þess
fylgis sem hann hlaut í síðustu
kosningum. Að hluta stafar þetta
fylgistap flokksins af því að ráð-
herrar hans urðu iðulega einir til
þess að veija nauðsynlegar en óvin-
sælar ráðstafanir í efnahagsmálum
á sama tíma og ráðherrar Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
ýmist létu sem þeim kæmu ráðstaf-
animar ekki við eða lýstu beinlínis
jrfir andstöðu við þær.
En fylgistapið má einnig relq'a
til þess að forystumenn Alþýðu-
flokksins hefur borið af réttri leið
í málflutningi. Þeir hafa haldið fram
markaðshyggju í efnahagsmálum á
kostnað ýmissa grandvallarþátta
jafnaðarstefnunnar. Þá er ljóst að
dómur almennings á verkum ráð-
þátttakendur geta náð í boli sína
og rásnúmer á föstudaginn.
23. sept. frá kl. 8 til 18 eða á hlaup-
deginum sjálfum. Allir þátttakend-
ur era beðnir um að mæta tíman-
lega að Reykjalundi á laugardags-
morgun, að minnsta kosti hálftíma
fyrir hlaup.
herra Alþýðuflokksins í ríkisstjóm-
inni væri á margan hátt á annan
veg ef foiysta flokksins hefði haft
nánara samráð við almenna flokks-
félaga áður en ákvarðanir vora
teknar um viðkvæm mál.
Samstarfíð við Sjálfstæðisflokk-
urinn í ríkisstjóm Þorsteins Páls-
sonar hefur leitt í ljós að draumur-
inn um nýja viðreisnarstjóm var
tálsýn. Sjálfstæðisflokkurinn er í
upplausn vegna innbyrðis sundur-
þykkju hagsmunahópa og almenns
forystuleysis og verður tæpast sam-
starfshæfur um langa hríð. Við-
reisnardraumurinn verður ekki end-
urvakinn í bráð. Þrátt fyrir þíðu og
aukið trúnaðartraust milli forystu-
manna Alþýðuflokks og Framsókn-
arflokks þá má ekki gleyma að enn
er gjá á milli þessara flokka um
ýmis grandvallaratriði. Framsókn-
arflokkurinn er málsvari rótgróinna
hagsmunahópa í þjóðfélagi og
þröskuldur á vegi gagngerrar upp-
stokkunar á ýmsum sviðum.
Við þessar aðstæður verður Al-
þýðuflokkurinn að endurskoða
áherslur í stefnu sinni. Þorri íslend-
inga getur sameinast um jafnaðar-
stefnu sem byggir á hugsjónum um
frelsi, jafnrétti og bræðralag. Mark:
aðurinn á sinn sess í þeirri jafnaðar-
stefnu en skipar þar ekki hásæti.
Þótt jafnaðarstefnan höfði til meiri-
hluta íslendinga virðist Alþýðu-
flokkurinn ekki njóta stuðnings
nema 10—15% þjóðarinnar um
þessar mundir. Á þessu þarf að
verða breyting eigi að vera von til
þess að jafnaðarstefnan verði
ríkjandi hugmyndafræði í íslensk-
um stjómmálum.
Markmið íslenskra jafnaðar-
manna hlýtur að vera að ná með
stjómmálabaráttu tökum á ríkis-
valdinu og beita því til þess að jafna
aðstöðumun og lífskjör. Þetta tekst
ekki nema stjómmálasamtök jafn-
aðarmanna eflist til muna frá því
sem nú er. Eins og nú horfir er
vænlegasta leiðin til að hefja jafn-
aðarstefnuna til vegs og virðingar
hér á landi að laða önnur félags-
hyggjuöfl í landinu til samstarfs og
fylgis við Alþýðuflokkinn. í því ligg-
ur leið flokksins til varanlegra
áhrifa í íslenskum þjóðmálum.
Þannig era mestar líkur á því að
jafnaðarstefnan setgi mark sitt á
íslenskt þjóðfélag framtíðarinnar."
Fiskverö á uppboösmörkuöum 19. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verö verð verð (lestir) verðfkr.)
Þorskur 51,50 40,00 44,41 85,995 3.819.636
Ýsa 87,00 25,00 68,64 4,044 277.577
Ufsi 25,00 21,00 23,15 0,991 22.950
Karfi 32,50 24,00 25,74 12,089 311.230
Steinbítur 38,00 38,00 38,00 0,211 8.014
Keila 17,00 17,00 17,00 1,060 18.029
Háfur 12,00 12,00 12,00 0,090 1.080
Langa 32,00 24,00 28,26 0,487 13.762
Lúða 225,00 125,00 190,54 0,971 185.015
Skötubörð 150,00 150,00 150,00 0,007 1.125
Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,077 3.080
Undirmál 21,00 21,00 21,00 2,500 52.500
Koli 46,00 30,00 45,31 0,618 27.989
Samtals 43,45 109,141 4.741.989
Selt var aðallega ur Víði HF, Hamrasvani SH, Stakkavík ÁR og
Fróða SH. I dag verður m.a. selt ófram úr Vlði HF, um 20 tonn
af karfa, 15 tonn af þorski, 6 tonn af ufsa og 5 tonn af öðrum fiski.
FAXAMARKAÐUR hf. i Reykjavík
Þorskur
Ýsa 81,00 68,00 74,39 3,896 289.818
Þorskur 43,00 38,00 41,37 8,282 342.631
Skarkoli 45,00 45,00 45,00 0,008 360
Samtals 51,93 12,186 632.809
Selt var úr ýmsum bátum. I dag verður selt ur ýmsum netabát-
um.
FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA hf.
Ýsa 45,00 45,00 45,00 0,956 43.020
Karfi 26,50 26,50 26,50 2,203 58.380
Samtals
Selt var úr Bjarnarey VE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 45,50 33,00 41 ,33 1,166 48.189
Ýsa 86,50 45,00 73,49 1,665 122.397
Ufsi 26,00 26,60 25,98 4,494 116.777
Karfi 31,00 20,00 30,48 10,394 316.780
Hlýri og Steinbítur 27,00 24,00 25,50 2,049 52.250
Hlýri 20,00 20,00 20,00 0,102 2.040
Blálanga 29,50 29,60 29,50 1,196 35.282
Keila 10,00 10,00 10,00 0,034 340
Sólkoli 40,00 40,00 40,00 0,042 1.680
Skarkoli 46,00 41,00 46,17 0,162 7.317
Lúða 130,00 65,00 98,47 0,059 5.810
Sandkoli 10,00 10,00 10,00 0,038 380
Öfugkjafta 16,00 16,00 16,00 0,291 4.656
Grálúöa 13,00 13,00 13,00 0,232 3.016
Keila og bland Samtals 15,00 15,00 15,00 32,44 0,329 22,254 4.944 721.858
Selt var aðallega úr Bergvik KE og Reyni GK. ( dag verður selt
úr ýmsum bótum.
Flokkur mannsins:
Skorað á forseta
að rjúfa þing'
38. þing Sambands ungra ja&iaðarmanna:
Viðreisnarstjórn tálsýn vegna
sundurþykkju í Sjálfetæðisflokki
Framsóknarflokkur málsvari hagsmunahópa