Morgunblaðið - 20.09.1988, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
Spásögn Hermanns Jónassonar
eftir Pétur Pétursson
Það fór ekki fram hjá þeim sem
horfðu á sjónvarpskvikmynd, er
sýnd var sl. laugardagskvöld, að
bandarískir ijölmiðlar vekja nú á
því athygli með margvíslegum
hætti, að Island er ein helsta her-
stöð þeirra í veröldinni, og nefna
þeir landið í kvikmynd sinni til jafns
við GUAM, eyju á Kyrrahafi, þar
sem lengi hefir verið ein öflugasta
herstöð veraldar og fræg er fyrir
ofsafengin átök og blóðuga bardaga
í síðustu heimsstyijöld. Myndin,
't sem til er vitnað, fjallaði um njósna-
starfsemi CIA, bandarísku leyni-
þjónustunar og skuggalegra starfs-
bræðra í systursamtökum laun-
helga og leynipukurs, KGB, sam-
bærilegri stofnun Sovétmanna.
Nýlega varð heljarmikill hvellur
og taugatitrandi umræður um
áhrifamikinn íslenskan stjómmála-
foringja, sem nefndur var í sömu
andrá og CIA og leyniþjónustu-
menn. Deilt var um hvort hann
kynni að hafa átt viðræður við
sendimann CIA. Fréttamenn út-
varps voru teknir á hvalbeinið og
bomir þungum sökum. Öllum, sem
um málið fjölluðu, sást þó yfir
kjama þess. Leyniþjónusta Banda-
ríkjanna, CLA, bandaríski Herinn og
flotinn, höfðu fengið framgengt
nær öllu, nema herstöð í Fossvogi,
af því sem þeir báðu um í upphafi
er Bandaríkjamenn þverskölluðust
við að uppfylla skýlaus samnings-
ákvæði og verða á brott með her
sinn frá Islandi að lokinni heims-
styrjöld árið 1945.
Umræða um sekt eða sakleysi
einstakra stjómmálamanna er
tengdust norsku fréttinni, sem
þrætan snerist um, var því gjörsam-
lega út í hött og naumast umræðu-
verð frá þeirri hlið. Það sem máli
skipti var sú staðreynd að ísland
var ánetjað Bandaríkjunum með
þeim hætti sem sendimenn CIA
höfðu helst kosið sér. Bandaríski
herinn, stjómvöld og leyniþjónustu-
menn höfðu fengið því framgengt
er þeir sóttust eftir. Að tryggja
stöðu sína og bækistöðvar um ófyr-
irsjáaniega framtíð.
Með moldvörpustarfi, fjáraustri,
dulbúnum hótunum um viðskipta-
þvinganir, og síðast en ekki síst,
fúsum, fijálsum og feginsamlegum
vilja íslenskra manna, tókst að
tryggja bækistöðvar, ættjörð,
vatnsból, viðlegu, mannvirki og
vinnukraft, allt í þjónustu hemaðar-
hyggju.
Bjóða íslendinga sem stafnbúa
og framverði í nýja herför á norður-
slóð. Spásögn Hermanns Jónasson-
ar um fánýti fyrirvara hervemdar-
samningsins hafði ræst. Hermann
Jónasson var forsætisráðherra árið
1956 er tímaritið Nýtt Helgafell
spurði nokkra stjómmálaforingja
um afstöðu þeirra til herstöðvamála
og vem Bandaríkjamanna á ís-
landi. Hermann sagði þá:
Áður en við gengum í Atlants-
hafsbandalagið 1949, sendi Alþingi
þtjá ráðherra til Bandaríkjanna til
þess að tryggja óvefengjanlega að
„draga mörk í samvinnu og skuld-
bindingum", ef við gerðumst þátt-
takendur í Atlantshafsbandalaginu.
Þessir þrír íslensku ráðherrar
áttu þijá viðræðufundi vestra, með-
al annars við utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Að loknum þessum
fundum var lýst yfir, að við íslend-
ingar mundum því aðeins ganga í
Atlantshafsbandalagið, að gengið
væri að eftirfarandi ófrávíkjanleg-
um skilyrðum:
Að við hefðum sjálfir engan her.
Að við réðum því algerlega sjálf-
ir, hvort við leyfðum erlendum her
að dveljast í landinu.
Að við mundum aldrei leyfa her
að dveljast í landinu á friðartímum.
Samkvæmt skýrslu er ráðherr-
amir gáfu Alþingi og ríkisstjórn-
Pétur Pétursson
„Púkar þeirra á Qós-
bitanum sem fítnað
hafa af þjónustu sinni
með vöruflutningi og
ýmsum umsvifum
leggja nú lokasjóð sinn
og hagnað af svifurn
sínum í hverskyns fyr-
irtæki meðan bjargræð-
isvegir hanga á horrim
eða leggja upp laupa.“
inni, lýsti utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna yfir því, að hann fyrir hönd
bandalagsþjóðanna gengi að öllum
þessum skilyrðum. - Og á þeim
grundvelli gerði Alþingi ályktun
sína um þátttöku íslands í banda-
laginu.
Þegar við Islendingar gerðum,
árið 1951, samning um, að her
SIEMENS
VHS myndbandstæki
FM 560
Lárétt stjórnborð, HQ-
tækni, 14daga upptöku-
minni f. 4 þætti, 32 stöðva
minni, sjálfvirkur stöðva-
leitari, hraðupptaka,
myndleit í báðar áttir á
níföldum hraða, endur-
tekning myndskeiðs,
þráðlausfjarstýring, raka-
vörnásamt öðru.
Verð 31.900.-
Sjónvarpsmyndavél
FA108
Myndavél og sýningarvél
í einu tæki, fyrirferðarlítil
og aðeins 1,27 kg. 8 mm
myndband, CCD-mynd-
skynjari, sexföld súmlinsa,
sjálfvirk skerpustilling,
mesti lokarahraði 1 /1500
sek. (gott f. íþróttaupptök-
ur)o. m.fl.
Verð 82.990.-
SMÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
kæmi hingað frá Bandaríkjunum
vegna ótta við yfirvofandi árás og
heimsstyijöld, var uppsagnarfrest-
urinn samkvæmt 7. gr. settur svo
stuttur sem raun ber vitni, til þess
að við gætum verið vissir um að
geta tryggt okkur, að herinn færi
héðan með stuttum fyrirvara, ef
friðvænlegra yrði í heiminum. Var
þetta í samræmi við þau skilyrði,
sem áður greinir og við settum, er
við gengum í Atlantshafsbandalag-
ið. Það virðist því ekkert á það
skorta af hálfu íslendinga „að
draga mörkin". Það atriði er ljóst.
„Mörkin" eru þessi: Við stöndum
með nábúum okkar og við munum
leyfa þeim að hafa hér her í styij-
öld, eða vegna yfirvofandi árásar -
en ekki á friðartímum.
En það vill henda, að þjóðir, sem
við er samið, vilja fara yfir „mörk-
in“, þótt skýr séu. Af þessu stafar
okkurekki veruleg hætta, nema það
ólán hendi, að íslenskir menn taki
upp baráttu með erlendum öflum
móti rétti íslendinga og málstað.
Bandaríkjastjóm, herforingjar
hennar og íslenskir sveinar fara nú
hamförum með öllum stórvirkustu
vélum sem kostur er á að efla her-
stöðvar og hemaðarmannvirki um
landið þvert og endilagt.
Púkar þeirra á fjósbitanum sem
fitnað hafa af þjónustu sinni með
vöruflutningi og ýmsum umsvifum
leggja nú lokasjóð sinn og hagnað
af svifum sínum í hverskyns fyrir-
tæki meðan bjargræðisvegir hanga
á horrim eða leggja upp laupa.
Jafnframt þessu eru íslensk lög
fótumtroðin og hvergi virt ef það
þykir henta hemaðarósómanum.
Starfsmenn utanríkisráðuneytis og
vamarmála koma af fjöllum ef þeir
eru spurðir um íslensk landsréttindi
og skjöl þeim viðvíkjandi. Sendi-
herrar íslands erlendis virðast,
sumir hvetjir, og nefndarmenn
ýmsir, telja sitt helsta hlutverk að
syngja primobassa í hemaðarkant-
ötu NATO. Á meðan örmagnast
íslenskir bjargræðisvegir, beitiland
blæs upp, bændur flosna frá búum
og bölmóður leggst yfir landið.
Það er umhugsunarefni fyrir þá
sem stóðu Hermanni Jónassyni
nærri, og eiga þess nú kost að lesa
ummæli hans, hver afstaða þeirra
er til orða hans. Hvort þeir ætla
að fylla þann flokk og eiga aðild
að því óláni „að íslenskir menn taki
upp baráttu með erlendum öflum
móti rétti íslendinga og málstað."
Höfundur er þulur.
(Kuppershusth) HEIMILISTÆKI
Eigum mikiö úrval af þessum glæsilegu heimilistækjum.
Eldavélar breidd 50 cm., helluborö, ofnar, gashelluborö o.fl.
KUPPERSBUSCH er Vestur-þýsk gæðavara.
Okkar verö em hagstæö - Mjög góö greiðslukjör.
Gæðavörur í þína þágu.
Ut i jý h n.
Lækjargötu 22, Hafnarfirði, s. 50022
Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri VISA, afhendir Sigurði R.
Gíslasyni, jarðfræðingi, 100.000 korthafa VISA, kort hans ásamt
ávísun á 100.000 kr. ferðaúttekt. Auk þeirra eru á myndinni Óskar
Hallgrímsson, markaðsstjóri og Margrét Ólafsdóttir, deildarstjóri
kortadeildar VISA.
100.000 korthafi VISA
í SÍÐASTA mánuði voru rétt 5
ár liðin síðan VISA ísland hóf
starfsemi og greiðslukortanotk-
un varð almenn hér á landi. Síðan
hefúr korthöfiun fjölgað jafiit
og þétt, þeir voru 7.500 í árslok
1983,27.500 í árslok 1984,46.000
í árslok 1985, 66.000 í árslok
1986 og 88.000 í árslok 1987.
Nú hefur 100.000 VISA-kortið
verið gefið út. Kom það í hendur
Sigurði R. Gíslasyni, jarðfræðingi,
starfsmanni Raunvísindastofnunar
Háskóla íslands.
Af þessu tilefni ákvað stjóm
VISA Islands — Greiðslumiðlunar
hf. að veita þessum 100 þúsundasta
viðskiptamanni fyrirtækisins ferð-
aúttekt að eigin vali, að samsvar-
andi fjárhæð, eða 100.000 krónur.
Var Sigurði afhent kortið og
glaðningurinn í hófi sem VISA hélt
ólympíuförum íslands 1988 í Við-
eyjarstofu, mánudaginn 5. septem-
ber sl.
(Fréttatilkynning)