Morgunblaðið - 20.09.1988, Side 53

Morgunblaðið - 20.09.1988, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988 58- Aldarminning: María Bergvins- dóttir — Húsabakka Fædd 20. september 1888 Dáin 29. nóvember 1977 Mig langar í nokkrum orðum að minnast ömmu minnar, Maríu Bergvinsdóttur, en í dag eru 100 ár liðin frá fæðingu hennar, hún fæddist í Húsabakka í Aðaldal þann 20. september 1888, en fluttist tæplega 5 ára í Brekku í sömu sveit með foreldrum sínum, Elínborgu Jónsdóttur og Bergvini Þórðarsjmi og ólst þar upp ásamt systkinum sínum, sem voru Karl, Hólmfríður Guðrún, Karólína Hansína, Jónína, Jón, Rósa Emilía og Hörður, þau eru öll látin. Amma fór snemma að vinna, stuttu eftir fermingu var hún á Grenjaðarstað í 2 ár hjá séra Benedikt Kristjánssyni, fór svo í Syðra-Fjall og var þar á fímmta ár, var svo í Garði einhvem tíma, þar kynntist hún afa mínum, Ing- ólfi Indriðasyni frá Skriðuseli, hann var sonur hjónanna Dýrleifar Guð- mundsdóttur og Indriða Kristjáns- sonar. Amma og afí giftu sig í Neskirkju 2. júlí 1911, byijuðu bú- skap í Skriðuseli og vom þar í fjög- ur ár, fóm þaðan í Tjöm og bjuggu þar í ellefu ár, fluttu svo í Húsa- bakka og bjuggu þar ætíð síðan eða í 42 árþartil afí lést 18. maí 1968. Þau eignuðust 9 böm, eitt misstu þau nýfætt 1924. Hin em: Bergvin Karl, fæddur 1912, kvæntur Elínu Þórólfsdóttur þau em búsett á Húsavík; Indíana Dýrleif, - fædd 1915, hún var gift Kjartani Stefáns- syni hann lést 1968, sambýlismaður hennar er Sigfús Þór Baldvinsson þau em búsett á Húsavík; Sigrún, fædd 1918, hún var gift Haraldi Magnússyni, hann lést 1985, hún býr í Kelfavík; Steingrímur, faeddur 1920, kvæntur Helgu Jóhannes- dóttur, þau em búsett í Reykjavík; Helgi, fæddur 1923, kvæntur Sig- urbjörgu Hallgrímsdóttur, þau búa í Húsabakka; Elín Guðrún, fædd 1925, gift Ingibergi Jónssyni, þau em búsett í Keflavík; Jónína, fædd 1927, gift Henning Kjartanssyni, þau em búsett í Keflavík; yngst er Anna Þuríður, fædd 1932, gift Sig- . mundi Ámundasyni, þau era búsett Sigríður Einars- dóttir - Minning Okkur systkinin langar í fáum orðum að kveðja ömmu, Sigríði Einarsdóttur. Amma bjó í rúm 20 ár á hæðinni fýrir ofan okkur í Skaftahlíðinni og urðu samskipti okkar því meiri en gengur og gerist. Minningamar um þessa sterku og tígulegu konu, gangandi um bæinn í íslenska búningnum, hverfa seint úr minni. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin áríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hijóta skalt. (Vald. Briem.) Blessuð veri minning ömmu okk- ar. Beuný, Þóra, Birna og Þórður. Hann öllum er heimi Ijós og líf og leiðtoginn villtra bezti, í nauðunum ömgg hann er hlíf, þótt hjálpina manna bresti, hann Israel, þínum eignarlýð, er yndið og heiður mesti. (Luther - sb.1589 - H. Hálfd.) Guð blessi minningu góðrar ömmu. Barnabörn, bamabarnabörn og bamabarnabarnaböm. Nú héðan á burt í fríði’ eg fer, ó, faðir að vilja þínum, í hug er mér rótt og hjartað er af harminum læknað sínum. Sem hézt þú mér, Drottinn, hægan blund ég hlýt nú I dauða mínum. Því veldur hinn sæli sonur þinn, er sála mín heitast þráði, þú sýndir mér hann, ó, Herra minn, af hjarta þíns líknarráði, í líf og deyð mig huggar hann, þá huggun ég bezta þáði, Þú hefur hann auglýst öllum lýð af ástríkri föðurmildi, til þess honum lúti veröld víð og verða hans erfð hún skyldi, að ljósið hans orða lýsi blítt' um löndin öll, náð þín vildi. Mér andlátsfregn að eyrum berst, ég stari út í bláinn og hugsa um það sem hefur gerst til hjarta mér sú fregnin skerst hún móðir mín er dáin. Hve vildi ég móðir minnast þín, en má þó sitja hljóður, mér finnst sem tungan fyötrist mín, mér finnst hver hugsun minnkast sín því allt er minnar móður. Ég veit þú heim er horfin nú og hafín þrautir yfir svo mæt og góð, svo trygg og trú svo látlaus, falslaus reyndist þú, ég veit þú látin lifir. (Móðir min - Steinn Sigurðsson). Blessuð sé minning hennar. Dætur og tengdaböm. á Selfossi. Öll eiga þau afkomendur sem em orðnir 107 talsins og héldu þau ættarmót í sumar til að minn- ast 100 ára afmælis ömmu. Var það mjög fjölmennt og má geta þess að tíu nöfnur hennar vom þar samankomnar. Amma vann mikið bæði heima og að heiman, mörg haust var hún í sláturhúsi sem var vestur í Kinn á Ófeigsstöðum, oft fór hún vestur í Ófeigsstaði og Rangá og var í nokkra daga í einu. Þótti henni sérstaklega vænt um fólkið þar. Hún var ein af stofnend- um kvenfélags Nessóknar og starf- aði mikið þar, og var hún heiðurs- félagi í félaginu og alltaf var hún með pijónana sína með sér. Ég var svo lánsöm og við systkinin að al- ast upp með ömmu og afa á heimil- inu. Þau kenndu okkur að lesa, sögðu okkur sögur, fóm með vísur og sálma og sungu með okkur og ýmislegt var gert, ekki síst í rökkrinu, og pijónamir gengu á meðan og marga sokkana og vettl- ingana fengum við. Þetta var og er ógleymanlegur tími. Amma var alltaf mjög heilsuhraust. Síðustu árin var hún á Selfossi hjá Þuríði dóttur sinni en alltaf kom hún norð- • ur á hveiju vori og var fram á haust, hún hélt mikilli tiyggð við sína sveit og hugurinn var alltaf fyrir norðan. Hún lést á sjúkrahús- inu á Selfossi 29. nóvember 1977, eftir stutta legu þar, og var jarð- sett í Nesi við hlið afa 10. desember. Ég minnist elsku ömmu og afa með virðingu og þökk fyrir allt, minningin um þau mun ávallt lifa. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. 5 Kristjana Helgadóttir 9.800 rf stgr. Þú færð hvergi meira fyrir peningana Fyrirferðarlítil og falleg Ijósritunarvél með öllum búnaði til fullkominnar Ijósritunar 1. 12 afrit á mínútu 2. Fasturvagn <5>^ 3. Tekurvenjulegan pappír 4. TekurB4pappír 5. Hlaðin aðframan 6. Vegur aðeins 27 kg SKRIFSTOFUVELAR H.F. \ Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.