Morgunblaðið - 20.09.1988, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
Sabine Poupinel þykir ein af athyglisverðari ungum, dönskum hönnð-
um. Hallast að einföldum fötum og stilhreinum. Pilsið rósótt, sem er i
uppáhaldi hjá fleiri hönnuðum.
Bitte er ekki sist þekkt fyrir prjónaföt og sýnir hér nokkuð fjörlegan
sumarfatnað, en svona munsturóreiða þykir vis vegur til að sýna fylgi-
spekt við tiskustrauma.
Spáð í sumartískuna
næsta sumar
Innan fataframleiðslunnar er næsti vetur þegar lið-
inn í aldanna skaut og komið vor, sumar og haust...
- litast um á fatasýningunni í Bella Center
Úti á Amakri við Kaupmanna- höfn liggur ekki aðeins flugvöllur
inn og Háskólinn, heldur einnig risastór sýningarhöll, þar sem ýmsar
kunnar vörusýningar eru haldnar með reglulegu millibili. Ein slík
er nýlega afstaðin undir heitinu Future Fashions Scandinavia, heljar-
skinns mikil fatasýning, haldin dagana 25.-28. ágúst. Þarna sýndu
1.200 aðilar framleiðslu sína, mest föt, en einnig skartgripi, töskur,
skó og hálsklúta, auk fatabúðainnréttinga, plastpoka og jafnvel strau-
véla. Danskir framleiðendur voru auðvitað áberandi, en annars sýndu
þarna aðilar frá Sviþjóð, Noregi og Finnlandi, Evrópulöndum eins
og Þýskalandi, Frakklandi og Italíu og svo frá Bandaríkjunum og
Kanada, rétt til að nefna einhver nöfn. Portúgal var i öndvegi á
sýningunni, sérstök kynning á fatnaði þaðan.
Venjulegir fatanotendur eru rétt
að huga að haust- og vetrarfatnaði
sínum um þessar mundir. Á sýning-
unni í Bella Center var næsti vetur
hins vegar liðinn í aldanna skaut og
komið vor og sumar og haustið að
ári. Þama er sumsé verið að sýna
föt, sem birtast í búðunum að liðnum
vetri. Og þá er að huga að hvað þar
verður að fá. Blaðamenn fengu í
hendur möppur með úttekt á
tízkunni, eftir þeim linum, sem lagð-
ar voru á sýningunni. Eins gott, því
eftir að hafa gengið um sýninguna
lengi dags, var nokkuð erfitt að sjá
ákveðnar línur í því, sem hékk þar
uppi, því þama er hátískan ekki í
öndvegi, ekki öfgafull stertiföt, held-
ur venjuleg föt handa venjulegu
fólki, sem er annt um að hylja nekt
sína á sómasamlegan og skynsam-
legan hátt. Inn á milli svokölluð
smart föt.. .
Þrjár megin tískulínur
Línumar, sem voru lagðar í kynn-
ingu sýningarinnar, eru þijár. Þær
kallast plantekrutískan, sígaunatísk-
an og glanstískan, sú fágaða. Kven-
fötin eru kvenleg, karlmannafötin
karlmannleg, ýmist _ sportleg eða
svolítið sparileg. Áframhaldandi
ensk áhrif, afturhvarf til enska
heimsveldistímans, hvað sem þjóð-
félagsfræðingar vilja svo lesa úr
því. Varla hægt að tala um neina
byltingu, því hver vill hana? ... held-
ur hægfara framhald á því, sem
hefur mátt sjá undanfarið. Sumar-
fötin frá því í ár virðast þvi ekki
aðeins gjaldgeng næsta sumar hjá
þeim, sem láta sig tískusveiflur litlu
skipta, heldur líka hjá þeim sem vilja
fylgja tískustraumnum.
Fataframleiðendur gleyma heldur
ekki bömunum, enda eru bamaföt
blómleg grein fataframleiðslunnar.
Þar enduróma áðumefndar stefnur,
en þó er sportlega línan mest áber-
andi. Það nægði að ganga um bama-
fatarekkana til gera sér grein fyrir
hvað yrði helst að sjá (bamafatabúð-
unum næsta sumar. Eftir því að
dæma verður mest um bamaföt í
neonlitum, mikið af hvítum fötum
með neonlituðu mynztri, áfram
mynztur sem eru eins og lituð fljót-
fæmislega á efnið eða minna á
teiknisögustíl. Hjólabretti og rúllu-
skautar eru nýjasta hjartansmál
bama, auðvitað rándýr fyrirbæri í
sinni fullkomnustu mynd. Fötin við
þessi íþróttatæki eru á ofangreindri
línu og af því að hjólabretti og hjóla-
skautar eru ættaðir frá Bandaríkjun-
um, þá er fatafyrirmyndanna gjam-
an leitað þangað. Og svo áfram-
haldandi bómullargallar, gallaefnis-
föt og allt það.
Víkjum þá aðeins að fullorðins-
fötunum og þá kvenfatnaðinum
fyrst. Plantekrulínan felur í sér safa-
riföt og sportföt, að sögn heldur
kvenlegri en áður, ekki eins miklir
axlapúðar og áður og jafnvel öldung-
is engir. Buxur með fellingum, víðar
stuttbuxur i stað stuttra pilsa,
bermúdabuxur í öllum útgáfum og
víðar síðbuxur, gjaman með uppá-
broti. Víðar síðbuxur mjög áberandi
segja þeir með spádómsgáfuna, aðal
stællinn. Efnin hör og bómull, litim-
ir daufír, sandlitir eins og svolítið
upplitaðir í hitabeltissólinni. Karl-
mennimir í svipuðum fötum, bara
stærri, víðari og karlmannlegri, með
hálstaui gjaman. Bermúdabuxur
mjög áberandi (þar sem viðrar fyrir
þær!).
Fágaða línan hefur á sér ríkuleg-
an blæ. Kjólar úr léttum, glæsilegum
efnum, bómull, silki, hör, organsa.
Mjög kvenlegir. Skyrtublússukjólar
vinsælir eins og undanfarin mörg,
mörg ár. Karlmennimir í stökum
jökkum, blazeijökkum, kannski við
hörbuxur, nokkuð vfðar og með fell-
ingum undir strenginn. Umfram allt
með þægilegu, víðu sniði og karl-
mennimir, sem sitja fyrir á myndun-
um, eða gengu um í þessum fötum,
litu út eins og þeir þyrftu ekki að
hafa áhyggjur af neinu öðru en að
fötin færu þeim vel. Engar pen-
Og hér er enn portúgalskur sum-
arfatnaður á ferð. Mr. Wonderful
hallar sér hér upp að máðri súlu
og sér ómeðvitaður um að
bermúdabuxur eigi misvel við
staðhætti. Skórnir hinsvegar ættu
að gagnast vel á norðlægum slóð-
um.
Þessi klæðnaður fellur vist undir
fáguðu línuna. Aðskorinn jakki
með hóflegum axlapúðum og svo
víðar, felldar buxur með uppá-
broti. Þessi klæðnaður er frá
Pitava, dönsku fyrirtæki.
ingaátiyggjur, þó hörbuxur séu rán-
dýrar og jakkamir sömuleiðis. Hér
springa ensku hejmsveldisáhrifín út,
þó þeirra gæti annars óvíða utan
tískuheimsins.
Nýja Postulakirkjan
eftir Hákon
Jóhannesson
Eftirfarandi grein fjallar um og
útskýrir frelsunarstarf Guðs í
gegnum Postula nútímans í Nýju
Postulakirkjunni.
Þð er einlæg von okkar að
greinin muni snerta hjarta ykkar
og hvetja ykkur til þess að leita
frekari fræðslu um þetta stórkost-
lega starf. Guðsþjónustur eru
haldnar á sunnudögum kl. 11.00
og á fímmtudagskvöldum kl. 20.00
á Háaleitisbraut 58—60 (Miðbær).
Himneskur virkur líkami
Eftirfarandi grein opinberar
Nýju Postulakirkjuna sem himn-
eskan virkan líkama sem er undir
sýnilegu höfði, Höfuðpostula.
Postulamir, erindrekar Krists, eru
virkir í umboði sínu að bjóða
samtímamönnum sinum þátttöku
í fyrri upprisunni. í fyrri upp-
risunni uppfyllir Kristur það loforð
sem hann gaf sínum eigin að koma
aftur og taka þá til sín (2. Korintu-
bréfið 5.20, Jóhannes 14.3).
Jesús Kristur valdi Postula
til að halda áfram
starfí sínu
Jesús Kristur var sendur til jarð-
ar af föður sínum til þess að fram-
kvæma í umboði Hans stórkostlegt
starf.
Hann kom að ofan til þess að
sigrast á syndinni og til þess að
brúa þann hræðilega aðskilnað
sem syndin hafði myndað milli
Guðs og mannsins.
„Nýja Postulakirkjan
er hið endurreista
frelsisstarf og áfram-
hald af hinni fyrstu
Postullegn kristnu
kirkju.“
Jesús hafði safnað saman læri-
sveinum sem voru viljugir að fylgja
honurn og taka þátt í þessu stór-
kostlega málefni.
Dag einn kallaði Jesús læri-
sveina sína saman. Hann valdi úr
hópi þeirra tólf sem hann nefndi
Postula (Lúkas 6.13). Postuli
merkir sendiherra eða erindreki.
Postuli ér sá sem er sendur. Postu-
li er sá sem fær vald í hendur.
Páll Postuli sagði um handhafa
Hákon Jóhannesson
Postulaembættisins: Vér erum því
erindrekar Krists, eins og það
væri Guð, sem áminnti, þegar við
áminnum. Vér biðjum í Krists stað:
Látið sættast við Guð (2. Korintu-
bréfið 5.20).
Til þess að gefa kirkju sinni
sýnilegt höfuð á jörðu gerði Jesús
Pétur að höfuðpostula. Hann gerði
hann að klettinum og gaf honum
lykla himnaríkis með valdi til að
binda og leysa á jörðu og himni.
Páll Postuli sagði: Fagnaðarer-
indið sem ég hef boðað er ekki
mannaverk. Það er kraftur Guðs
til hjálpræðis hveijum þeim sem
trúir (Galatabréfið 1.11, Róm-
veijabréfið 1.16).
Embættisverk þeirra var ekki
eingöngu bundið við prédikun
orðsins og útskýringu ritninganna
heldur einnig við útdeilingu náðar-
meðalanna eða sakramentanna
sem Jesús hafði veitt þeim umboð
til.
Þeir skírðu með vatni, fyrir-
gáfú syndir og útdeildu heilagri
kvöldmáltíð, og með orðum
sínum og handayfírlagningu
úthlutuðu heilögum anda (Kó-