Morgunblaðið - 20.09.1988, Page 59
88er sraaNrcma?. os HUOAain.cníi<í .aiaAjaviuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988
82
59
Horft til baka aftur
á hippatimann
Um þessar mundir eru um tuttugu
ár liðin frá því farið var að tala um
hippa og hippaföt. Sígaunalínan tek-
ur mið af þessu afmæli og í þeirri
línu ku birtast áhrif frá hippa-
tískuimi. Þeir, sem eiga enn fotin
sín frá þeim tíma, geta þó ekki endi-
lega orðið tískulegir, með því að
draga þau fram, því sígaunalínan
er ögn fágaðri en hippafötin voru á
sínum tíma. Mexíkönsk og spönsk
mynstur, mynstur á mjmstur ofan,
að ógleymdum gallaefnisfötum. Allt
hljómar þetta nokkuð kunnuglega.
Og hvað þá með pilssíddina, sem
hefur lengi verið tískudrósum kær-
komið umhugsunarefni. Allar síddir
sjást, líkt og undanfarið. Róm-
antísku yfirbragði fylgja gjaman síð,
víð pils, felld eða rykkt. Fáguðu
línunni fylgja pils og kjólar um hnén
eða rétt ofan við hnén. Knallstutt
pils sáust síður. En síddin er ekki
aðeins til umhugsunar þegar pils og
kjólar eru annars vegar. Buxur eru
áberandi og þær í öllum síddum og
víddum. í Danmörku hafa hjólabux-
ur verið mjög vinsælar í sumar.
Níðþröngar buxur úr teygjuefni og
ná niður að hnjám, buxur eins og
atvinnumenn í hjólreiðum klæðast.
Oftast eru þessar buxur svartar, en
neonlitir sjást líka á þeim. Og svo
Bermúdabuxur, víðar og síðar bux-
ur, buxur felldar í mittið og þröngar
niður, reiðbuxur. Yfirleitt allar teg-
undir af buxum.
Sundfatnaður virðist verða svip-
aður næsta sumar og í ár. Skæru
litimir þó ef til vili ekki alveg eins
áberandi. Sundbolir með háskomum
buxum, bikinibuxur sömuleiðis há-
skomar, svokallað tangasnið, en
liklega meira um bijóstahaldara við
buxumar. Bolir og buxur virtust
sjaldséðari samstæður, líklega vegna
þess að konur á norðlægum slóðum
vilja gjaman sóla sem stærstan hluta
líkamans, skyldi maður halda.
Stórir og klossaðir skartgripir
hafa undanfarin ár verið nokkurs
konar vöramerki danskra kvenna,
sem á annað borð hugsa um stæl-
legt útlit. Margir danskir hönnuðir
hafa lagt sig eftir þessum skartgrip-
um, framleitt þá í tonnatali og einn-
ig flutt þá út með góðum árangri.
Þessara skartgripa gætti mjög á
sýningunni. Skartgripir úr tré og
beini vora mjög áberandi, stórar
festar, stórir eymalokkar og gildir
armhringir. Oft ættaðir frá Afrfku
eða í þeim stíl. Og allt fer þetta eink-
ar vel við þau sportlegu föt, sem
hefur verið mikið af og verður áfram,
ef marka má áðumefnda sýningu.
En sem meðhengi við glæsilínuna
fyrmefndu, þá er einnig af nógu að
taka í formi alls kyns perlufesta,
gull- og silfurlits glingurs og sumt
býsna skondið. Vínbeijaklasar, kög-
urbrúskar, mynt, glerperlur og
slaufur. Slíkt má víst kallast með
kvenlegum blæ ...
Portúgölsk föt hafa sér
til ágætis nokkuð
Eins og áður sagði, var portú-
galskur fataiðnaður kynntur sér-
Portúgalskur sumarfatnaður með itölskum blæ. Hörblússa og -pils, slétt-
ur hör i blússunni, en krumpaður i pilsinu. Mjúkir jarðlitir i þessum
fatnaði frá fyrirtækinu Nomade, sem sýndi einföld en skemmtileg föt.
Glæsileg, olíuborin regnkápa frá
Fermoy í Cork á írlandi er óháð
tíma, en aðeins háð rigningunni,
sem er ámóta kunnuglegt fyrir-
bærí á íríandi og íslandi.
staklega á sýningunni. Portúgal
hlýtur að teljast spennandi viðskipta-
land, því verðlag þar er með því
lægsta sem gerist i Evrópu. Fötin
þaðan vora sýnd á sérstakri tísku-
sýningu og ekki hægt að segja ann-
að en að þar væri margt fallegt að
sjá. Við nánari athugun og spjall við
nokkra sölumannanna kom í ljós,
að þeir hafa farið mjög i smiðju til
frænda sinna ítalanna, sem hafa
gert það einkar gott í tískubransan-
um. Sum portúgölsku fyrirtækin
hafa fengið ítalska hönnuði til iiðs
við sig, eða náð sér í fólk, menntað
á Ítalíu. Önnur fyrirtæki notuðu auk
þess ítölsk fataefni og það verður
ekki af þeim skafið að þau era býsna
falleg. Italir hafa þetta gríðarlega
orðspor í tiskufaginu, svo portúg-
ölsku fyrirtækin leita til þeirra eftir
góðri vinnu og efnum, en einnig til
að geta nælt á vöra sína itölskum
orðstir. Orðið italskur á þá að verða
Portúgölum töfraorðið inn á erlend-
an markað.
Meðfylgjandi myndir gefa hug-
mynd um hvað helst var uppi á ten-
ingnum á fatasýningunni í Bella
Center um daginn. Eitthvað af þessu
eða annað svipað kemur vísast í
islenskar fataverslanir að liðnum
vetri, því þarna kaupa islenskir fata-
kaupmenn inn eins og margir aðrir.
TEXTI: Sigrún Davíðsdóttir
lossubréfið 2.11-13, Postulasagan
8.14-17).
Jesús fyrirskipaði þessi þijú
sakramenti sem forsendu þess að
komast inn í konungsriki himn-
anna.
Með dauða Postulanna var fað-
emið tekið frá kirkjunni og kirkjan
varð „ekkja".
Án hins andlega myndandi afls,
sem Drottinn Jesús hafði aðeins
íklætt Postula sína með, urðu ekki
fleiri böm Guðs getin í endurfæð-
ingunni.
Jesús hafði eingöngu skipað
Postula sína til þess að fyrirgefa
syndir, skira með vatni í nafiii
Jesú, og að gróðursetja hið nýja
lif af himnum í sál hins trúaða
sem áður hefiir verið hreinsuð
og helguð skíminni (Jóhannes
3.5).
Endurreisn Postula-
embættisins
Guðhrætt fólk í ýmsum löndum
Evrópu við upphaf 19. aldar þráði
endurreisn hinna andlegu gjafa og
náðarvega eins og þeim var lýst í
frásögnum Biblíunnar af hinni
fyrstu Postullegu Kristnu kirkju.
Einkum átti þetta sér stað í Skot-
landi, Englandi og Þýskalandi.
Fólkið kom saman til þess að
rasða það sem það fann í heilagri
ritningu og um sameiginlega löng-
un þess eftir sannleikanum í kenn-
ingum Krists og lífínu frá Kristi
sem það fann ekki í Biblíunni né
í hinum ýmsu söfnuðum þeirra.
Það bað þess innilega að Guð
myndi aftur útdeila Heilögum
Anda og senda Postula aftur. Guð
varð við bænum þeirra. Með marg-
víslegum spádómum gaf Guð t.il
kynna að hann myndi aftur gefa
hinn Heilaga Anda og Postula eins
og hann hafði áður lofað í gegnum
spámenn gamla tímans. (Jóel 2.23,
28-29, 32).
Ekkjudómi kirkjunnar lauk við
upphaf þessa nýja tímabils.
Nafnið sem þessi nýja kirkja
fékk var Nýja Postulakirkjan.
Hún er hin endurreista fyrsta
(gamla) Postulakirkja sem stofnuð
var af Kristi.
Nafns kirkjunnar er þegar getið
í yfirskrift tuttugasta vers í öðrum
kafla af 4. bók Esdras í hinni
upphaflegu þýðingu Lúthers. í
ensku Biblíunni er það í annarri
bók Esdras i Apociypha og hljóð-
an Fræðsla varðandi Nýju Post-
ulakirkjuna. Drottinn skóp aðeins
eina kirlgu og hann hefur aldrei
breytt henni.
Nýja Postulakirkjan er hið end-
urreista frelsisstarf og áframhald
af hinni fyrstu Postullegu kristnu
kirku og stendur þar af leiðandi
með henni sem hin sanna kirkja
stofnuð af Jesú Kristi.
Hbfundur er saðiaðarprestur
Nýju Postulakirkjuanar á íslandi.
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag’ Kópavogs
Sl. fimmtudag var spilaður eins
kvölds Michell-tvímenningur með
þátttöku 26 para.
Úrslit í N-S riðli:
Guðmundur Theodórsson —
Ólafur Óskarsson 269
Óli Andreasson —
Vilhjálmur Sigurðsson 255
Herta Þorsteinsdóttir —
Sigurður Siguijónsson 243
Grímur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 242
Úrslit í A-V riðli:
Haukur Hannesson —
Guðrún Hinriksdóttir 287
Gróa Eiðsdóttir —
Júlíus Snorrason 271
Ragnar Björnsson —
Sævin Bjamason 255
Ingólfur Böðvarsson —
Jón Steinar Ingólfsson 241
Næsta keppni félagsins verður
þriggja kvölda hausttvímenningur.
Spilað er í Þinghól við Álfhólsveg
og hefst keppnin kl. 19.45. Væntan-
legir þátttakendur eru beðnir að
mæta tímanlega til skráningar
þannig að hægt sé að hefja spila-
mennsku á auglýstum tíma.
NN SNYRTINAMSKEIÐIN
September-námskeiðin eru fullbók-
uð. Þess vegna ætla ég að bæta
við nokkrum námskeiðum í október.
- Eitt kvöld
- Mest 10 í hóp
- Tek sérhópa, s.s. sauma-
klúbba og vinnustaði...
Kristfn Stefánsdóttlr, snyrtl- og
föröunarfrœðlngur.
Pantið tímanlega í síma 19660.
NN FÓTAAÐGERÐIR
Nú er hún Ágústa Kristjánsdóttir gengin
til liðs við okkur. Hún mun annast allar
fótaaðgerðir ásamt allri almennri
snyrtingu hjá okkur.
- Andlitsböð
- Húðhreinsanir
- Handsnyrtingar
- Litanir
- Vaxmeðferðir
- ‘Make-up“
Ágústa Kristjðnsdóttlr, fótaað-
gerða- og snyrtlfrœðlngur.
Pantanasíml 19660.
NN NEGLUR
Gervineglur
Nýjung, sem skemmir
ekki þínar eigin neglur.
Styrking og viðgerðir.
Krlstín Friðriksdóttlr, förðunar-
frmðlngur.
Trygglð ykkur tfma I síma
19660.
Snyrtistofan NN
Laugavegi 27 - Sími 19660