Morgunblaðið - 20.09.1988, Page 76

Morgunblaðið - 20.09.1988, Page 76
ÞRIÐJUDAGUR 20 SEPTEMBER 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Seðlabankinn: Engar geng- isbreytingar fyrirhugaðar á næstunni FUNDUR viðskiptaráðherra með bankastjórum Seðlabankans í gærmorgun leiddi ekki til neinn- ar breytingar á skráningu er- lends gjaldeyris, og voru af- greiðslur gjaldeyrisdeilda bank- anna þvi opnar með eðlilegum hætti í gær. Samkvæmt upplýs- ingum Seðlabankans var þá ekki merkjanleg nein aukin eftir- spurn eftir gjaldeyri. Geir Hallgrímsson, Seðlabanka- stjóri, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að engin áform væru fyrir- huguð að sinni af hálfu Seðlabank- ans um að nýta sér þá heimild, sem bankinn hefur frá því í vor til 3% gengislækkunar. „Allar breytingar á gengisskrán- ingu hljóta að tengjast þeim efna- hagsráðstöfunum sem gerðar verða. Enginn flokkanna er með það mikla gengisbreytingu á steftiuskrá sinni, að það borgi sig fyrir nokkum að sanka að sér gjald- eyri nú miðað við vaxtastig innan- lands, og sumir flokkanna beita sér algjörlega gegn nokkrum gengis- breytingum," sagði Geir Hallgríms- son. Gæsluþyrlan í sj'úkraflugi ÞYRLA Landhelgisgæslunar, TF-SIF, sótti í gærkvöldi sjúkling um borð í togarann Margréti EA, sem staddur var við veiðar um 80 sjómUur suðvestur af Reykja- nesi. Þyrlan var kölluð út kl 18.20 og lenti hún við Borgarspítalann 20.00 í gærkvöldi. Sjúklingurinn mun ekki vera lífshættulega veikur. Létust í umferðarslysi Mannskæðasti árekstur hérlendis PILTARNIR sem létust í umferðarslysi á Búrfellsvegi í Gnúp- veijahreppi á föstudagskvöld hétu: Guðmundur Árnason, 17 ára nemandi, Miðengi 20 Selfossi, Ragnar Hjáímtýsson, 18 ára nem- andi, Vallholti 32, Selfossi, Benedikt R. Ásgeirsson, 17 ára nem- andi, Engjavegi 63, Selfossi og Hlynur Ingi Búason, 15 ára nem- andi, Vesturbergi 9, Reykjavík. Sá sem lifði slysið af, 18 ára piltur úr Gnúpveijahreppi, liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu mun hann talinn úr lífshættu. Að sögn Sigurðar Helgasonar hjá Umferðarráði er slysið á Búrfells- vegi mannskæðasti árekstur sem orðið hefur hérlendis. Guðmundur Árnason Tvö skip með afla í gærdag TVÖ loðnuskip höfðu fengið afla í gær, Háberg GK var á leið til lands með fullfermi, eða 650 tonn og Jón Kjartansson SU var á miðunum og hafði fengið um 200 tonn í gærmorgun. Loðnan fékkst djúpt norður af Homi, nálægt miðlínu milli íslands og Grænlands. Þegar Morgunblaðið hafði síðast fréttir af í gærkvöldi vom þijú loðnuskip úti, þ.e. Há- berg, Jón Kjartansson og Skarðsvík SH. Hólmaborg SU var að búast til farar í gær og verið var að búa Guðrúnu Þorkelsdóttur SU undir að hefla loðnuveiðar, en skipið hef- ur verið á rækju. Hólmaborgin hafði áður farið til loðnuveiða í haust og fengið sam- tals um 1.600 tonn í tveimur veiði- ferðum, en hlé varð á úthaldinu þar sem loðnan hætti að veiðast. Nú virðist hún vera farin að gefa sig aftur og fyrstu skipin út era þau sem era í eigu bræðslustöðvanna, eða fyrirtækja tengdum þeim. Aðrir bíða átekta og vilja sjá hvemig veiðist og hvemig fituinnihald loðn- unnar er, áður en hafist er handa. Ragnar Rjálmtýsson Benedikt R. Ásgeirsson Hlynur Ingi Búason Frá viðræðum fulltrúa Framsóknarflokks, AJþýðuflokks og Alþýðubandalags I sjávarútvegsráðuneytinu í gær. Morgunblaðið/Júlíus Steingrímur Hermannsson: Bjartsýnn á að myndun vinstri sljórnar takist Efasemdir uppi um einhug í Alþýðubandalagi Stjómarmyndunarviðræður Steingríms Hermannssonar, formanns Framsóknarflokksins, með forystumönnum Alþýðuflokks og AI- þýðubandalags halda áfram í dag, en fundi þeirra lauk í sjávarútvegs- ráðuneytinu á miðnætti í gær. Þá er fyrirhugað að ræða við full- trúa Kvennalista fyrir hádegi í dag í tengslum við stjóraarmyndun- artilraun Steingríms. Eftir fiind flokkanna þriggja síðdegis í gær sagði Steingrímur, að hann væri bjartsýnn á að samstarf þeirra geti gengið. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins era vissar efa- semdir uppi meðal Framsóknarflokks og Alþýðuflokks um að eining sé innan Alþýðubandalags um aðild að meirihlutastjóra með þessu sniði. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins liggur heldur ekki ljóst fyrir hvort Stefán Valgeirsson er reiðubúinn að veita slíkri stjóm stuðning nema með kostum sem hinir flokkamir myndu eiga erfitt með að sætta sig við. Samstjóm hinna þriggja fyrmefndu flokka þyrfti á stuðningi Stefáns að halda eða einhvers annars flokks til að hafa meirihluta á Alþingi. Fundur Kvennalistans ályktaði í gær að boða eigi til kosninga strax, en þjóðstjóm sé skásti kosturinn til að koma í gegn braðabirgðaúrræð- um í efnahagsmálum. í kjölfar viðræðna formanna Sjálfstæðisflokks og Borgaraflokks, þeirra Þorsteins Pálssonar og Al- berts Guðmundssonar, hefur komið upp áhugi í röðum þessarra flokka um að leita samstarfs við Alþýðu- flokk. í gær munu foiystumenn Alþýðuflokks hafa fengið fjölmarg- ar vísbendingar um þennan áhuga, en ekki liggur ljóst fyrir hver af- staða þeirra til þessara hugmynda er. í skoðanakönnun Skáíss og Stöðvar 2, sem birt var í gær, kom í ljós að yfirgnæfandi meirhluta líst illa á samstjóm Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og tveggja annara flokka, en 35,8% aðspurðra líst vel á slíka stjóm. Þá vildu nær 40% kosningar strax. Sjá Créttir og fréttaskýringar á bls. 2, 30, 32, 33, 38, 39, 40 og 47. Loðnuveiðar:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.