Morgunblaðið - 07.12.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
ílugsanleg úrsögn
ár hvalveiðiráðinu:
Færeyingar
gætu ekki
fylgt dæmi
Islendinga
-■ segir Jón Petersen
sj ávarútvegsr áðherra
JÓN Petersen sjávarútvegsráð-
herra Fœreyja segir að Færeying-
ar styddu Islendinga heilshugar
cf þeir gengju úr Alþjóðahval-
veiðiráðinu en Þorsteinn Pálsson
hefur lagt það til við ríkisstjórn-
ina. „En Færeyingar gætu ekki
fylgt fordæmi þeirra þar sem við
eigum ekki aðild að ráðinu nema
sem fulltrúar í dönsku sendinefnd-
inni,” sagði Petersen.
Petersen sagði aðspurður að hann
sæi því þó ekkert til fyrirstöðu, að
Færeyjar gerðust aðilar að samtök-
um Norður-Atlantshafsríkja, sem
hefðu það m.a. að markmiði að
stjórna veiðum á sjávarspendýrum,
þótt þeir tengdust áfram Alþjóða-
hvalveiðiráðinu gegnum Dani. En í
tillögu sjávarútvegsráðherra um úr-
sögn úr ráðinu felst einnig, að íslend-
ingar hefji undirbúning að því að fá
Kraftakeppnin Hreysti ’91
Morgunblaðið/Sverrir
Kraftakeppnin Hreysti ’91 verður haldin í lteiðhöll-
inni í dag 'og hefst klukkan 16. Keppt verður í
trukkadrætti, steinataki, hver getur lengst verið
með útrétta arma með 12,5 kíló í hvorri hendi, í
að bera 75 kílóa ferðatöskur sem lengst og fleiri
greinum sem reyna á krafta og snerpu. Erlendir
keppendur eru komnir til landsins til að veita Islend-
ingunum Magnúsi Ver Magnússyni og Andrési Guð-
mundssyni verðuga keppni. Hér hnykla þeir vöðvana
fyrir ijósmyndara Morgunblaðsins.
Borgarspítali og
Landakotsspítali:
Sameining
hefði sparnað
í för með sér
NEFND sem heilbrigðisráð-
herra skipaði til þess að meta
kosti og galla hugsanlegrar
sameiningar Borgarspítala og
Landakotsspítala telur að slík
sameining muni hafa sparnað í
för með sér.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta kæmi fram
í drögum að áliti nefndarinnar sem
hefur verið kynnt heilbrigðisráð-
herra. Álit nefndarinnar í heild
verður að öllum líkindum kynnt á
mánudag.
Formaður nefndarinnar er Páll
Sigurðsson ráðuneytisstjóri í heil-
brigðisráðuneytinu en auk hans
sitja í henni stjórnarformenn,
framkvæmdastjórar og hjúkrunar-
forstjórar umræddra spítala.
Skýrsia Ríkisendurskoðunar:
hvalveiðiríki til svæðisbundins sam-
bands sem samræmist hafréttarsátt-
málanum.
Áætlunarbif-
reið fýkur út-
af í ofsaveðri
Grundarfjörður.
Áætlunarbifreið fauk útaf
Helgafellssveitarvegi og lenti
á hliðinni í ofveðrinu á sunnan-
verðu Snæfellsnesi í gær. Ekki
voru teljandi slys á fólki.
Þrír farþegar auk ökumanns
voru í áætlunarbifreiðinni þegar
hún fauk útaf á veginum við
bæinn Kljá á leiðinni frá Stykk-
ishólmi til Grundarfjarðar. Tveir
farþeganna voru fluttir á sjúkra-
húsið á Stykkishólmi en fengu
að fara heim eftir skamma við-
dvöl. Ekki var hægt að koma
bílnum upp á veginn vegna veður-
ofsa og hefill, sem nota átti til
verksins, festist.
Fjárhús og hluti af hlöðu fauk
á bænum Búlandshöfða og verið
er að vinna að því að koma fénu
í hús.
- Hallgrímur.
Fjölgun stöðugilda hjá ríkinu
innan marka fjárlaga 1991
STÖÐUGILDUM hjá ríkinu fjölgaði um 677 milli áranna 1990 og
1991 ef tekið er mið af fyrstu sex mánuðum hvors árs um sig, að
því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar um þetta efni.
Fyrstu sex mánuði ársins 1990 voru stöðugildin 15.241 að meðal-
tali en voru 15.918 að meðaltali fyrstu sex mánuðina í ár.
í skýrslunni kemur fram að fjár-
lög ríkisins fyrir árið 1991 gera
ráð fyrir fjölgun um 600 stöðu-
gildi og þar af bættust 45 við í
meðförum Alþingis. Af þessari
ijölgun eru um 500 stöðugildi tii-
komin vegna yfirtöku ríkissjóðs á
rekstri vegna laga um verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga sem
tóku gildi í ársbyijun 1990. Þann-
ig var gert ráð fyrir að nýjum stöð-
ugildum fjölgaði um 100 á árinu
1991.
Mest íjölgun á stöðugildum varð
hjá menntamálaráðuneytinu eða
sem svaraði 293 stöðugildum. Þar
af fjölgaði um 138 stöðugildi hjá
grunnskólum, en sú fjölgun er
aðallega tilkomin vegna skóla-
skyldu sex ára barna og vegna
nýrra reglna um sérkennslu. Hjá
framhaldsskólum og skólum á
háskólastigi fjölgaði um 91 stöðu-
gildi og hjá stofnunum utan skóla
má nefna að stöðugildum fjölgaði
um 20 vegna meðferðarheimilis
fyrir unga fíkniefnaneytendur.
Reykjavíkur með 123 stöðugildi,
en ríkissjóður tók við rekstri
Heilsuvemdarstöðvarinnar sam-
kvæmt lögum nr. 87/1989 um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga. Starfsfólk Heilsuverndar-
stöðvarinnar sér meðal annars um
heimahjúkrun en sú starfsemi var
áður kostuð af sjúkratryggingum.
Hjá ríkisspítölunum ljölgaði sam-
tals um 49 stöðugildi, að því er
fram kemur í skýrslunni. Sam-
kvæmt henni er ijölgun stöðugilda
hjá A-hluta ríkissjóðs fyrstu sex
mánuði ársins 1991 innan marka
fjárlaga. Hins vegar virðist yfir-
vinna hafa orðið meiri en áætlanir
gerðu ráð fyrir.
Húseigendatrygging:
Næstmest fjölgun varð hjá
stofnunum heilbrigðisráðuneytis-
ins eða um 203 stöðugildi. Þar
vegur þyngst Heilsuverndarstöð
Þrjú tryggingafé-
lög hækka iðgjöld
Óskarsverðlaunin 1992:
Kvikmyndin Börn náttúr-
unnar framlag Islendinga
25.000 íslenskir og norskir kvikmyndahúsagestir hafa séð kvik-
mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn Náttúrunnar. Friðrik er
byrjaður að borga til baka 12 milljóna króna styrk sem hann
fékk með þeim skilmála að peningarnir væru afturkræfir ef
myndin skilaði hagnaði. Heildarkostnaður við gerð hennar nam
60 milljónum króna. Myndin verður framlag íslendinga til keppn-
innar um Óskarsverðlaunin næsta vor.
Þrjár viðurkenningar hafa fallið kvikmyndahúsagestir hafa séð
en yngra fólk erlendis. Myndin
virtist höfða til útlendinga m.a.
vegna þess að fólk fyndi í henni
þá hluti sem það byggist við frá
Islandi sTS. drauga og náttúrufeg-
urð.
í skaut aðstandenda myndarinnar.
Fyrstu viðurkenninguna fékk hún
snemma í haust fyrir að vera besta
listræna framlagið á World Film
Festival, önnur viðurkenningin
kom í hlut myndarinnar í byrjun
nóvember frá Norrænu kvik-
myndastofnuninni og ekki alls
fyrir löngu fékk Hilmar Örn Hilm-
arsson Felixinn fyrir tónlist í
myndinni. Sigríður Hagalín var
tilnefnd til verðlauna fyrir besta
leik kvenna í aðalhlutverki. Mynd-
in hefur að undanförnu verið sýnd
á kvikmyndahátíðum í Puerto
Rieo, Flórens og Haugasundi.
25.000 norskir og íslenskir
myndina hingað til en þýskir aðil-
ar sjá um heimsdreifingu á henni.
Tekin verður ákvörðun um dreif-
ingu myndarinnar í Þýskalandi,
Bandaríkjunum og Frakklandi nú
í desember en Friðrik sagði að
dreifingaraðilar væru fremur
smáir, t.d. hefðu tvö kvikmynda-
hús í París sýnt myndinni áhuga.
Hann sagði að góð aðsókn íslend-
inga á myndina hefði komið hon-
um á óvart. Hún hefði tii dæmis
fengið mun meiri aðsókn en
Skytturnar sem hann hefði talið
líklegri til vinsælda. Friðrik sagði
að hér á landi virtist eldra fólk
hafa mestan áhuga á myndinni
Friðrik sagðist vera með þrjú
handrit á borðinu. Eitt væri
Djöflaeyjan eftir handriti Einars
Kárasonar, annað Bíódagar eftir
sínu handriti og Einars Más Guð-
mundssonar og loks væri um að
ræða handrit sem unnið væri í
samvinnu við ameríska aðila.
Friðrik sagði að kvikmyndamenn
gerðu ekki alíslenskar myndir
iengur heldur leituðu eftir fjárst-
uðningi erlendra aðila sem hefðu
meiri áhuga á styrkja íslenska
menningu og fjárfesta í íslenskum
myndum nú en áður. Þá sagði
hann að mikil hjálp væi-i í Nor-
ræna og Evrópska kvikmynda-
sjóðnum.
ÞRJÚ tryggingafélög hafa fengið
leyfi Tryggingaeftirlitsins til að
hækka iðgjöld húseigendatrygg-
inga vegna tjóna, sem urðu í
óveðrinu í byrjun febrúar síðast-
liðinn. Þau félög sem hækka ið-
gjöld eru Sjóvá;Almennar, Vá-
tryggingafélag íslands hf. og
Ábyrgð hf. Hækkunin er á bilinu
6-12% og tekur gildi frá og með
1. janúar næstkomandi.
Að sögn Ragnars Ragnarssonar,
deildarstjóra hjá Tiyggingaeftirlit-
inu, er aðeins um húseigendatrygg-
ingar eða skildar tryggingar að ræða.
Hækkuninn kemur eingöngu til
vegna óveðursins í febrúar síðastlið-
milljónir króna. Hann sagði að ekki
væri um að ræða hækkun á iðgjalda-
skrá fyrir altryggingu fyrir hús,
heimili og íjölskyldu.
-♦ ♦ ♦
Hornafjörður:
Féll milli skips
og bryggju
og drukknaði
mn.
Ólafur Jón'Ingólfsson hjá Sjóvá-
Almennum segir að tjónabætur sem
fyrirtækið hafi greitt vegna óveðurs-
ins í febrúar hafi verið um 112 millj-
ónir króna. Sjóvá-Almennar eru bæði
með húseigendatryggingu, sem
hækkar um 6%, og fasteignatrygg-
ingu, sem hækkar um 12%, en hún
er, að sögn Ólafs, víðtækari og gefur
meiri vernd en húseigendatrygging-
Hækkunin á húseigendatryggingu
Vátryggingafélags íslands hf. er að
sögn llilmars Pálssonar á milli 10
og 12%, en tjónabætur hjá fyrirtæk-
inu voru um 210 milljónir, vegna
tjóna sem urðu í óveðrinu. Hann tek-
ur jafnframt fram að þessi trygging
félagsins sé mjög víðtæk.
Að sögn Jóhanns E. Bjömssonar,
forstjóra Ábyrgðar hf., hækkar hús-
eigendatrygging þeirra um 10%.
Tjónabætur félagsins voru rúmar 10
I
>
STEFÁN Hlynur Erlingsson, 23
ára sjómaður úr Skagafirði,
fannst látinn í Hornafjarðarhöfn
síðdegis í fyrradag og er talið
að hann hafi fallið milli skips og
bryggju og drukknað á miðviku-
dagskvöld.
Engin vitni urðu að því er Stefán
féll í sjóinn en skipsfélagar hans á
Sighvati GK 57 tilkynntu lögreglu
um nóttina að hann hefði ekki kom-
ið til skips á ákveðnum brottferðar-
tíma og var þá spurst fyrir um ferð-
ir hans.
Skipulögð leit hófst um morgun-
inn og fannst Stefán látinn um
klukkan 16.30 og að sögn lögreglu
á Hornafírði er talið fullvíst að hann
hafi fallið milli skips og bryggju.
Stefán Hlynur Erlingsson fædd-
ist 15. júní 1968 og bjó í foreldra-
húsum í Birkihlíð í Staðarhreppi í
Skagafirði. Hann lætur eftir sig
barn.