Morgunblaðið - 07.12.1991, Page 37
í iiMDKGUNBÍíAiÐIÐ. LAUGABDAGURl T3IDE3EMBBRO!ð91
8^7
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði;
Trausti lýst á störf-
um ríkisstjórnarinnar
NEÐANGREIND traustsyfirlýsing á störfum og stefnu ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar var samþykkt samhljóða á fjölmennum aðalfundi
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði þann 5. desember sl.:
Sigrún Eðvaldsdóttir leikur fyrir
nýársgesti Hótel Islands.
„Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði lýsir fyllsta
trausti sínu á störf og stefnu ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar og á
störf hans sem forsætisráðherra og
formanns Sjálfstæðisfiokksins.
Uppsafnaðir erfiðleikar í efna-
hags- og atvinnumálum þjóðarinnar
blasa við. Erfiðleikar eru þó til að
Nýársfagnaðiir á Hótel Islandi
NÝARSFAGNAÐUR verður haldinn að venju á Hótel íslandi og
verður margt þar til skemmtunar.
Meðai þeirra sem fram koma á
fagnaðinum eru Sigrún Eðvalds-
dóttir og Selma Guðmundsdóttir,
sem leika saman á fiðlu og píanó,
Ómar Ragnarsson, Þuríður Sig-
urðardóttir, Nýársballettinn verð-
ur sýndur og óperusöngvaraarnir
Inga Bachman og Sigurður Stein-
grímsson flytja óperudúetta og lög
úr þekktum söngleikjum.
Heiðursgestur og ræðumaður
kvöldsins verður Arthúr Björgvin
Bollason en kynnir Rósa Ingólfs-
dóttir. Ingimar Eydal leikur undir
fyrir matargesti en hljómsveitin
Upplyfting leikur fyrir dansi.
Boðið er upp á fimm rétta hátíð-
arkvöldverð ásamt fordrykk en
miðaverð er 8.950 krónur og er
miðafjöldi takmarkaður. Á mat-
seðlinum er m.a. hvítlaukskrydd-
aður vatnaáll, innbökuð nautalund
og logandi ístindur.
Rúrí
Hannu Siren.
Morgunblaðið/RAX
Rúrí og Hannu Sir-
en sýna verk sín
SÝNING á verkum eftir Rúrí og finnska listamanninn Hannu Siren
opnar i dag, laugardag 7. deseinber, í Nýlistasafninu að Vatnsstíg 8
b, kl. 16.
Rúrí og Hannu sýndu fyrst sam-
an á Experimental Environment
sýningunni á Korpúlfsstöðum árið
1980, og hafa síðan bæði skipulagt
og tekið þátt í mörgum umhverfis-
og útilistasýningum erlendis.
Hannu stundaði listnám við Aca-
demia di Belle Arte í Flórens og
tók þátt í sinni fyrstu samsýningu
árið 1969. Hann á verk á ýmsum
söfnum t.d. Atenum í Helsinki,
Listasafni Sara Hilden í Tampere,
Ríkislistasafni Finnlands, sem og
ýmsum einkasöfnum. Hann er yfir-
kennari í skúlptúr við listaakadem-
íuna í Helsinki en hefur undanfarn-
ar vikur dvalist hér á landi sem
gestakennari við Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Verkin, sem
hann sýnir hér eru unnin sérstak-
lega fyrir sýninguna og hefur hann
notið aðstoðar fyrirtækjanna BM
sigrast á þeim, en slíkt gerist þó
ekki nema með sterkri samstöðu
þjóðarinnar og styrkri handleiðslu
þeirra sem stýra málefnum lands
og þjóðar.
Fulltrúarráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði hvetur til ríkrar
samstöðu þingmanna og forystu
flokksins og væntir festu, skilnings
og áræðni við úrlausn hinna marg-
brotnu málefna, þjóðinni til hag-
sældar í lengd og bráð.
Það er bjargföst skoðun fulltrúa-
ráðsins að Sjálfstæðisflokknum sé
best treystandi til að leiða þjóðina
burt frá þeirri bölsýni sem nú virð-
ist hafa yfirhöndin í þjóðfélaginu.
Þess vegna verða sjálfstæðismenn
að standa þétt að baki formanni
sínum og þingmönnum.”
* JÓLAaMMSi
Dúkkukojur úr tré. Stærð: 30x40x50.
Nokkrir litir. Verð kr. 3.800,-
Dúkkurúmföt. Sæng mlveri, koddi
m/veri og dýna. Margar gerðir og litir. Verð kr. 1.200,-
Upplýsingar í síma 27557 alla daga. Vörurnar eru til sölu og
sýnis að Ánanaustum 15, suðurendi (gengið inn sund)
milli kl. 13 og 17 laugardaga og sunnudaga fram að jólum.
Vallá og Glerborgar við útfærslu
þeirra.
Þessi sýning er fimmta einkasýn-
ing Rúrí en hún hefur tekið þátt í
um sjötíu samsýningum víða um
heim: Verk eftir hana eru t.d. í
Listasafni íslands, Nýlistasafninu
og Museurn of Modern Art í New
York.
Rúrí gerði t.d. verkið Regnbogi,
úr ryðfríu stáli og steindu gleri, sem
staðsett er fyrir utan Flugstöð Leifs
Eiríkssonar.
Hún hefur fengið viðurkenning-
ar fyrir verk sín í Bandaríkjunum,
Þýskalandi og Svíþjóð. Verkin á
sýningunni hefur Rúrí unnið á
þessu ári og hafa þau ekki áður
verið sýnd.
Sýningin stendur til 22. desemb-
er og er opin alla daga frá kl. 14-18.
Skíðapakkar við allra hæfi
Barnaskíðapakki
Head skíði Fox.kr. 5.500,-
San Marco skór.kr. 5.490,-
Bind. Tyrolia..kr. 4.490,-
Head stafir....kr. 1.720,-
^ Samtals kr. 17.200,-
Pakkaverð kr. 14.490,-^
Unglingaýðk£/
Head skíði Hot..kr. 7.400,-
San Marco skór..kr. 6.790,-
Bind.Tyrolia ...kr. 5.600,-
Head stafir.....kr. 1.720*-
, Samtals kr. 21.5J0,-
Pakkaverð kr. 19.350,-
'
Fullorðinspakki
Head skíði Progress.. kr. 11.995,-
San Marco skór ,.,.kr. 6.790,-
BindTyrolia.....kr. 5.680,-4)
Head stafir....kr. 2.180,«^^*
^ Samtals kr. 26.565,^^^
7V- Pakkaverð kr. 23.900,-
KRINGLU
BORGARKRINGLUNNI - SÍMI 679955