Morgunblaðið - 07.12.1991, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
51
Seljakirkja
Kirkjudagar í Seljakirkju
SAGA VESTMANNAEYJABÆJAR
HARALDUR GUÐNASON
Glœsilegt rit um sögu
Vestmannaeyjabœjar,
prýtt fjölmörgum myndum,
kortum og teikningum.
Tvö bindi í veglegri öskju.
Ómissandi bœkur hverjum
þeim sem Eyjum ann.
ÍSLENSK BÓKADREIFING
Frá danssýningunni.
Danssýning í Gerðubergi
ÞRJU dansverk verða sýnd í Gerðubergi fimmtudaginn 12. desemb-
er og í Kramhúsinu mánudaginn 16. desember á sama tíma. Dansarn-
ir eru eftir Guðbjörgu Arnardóttur, Sharmilu Mukeiji og Lilju Ivars-
dóttur. .
Verkin, sem dönsuð verða eru
„Tóm” eftir Guðbjörgu, sem er sóló,
samið fýrir þremur árum í Stokk-
hólmi, „Tum on, turn off’ eftir
Sharmilu, sem er verk með dans og
myndbandi fyrir tvo dansara og loks
„Nóvember” eftir Lilju, sem er verk
fyrir fimm dansara.
Þeir, sem taka þátt í sýningunni
eru dansararnir Marta Rúnarsdóttir,
Katrín Ólafsdóttir, Guðbjörg Arnar-
dóttir, Sharmila Mukeiji og Lilja
ívarsdóttir.
Drengjakórinn í heimsókn á Bessastöðum sl. vor.
Aðventusöngur Drengja-
kórs Laugarneskirkju
AÐVENTUSONGUR Drengja-
kórs Laugarneskirkju verður
sunnudaginn 8. des. kl. 20.00 í
Laugarneskirkju. Drengjakór
Laugarneskirkju var stofnaður í
fyrrahaust og telur nú 27 drengi.
Einnig eru nokkrir drengir í
undirbúningsdeild.
Aðventusöngurinn er eitt aðal-
verkefni kórsins yfir veturinn en
kórinn syngur 11 aðventu- og jóla-
söngva. A milli söngva verða lesin
ritningarorð.
Aðventusöngurinn tekur mið af
breskri hefð, „lessons and carols”,
eða ritningarlestur og söngur. Kór-
inn byijar á inngöngu með kross-
bera, kórinn, prestar og djákni
syngja og fara eins út i lokin.
Hljóðfæraleikarar eru Martin
Frewer, fiðla, Haukur F. Hannes-
son, selló, og David Knowles, org-
el. Ronald V. Turner stjórnar. Tón-
listin sem flutt verður er eftir ýmsa
höfunda, þ.á m. Bach og Prætorius,
ög frá ýmsum löndum, t.d. Frakk-
landi og Englandi. Einsöngvarar
eru Jóhann Ari Lárusson, Davíð
Gunnarsson og Jóhann Marel Við-
arsson.
í mars mun kórinn leggja land
undir fót og fara til Flórída á alþjóð-
legt drengjakóramót. Útlit er fyrir
að þeir verða einu fulltrúar frá
Norðurlöndum.
(Frcttatilkynning)
SUNNUDAGINN 8. desember,
annan sunnudag í aðventu, verð-
ur haldin aðventusamkoma í Ár-n
bæjarsókn og hefst hún í Árbæ-
jarkirkju kl. 20.30. Að venju
verður vandað til dagskrár og
verður hún mjög fjölbreytt bæði
í tali og tónum.
Jóhann Björnsson, formaður
sóknarnefndar, setur samkomuna,
Rarikkórinn syngur undir stjórn
Violetu Smid, sr. Þór Hauksson flyt-
ur ávarp, tvöfaldur kvartett syngur.
Aðalræðu kvöldsins flytur Friðrik
Sophusson, fjármálaráðherra. Þá
syngur Fríða Sigurðardóttir ein-
söng, kirkjukórinn flytur Gleðileg
jól eftir Handel og kafla úr Tékk-
neskri jólamessu eftir Ryba. Femi- .
ingatbörn lesa spádóma úr Bibl- *
íunni um fæðingu frelsarans. Skóla-
kór Árbæjarskóla syngur undir
stjórn Ásiaugar Bergsteinsdóttur
og helgistund verður í umsjá sókn-
arprests.
Þá verða aðventuljósin tendruð
og á meðan syngur kirkjukórinn og
einsöngvararnir Dúfa Einarsdóttir
og Kristbjörg Clausen. Að lokum
syngja allir viðstaddir jólasálm.
Aður en samkoman hefst leika
Violeta Smid og Ilka Petrova saman
á orgel og flautu.
Eignumst helga hátíðarstund í
húsi Drottins á aðventu til undir-
búnings hugar og hjarta fyrir hátíð
lífs og ljóss, fæðingarhátíð frelsar-
ans.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Guðmundur Þorsteinsson
Skíðopakkar
Barnaskíðapakkar frá
kr. 12.760.* stgr.
Unglingaskíiapakkar frá
kr. 14.990.-stgr.
Gönguskíðapakkar f rá
kr. 13.600.- stgr.
Tökum notað upp í nýtt!
SPOTT|
MARKAÐURINN
í Skeifunni 7
HÚSI J.P. INNRÉTTINGA.
: 1?
|í h
< <
s S
k &
7) &
j/5 /2 Ö
m ,23
KIRKJUDAGUR verður í Seljakirkju sunnudaginn 8. desember.
Kirkjudagurinn er haldinn hátíðlegur með margvíslegri dagskrá.
Kl. 11 verður barnaguðsþjónusta.
í þessari barnmörgu sókn eru barna-
guðsþjópustur viðburður í hvert
skipti. Á kirkjudaginn koma börn úr
bamaguðsþjónustu Breiðholtskirkju
í heimsókn til Seljakirkju og taka
þátt í guðsþjónustunni þar.
Kl. 14. er almenn guðsþjónusta.
Kirkjukórinn mun syngja og sókn-
arpresturinn prédika. Að lokinni
guðsþjónustu verður kökubasar
kvenfélagsins í safnaðarheimilinu.
Kl. 20.30 verður aðventukvöld í
kirkjunni með ijölbreyttri aðvéntu-
dagskrá. Þá verða aðventusálmar
sungnir, æskulýðsfélagið mun hafa
dagskrá, félagar úr Lúðrasveit
Reykjavíkur leika aðventulög, kirkju-
kórinn syngur. Einnig verður upp-
lestur. Kjartan Sigutjónsson, sem er
organisti við allar athafnirnar og
stjómandi kórsins, mun fiytja að-
ventuhugleiðingu. I lok athafnarinn-
ar verða aðventuljósin tendruð.
Eftir aðventukvöldið er kvenfélag
sóknarinnar með kaffisölu í safnað-
arsalnum.
Með dagskrá kirkjudagsins á ann-
an sunnudag í aðventu er safnaðar-
fólki og öðrum gefinn kostur á að
taka þátt í undirbúningi jóla og njóta
þess undirbúnings sem nauðsynlegur
er á þeim árstíma.
Valgeir Ástráðsson
Aðventusamvera í
Kársnesprestakalli
AÐVENTUSAMVERA Kársnesprestakalls verður í Kópavogskirkju
sunnudaginn 8. desember næstkomandi kl. 17.
í fréttatilkynningu frá Kársnes-
prestakalli segir að efnisskráin verði
fjölbreytt. Sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson fyrrverandi sóknarprestur
flytur ræðu og Hjörtur Pálsson skáld
les Ijóð. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Sighvats Jónassonar organ-
ista og einnig syngur skólakór Kárs-
ness undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur kórstjóra. Hallfríður Ólafs-
dóttir flautuleikari og Þórunn
Guðmundsdóttir sópransöngkona
flytja, ásamt organista, aríu eftir
Hándel fyrir flautu, orgel og sópran.
Aðventu samverunni lýkur með
ritningarlestri, bæn og sameiginleg-
um söng.
Að samverunni lokinni verður
kaffisala í safnaðarhiemilinu Borg-
um.
Aðventuhátíð í kirkju
Oháða safnaðarins
Á morgun, sunnudaginn 8. des-
ember kl. 20.30, verður að-
ventuhátíð í kirkju Óháða safn-
aðarins. Dagskráin verður fjöl-
breytt og vönduð:
Sr. Heimir Steinsson, útvarps-
stjóri, er ræðumaður kvöldsins. Fé-
lagar úr íslensku hljómsveitinni
flytja tónlist. Jónas Þ. Þórisson og
Jónas Þ. Dagbjartsson leika á orgel
og fiðlu. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Jónasar Þ. Þórissonar. Ritn-
ingarlestur í umsjón leikmanna.
Ávarpsorð og bæn í umsjón Þór-
steins Ragnarssonar safnaðar-
prests. Ljósin tendruð. Veitingar í
Kirkjubæ.
Þórsteinn Ragnarsson,
safnaðarprestur.