Morgunblaðið - 07.12.1991, Blaðsíða 65
MORGÖNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. DBSEMBER Í1994
63
Helstríðinu er lokið.
Ein af hvunndagshetjum þessa
lands hefur verið ofurliði borin af
manninum með ljáinn.
Bernódía Sigríður Sigurðardóttir
hét hún fullu nafni. Fædd 15. fe-
brúar 1920, 71 árs þegar hún lést.
Hún var fædd að Litla-Landi í
Vestmannaeyjum, yngst 6 barna
hjónanna Halldóru Hjörleifsdóttur
og Sigurðar Hróbjartssonar.
Föður sinn missti hún 10 ára
gömul úr krabbameini. Var henni
minnisstætt hve tregafullan dauð-
daga hann fékk og hve erfiðlega
gekk að sætta sig við dauðsfall
hans. Því hafði hún áhyggjur af
því hve hennar ungu barnabörn
þyrftu að líða er hún féll, frá.
Faðir hennar hafði verið útvegs-
bóndi. Hafði verið vel bjargálna er
hann lést. Eftir lát hans gekk móð-
ur hennar erfiðlega að ná endum
saman með barnahópinn sinn.
Saumaði hún fyrir fólk, enda lista-
maður í höndum. Hæfileika þessa
erfði Bedda eftir móður sína.
Til Reykjavíkur flutti Bedda með
móður sinni 12 ára gömul. Ung
giftist hún Haraldi Guðjónssyni.
Eignuðust þau 4 börn. Fyrsta barn
sitt, dreng, missti hún aðeins 6
mánaða. Upp komust Hlöðver,
Auður Dóra og Örlygur.
1952 deyr móðir hennar úr
krabbameini. Skömmu síðar slítur
hún samvistum við Harald og flytur
aftur til Eyja. 1955 giftist hún
öðlingsmanninum Sveini Ársæls-
syni frá Fögrubrekku, sem vann
við útgerð föður síns, Ársæls
Sveinssonar, mikils athafnamanns
í Vestmannaeyjum. Var það hennar
gæfa. Straumhvörf urðu þar í lífi
hennar og barna hennar, sem
Sveinn gekk í föðurstað. Elskuðu
þau hann sem eigin föður, kölluðu
strax pabba og dáðu alla tíð.
Bedda og Sveinn yignuðust 3
syni á þrem árum, Ársæl, Svein
Bernódus og Sigurð Karl, sem allir
voru mjög samrýndir. Þau reistu
sér hús á Túngötu 16. Var þar
mjög gestkvæmt og mikið að gera
hjá húsmóður á stóru heimili.
Heimili þeirra var hlýlegt og glæsi-
legt. Hug hennar allan átti þó garð-
urinn, sem var hreint listaverk.
Týndi hún plöntur, steina og rekav-
ið og skreytti svo unun var á að
líta, enda verðlaunagarður.
Bedda var ekki allra. Hún var
vinur vina sinna. Undi sér best
heima. Ég er svo heimakær, sagði
hún alltaf. Hún gaf mikið af sér.
Hafði ánægju áf að gleðja aðra.
Árið 1965 varð fjölskyldan fyrir
þeirri sáru sorg að Örlygur, mikill
efnispiltur og músíkalskur, drukkn-
ar, aðeins 18 ára gamall. Varð það
fjölskyldunni sár harmur, sem tók
langan tíma að komast yfir.
Sveinn var einn af fremstu golf-
leikurum landsins. íslandsmeistari
tvisvar sinnum. Voru þau hjónin
virkir félagar í Golfklúbbi Vest-
mannaeyja. Sveinn var einnig for-
maður íþróttafélagsins Þórs. Voru
þau hjón full af áhuga með börnum
sínum í Þór. Ársæll, Sveinn og
Kalli spiluðu fyrir Þór í ÍBV í fyrstu
deild. Þótti það merkilegt að þrír
bræður spiluðu í sama liði. Sveinn
og Ársæll urðu Islandsmeistarar
með ÍBV 1979.
3. febrúar 1968 verður Sveinn
maður hennar bráðkvaddur, þegar
þau hjón eru að búast á ball. Varð
það Beddu og börnunum þung
raun. Breyttist skyndilega allt
heimilishald. Þurfti Bedda að
stunda erfiða fiskvinnu til að fram-
fleyta heimilinu. Voru það erfið ár
og oft úr litlu að spila, með 3 drengi
ófermda.
í Vestmannaeyjagosinu þuifti
hún eins og aðrir að flytja upp á
land. Dóra var farin að búa sjálf.
Bjó hún drengjunum sínum gott
heimili í Fellsmúla 18 í Reykjavík.
Undi unga fólkið sem og aðrir illa
í Reykjavík. Varð það úr, er við
hjónin fluttum heim í júní með
þeim fyrstu, að Ársæll; Sveinn og
Kalli fluttu heim með okkur til
Eyja, en Ársæll bjó með dóttur
okkar Sigrúnu. Urðu þeir okkur
hjartfólgnir, eins og okkar eigin
synir.
Bedda flytur svo heim fyrir jól
’73. Húsið hennar hafði skemmst
mikið í gosinu. var hún lengi að
koma því í stand við lítil efni. Má
segja að hún og fjölskyldan hafi
þurft að moka vikri út úr hverju
herbergi. Var það ótrúlegur vilja-
styrkur hennar að koma stór-
skemmdu húsinu í gott lag aftur.
Hart þótti henni hve litlar bætur
hún fékk og fólki var mismunað.
Átti hún erfitt með að sætta sig
við það óréttlæti.
Nú fóru nokkur góð ár í hönd.
Vann hún við ræstingar á skipinú
Herjólfi og undi glöð við sitt. Ár-
sæll flutti til Danmerkur um tíma
og gat hún heimsótt hann og fjöl-
skyldu hans. Seinna flutti Kalli til
Svíþjóðar og fór að búa þar. Varð
úr að Ársæll og Sveinn fluttu líka
með fjölskyldur. Allir í fótboltann
í Jonkoping. Heimsótti hún dreng-
ina sína og Ijölskyldur þeirra og
hafði mikla ánægju af.
Árið 1985 selur hún húsið sitt á
Túngötunni og kaupir sér íbúð á
Litla-Landi, á þeirri lóð sem hún
bjó á í æsku. Ársæll hafði sem
verktaki í fyrirtækinu Steini og
Olli reist þar 4 íbúða hús, sem hún
var mjög stolt af. Tekur hún að
skipuleggja garðinn og hugsar um
og stundar vinnu við Safnahúsið.
Á orðið 8 barnabörn og eitt
langömmubarn. 1986 er hún skorin
upp í ristli. Reynist þar krabba-
mein á ferð. Hún fer í geisla og
nær sér nokkuð vel. Þá kemur eitt
reiðarslagið enn. Kalli hættir sam-
búð og flytur heim til Vestmanna-
eyja, greinist með illkynja æxli við
heila. Þvílíkt mótlæti. Hún sem allt-
af sagði: Ég hef verið svo heppin
í lífinu. Guð minn góður. Eru engin
takmörk fyrir því hve fólk þarf að
þjást? Hófst nú barátta upp á líf
og dauða. Kalli fer inn og út af
sjúkrahúsi. Nær sér á milli, en allt-
af sígur á ógæfuhliðina. Bara að
ég fái að lifa, svo ég geti liðsinnt
honum, bað hún. Hún fékk ósk sína
uppfyllta. Sigurður Karl deyr 33
ára, 1. október 1990. Skilur eftir
sig þá 9 ára dóttur, Örnu Huld.
Bedda barðist, neitaði að gefast
upp. Alveg er með ólíkindum hve
mikið er á suma lagt. Vegir Guðs
eru órannsakanlegir. Nú hefur hún
fengið frið.
En börnum hennar, tengdabörn-
um og barnabörnum er kveðja hér
ástkæra móður, tengdamóður og
ömmu biðjum við Guðsblessunar.
Góður Guð hjálpi þeim í þessu
mótlæti, gefi þeim styrk og sálarró.
Sigurbjörg Axelsdóttir,
Axel O. Lárusson.
Ég var stödd á Akureyri, þegar
ég frétti um lát Beddu frænku
minnar og vinkonu. Jafnvel þó vitað
væri lengi að dauðinn væri óumflýj-
anlegur var sárt að fá þessa frétt.
En jafnframt sársaukanum og
söknuðinum fylgdi þakklæti fyrir
að þjáningum hennar væri lokið.
Hún barðist hetjulega við þann
sjúkdóm, sem dró hana til dauða.
Hún barðist reyndar gegn öllum
erfiðleikum og sorgum sem hún fór
ekki varhluta af í lífinu. Hennar
máti var að gefast aldrei upp. Eigin-
leiki hennar til að horfa á björtu
hliðar lífsins var alveg einstakur
og mikil Guðsgjöf fyrir hana og
alla sem kynntust henni. Stundum
fannst mér að hún sæi sólina bjart-
ari en við hin gerum og hún gæti
notið hins góða og skemmtilega enn
betur en margir aðrir.
Það var yndislegt að eiga Beddu
að vini. Auk þess að vera góðar
vinkonur í áratugi vorum við systk-
inadætur. Ég kynntist þó ek-ki
Beddu náið fyrr en hún giftist seinni
manni sínum, Sveini Ársælssyni og
fluttist til Vestmannaeyja. Henni
þótti alltaf mjög vænt um Eyjarn-
ar. Ilún fæddist þar en fluttist til
Reykjavíkur 11 ára gömul með
móður sinni, Halldóru Hjörleifsdótt-
ur, þegar faðir hennar, Sigurður
Ilróbjartsson, lést. Síðan fluttist
hún aftur til Vestmannaeyja fyrir
u.þ.b. 38 árum og þar átti hún sín
bestu ár með sínum góða manni.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann þegar ég skrifa þess-
ar línur. Hæst bera þó sumardag-
arnir okkar í sumarhúsinu í Ölfus-
inu. 1 mörg ár kom hún, stoppaði
fáa daga, en skildi eftir sig gleði í
hugum okkar og við hlökkuðum
alltaf til þegar við áttum von á
henni.
Skrif um samskipti við gott og
gefandi samtíðarfólk um lengri tíma
er erfitt að festa á blað en góðar
minningar lifa. Ég er afar þakklát
fyrir að hafa kynnst Beddu og ég
mun sakna hennar mikið. Vonin og
trúin á að hittast hinum megin og
taka upp þráðinn yljar á skilnaðar-
stundu.
Við Björn sendum samúðarkveðj-
ur til barna Beddu, Dóru, Hlöðvers,
Ársæls og Sveins og tengdabarna
og barnabarna.
Guð blessi minninguna um góða
konu.
Þórunn Kristjánsdóttir
Hún varð að lúta í lægra haldi
fyrir manninum með ljáinn, hún
Bedda.
Þessir síðustu mánuðir hennar
voru mínir fyrstu í fjölskyldunni
hennar.
Oftar en einu sinni hef ég haldið
að nú væri sjúkdómurinn að sigra
hana en ég þekkti ekki kjark og
dugnað þessarar konu sem hafði
orðið fyrir svo mörgum áföllum í
lífinu.
Velferð fjölskyldunnar var henni
efst í huga og óhætt er að segja
að hún hafi haldið utan um hana
til hinstu stundar.
Ég trúi því að nú líði henni vel,
henni hafa mætt synirnir þrír og
maðurinn hennar, sem hún saknaði
svo mjög.
Ég er henni þakklát fyrir samver-
una, sem varð svo alltof stutt. Okk-
ar síðustu samverustund geymi ég
í hjarta mínu.
Ég kveð hana með orðum spá-
mannsins K. Gibran, sem hún fékk
svo oft að reyna á lífsleiðinni:
En ég segi þér, að sorgin og gleðin ferðast
saman í húsi þínu, og þegar önnur situr við
borð þitt, sefur hin í rúminu þínu.
Þorbjörg
MINNUM Á
★ Samstarf fyrirtækja ★
Námskeið um fyrirtækjanet, fyrirtækjaform framtíðarinnar,
9. desember 1991, frá kl. 8.45 til 16.45 í Norræna húsinu.
Vinnuveitendasamband íslands, Samstarfsnefnd atvinnurekenda í sjávarút-
vegi, Landssanrjband iðnaðarmanna, Útflutningsráð íslands, Félag íslenskra
iðnrekenda, Alþýðusamband íslands og SAMMENNTAR (samstarfsnefnd
atvinnulífsins og skóla um framkvæmd COMETT áætlunarinnar á íslandi).
Námskeiðsgjald er kr. 3.500,-.
Islensk
málsnilld
Það sem Jónas Hallgrímsson
hefur skrifað og Konráð samþykkt,
það kalla ég íslensku.
Sigurður Nordal
Mál M og menning
Laugavegi 18, sími: 24240. Síðumúla 7-9, sími: 688577
Nýjasta snilldarbókin í
ritstjórn Þórarins Eldjárns.
Speki skáldanna og
húsgangar nafnlausrar
alþýðu um ástina, landið,
veðrið, tónlistina,
ferðalögin, fólkið, lífið...
Snilldarbóktil að hafa alls
staðar.