Morgunblaðið - 07.12.1991, Page 79
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1991
79
HANDKNATTLEIKUR
<
4
í
Í
í
4
4
4
4
4
4
4
4
4
•
-1
- sagði Júgóslavinn Veselin Vujovic hjá Barcelona
Evrópumeistarar Barcelona í
handknattleik komu til landsins
síðdegis í gær vegna ieiksins
gegn Val á morgun. Þar var
landsliðsmaður í hverju rúmi,
en leikurinn var ekki efst í huga
júgóslavnesku stjörnunnar
Veselins Vujovics. „Ég hef
reyndar komið hingað áður, en
það var örugglega ekki svona
hvasst og kalt,” sagði skyttan
við Morgunblaðið við komuna.
Vujovic, sem er 30 ára, hefur
leíkið með Barcelona í fjög-ur
ár, en var áður með hinu sigursæla
liði Metaloplastika Sabac í Júgó-
slavíu. Hann hefur unnið til allra
helstu verðlauna í íþróttinni og ver-
ið einn af bestu leikmönnum heims
um árabil.
Vujovic hefur verið íslenska
landsliðinu óþægur ljár í þúfu, en
þrátt fyrir inarga leiki gegn íslandi
hefur hann aðeins komið þrisvar
áður til landsins. „Þegar ég var
með Metaloplastika lékum við einu
sinni gegn FH í Evrópukeppninni
og svo hef ég komið hingað tvisvar
vegna landsleikja. ísiand hefur átt
góðu landsliði á að skipa undanfar-
in ár og það hefur verið erfitt að
leika gegn því, en af skiljanlegum
ástæðum er ekki hægt að gera ráð
l'yrir að íslensku félagsliðin séu eins
sterk,” sagði Vujovic.
Aðspurður um leikinn á morgun
sagðist hann gera ráð fyrir erfiðri
viðureign, en efaðist engu að síður
ekki um hvort liðið færi með sigur
af hólmi. „Það er alveg ljóst að við
förum áfram í keppninni, þó ekki
væri nema vegna þess að við eigum
seinni leikinn heima. Ég veit að
vísu lítið sem ekkert um Valsliðið
og það má aldrei vanmeta mótheij-
ana. Við höfum leikið vel að undan-
förnu og ætlum að halda því
áfram.”
Vujovic var ekki með landsliði
Júgóslavíu, sem fékk ekki stig í
risakeppninni, sem var í Þýskalandi
fyrir tæplega tveimur vikum, en
sagðist verða með í heimsbikar-
keppninni i Svíþjóð og síðan á
Ólympíuleikunum í Barcelona. „Það
eru ekki nema sjö mánuðir fram
að Ólympíuleikum og breytist
ástandið heima í J úgóslavíu ekki til
batnaðar verðum við án sjö eða
átta manna frá 'Króatíu og Slóva-
níu. Með. öðrum orðum verðum við
ekki með neitt landslið í Barcelona
heldur frekar landshlutálið að öllu
óbreyttu. Þetta eru erfiðir tímar og
svo sannarlega ekki það sem við
viljum. Við viljum frið en ekki stríð.”
URSLIT
KNATTSPYRNA
Þýskaland:
Werder Bremen - Dortmund........0:1
Diisseldorf - Nurnberg..........1:2
Frakkland:
Caen - Lens.....................2:0
NBA-DEILDIN
Leikir á fimmtudag:
Cleveland - Detroit...........110:101
Atlanta - Houston.............109: 97
N. Jersey - Milwaukee.........109:101
Golden State - Dallas.........117:107
NIIL-DEILDIN
Leikir á fimmtudag:
Boston - Quebec Nordiques...2:2 (frml.)
New Jersey - Calgary Flames.......6:3
Montreal - New York Islanders ....5:4 (frml.)
Washington - Philadelphia Flyers.. 6:3
Chicago - Los Angeles Iíings......6:2
Pittsburgh - San Jose Sharks......8:0
KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
/w
Aslþór gaff Njarðvfkingum tóninn
Morgunblaðið/Sverrir
Veselin Vujovic var feginn aW®
komast inn í hlýjuna á Hótel
Holiday Inn, en eftir æfingu
borðuðu Evrópumeistarar
Barceiona kjúkling á Svörtu
pönnunni og stilltu sér upp að
máltíð lokinni.
ípfiúmR
FOLX
■ RAUÐA Stjarnan frá Júgó-
slavíu, sem er Evrópumeistari í
knattspyrnu, mætir Suður-Amer-
íkumeisturum Colo Colo frá Chile
í keppni um Toyota-bikarinn í
Tókýó á morgun.
Vid viijum frið
en ekki stríð!
Njarðvíkingar áttu í mestu vand
ræðum lengi vel gegn Sauð
krækingum í gærkvöldi, en eftir ai
Ástþór Ingasoi
hafði gert ijóra
þriggja stiga körfu
í röð í byrjun seinn
hálfleik vöknuði
Björn
Blöndal
skrifar
frá Njarövík
heimamenn til lífsins og unnu 97:82
eftir að hafa verið þremur stigum
undir í hálfleik.
Tindastóll byijaði vel og náði
mest. 10 stiga forystu, en Njarðvík-
ingar voru daufir í fyrri hálfleik.
Gestirnir skoruðu hins vegar aðeins
eitt stig á fyrstu fimm mínútunum
eftir hlé. Njarðvíkingar fóru í gang
síðustu mínúturnar og sýndu sirk-
ustilþrif, en varamennirnir léku síð-
ustu tvær mínúturnar.
Mikið var um mistök í þessum
leik. Ástþór gaf tóninn og var mjög
góður hjá Njarðvík. Teitur Örlygs-
son komst ekki á blað fyrr én und-
KNATTSPYRNA / HM 1994
Övmur styrideikafflokkun
IJchtenstein hættí við þátttöku á síðustu stundu
LICHTENSTEIIM hætti við
þátttöku iheimsmeistara-
keppninni i knattspyrnu 1994
rétt áður en FIFA staðfesti
styrkleikaflokkun þjóðanna í
IMew York f gær. Eftir sem
áðurlekur 241 þjóð þátt, sem
er met á HM, en flokkun þjóð-
anna er önnur en greint var
trá um miðja vikuna.
Amorgun verður dregið í riðla
I New York og er það i
fyrsta sinn i sögu keppninnar, sem
þessi viðburður fer fram utan
höfuðstöðva FIFA í Ziirichí Sviss.
Keppnin má hefjast 1. mars á
næsta ári og á að vera lokið 17.
nóvember 1993, en engir leikir
mega fara fram í júní á næsta
ári, þegar úrslitakeppni Evrópu-
mótsins verður í Svíþjóð.
I Evrópu verða sex iiðlar, fimm
með sex liðum og sá sjötti með
sjö ’iðum, en styrleifeáflokkamir
eru eftirfarandi:
Flokkur 1:
Ítalía, England, Spánn, Beigía,
Sovétríkin, Frakkalnd.
Flokkur 2:
Júgóslavía, Tékkoslóvakía, Holl-
and, Skotland, Austurríki, írland.
Flokkur 3:
Rúmenía, Danmörk, Pólland,
Ungveijaland, Portúgal, Svíþjóð.
Flokkur 4:
Norður - írland, Búlgaría, Sviss,
Noregur, Grikkland, Wales.
Flokkur 5:
Tyrkland, ÍSLAND, Finnland,
Álbanía, Malta, Kýpui-.
Flokkur (i:
ijúxemborg, San Marínó, Færeyj-
ar, Eistland, Lettland, Litháen,
ísrael.
ir lok fyrri hálfleiks, en lék vel í
seinni hálfleik. Rondey Robinson
stóð fyrir sínu, skoraði grimmt og
tók mörg fráköst. Jóhannes Krist-
björnsson átti besta leik sinn í lang-
an tíma og Kristinn Einarsson gerði
það sem til var ætlast.
Haraldur Leifsson kom mest á
óvart hjá Tindastóli, var mjög góður
og gerði m.a. þijár þriggja stiga
körfur. Pétur Guðmundsson og Ivan
Jonas voru drjúgir í vörninni og
Einar Einarsson var traustur, en
breiddina vantaði.
ÚRSLIT
UMFIM - UMFT 97:82
íþróttahúsið í Njarðvík, íslandsmótið í
körfuknattleik, Japisdeildin, föstudaginn 6.
desember 1991.
Gangur leiksins: 0:5, 2:5, 7:17, 19:23,
26:23, 28:29, 34:34, 40:43, 48:45, 63:54,
78:60, 90:78, 97:82.
Stig UMFN: Rondey Robinson 27, Jóhann-
es Kristbjörnsson 17, Kristinn Einarsson
12, Ástþór Ingason 12, Teitur Örlygsson
11, Friðrik Ragnareson 8, ísak Tómasson
4, Stefán Örlygsson 2, Agnar Ólsen 2,
Biynjar Sigurðsson 2.
Stig UMFT: Haraldur Leifsson 23, Ivan
Jonas 22, Pétur Gúðmundsson 17, Einar
Einai-sson 14, Björn Sigtryggsson 4, Hinrik
Gunnarsson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristinn
Albertsson.
Áhorfendur: Um 200.
■ RIVER Plate fráArgentínu
vann Steaua Búkarest 1:0 í keppn-
inni í fyrra, en þetta er 12. árið,
sem hún fer fram.
■ CLIVE Allen, fyrrum landsliðs-
maður Englands, var í gær seldur
frá Manchester City til Chelsea
fyrir 250 þúsund pund. Allen, sem
er þrítugur, hefur áður leikið með
Q.P.R, Arsenal, Tottenham,
Crystal Palace og franska liðinu
Bordeaux.
■ MILOSLAV Mecir, ólympíu-
meistari í tennis frá Tékkóslóvakíu,
leikur líklega ekki oftar tennis
þar sem iiann á við alvarlega
bakmeiðsli að stríða. Mecir sem
hefur viðurnefndið „Stóri köttur-
inn” gekkst undir uppskurði í baki
í fyrra og síðan aftur á þessu ári
og hefur ekki náð bata.
■ ERNST Vettori frá Austurríki
sigraði í stökki af 120 metra palli
á heimsbikarmóti sem fram fór í
Thunder Bay á mánudaginn. Hann
stökk 123 metra í síðari stökki sínu
og skaust upp fyrir Jim Holland
frá Bandaríkjunum sem stökk 12?
metra í fyrra stökki sínu. Stefan
Zund, Sviss, varð þriðji með 228,4
stig og náði lengsta stökki keppn-
innar, 126,5 metra, í síðari stökki
sínu.
M VALSMENN verða með opið
hús í Valsheimilinu frá kl. 15 á
morgun fram að leik.
■ VÍKINGAR fá UBK í heimsókn
annað kvöld í 1. deild í handbolta
og verður frítt inn.