Morgunblaðið - 08.04.1993, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1993
M
Akurnesingar mótmæla
lokun skoðunarstöðvar
Akranesi.
AKURNESINGAR hafa í bréfi til dómsmálaráðherra óskað eftir
heimild til að reka áfram bifreiðaskoðunarstöð þá sem nú er starf-
andi í bænum en fyrir liggur að Bifreiðaskoðun íslands muni loka
stöðinni á Akranesi í haust.
Bréfritarar geta með engu móti
fallist á að sjálfsögð þjónusta við
skyiduskoðun bifreiða verði skert
mjög verulega á Akranesi enda séu
þar um 2.000 bifreiðir og mjög óvið-
unandi að öllum þeim bifreiðaflota
verði ekið samtals um 70 kílómetra
leið til að sinna lögboðinni skyldu
um þjónustu. Ef miðað er við al-
mennt kílómetragjald fyrir þann
akstur sé kostnaðum röskar 4.000
krónur auk kostnaðar vegna vinn-
utaps, sem ætla má að gæti numið
um 4.000 vinnustundum á ári. Að
Beinbrotnaði í strætó
Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir fólki sem var í strætis-
vagni í bænum milli klukkan 14 og 15 þann 15. mars síðastliðinn og
varð vitni að því er lítil stúlka féll, sem kom inn 'í vagninn ásamt
móður sinni og systkini, datt og meiddi sig í þann mund er vagninum
var ekið frá biðstöðinni við Sólvang.
Telpan meiddi sig talsvert og grét
hástöfum en hún handleggsbrotnaði
meðal annars. Að sögn lögreglu voru
a.m.k. fjórir farþegar í bílnum auk
móður telpunnar og er vonast til að
þeir geti muni eftir atvikinu og varp-
að ljósi á aðdraganda þess.
Málið snýst um það hvort trygg-
ingum strætisvagnsins beri að taka
þátt í kostnaði við læknismeðferð
telpunnar
þessu má ráða að viðbótarkostnaður
bifreiðaeigenda á Akranesi verður
mun hærri en rekstrarkostnaður
skoðunarstöðvar á staðnum. Bréfrit-
arar benda á að bifreiðaeigendur á
Akranesi munu hvorki sætta sig við
þá staðreynd né heldur að einokun-
arfyrirtæki ákveði að leggja niður
almenna lögboðna þjónustu á jafn
stórum stað og Akranes er-
Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra á Akranesi, líta heimamenn
þetta mál mjög alvarlegum augum
og munu láta einskins ófreistað til
að vekja á því athygli. „Við höfum
gengið á fund ráðherra og kynnt
honum persónulega afstöðu okkar
auk bréfaskrifta. Við teljum að skoð-
unarstöðin á Akranesi hafi sinnt sínu
hlutverki með ágætum og með lítils-
háttar lagfæringum megi auka ör-
yggi skoðana verulega. Engin
ástæða sé til að skoðunarþjónusta í
þeirri stöð verði lakari en sú þjón-
usta sem Bifreiðaskoðun íslands
muni veita,“ sagði Gísli að lokum.
- J.G.
T í U
þ ú s u n d
k r ó n a
a f s / á t t u r
Vegna sérlega hagslæöra samninga
gefst þér kostur á aö eignast
47.400 króna DAUPHEN skrifstofustól
með tíu þúsund króna afslætti
DAUPHIN CT 2347 hefur reynst
þeim, sem vinna viö töivur, sérstaklega vel því
hann er nettur og veitir góðan bakstuöning.
TÖLVUTÆKI
FURUVÖLLUM 5
AKUREYRI
GSEEO=
HÚSGAGNADEILD
HALLARMÚLA 2 REYKJAVÍK
TILBOÐSVERÐ
Á MEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST.
Frá vetrarnámskeiði Björg-unarhundasveitar íslands.
Vetramámskeið BHSÍ
á Hrauneyj arfossi
BJÖRGUNARHUNDASVEIT íslands hélt vikuna 5.-12. mars
sl. sitt ellefta vetrarnámskeið. Námskeið þessi eru haldin í lok
vetrar ár hvert. Þátttakendur voru hvaðanæva að á landinu,
alls 16 mánns og 14 hundar.
Tilgangur slíks námskeiðs er nesi, Vestfjörðum og Norðfirði.
að prófa og útskrifa hunda til Þess má geta að Björgunar-
leitar í snjóflóðum. Að þessu sinni hundasveit Islands hóf nýlega
voru 7 hundar útskrifaðir á út- þjálfun á hundum til leitar á
kallalista og 2 á vinnulista. Út- auðri jörð og hefur sú þjálfun
kallshæfir hundar í snjóflóðaleit nú þegar skilað árangri.
eru nú þegar í Reykjavík, á Akra- (Fréttatiikynning)
Orkusparnaður og
vistvæn bygging
í dag, skírdag, kl. 14.00 hefst sýning í Gamla Álafossi, við Álafossveg
í Mosfellsbæ, sem nefnist Orkusparnaður og vistvæn bygging. Sýning-
in stendur yfir páskadagana og lýkur á mánudag, annan í páskum.
Húsið verður opið milli 14.00 og 18.00 alla daga.
Byggingalist og mál henni tengd
hafa á síðustu árum orðið mikilvæg-
ur þáttur í áhugamálum fólks. í
fréttatilkynningu segir að sýningin
Orkusparnaður og vistvæn bygging
sé fyrir þá sem ætla að byggja í
framtíðinni, og einkum þá sem hafa
hug á að lækka orku-og rekstrar-
kostnað híbýla sinna, á sama tíma
og húshitunarkostnaður hækkar og
viðhald húsa eykst stöðugt. Á sýn-
ingunni í Gamla Álafossi verða
kynnt raunhæf viðbrögð við þessum
útgjöldum.
N AMIÐ,F| ARM ALIN
LÍFIÐ!
UK-17 býbur fjármálaþjónustu
og margt fleira
fyrir sjálfstætt ungt fólk.
Komdu í klúbbinn!