Morgunblaðið - 08.04.1993, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 08.04.1993, Qupperneq 76
76_____________________________ MORGUNBLAÐIl) Fl.MMTUDAGUR 8. APRÍL 1993_ Guðrún Fríða Péturs- j|§gfe; dóttír — Minning Hjónaminning * * Olafur Olafsson og Halldóra Bærings Ólafur Ólafsson fæddist að Móakoti í Garði hinn 30. mars 1893. Foreldrar hans voru Ólafur Sæmundsson útvegsbóndi og Kristín Sigurðardóttir Kortssonar úr Kjósinni. Ólafur ólst upp í Móakoti og eins og venjan var þá byijuðu börnin fljótt að hjálpa til við bú- verkin og snemma hóf hann að sækja sjó á opnum bátum. Á upp- vaxtarárum hans var blómleg byggð í Garðinum og sjósókn mik- ið stunduð þaðan. Meðal annars hafði Milljónafélagið þar starf- semi og gerði út marga báta. En þrátt fyrir mikla vinnu gleymdi fólkið ekki félagslífinu. Leikfélag var þar starfandi og tók Ólafur virkan þátt í því og einnig gegndi hann meðhjálparastarfi í Utskálakirkju. Mikill samgangur var á milli bæja og minntist hann oft með hlýhug búendanna að Lambastöðum, í Nýjabæ, á Meiða- stöðum og Hofí. Ólafur fluttist til Reykjavíkur 1926 og stundaði sjómennsku fram til ársins 1933 er hann hóf störf hjá Reykjavíkurborg. Hann gerðist verkstjóri við gatnagerð og voru margar götumar Iagðar undir hans verkstjóm. Þegar ald- urinn færðist yfír gerðist hann verkstjóri yfír unglingavinnunni. Hafði hann rnikla ánægju af að vinna með unglingunum. Var hann vinsæll meðal þeirra því að hann var rólegur maður og hæg- látur. Góður kunningsskapur myndaðist á milli hans og margra unglinganna sem þar unnu og hélst sá kunningsskapur á meðan hann lifði. Síðustu starfsár sín var hann gæslumaður, fyrst á Mela- vellinum og síðar á íþróttaleik- vanginum í Laugardal. Félagsmál voru honum ofarlega í huga. Hann var fylgismaður Heimastjómar og gekk síðar í Sjálfstæðisflokkinn, þar sem hann sat lengst af í fulltrúaráði flokks- ins. Ólafur kvæntist 1926 eigin- konu sinni Halldóru Bærings, f. 4. september 1895. Foreldrar hennar voru Bæring Bæringsson, bóndi í Furufirði, og Guðrún Tóm- asdóttir. Halldóra ólst fyrst upp í Furu- fírði, en fluttist með foreldrum sínum og systkinum til Barðsvíkur og síðan á Faxastaði í Grunnavfk. Á Faxastöðum bjuggu þau þar til Bæring lést 1925, en þá fluttist Guðrún með börn sín til Reykja- víkur. Halldóra fór í Húsmæðra- skóla á Akureyri um 1920 og má segja að það hafí verið mikið í lagt á þeim tíma. í Reykjavík vann hún í fískverk- un-og hélt því starfí áfram eftir að hún giftist Ólafí, enda var hún sístarfandi. Það má segja að hörð lífsbarátta norður á Homströnd- um hafí markað skapgerð hennar. Hún var dugleg, raunsæ og veg- lynd þeim sem hún tók. Það fór ekki framhjá neinum að þau hjón- in voru ólík í skapi, hann var hinn rólegasti, hvers manns hugljúfi og vann sín verk yfirvegaður. Hún var hinsvegar kvik og fljót til verka, en þó alltaf öragg og tilbú- in til hjálpar ef á þurfti að halda. Ólafur og Halldóra eignuðust einn son, Hafstein B. Ólafsson, starfsmann Pósts og síma, en fyr- ir átti Halldóra son með Amóri Jónssyni frá Höfðaströnd í Jökul- fjörðum, Hannes skrifvélavirkja, og gekk Ólafur honum í föður stað. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu Ólafur og Halldóra á Njálsgöt- unni, en 1936 keyptu þau húsið á Skólavörðustíg 42 og bjuggu þar það sem eftir var. Á Skóla- vörðustígnum bjuggu einnig mæður þeirra hjóna, Kristín móð- ir Ólafs og Guðrún móðir Hall- dóra, ásamt Guðna bróður Hall- dóra. Mikill gestagangur var á heimilinu og gestrisni mikil, enda vel tekið á móti öllum. Alltaf var nóg kaffí á könnunni og meðlæti með því. Litu margir inn hjá þeim, bæði að vestan og að sunnan. Ólafur lést hinn 1. janúar 1973, en Haldóra hinn 30. mars 1978. Arnór Hannesson. Fædd 28. október 1937 Dáin 3. apríl 1993 í dag kveðjum við mína kæru svilkonu Guðrúnu F. Pétursdóttur sem lést hinn 3. þessa mánaðar á Krabbameinsdeild Landspítalans. Gunna, eins og hún var ávallt kölluð, var fædd í Ólafsvík, dóttir hjónanna Ingibjargar Ólafsdóttur og Péturs Ásbjömssonar sjómanns. Ung missti hún föður sinn í sjó- slysi. Tvo albræður á Gunna, þá Guðmund og Ásbjöm. Seinna eignaðist hún þijá hálf- bræður og eina hálfsystur sem heita Haraldur, Guðleifur, Pétur og Theó- dóra, en hún lést rétt rúmlega tví- tug frá ungu barni og eiginmanni. Gunna ólst upp á Olafsvík en fór ung til Stykkishólms til að læra saumaskap. Frá Stykkishólmi lá leiðin hingað til Reykjavíkur og hér vann hún síðan við verslunarstörf, saumaskap og fleira. Þau alsystkinin gengu í Skáta- hreyfinguna og völdust þar öll til ábyrgðarstarfa og er óhætt að full- yrða að skátahugsjónin skipaði stóran sess í lífsskoðun þeirra allra. Hún kynntist mági mínum, Ólafi Siguijónssyni, góðum og traustum manni, og gengu þau í hjónaband 10. júlí 1950 og var það þeim báð- um gæfuspor svo samhent voru þau í einu sem öllu og var vart hægt að nefna Óla án þess að Gunna væri nefnd líka. Fyrstu árin leigðu þau íbúð við Hrísateig, en árið 1953 fengu þeir bræðurnir Óli og Baldur lóð í Aust- urbrún 25 þar sem þeir byggðu myndarlegt hús saman. Á efri hæð- inni bjuggu þau sér og börnum sín- um fallegt og hlýlegt heimili þar sem vel var tekið á móti öllum, enda alla tíð mjög gestkvæmt hjá þeim því að vina- og ættingjahópur- inn var stór. Gunna og Óli eignuðust fimm börn. Elst er Karólína Ingibjörg hjúkrunarfræðingur, búsett í Fæddur 31. janúar 1914 Dáinn 22. febrúar 1993 8. mars fór fram frá Akureyrar- kirkju útför frænda míns Valdimars Sigurðssonar sem lést 22. febrúar síðastliðinn. Valdimar var fæddur að Stóra-Fjarðarhomi 31. janúar 1914, sonur hjónanna Sigurðar Þórðarsonar bónda þar og konu hans Kristínar Kristjánsdóttur. Valdimar var yngstur níu barna þeirra hjóna. Uppeldi Valdimars var í engu frábrugðið uppeldi annarra barna og unglinga á þeim tíma. Byijað var strax að hjálpa til við sveita- störfín um leið og þroski leyfði, lít- ill tími til leikja, en þeim mun meira kapp lagt á vinnuna. Þótt vinnutími hafði oft verið langur gafst þó tími til lesturs góðrar bóka, enda munu foreldramir hafa haldið bókum að bömum sínum og kennt þeim að meta góðar sögur og ljóð. Því var það þannig að Valdimar las alla tíð mikið, átti gott bókasafn og kunni jafnvel utan að heilu sögumar. Á uppvaxtarárum var ekki mikið um skólagöngu. Þó mun Valdimar hafa dvalið einn vetur á Laugarvatni. Eftir að Valdimar fór frá Stóra- Fjarðarhorni lágu leiðir hans víða. Á tímabili stundaði hann sjósókn frá Vestijörðum og fleiri stöðum, á þessum árum mun hann hafa geng- ið í Stýrimannaskólann og öðlast skipstjómarréttindi. Sem sjómaður stóð hugurinn til að eignast eigið skip sem hann og gerði. Nefndi hann það „Sporð“ og gerði það út um nokkurra ára skeið, var sjálfur alla jafnan skipstjóri á því og farn- aðist vel. En leiðin lá frá fískiskip- Bandaríkjunum, gift Perry G. Wil- son og eiga þau þijú börn. Næstur er Siguijón Árni bifvélavirki, kvæntur Hildi Sigurðardóttur fóstru og eiga þau þtjú börn. Þriðja í röðinni er Hafdís matreiðslumeist- ari, gift Guðjóni Guðnasjmi raf- virkjameistara og eiga þau fjögur böm. Næst yngst er Theódóra rak- arameistari, gift Þóri Ingvasyni starfsmanni hjá sendiráði Banda- ríkjanna hér í borg og qiga þau þijár dætur. Yngstur er Óli Rúnar matreiðslunemi sem lýkur námi nú í vor. Einnig gengu þau Hrafnhildi Atladóttur, bróðurdóttur Óla, í for- eldrastað er hún missti báða for- eldra sína með stuttu millibili. Nú era barnabörn Gunnu og Óla orðin þrettán, öll dugleg og mannvænleg eins og þau eiga ættir til. Gunna varð fyrir þeirri miklu sorg að missa Óla fyriur rúmum þremur árum og í veikindum hans sýndi hún dugnað sinn og kjark og vék vart frá sjúkrabeði hans fyrr en yfir lauk. Gunna var sterkur og traustur persónuleiki og dugleg með afbrigð- um. Allt sem hún snerti á lék í höndum hennar. Þegar börnin kom- ust á legg fór hún ð vinna úti, lengst af hjá Sparisjóði Reykjavíkur á Skólavörðustíg og líkaði henni þar vel. Veit ég að þar líkaði einnig vel við hana. Eftir að Óli dó fór hún einnig að vinna á sjúkradeild Hrafn- istu. Fyrir tæpu ári greindist hjá henni alvarlegur sjúkdómur sem var að vonum mikið áfall, en í baráttu sinni við þessi veikindi hafa komið í ljós allir þeir miklu kostir sem Gunnu voru gefnir. Sá ótrúlegi kjarkur og dugnaður sem hún hefur sýnt ásamt óbilandi bjartsýni og þrautseigju er okkur sem eftir lifum holl lexía til eftirbreytni. Hún vildi vera heima sem lengst, sem henni tókst með eigin dugn- aði, en ekki síður aðstoð barna sinna sem veittu henni alla þá hjúkrun, unum yfir á vöruflutningaskip og var Valdimar í millilandasiglingum á stríðsárunum. Þegar stríðinu lauk fór hann í land, hóf meðal annars störf í járn- smíði og seinna í Gufupressunni á Akureyri sem hann síðar meir eign- aðist og var best þekktur á Akur- eyri sem Valdi í pressunni. Hann rak hana um langt árabil við góðan orðstír, enda sérlega lipur við starfsfólk jafnt sem viðskiptavini. Þegar hann keypti húsnæðið að Skipagötu 12 þar sem Gufupressan var til húsa hófst hann fljótlega handa og byggði tvær hæðir ofan á húsið. Seinna seldi hann allt hús- ið verkalýðsfélaginu Einingu, keypti íbúð í Víðilundi 14 og bjó þar til æviloka. Valdimar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans hét Laufey Einarsdóttir frá Eyrarlandi. Eignuðust þau tvö börn, Einar Má, lækni í Reykjavík, og Kristínu, sálfræðing, búsett í Svíþjóð. Seinni kona hans er Hrafn- hildur Þorvaldsdóttir frá Akureyri. Eignuðust þau eina dóttur, Völu, garðyrkjufræðing, sem búsett er á Akureyri. Áður eignaðist hann með Guðrúnu Örnólfsdóttur Harald Hamar ritstjóra, sem búsettur er í Reykjavík. Ekki mun Valdimar hafa tekið mikinn þátt í félagsmálum, en marga átti hann vini og kunningja, enda hrókur alls fagnaðar þar sem hann kom og góður heim að sækja. Kom þá vel í ljós hvað hann var víðlesinn og fróður um hina ólíkleg- ustu hluti og málefni. Mætti marg- ur langskólagenginn maðurinn vel við una að hafa þá almennu þekk- ingu á þjóðmálum sem hann hafði Valdimar Sig- urðsson - Minning aðstoð og ástúð sem þeim var unnt ásamt ómetanlegri aðstoð heima- hlynningar Krabbameinsfélagsins. Gunna þekkti ekki sjálfsvorkun, það var ekki hennar lífsstíll. Þegar spurst var fyrir um líðan hennar og svarið var „æi, ég er löt,“ þá vissi ég að hún var lakari. í þessari kveðju vil ég þakka Gunnu minni fyrir árin 38 sem við erum búin að búa sitt á hvorri hæðinni og aldrei man ég til þess að okkur hafí orðið sundurorða. Baldur mágur þinn, Lóa, Gústaf og fjölskylda þeirra þakka fyrir allt. Dag einn stöndum við frammi fyrir þeirri staðreynd að tími ást- vina, skyldmenna og vina er liðinn hér á jörðu. Stundum er aðdragand- inn snöggur og stundum er hann langur. I báðum tilvikum er söknuð- urinn sár, en þá er gott að eiga góðar minningar um þann sem far- inn er. Mininguna geymi ég um góða vinkonu og þakka henni fyrir sam- fylgdina og kveð hana með söknuði um leið og ég bið góðan Guð að leiða hana á nýjum vegum. Við hjónin vottum börnum hennar, tengdabörnum og barnabömum okkar dýpstu samúð. Guð geymi þig, Gunna mín. Halldóra Sigurðardóttir. auk annarrar sérþekkingar sem hann hafði í gegnum tíðina aflað sér. Oft er það svo að þegar sól er hátt á lofti dregur ský fyrir og svo var einnig um Valdimar. Hann fékk þann sjúkdóm sem í dag er enginn möguleiki að lækna, en er oft lang- vinnur, smátt og smátt herðir hann tökin þar til yfír lýkur. Ekki heyrð- ist Valdimar kvarta, heldur tók því sem að höndum bar með ró og karl- mennsku. Síðustu árin varð hann þó að dvelja á hjúkrunardeildinni Seli þar sem liann gat ekki lengur verið heima þrátt fyrir mikla og góða umönnun eiginkonu sinnar. Á Seli naut hann þeirrar bestu umönn- unar sem völ var á. Að leiðarlokum þakka ég frænda mínum fyrir allt það sem hann gerði fyrir mig, góð kynni og vil ég um leið votta mína dýpstu samúð eigin- konu hans, bömum og öðrum að- standendum. Páll Hjartarson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.