Morgunblaðið - 18.03.1997, Side 33

Morgunblaðið - 18.03.1997, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1997 33 ____________________MEIMiMTUIM Námstefna í tilefni af Ári símenntunar Menntun fæst víð- ar en í skólum FRÁ námstefnu Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands. Randver Fleckenstein fræðslustjóri Islandsbanka flytur erindi sitt. RANNSÓKNAÞJÓNUSTA Há- skóla íslands (Rþj) gekkst fyrir námstefnu sl. föstudag um símennt- un. Að sögn Ingibjargar Gísladóttur deildarstjóra hjá Rþj þótti vert að halda námstefnuna í tilefni þess að Ár símenntunar er að baki, en vekja jafnframt athygli á að símenntun eigi stöðugt erindi við þá sem vilja vera samkeppnishæfír, hvort sem eru einstaklingar, atvinnurekendur eða þjóðfélagið í heild. Að sögn Ingibjargar kynntu menn hugmyndir, möguleika og aðgerðir til að efla símenntun eink- um innan fyrirtækja. Einnig var kynning á verkefnum sem unnin hafa verið á árinu og styrkt voru af Evrópusambandinu. Fjárfest í fólki Ingi Bogi Bogason frá Samtökum iðnaðarins gerði grein fyrir mennta- og gæðakerfi, sem hefur það að markmiði að efla hæfni atvinnulífs- ins og nefnist „Fjárfest í fólki“ (FÍF). Hefur áætlunin hlotið viður- kenningu breskra yfirvalda, at- vinnurekendasamtaka og launþega- hreyfingarinnar. Áætlunin felur í sér að sjálfstætt reknar skrifstofur taka að sér verk- efni á sviði menntunar fyrir at- vinnulífið, skilgreina þarfir þess, setja saman og taka út mennta- og starfsþjálfunaráætlanir. Fyrir- tækjunum er þannig sett markmið og er litið á starfsfólk sem lykilinn að því að fyrirtækin nái markmiðum sínum. Sagði Ingi Bogi að ávinningur FÍF-áætlunarinnar væri m.a. sá, að starfsfólk teldi þörfum sínum um endurmenntun fullnægt, fyrirtækj- um héldist betur á fólki, veikinda- dögum fækkaði, stjórnendur skildu betur að þeir væru hluti af hóp og samkeppnishæfni fyrirtækja ykist. Starfsmat Bretinn Peter N. Bowyer gerði grein fyrir kerfi, sem hann starfar við í Bretlandi, National Vocational Qualifícations (NVQ) og General National Vocational Qualifications (GNVQ). Veitir það fólki skírteini fyrir ákveðna kunnáttu og er viður- kennt af skólum og atvinnurekend- um um allt landið. „Megininntak erindis Bowyers fjallaði um að prófgráða ein út af fyrir sig segi ekki allt heldur þurfi einnig að meta reynslu manna úr atvinnulífinu og lífinu sjálfu. Þetta kerfí sem hann ræddi um gefur fólki í Bretlandi möguleika, til dæm- is þegar það vill skipta um starf að taka próf í því sem það telur að það kunni. Áherslan er því frem- ur lögð á raunverulega hæfni og kunnáttu í stað þess að telja upp prófgráður og námskeið. Einnig aðstoðar stofnunin einstaklinga við að leita leita að menntunarmark- miðum,“ sagði Ingibjörg. Hæfni starfsfólks Randver Fleckenstein fræðslu- stjóri íslandsbanka sagði frá nýjum stjórnunaraðferðum, sem hann nefndi Stjórnun á grundvelli hæfni starfsmanna. Hann kom inn á hvernig starf fræðslustjóra fyrir- tækja er að breytast frá því að vera stöðugt að búa til námskeið í það að vera í auknum mæli ráð- gjafi við stjórnendur. Sagði hann að Stjórnun á grund- velli hæfni starfsmanna væri fyrst og fremst kerfi til að bera saman æskilega hæfni og kunnáttu starfs- manna við raunverulega kunnáttu og hæfni þeirra. „Því fljótari sem við erum að brúa bilið á milli núver- andi kunnáttu og æskilegs kunn- áttustigs, því betur erum við í stakk búin fyrir samkeppnina," sagði hann. Hann tók fram að skilgreina yrði hvaða þætti starfsmaðurinn þyrfti að leggja áherslu á í eigin þróun, svo að viðskiptamarkmið fyrirtæk- isins næðust. Með þessu kerfi sagði Randver að vænta mætti persónubundnari þróunar og meiri framleiðslu. „Betri nýting á starfsfólki er úrslitaatriði fyrir fyrirtæki sem ætla að auka framleiðni," sagði hann. Samvinna KHÍ og sveitarfélaga Félagsvísindadeild Háskóla íslands Samstarf við atvinnu- lífið um rannsóknir Fjöldi námskeiða úti á landi TVÖFÖLDUN verður á framboði námskeiða fyrir grunnskólakennara á vegum Kennaraháskóla íslands (KHÍ) á þessu ári miðað við í fyrra. Að sögn Guðrúnar Kristinsdóttur endurmenntunarstjóra KHÍ er meg- inástæðan aukið samstarf við sveit- arfélögin, sem leggja fram hluta kostnaðar. Munar einna mest um Reykjavík, sem heldur 16 námskeið í samvinnu við KHÍ. Sú breyting verður einnig á að nú verða fjölmörg námskeið haldin úti á landi, s.s. á Blönduósi, Vest- mannaeyjum og Laugarvatni. Þá hafa nokkur smærri sveitarfélög tekið sig saman um námskeiðahald. T.d. verður efnt til þriggja nám- skeiða á Norðurlandi vestra í sam- starfí við Skólaskrifstofu Skagfirð- inga, Siglfirðinga og Húnvetninga. Alls verða 75 námskeið í boði í stað 39 í fyrra og verður sérstök áhersla lögð á notkun tölvu- og upp- lýsingatækni í skólastarfí auk raun- greina. „Við munum þó sem fyrr leggja áherslu á í'jölbreytni. T.d. verður boðið upp á námskeið í prófa- gerð, námsmati o.fl.,“ sagði Guðrún. ATVINNUMÁLANEFND félagsvís- indadeildar Háskóla íslands hefur gert samstarfssamning í formi vilja- yfirlýsingar við nokkur fyrirtæki og stofnanir um að nemendur vinni af- mörkuð verkefni í þágu atvinnulífs- ins. Um er að ræða öll svið sem kennd eru við deildina. Nú þegar hefur eitt verkefni, sem snýr að starfsmannamálum, verið unnið fyr- ir Flugleiðir hf. Fleiri verkefni eru í undirbúningi, sem snúa að starfsmannamálum, mannfræði, athugunum á ýmsum þáttum íþrótta o.fl., að sögn Daða Einarssonar nemanda í stjórnmála- fræði og frumkvöðuls nefndarinnar. „Þetta er ávinningur fyrir alla sem hlut eiga að máli. Nemandinn fær reynslu og kynnist því hvernig hann getur nýtt þekkingu sína úti í at- vinnulífinu, deildin skilar af sér hæfara fólki og atvinnulífíð fær ódýran starfskraft, sem jafnframt hefur aðgang að sérfræðiþekkingu á viðkomandi sviði innan skólans." Frumkvæðið frá báðum Yfirleitt er miðað við að verkefnin taki ekki meira en tvær vikur en það fer þó eftir umfangi þeirra. Upphaf verkefna er þannig að annaðhvort lýsir samstarfsaðili yfir áhuga á að ákveðið viðfangsefni sé skoðað eða nemendur eða kennarar innan deild- arinnar óska þess. „Kennari tekur að sér að vera faglega ábyrgur og það er hans mat hveiju sinni hvort nemandi búi yfír þeirri færni að geta leyst viðkomandi verkefni. Þetta er því ekki endilega bundið við lokaáfanga í BA-náminu,“ sagði Daði. Nýr vettvangur um samvinnu Jón Torfi Jónasson, forseti félags- vísindadeildar, lýsir yfir ánægju með þetta frumkvæði nemenda og segir hér kominn vettvang fyrir deildina og fyrirtæki/stofnanir um samvinnu. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu áhuginn er mikill hjá þeim sem við höfum rætt við um að koma þessu starfí á.“ Hann segir að miðað við þær við- ræður sem fulltrúar deildarinnar hafi átt við fyrirtækin sé ekki tilefni til að ætla að samstarfið nýtist einu námi betur en öðru. Hann bendir jafnframt á að svipað samstarf sé milli nokkurra annarra deilda há- skólans og atvinnulífsins. Tímarit skólar/námskeið ______ýmislegt___ • FIMMTI árgangur Uppeldis og menntunar er komið út. Sigrún Aðalbjarnardóttir og Kristjana Blöndal skýra frá niðurstöðum rannsókna á tóbaks- og hassneyslu unglinga. I tveimur greinum er fjall- að um hugtökin gæðamat og gæðastjórnun. Þá eru birtar nið- urstöður rann- sókna Lofts Guttormssonar á tengslum heim- ila og skóla í sögulegu ljósi. Einnig fjalla nokkrar greinar um málefni sem tengjast kennslu með beinum hætti, s.s. Sérkennsla og umbætur í skóla- starfí eftir Trausta Þorsteinsson, Kynferði, jafnrétti og þroski barna eftir Ragnhildi Bjarnadóttur, Að greina Mozart frá Mendelssohn eftir Þóri Þórisson og Um bækur og námsefni eftir Sigurð Konráðsson. Ritstjóri Uppeldis og menntunar er Ragnhildur Bjarnadóttir. Tímarit- ið kemur út einu sinni á ári og fæst í stærri bókaverslunum og hjá Rann- sóknarstofnun KHÍ. Brúdkaupsmyndir PÉTUR PÉTURSSON LJÓSMYNDASTÚDÍÓ LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624 ■ Fullorðinsfræöslan matshæft eininganám Fornáms og framhaldsskólastig. Prófáfangar og námskeið. Skólanám og fjamám. ENS, DAN, SÆN, NOR, ÞÝS, SPÆ, HOLT, STÆ, EÐL, EFN, ÍSL, ARAB, ICELANDIC og námseið f. atvinnulausa og f. samræmdu prófin. Námsaðstoð. S. 557 1155. lulloröinsfræOslan Sími 557 1155 1] Gerðubergi 1 S. 557 1155. tölvur ■ Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn, Hólshrauni 2, Hafnarfirði sími 555 4980 Mörg námskeið að byija: Auglýsingagerð (CorelDraw/7) Upplýsingatækni - 72 kennslust. Skrifst. & upplýsingatækni. Windows 95 Word 97 Excel 97 # Öllnámsgögn innifalin. • Fyrsta flokks aðstaða. Nýi tölvu- og viðskiptaskolinn, sími 555 4980. ■ Námskeið - starfsmenntun 64 klst. tölvunám. 84 klst. bókhaldstækni. ■ Stutt námskeið: Windows 95. PC grunnnámskeið. Word grunnur og framhald. Excel grunnur og ffamhald. Access grunnur. PowerPoint. PageMaker. Bamanám. Unglinganám í Windows. Unglinganám í forritun. Intemet námskeið. hagstætt verð og afar veglegar kennslu- bækur fylgja með námskeiðum. Skráning í síma 562 6699, netfang tolskrvik@treknet.is, veffang www.trknet.is/tr. Tolvuskóli Reykiavíkur B Borgartúni 28, simi 91 -616699 Myndaupphengi 15% afsláttur til páska MIÐSTOÐIN Sóltúni 10 (Sigtún 10) sími 511 1616

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.