Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 18

Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Silli FJÖLMENNI var á ráðstefnunni á Húsavík. m— 7w~r s IT-— ‘Jgfcj Við getum betur - Ráðstefna um forvarnir Húsavík - Mjög fjölmenn ráð- stefna var haldin á Húsavík í síðustu viku um forvarnir á Norðurlandi eystra undir kjör- orðinu „Við getum betur“, á vegum áætlunarinnar Island án eiturlyfja 2002 og Húsavíkur- bæjar í samstarfi við önnur sveitarfélög á Norðurlandi eystra, Landssamtakanna Heim- ili og skóli og SÁÁ. Soffía Gísladóttir, félagsmála- stjóri Þingeyinga, setti ráðstefn- una og lýsti ánægju sinni yfír hve fjölmenn hún væri, enda var hvert sæti í samkomusal Hótels Húsavíkur setið. Einar Njálsson bæjarstjóri ávarpaði viðstadda og gat þess hvað það gleddi sig að þessa ráðstefnu sætu fleiri ungmenni en hann hefði búist við, en það sýndi að sú æska sem hér væri stödd, þekkti sinn vitjunartíma. Hófust svo framsöguerindi undir fundarstjórn Önnu Sig- rúnar Mikaelsdóttur og fyrst tók til máls Snjólaug Stefánsdóttir, sem ræddi um Island án eitur- lyfja 2002. Aðrir frummælendur: Dr. Þórólfur Þórlindsson pró- fessor ræddi um fíkniefnaneyslu unglinga, Kristín Sigfúsdóttir sagði frá forvarnastarfí á Akur- eyri sem talið er að hafí verið árangursríkt, Halldór Guð- mundsson félagsmálastjóri sagði frá starfínu á Dalvík og Soffía Gísladóttir sagði frá starfínu á Húsavík. Að framsögu Iokinni var ráð- stefnugestum skipt í málstofur, sem tóku til sérstakrar umræðu eftirfarandi viðfangsefni: a) Samræmdar aðgerðir sveit- arfélaga gegn sölu tóbaks og áfengis til barna og unglinga. Hópsljórar Kristín Sigfúsdóttir og Þorgrímur Þráinsson. b) Agi og gildismat í uppeldi. Hópstjóri Svanfríður Jónasdótt- ir, alþingismaður og Unnur Halldórsdóttir. c) Hlutverk nemendaverndar- ráða. Hópstjóri Sturla Kristjáns- son ráðgjafi og Halldór Guð- mundsson. d) Unglingar og forvarnir. Umsjón Eiríkur Björn Björg- vinsson og Sveinn Hreinsson. Þessir hópar unnu vel og skil- uðu athyglisverðum hugmynd- um og tillögum, sem mikið voru ræddar og vonandi bera árang- ur í því mikla starfí sem framun- an er. Sameining félagshyggju- fólks í Borgarbyggð Borgarnesi - Á fundi félagshyggju- fólks í Búðarkletti í Borgarnesi mið- vikudaginn 11. mars sl. var stofnað- ur nýr listi sem hlaut nafnið Borg- arbyggðarlistinn. í stofnfundarályktun Borgar- byggðarlistans segir m.a.: „Með opnun Hvalfjarðarganga og samein- ingu sveitarfélaga skapast nýjar forsendur sem þarf að nýta. Rjúfa þarf áralanga kyrrstöðu í atvinnulífi og samfélagsþróun og blása til sóknar í stækkaðri Borgarbyggð. í þeim tilgangi samþykkir stofn- fundur Borgarbyggðarlistans ... að bjóða fram til komandi sveitarstjórn- arkosninga í Borgarbyggð. Markmið Borgarbyggðarlistans með framboði er að skapa raunhæfan valkost. Nýr meirihluti í bæjarstjóm er forsenda breytinga í sveitarfélaginu..." í stjórn Borgarbyggðarlistans voru kjörin Runólfur Ágústsson Laufási, Ingigerður Jónsdóttir Borgarnesi, Kristmar Ólafsson Borgarnesi, Örn Einarsson Mið- garði og Jórunn Jónsdóttir Borgar- nesi. Til vara Lilja Ólafsdóttir Borgarnesi og Sigurður Már Ein- arsson Borgarnesi. Að sögn Runólfs Ágústssonar stjórnarmanns Laufási sóttu um 80 manns stofnfundinn í Búðarkletti og alls væru um 100 manns búnir að skrá sig á stofnskrá Borgarbyggð- arlistans. Sagði Runólfur að ekki væri búið að ákveða hvort haldið yrði prófkjör en það væri ákvörðun 12 manna kosninganefndar sam- kvæmt samþykktum Borgarbyggð- arlistans. Taldi Runólfur að nokkuð jafnt hlutfall fólks úr Borgarnesi og sveitunum hefði mætt á fundinn. Forvarnir í þemaviku á Eyrarbakka og Stokkseyri Eyrarbakka - Dagana 9. til 13. mars unnu nemendur Bamaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri á ýmsa vegu með hugtakið forvamir. Skólinn starfar bæði á Stokkseyri, þar sem 1. til 5. bekkur em við nám, og á Eyrarbakka, en þar eru 6. til 10. bekkur. Þetta fyrirkomulag tók gildi 1. ágúst á fyrra ári og virðist ganga bærilega vel að sögn forsvarsmanna. Yngri nemendumir unnu með þann þátt forvama sem felst í heilbrigðu lífemi og áhugamálum. Hvemig má varast þær hættur í umhverfi okkar sem alls staðar eru íyrir hendi, svo sem í umferðinni. Eldri nemendumir unnu við sömu efni og þeir yngri, auk þess að vinna sérstaklega með tóbaks- og vímuefnavamir. Þess er vert að geta að enginn hinna sautján kennara við skólann reykir svo þeir era nemendum sínum góð fyrirmynd. í vikulok, fóstudaginn 13. mars, var síðan sýning á vinnu nemenda. Mánudaginn 9. mars sl. var stofnað foreldrafélag við skólann sem nær til beggja þorpanna. Skólastofnun árið 1852 Árið 1852 stofnuðu nokkrir áhugamenn bamaskólann á Eyrarbakka, en þá vora Eyrarbakki og Stokkseyri í sama hreppsfélagi, Stokkseyrarhreppi. Kennsla fór þá strax fram á báðum stöðunum. Málin þróuðust þannig að Bamaskólinn á Stokkseyri varð sjálfstæð stofnun, þannig að um langt skeið vora tveir bamaskólar í Stokkseyrarhreppi, eða þar til Eyi-arbakkahreppur var myndaður íyrir hundrað áram. Á síðasta ári vora skólamir sameinaðir á ný. Enn hafa sveitarstjómarmenn ekki ákveðið nafn á þessum endursameinaða skóla, sem til bráðabirgða nefnist Bamaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri. Bamaskólinn mun því enn um sinn ganga undir bráðabirgðanafninu. Snæfellsjökull tekur ofan Hellissandi - Oft heyrist á tali fólks, að Snæfellsjökull sé ekki eins mikilfenglegur og fallegur þegar að honum er komið og hann er tilsýndar sunnan úr Reykjavík eða úr Borgarfirði. Flestir sjá eða koma að suðurhlíðum hans. Ög víst getur hann verið fallegur þar. En Jökulinn að norðanverðu þekkja of fáir, því miður, en líklega þykir flestum sem hér búa hann vera fal- legastur einmitt þar. Að sjá Jökul- inn á heiðskírum og björtum degi af Hólsbreiðinni, milli Rifs og Ennis, verður flestum ógleyman- leg sjón. „Nú tekur hann ofan blessaður höfðinginn" sagði öldruð kona við fréttaritara Morgunblaðs- ins á góðviðrisdegi nýlega. Þá var þessi mynd tekin. Og var auðfund- in lotning og virðing í rödd hennar yfir þessari miklu náttúruperlu sem Jökullinn er. Þar býr líka Bárður Snæfellsás vemdari byggðarinnar eins og gamla fólkið kallar hann oft. «<nr«xx Opin vika í Nesjaskóla Höfn - Sköpunargleðin skein úr augum allra nemenda í Nesjaskóla þegar haldin var opin vika nýlega. Unnið var m.a. úr efni sem þau höfðu áður sótt út á fjörur og nýttu þau allt það sem fjaran gaf. Ekki fór tónlistin heldur varhluta af sköpunargleði barnanna. Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.