Morgunblaðið - 19.03.1998, Síða 56

Morgunblaðið - 19.03.1998, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Marx og Bakkus í Kópavogi SAMTÍMASÖGU er alltaf erfitt að rita. Jóreykur lífreiðarinnar er ekki sestur og byrgir sýn á farinn veg. Við vissum það alltaf að lýsingin á umhverfi unglingsára okkar yrði erfið þeim sem það tæki að sér. Kópavogur á áttunda áratugnum var að reyna að sýna manndóm eftir að hafa verið einskonar smíðavöllur fullorðna fólks- ins í vel á annan áratug. Skólamir voru að rifna utanaf gríðarstórum ár- göngum bama og unglinga í skyldu- námi og framhaldsnám var að verða til í þessu bæjarfélagi sem var orðið það næststærsta á landinu. Það var óvænt ánægja að lesa þá sögu frá sjónarhóli valds, mennta og yfirboða einsog raun varð á við lest- ur uppvaxtarsögu Menntaskólans í Kópavogi eftir Ingólf A. Þorkelsson sem var fyrsti skólameistari skólans. Það sem kom mest á óvart var hversu ótrúleg hún var þrátt fyrir að maður kannaðist við næstum allt sem frá var greint. Þrátt fyrir að vera mjög nærri í tíma er þessi saga og sá hugarheimur sem hún lýsir svo n* víðs fjarri þeirri veröld sem við þekkjum í dag. Ungt fólk og saklaust. Eða hvað? Það sem einkenndi hugarheim okkar menntskælinganna í Kópavogi fyrir um hálfum öðrum áratug og rúmlega það ef marka má ritaðar heimildir á borð við skólablöð, var einkum tvennt; byltingarkenndar og einarðar stjórnmálaskoðanir og áfengisdrykkja. Okkar ágæti skóla- meistari sýnir okkur þann sóma í sinni söguritun að setja þessa æsku- menningu, sem nú er farið að kalla, í víðara samhengi - jafnvel alþjóðlegt. Jú, vissulega náðu vestrænir straumar írelsis, friðar og jafnréttis til Kópavogs. Skærustu birtingarmyndir þess voru ugglaust þörfin fyi-ir að koll- varpa eldra gildismati og forakta vald, trúin á marxískar lausnir og brennivísndrykkja. Allt var brúkað hvunndags nema brennivínið. Það var spari. í einkar athyglisverðum kafla um tíðarandann á áttunda áratugnum sem Ingólfur kýs að kalla „Stjórn- andinn í kröppum sjó“, nær skóla- meistarinn fýrrverandi að tengja líf og hegðun menntskælinga í Kópa- vogi bylgjum menningar og tísku sem gengu þá yfir allan hinn vest- rænan heim. Auðsýnilegur skilningur höfundar á hreyfiöflum þjóðfélagsins setur busavígslur, byltingaráróður, mótmælafundi, ræflarokk og brenni- vínssukk í Ijós sögulegrar frmvindu. Skin og skúrir milli forystumanna nemenda og stjórnenda skólans sem Utu mætingakerfi, félagslíf og kennslu ekki sömu augum, fá sömu- leiðis þá sögulegu dýpt sem okkur í þá daga gat ekki órað fyrir. Nemend- ur sem eins og gengur voru misjafn- lega vopnum búnir til að takast á við bardaga lífsins, eru ekki í augum skólameistarans einstaklingar með eða án vandamála heldur ungmenni að takast á við umhverfi sitt. í köflum um félagslíf í skólanum birtist veröld þessara ungmenna á skýran hátt. Ingólfur dregur upp glettilega góða mynd af því hve bylt- ingarkenndar stjórnmálaskoðanir lituðu a.m.k. yfirborð félagsmála. Hann birtir tilvitnanir úr skólablöð- Uppreisn æskunnar fyrir um aldarfjórðungi átti sér tvo guðspjalla- menn. Annar er fallinn af stalli, segja Asgeir Friðgeirsson og Jón Kristinn Snæhólm. Ingólfur A. Þorkelsson hefur skemmtilegt sjónarhorn á þetta tímabil, þar sem hann var skólameistari Menntaskólans í Kópavogi. 6u pÍAÁAAxLcLCjAs - CUjp EV /TLOAA/. SIMI: S62 02 00 Perlan er afbragðs veitingastaður þar sem allt snýst um fólk. Kvöldstund í Perlunni er öðruvísi. Veitingar eru fyrsta flokks og þjónustan snýst um þig meðan þú snýst um borgina. Til að fullkomna rómantíska stund er svo tilvalið að fá sér snúning á dansgólfinu við Ijúfan söng og undirleik. Þar sem allt snýst umfólk *Kvöldverður og dans. cuyþmiáiandUs nxattuiÁiÆ mjiÁAXuavcui/ t a£dÍi uA Ín-ív UoaÁia.' lí ajð.i.no Fjórir sérvaldir'sjávarréttir, hver öðrum betri. 0nd< esi' oJcÍcxut. jxuj/ A) e/tfiÁ cL 6 íPesvbvntiú - íc.e.m u<v o. ó.Jxut/L. INGÓLFUR A. Þorkelsson, fyrrverandi skólameistari, afhendir Guðna Stefánssyni, forseta bæjarsfjórnar, eintak af sögu MK 1983-1993 við útskrift stúdenta 1995. Ásgeir Jón Kristinn Friðgeirsson Snæhólm um og greinir á hlutlægan og skýran hátt frá einstaka málum sem ýmist drógu dilk á eftir sér, voru stormur í vatnsglasi eða leiddu til framfara. Örugg vinnubrögð höfundar gera frásögnina trúverðuga en á því þarf hún að halda þar sem í pólitísku tillit hefur bylting átt sér stað, - en hún var þó ekki á þann veg sem boðberar marxismans ætluðu. Hugarheima framhaldsskólanema í dag þekkjum við ekki vel en við teljum okkur fara nokkuð nærri um að tilvitnunum í Marx, Lenín og Maó formann er ekki hent fram í rökræð- um um þjóðfélagsmál. Það þætti gamansemi í umræðunni um launa- mál kennara í dag ef það yrðu sett fram sem rök að styðja bæri kröfur kennara þar sem að þeir væru hluti hinnar smáborgaralegu millistéttar sem líkleg væri til stuðnings við verkalýðsöflin þegar dagur byltingar rynni upp. Það er ljóst við lestur þessa rits að hjá háværum hluta menntskælinga á áttunda áratugnum var Karl Marx hálfguð á stalli. Sá guð er nú af stalli fallinn. Ann- ar Guð virðist ætla að lifa lengur hjá ungmennum hér sem víðar enda er hann til muna eldri en þýski félags- fræðingurinn sem fyrst lét í sér heyra um miðbik síðustu aldar. Bakkus leiðir enn unglingana um öngstrætin eins og hann gerði fyrir nærri aldarfjórðungi. Ingólfur A. Þorkelsson greinir frá því í þessu riti hversu snúið það gat verið að hafa hömlur á áfengisnotkun menntskæl- inga. I þeim efnum voru skólastjórn- endur ekki öfundsverðir og ólíklegt þykir að það hafi eitthvað breyst. Vaxtarverkir skóla Húsnæðismál skólans voru fljót- lega eftir stofnun hans í mikilli óvissu. Stofnunin óx hratt og íyrr en varði var upphaflegt húsnæði engan veginn fullnægjandi. Skólinn var á hrakhólum og var í nokkur ár komið fyrir hjá vandalausum í húsnæði Barnaskóla Kópavogs. Deilur komu upp í bæjarstjóm Kópavogs um hús- næði skólans. Ingólfur rekur þær deilur allítarlega og er þar skráður góður annáll þessa máls. Ljóst er af þessari lesningu að skólinn þorskað- ist ekki án vaxtarverkja en það stytti upp um síðir og eins og alþjóð veit er skólinn nú starfræktur í einu full- komnasta skólahúsnæði landsins. Verkföll Það markverðasta við siðara bindi sögu MK (1983-1993) er umfjöllun um verkfóll opinberra starfsmanna 1984 og kennara í BHMR á árunum 1985, 1987 og 1989 og þeim miklu deilum sem stóðu um launakjör kenn- ara og þann tíðaranda sem einkenndi félagslíf nemenda á þessum árum. Er þetta merk heimild um þá togstreitu sem skap- aðist í skólakerfinu þá ekki bara milli yfirvalda og kennara, heldur milh nemenda, foreldra og stjórnenda menntaskól- anna annars vegar og opinberra starfsmanna og kennara hins vegar þegar sýnt þótti að verkfallsátökin myndu seinka skólagöngu margra nemenda og framtíðai-áformum þeirra. MK kom einna best út úr þessum hremm- ingum og er það merkilegt að lesa hvernig stjórnendum skólans tókst að sigla milli skers og báru í þessum deilum og halda skólanum í kennslu að mestum hluta og ná þannig því markmiði sínu að útskrifa nemendur á réttum tíma. Þetta eru merkar heimildir um þessi miklu átök og varpa þessi skrif nýju Ijósi á þau vegna skírskotunar til þeirra sem ekki stóðu í átökunum miðjum s.s. launalega séð, heldur til þeirra sem höfðu sem mestu að tapa vegna deilna ríkisins við opinbera starfs- menn í BSRB og BHMR þ.e. nem- enda heimilanna í landinu. Sjónarhomið Þessi saga telst merk heimild, ekki einungis fyrir skólamál í Kópa- vogi, heldur fyrir skólamál almennt í landinu. Hún lýsir bæði þeim stefn- um og straumum í skólamálum þjóð- arinnar og þeim tíðaranda sem ríkj- andi var meðal kennara og nemenda á þessum timum. Út frá sagnfræðilegu sjónarhomi má um það deila hvort saga MK sé best rituð af þeim sem næst stóð stofnun og rekstri skólans. Ljóst er að einhver annar hefði nálgast við- fangsefnið á hlutlægari máta en Ingólfur gerir. Getur verið að saga skólans sé ef til vill önnur en sú saga sem Ingólfur dregur upp, þ.e. kannski hafa aðrir sem komu nálægt skólanum aðra sögu að segja? Ingólfur virðist hafa tekið mið af þessum spurningum og látið sam- tímaheimildir um að tala sjálfar, þ.e. vitnað í blaðagreinar, bækur og viðtöl sem birtust um málefni skólans sem og skoðanir nemenda um þá hluti sem efstir voru á baugi í skólanum og í þjóðmálaumræðunni allri. Með þessu hefur höfundur skapað rúm fyrir all- ar skoðanir og virðist hann hafa leit- ast við að gefa sögunni sem hlut- lægastan blæ með því að hafa beinar tilvitnanir í samtímaheimildir en ekki sína eigin túlkun á þeim heimildum sem fyrir liggja varðandi efnið. Bein- ar tilvitnanir studdar með heimilda- skrá slá því á allan vafa um að þama sé skrifuð saga sem eingöngu þjóni þeim aðila sem mestan þátt átti í upp- byggingu þessarar menntastofnunar og er það vel. Saga Menntaskólans í Kópavogi (1973-1993) er þarft rit. Nú, um ald- arfjórðungi frá upphafi sögutíma, vekja margir þættir undrun og áhuga. Það er trú okkar að þegar lengra frá líður verði þessir annálar og viðleitni til að túlka nýhðna at- burði enn forvitnilegri og gagnlegi’i þeim sem áhuga hafa á sögu bæjar- félags sem óx hratt og sprengdi utan af sér hverja flíkina á eftir annarri. Höfundar eru fyrrverandi formenn Nenwndíifclngs Menntaskólans í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.