Morgunblaðið - 23.04.1998, Side 1
112 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
91. TBL. 86. ARG.
FIMMTUDAGUR 23. APRIL 1998
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
London. Reuters. The Daily Telegraph.
Mótmæli í Bretiandi vegna geislavirks kjarnorkuúrgangs frá Georgiu
Geta ekki hreinsað
allt úranið strax
STJORNENDUR Dounreay-kjam-
orkuversins tilkynntu í gær að það
gæti ekki endurunnið allan geisla-
virka úrganginn, sem bresk stjóm-
völd hafa lofað að taka við frá Georg-
íu, fyrr en að tveimur áram liðnum.
Ekki dró úr gagnrýninni á stjóm-
völd vegna málsins í gær en þau
vörðu hins vegar ákvörðunina um að
taka við fímm kílóum af auðguðu
úrani frá Georgíu.
Ray Nelson, forstjóri Dounreay-
versins, sagði í samtali við BBC-út-
varpið í gær að verið væri að endur-
skoða öryggismál í kjarnorkuverinu
og því væri ekki hægt að eyða
hættulegustu efnunum, tæpu kílói af
notuðu og mjög geislavirku úrani,
næstu tvö árin. Yrði efnið geymt í
Dounreay þann tíma. Hins vegar
væri ekkert því til fyrirstöðu að end-
urvinna tæp fjögur kíló af auðguðu
og ónotuðu úrani.
„Hættuleg áætlun“
Greenpeace-umhverfisverndar-
samtökin mótmæltu í gær fyrir utan
bústað breska forsætisráðherrans og
sögðu áformin um að taka við úran-
inu vera „óheppileg og hættuleg“. Þá
sögðu samtökin Dounreay-verið „af-
lóga og lekt“.
Stjórnarandstæðingar létu heldui-
ekki sitt eftir liggja en þeir gagn-
rýndu stjórnvöld aðallega fyrir leyni-
bragg í tengslum við málið. Uppvíst
varð um fyrirætlanir stjórnarinnar á
þriðjudag er The New York Times
sagði frá þeim. Talsmaður bresku
stjórnarinnar segir að ætlunin hafi
verið að segja frá málinu er úranið
hefði verið komið til Bretlands. Ekki
hafi verið talið ráðlegt að segja frá
því fyrirfram, „þar sem það kynni að
koma þeim til góða sem við viljum
ekki aðstoða“, eins og talsmaðurinn
orðaði það.
Tony Blair forsætisráðherra féllst
á að taka við úraninu er hann heim-
sótti Bandaríkjaforseta í febrúai-. Þá
höfðu Rússar, Bandaríkjamenn og
Frakkar neitað að endurvinna það.
Robin Cook, utanríkisráðherra Bret-
lands, sagði að þetta væri síðasti
samningurinn sem gerður yrði við
fyrrverandi sovétlýðveldi. Ástæða
þess að Bandaríkjamenn vildu ekki
endurvinna úranið væri sú að þeir
hefðu nú þegar tekið við um 600 kíló-
um af geislavmku efni frá Rússlandi
og öðrum fyrrverandi sovétlýðveld-
um.
Gert er ráð fyrir að úranið verði
flutt til Bretlands síðar í vikunni.
Danir deila um Amst-
erdam-sáttmálann
Höfðað
til óvildar
í garð út-
lendinga?
Kaupmannahöfiu Morgunblaðið.
„40 MILLJÓNIR Pólverja boðnar
velkomnar í ESB“, „Atta af hverj-
um tíu miðaldra karlmönnum
segja já - gerir þú það?“ og „Viltu
hafa einkaellilífeyri?" Þetta er á
meðal vígorða dönsku Júníhreyf-
ingarinnar, sem berst gegn því að
Danir samþykki Amsterdam-sátt-
málann í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 28. maí.
Drude Dahlerup, talsmaður
hreyfingarinnar, segir að mark-
miðið með baráttunni sé að vekja
athygli á málum sem stuðnings-
menn sáttmálans vilji þegja um.
Eins og er benda skoðanakannanir
eindregið til að sáttmálinn verði
samþykktur.
Tónninn vekur ugg
Poul Nyrup Rasmussen forsæt-
isráðherra og Niels Helveg Peter-
sen utanríkisráðherra hafa miklar
áhyggjur af tóninum í baráttu
Júníhreyfíngarinnar og sá síðar-
nefndi segir að tónninn sé mun
verri en hann hafi búist við, þótt
hann hafi búist við hinu versta.
Það sem einkum vekur ugg með-
al ráðherranna og stuðningsmanna
sáttmálans er að vígorðin þykja
höfða til óvildar í garð útlendinga.
Júníhreyfingin er grunuð um að
spila af ásettu ráði á sömu tilfínn-
ingar og veittu Danska þjóðar-
flokknum meðbyr í þingkosningun-
um í mars og umræðuefnin virðast
þau sömu: Útlendingar, gamla
fólkið og ESB.
Júníhreyfingin segist þó ekki
vera að höfða til slíkrar óvildar,
heldur að vekja athygli á að Amst-
erdam-sáttmálinn sé slæm kveðja
til Pólverja og annarra Austur-
Evrópuþjóða, því þær muni hafa
lítil áhrif innan ESB.
Ekki sé ætlunin að reka
hræðsluáróður eins og stuðnings-
menn sáttmálans geri, heldur að
benda á að velferðarkerfið danska
muni óneitanlega standa höllum
fæti í ESB.
Gleðilegt sumar!
Morgunblaðið/Golli
Zjúganov segir kommún-
ista tilbúna í kosningar
Moskvu. Reuters.
SAMBANDSRÁÐIÐ, efri deild
rússneska þingsins, skoraði í gær á
Dúmuna, neðri deild þingsins, að
fallast á tilnefningu Sergejs Kíríj-
enkos í embætti forsætisráðherra og
afstýra því að Borís Jeltsín forseti
leysti þingið upp og boðaði til kosn-
inga. Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sagði hins vegar að
þeir myndu láta Jeltsín standa við
stóru orðin með því að hafna tilnefn-
ingunni og neyða forsetann til að
rjúfa þingið. „Við erum tilbúnir í
kosningar," sagði hann.
Sambandsráðið samþykkti áskor-
unina með 111 atkvæðum gegn 10 og
hún er talin auka líkurnar á því að
Dúman samþykki að skipa Kíríjenko
í embætti forsætisráðherra.
Dúman hefur þegar hafnað til-
nefningunni tvisvar og verði hún
ekki samþykkt í síðustu atkvæða-
greiðslunni á morgun neyðist forset-
inn til að rjúfa þing og boða til kosn-
inga innan fjögurra mánaða.
Jeltsín féllst á að ræða við
Gennadí Seleznjov, forseta Dúmunn-
ar, og Jegor Strojev, forseta Sam-
bandsráðsins, í dag til að freista þess
að tryggja að Dúman legði blessun
sína yfir tilnefninguna. Talsmenn
forsetans sögðu að engar líkur væra
á því að hann léti undan síga og til-
nefndi nýjan mann í embættið.
Riðlast þinglið kommúnista?
Kommúnistaflokkurinn er með 138
þingsæti af 450 í Dúmunni og at-
kvæði þeirra gætu ráðið úrslitum í
atkvæðagreiðslunni. Forystumenn
flokksins segja að Kíríjenko sé ekki
nógu reyndur stjómmálamaður til að
verða forsætisráðherra en margir
bandamenn og þingmenn kommún-
ista hafa lagt fast að flokksforystunni
að breyta afstöðu sinni af ótta við að
þeir missi þingsæti sín verði boðað til
kosninga. Tahð er að margir þeirra
greiði atkvæði með tilnefningunni
verði atkvæðagreiðslan leynileg.
Kommúnistar taka lokaákvörðun
um afstöðu flokksins til Kíi-íjenkos í
dag. Einn af forystumönnum flokks-
ins, Valentín Kúptsov, sagði að helm-
ingslíkur væra á að ákveðið yrði að
samþykkja tilnefninguna en Zjúga-
nov sagði að slíkt kæmi ekki til
greina.
■ Auðjöfrar saman/26
Óttast nýja
Smugudeilu
Ósló. Morgunblaðiö.
NORSKIR fiskifræðingar spá
því að hitinn f Barentshafi
hækki á næstunni, sem verði til
þess að þorskstofninn stækki.
Óttast norsk stjómvöld að ís-
lenskir útgerðarmenn sjái sér
leik á borði og Smugudeilan
blossi upp á ný.
Undanfarnar vertíðir hefm-
sjávarhiti verið óvenjulágur í
Smugunni og þar af leiðandi lítil
veiði. Norska hafrannsókna-
stofnunin spáir nú þvi að sjáv-
arhitinn hækki að nýju í
Barentshafi og því sé von á auk-
inni þorskgengd í suðurhluta
Smugunnar í sumar.