Morgunblaðið - 23.04.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lítil telpa datt yfír handrið og slasaðist í Mýrarhúsaskóla
Bent hafði verið á að hand-
riðið væri slysagildra
700 börn á
Andrésar-
leikum
ANDRÉSAR andar-leikarnir voru
settir á Akureyri í gærkvöldi. 727
krakkar, frá 23 skíðafálögum á
aldrinum 6-12 ára eru skráðir til
leiks og senda Hólmvfkingar kepp-
endur nú í fyrsta skipti.
Þetta er í 23. sinn sem leikarnir
eru haldnir, en fyrst fóru þeir fram
1976 og voru keppendur þá 148
talsins. 12 grænlenskir krakkar frá
Nuuk og Ammassalik verða með
og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Setning leikanna hófst með
skrúðgöngu frá Lundarskóla og
niður að Iþróttaiiöll í gærkvöldi.
Sr. Pótur Þórarinsson flutti andakt
og Sveinn Brynjólfsson, skíðamað-
ur frá Dalvík og einn ólympíufar-
anna í Nagano, setti síðan form-
lega mótið og eldur leikanna var
tendraður. Keppni hefst síðan í
Illíðarfjalli í dag kl. 10.
LÍTIL telpa slasaðist þegar hún
datt yfír handrið og féll niður þrjá
eða fjóra metra í Mýrarhúsaskóla á
Seltjamarnesi á mánudag. Fyrir
nokkmrn vikum fól foreldrai'áð Mýr-
arhúsaskóla og Slysavarnadeild
kvenna á Seltjamarnesi Herdísi L.
Storgaard, bamaslysavarnafulltrúa
Slysavamafélags Islands, að koma
með ábendingar um það, sem betur
mætti fara í skólanum, og gerði hún
þá meðal annars athugasemdir við
þetta handrið.
Herdís gerði skýrslu um málið,
sem dagsett er 9. febrúar, og þar er
bent á að hylja þurfí handriðið með
plexigleri og hækka það verulega.
„Ég var beðin um að koma með
ábendingar bæði um skólalóðina og
húsið sjálft,“ sagði Herdís. „Ég
heyrði síðan ekkert af skýrslu minni
og vissi ekki í hvaða farvegi hún var
fyrr en ég heyrði af þessu slysi í gær
og var mér þá náttúrulega brugðið
því að þaraa datt telpa niður þar sem
ég hafði bent á að þyrfti að laga.“
Hringdi í bæjarstjórann
Herdís kvaðst í gær hafa hringt í
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóra
Seltjamamess, vegna þessa slyss og
hann hefði sagt að málið hefði vei'ið
skoðað og væri í vinnslu. Herdís
sagði að Maggi Jónsson arkitekt,
sem hannaði skólabygginguna, hefði
verið kallaður á fund skólastjóra
Mýrarhúsaskóla, Regínu Höskulds-
dóttm-, vegna þessa máls. Herdís
vissi ekki hvernig á því stæði að
handriðið hefði ekki verið lagað.
„Það er nú oft þannig að þegar
komið hefur verið með ábendingar
tekur tíma að laga hlutina,“ sagði
hún. „En menn vissu af þessari
hættu og fólk í skólanum hafði sjálft
bent mér á hana.“
Að sögn Herdísar er handriðið
lágt, þótt ekki sé það ólöglegt sam-
kvæmt byggingareglugerð. Hins
vegar væri hegðun bama í hópi
þannig að gera þyrfti aðrar kröfur í
skólabyggingum en í öðmm opinber-
um byggingum og breyta þyrfti
byggingareglugerðinni.
Herdís kvaðst hafa farið á fund
Björns Bjarnasonar menntamálaráð-
hen-a með ábendingar um að í skól-
um ætti að setja svipaðar öryggis-
reglur og væm til dæmis í sundlaug-
um. Betra væri að gera ákveðnar
kröfur þannig að hægt væri að upp-
fylla þær þegar byggingin væri reist
í stað þess að þurfa að benda á gall-
ana eftir á. Hún sagði að málinu
hefði verið vísað frá, en nú hefði hún
beðið um viðtal hjá menntamálaráð-
herra á nýjan leik í ljósi tíðra slysa í
skólum eftir áramót. „Þessi slys und-
irstrika það, sem ég hef verið að
benda á,“ sagði hún. „Undanfarnar
vikur hefur verið eitt alvarlegt slys á
viku í skólum á landinu.“
Mildi að ekki fór verr
Sérfræðingur á bamadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur sagði að mikil
mildi væri að ekki hefði farið verr
fyrir stúlkunni, sem er níu ára göm-
ul. Hún væri með spmngur í andlits-
beinum, fí-amhandleggsbrot og
sprungu í mjaðmagrind, en liði vel og
myndi sennilega útskrifast á morgun.
Starfsmenn fjölskylduþjónustu
Grafarvogs óánægðir með fréttaflutning
Umboðsmaður
Morgunblaðið/þórhallur Jónsson
KEPPENDUR gengu fylktu liði í íþróttahöllina í gærkvöldi. Þessi hópur er frá Leiftri í Ólafsfirði.
Sýslumannafélagið ræð-
ir við Sigurð Gizurarson
Nafn
mannsms
sem lést
MAÐURINN sem lést eftir
bílslys á Breiðholtsbraut í
Reykjavík síðdegis á þriðjudag
hét Hallgrímur Eyfells Guðna-
son. Hann var Reykvíkingur,
fæddur 16. febrúar 1935 og því
63 ára að aldri.
Ekki er vitað nánar um dán-
arorsök en talið var að Hall-
grímui' hefði fengið aðsvif und-
ir stýri og því hefði bíllinn lent
á skilti og ljósastaur. Var hann
látinn þegar komið var með
hann á Landspítalann.
FÉLAGSFUNDUR í Sýslumanna-
félagi Islands samþykkti í gær að
fela stjóm félagsins að ræða við
Sigurð Gizurarson, sýslumann á
Akranesi, og meta í framhaldi af
því hvort stjómin, fyrir hönd fé-
lagsins, hafi frekari afskipti af
ákvörðun dómsmálaráðherra um
að flytja Sigurð og sýslumanninn á
Hólmavík milli embætta.
I ályktun fundarins kemur fram
að vegna áforma dómsmálaráð-
herra hafi stjóm Sýslumannafé-
lagsins átt fund með dómsmálaráð-
herra og ráðuneytisstjóra dóms:
málaráðuneytisins á þriðjudag. I
framhaldi af þeim fundi gerði
stjómin þessa tillögu um viðræður
við Sigurð og ákvörðun um frekari
afskipti í framhaldi af því og var
tillagan samþykkt á fundi félagsins
í Reykjavík í gær.
Samræmd
próf
SAMRÆMD próf grunn-
skólanna hófust í gær og
standa fram á þriðjudag.
Um 4.300 unglingar
þreyta prófin að þessu
sinni. Þessir nemendur í
tiunda bekk í Hvassaleit-
isskóla þreyttu fyrsta
prófið sem fram fór í
gær, en það var próf í ís-
lensku. Próf í ensku
verður á föstudag, í
stærðfræði á mánudag
og í dönsku á þriðjudag.
barna beðinn
að kanna málið
MIÐGARÐUR, fjölskylduþjónusta
í Grafarvogi, hefur sent frá sér yfír-
lýsingu vegna fréttaflutnings af
máli drengs sem fannst fáklæddur í
Grafarvogi mánudagskvöldið 20.
apríl sl. Umboðsmanni bama hefur
verið sent erindi vegna málsins auk
þess sem skýringa verður leitað hjá
lögreglu.
Regína Ásvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Miðgarðs, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
starfsmenn Miðgarðs hefðu fengið
viðbrögð frá foreldrum í Grafarvogi
á mánudagskvöld og þeir hefðu
fundið fyrir miklum titringi meðal
þeirra. Hún sagði að alltof harka-
lega hefði verið farið af stað í frétta-
flutningi og viðtal hefði verið tekið
við tvær sjö ára stúlkur án samráðs
við foreldra þeirra.
„Okkur finnst að farið hafi verið
offari og ekki lagt nógu mikið mat á
fréttina áður en hún var flutt. Við
erum búin að skrifa umboðsmanni
bama bréf þar sem álits er leitað á
því hvort fjölmiðlar geti tekið svona
viðtöl við börn án samráðs við for-
ráðamenn," segir Regína.
Hefðu viljað samráð
Þá segir hún að starfsmenn Mið-
garðs hefðu einnig viljað að lögregl-
an hefði haft samráð við þá áður en
hún gaf út yfirlýsingu um að tvær
stúlkur hefðu viðurkennt að hafa af-
klætt drenginn í leik. Miðgarður,
sem sinnir allri fjölskylduþjónustu í
Grafarvogi, átti fulltrúa við yfir-
heyrslur yfir telpunum á þriðjudag
og segir Regína að starfsmenn Mið-
garðs hefðu einnig viljað vera með í
ráðum um samskipti við fjölmiðla.
Þetta var borið undir Guðmund
Guðjónsson, yfirlögregluþjón og yf-
irmann rannsóknardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann sagði að
augljóslega hefði verið nauðsynlegt
að gefa almenningi umræddar upp-
lýsingar vegna þess að umfjöllun
hefði verið með þeim hætti að fólk,
ekki síst foreldrar, hefði verið hrætt
um að þama hefði kynferðisafbrota-
maður verið á ferðinni. Nauðsynlegt
hafi verið að aflétta þeirri óvissu
eins fljótt og hægt var. Með yfirlýs-
ingu lögreglunnar hafi hins vegar
ekki verið lagður neinn dómur á það
sem börn gerðu í óvitaskap.
Varðandi fréttaflutning af málinu
í upphafi vill Guðmundur taka fram
að þar hafi lögreglan hvergi komið
nærri.
Ekki náðist í Þórhildi Líndal, um-
boðsmann bama, vegna málsins i
gær.
Þróun nýrra aðferða, reynsla og
árangur víðs vegar um landið
) rækta
Stofnar dóttur-
fyrirtæki í Lúx
annarra
i aag
8 SIÐUR
AUKABLAÐ
TIL PRAMTÍ&IUR
viÐSiflpnmviNNULír
______
UmLand-
græðsluskóga .
IsJcnskar
áhafnir á
tvö skip
Landið, línð,
menningin
oer listin
Falur sá besti að mati
Morgunblaðsins/B1
Stefni alltaf á toppinn,
segir Jón Kristjáns-
son þjálfari Vals/B4
f-ÍLlr;
I
I
I
I
I
I
I
I
i
I
I
S
i
i
i
L