Morgunblaðið - 23.05.1998, Blaðsíða 78
78 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
Grettir
Tommi og Jenni
Heyrbv, hefaröu ekh'rug/as£
■——, eittht/aa a. facrt/ðam.
J Nehe/^Ef eg noóCLtU/óé&nsL yyfífín Snern/nct., feL get "jfeng/bjolafrt a'nsog atfiradrir
CM 1 L
'Jxja, fínnst þer-
ddaab 'eg &'<&'
U/az stíuS c
T&jÓ/A-fri, ?
Ferdinand
Smáfólk
here's tue ooorld famous
AGTHOR ON HI5 U)AY TO
MAIL HIS LATE5T NOVELTO
tuc PMRi
I dipn't know
MAIL0OXE5 COULD RUN.
w /r.
Hér er hinn heimsfrægi rithöfund-
ur á leiðinni að póstleggja nýjustu
skáldsöguna sína til útgefandans ...
Ég vissi ekki að póstkassar gætu
hlaupið ...
fltetymMflifcifc
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sambýli
aldraðra lokað
Frá Ásluugv Krístinsdóttur:
Á SKÓLASTÍG 5 á Akureyri hefur
verið starfrækt sambýli aldraðra sl.
5 ár. Par geta búið 10 manns. Húsið
er 2 hæðir og kjallari og er lyfta í
húsinu, vel búin setustofa á annarri
hæð, eldhús og borðstofa í kjallara.
Þetta sambýli er í gömlu og vel
grónu íbúðarhverfi og þar er góð
aðstaða til útivistar og stutt í sund-
laugina og einnig getur það heimilis-
fólk sem vill sótt félags- og tóm-
stundastarf á dvalarheimilinu Hlíð
sem er í nágrenninu. Ef heimilisfólk
óskar þess getur það fengið bílferðir
þangað. Starfsfólk sambýlisins er í
vinnu þar frá kl. 8 á morgnana til kl.
20 á kvöldin. Eftir þann tíma er
húsið vaktað af Securitas en starfs-
menn fyrirtækisins líta þar inn á
fóstum tímum og oftar sé þess
óskað. Hver heimilismaður hefur
líka öryggishnapp.
Ég tel mig þekkja nokkuð vel til
þessa heimilis því móðir mín hefur
búið þar í rúmt ár og ég get sem
aðstandandi ekki hugsað mér betri
stað fyrir hennar hönd.
Nú hafa bæjaryfirvöld á Akureyri
ákveðið að loka þessu heimili og
bjóða heimilisfólki að búa í Kjarna-
lundi eða Vesturhlíð sem eru að
mínu mati ekki sambærilegir staðir,
þ.e. annars vegar eins konar heimili
og hins vegar stofnun. Mér er sagt
að ástæða lokunarinnar sé sú að ekki
hafi verið næg aðsókn og því sé ekki
þörf fyrir þetta ágæta heimili lengur.
I því sambandi vaknar sú spuming
hvort þessi valkostur hafi verið nógu
vel kynntur fyrir öldruðum.
Ástæðan fyrir þessum skrifum
mínum er vissulega sú að ég er
óánægð með þessa ákvörðun. Ég
þykist vita að almennt sé vel búið
að öldruðum hér á Akureyri en veit
jafnframt að þarfir þeirra eru mis-
jafnar og ég er því undrandi á því
að ekki skuli vera 10 manns sem
velja sér þennan góða kost. Þetta
heimili hentar að mínu mati vel
þeim sem fellur illa að búa einir í
íbúð og líka þeim sem eru einmana,
svo og þeim sem eru sjónskertir.
Það að heimilismenn eru aðeins 10
og starfsmenn 4 skapar miklu meiri
námd og betri kynni milli allra
heldur en á stórum stofnunum.
Það er einlæg ósk mín að bæjar-
yfirvöld endurskoði þessa ákvörðun
sína. Það er ekki of seint.
ÁSLAUG KRISTINSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur,
Norðurbyggð 9a, Akureyri.
Yfirlýsing H-listans
í Reykjavík
Frá Jóni Kjartanssyni:
H-LISTINN, listi Húmanista-
flokksins í Reykjavík, varar þing-
menn mjög alvarlega við afleiðing-
um þess að samþykkja húsnæðis-
frumvarp félagsmálaráðherra
(framsóknarmannsins Páls Péturs-
sonar, en Framsóknarflokkurinn
býður sem kunnugt er fram í
Reykjavík undir listabókstafnum
R). Þetta frumvai-p er sem stendur
til umræðu á Alþingi.
Málefni þetta hefur afdrifaríkar
afleiðingar fyrir húsnæðismál borg-
arinnar. Frumvarpið mun, ef að lög-
um verður, ekki aðeins heimila
sveitarfélögum að selja leiguíbúðir
sínar. Það mun rústa öllu félagslega
húsnæðiskerfinu svo gersamlega að
fátæku fólki verður gert ókleift að
stofna og halda heimili.
Húsnæðismál alþýðu eiga ekki að
vera viðskiptamál heldur grundvöll-
ur að fjölskyldustefnu.
Þingmenn, hættið þessari vitleysu
og leyfið fólkinu að hafa áhrif á
stefnuna og mótun hennar. Það er
fólkið sem á að búa við
húsnæðiskjörin og borga íyrir þau.
Frumvarpið gengur í öfuga átt við
það sem hér er nauðsynlegt að gera.
F.h. H-listans í Reykjavík.
JÓN KJARTANSSON,
formaður Leigjendasamtakanna og 3.
maður á framboðslista Húmanista-
flokksins í Reykjavík.
Hrannar er heiðar-
legur drengur
Frá Karli Jensen Sigurðssyni:
VEGNA neikvæðrar fjölmiðlaum-
fjöUunar um Hrannar B. Arnarsson,
frambjóðanda Reykjavíkurlistans,
get ég undirritaður ekki orða bund-
ist. Eg starfaði með Hrannari að
kosningastjórn Þjóðvaka fyrir síð-
ustu þingkosningar. Hann var kosn-
ingastjóri okkar í Reykjavík, en ég
á Austurlandi. Samskipti okkar og
samstarf var mikið og reyndi þar á
dugnað, áreiðanleika og heiðarleika
Hrannars. Skemmst er frá að segja
að allt stóð eins og stafur á bók. Það
var samdóma álit allra okkar sem
vorum kosningastjórar Þjóðvaka á
landsbyggðinni og áttum mikið und-
ir Hrannari og starfi hans, að
Hrannar væri einstaklega orðheld-
inn, duglegur og í alla staði grand-
var piltur.
Mjög margir í okkar þjóðfélagi
lenda í erfiðleikum í rekstri, undir-
ritaður er einn þeirra. Við eigum
ekki að líta á slíka einstaklinga sem
fordæmda og útskúfaða. Við þurf-
um á öllum að halda.
Ég get gefið Hrannari B. Arnars-
syni mín bestu meðmæli og hvet
kjósendur í Reykjavík til að gefa
honum tækifæri.
KARL JENSEN SIGURÐSSON,
Víðimel 34, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.