Morgunblaðið - 23.05.1998, Side 30

Morgunblaðið - 23.05.1998, Side 30
30 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ B E KKJARMY N D I N Ráku verslun í minn og amma áttu heima, var mitt svæði og minn leikvöllur. Þetta var e.t.v. upphafið, en um framhaldið má segja, að snemma hafí krókurinn beygst til þess sem verða vildi. Þegar við vorum að velta fyrir okkur þessari bekkjar- mynd, rakst þú á grein eftir mig í Verzlunarskólablaðinu frá 1958, sem heitir: „Upphaf flugferða á Is- landi“. Þar er upphafssaga flugsins á íslandi rakin. Síðan gerist það meðan ég er í Háskólanum árið 1960, að stúdentar ákváðu að taka yfir reksturinn á Hótel Garði, sem áður hafði verið í öðrum höndum. Þar var ég hótelstjóri í þrjú sumur. Hótel Garður var þá rekinn bæði á Gamla Garði og Nýja Garði, og það Veturinn 1957-58 var Hörður Sigurgests- son í 6. bekk í Verzlunarskólanum í Reykjavík og lauk stúdentsprófí vorið 1958. Með gömlu bekkjarmyndinni rifjar hann upp minningar frá Verzlunarskólaár- unum og segir Olafi Ormssyni frá við- burðaríkum og skemmtilegum árum. s EG KOM fyrst í Verzlunar- skólann í Reykjavík haustið 1952 og var í skól- anum allt til ársins 1958. Verzlunarskólinn var þá á vissum tímamótum. Haustið 1952, þegar við hófum nám, kom nýr skólastjóri til starfa, dr. Jón Gíslason, sem þá hafði lengi kennt við skólann. Dr. Jón var mjög vel menntaður í Þýskalandi í klassískum fræðum. Kennslugreinar Jóns voru aðallega tungumál, en lfka goðafræði. Hann tók við af Vilhjálmi Þ. Gíslasyni, sem þá varð útvarpsstjóri, en hafði verið skólastjóri Verzlunarskóla Is- lands í rúma tvo áratugi. Það var vegna forystu Vilhjálms og víðsýni, að skólinn fékk leyfi til að útskrifa stúdenta, en um það urðu á þeim tíma miklar deilur. Náminu var skipt í verslunardeild, sem var upp í 4. bekk, og þar lukum við skólasystkinin verslunar- skólaprófi vorið 1956. Svo var aftur hluti nemanda, sem fékk að halda áfram og fara í lær- dómsdeild. Það voru 18-24 manna hópar í 5. og 6. bekk. Lærdómsdeildin var þá uppi á efstu hæð í Verzlunarskólahúsinu við Grundarstíginn og stærðin á bekkjunum réðst af því, hvað stofurnar voru stórar,“ segir Hörður Sigurgestsson, forstjóri hf. Eimskipafélags íslands og stjómarformaður Flugleiða hf., þegar hann virðir fyrir sér bekkj- armyndina af 6. bekk Verzlunar- skóla íslands veturinn 1957-58 og rifjar upp löngu liðna daga. Það eru um það bil 40 ár síðan Hörður og skólasystkini hans luku stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Is- lands. Æskuár í Skeijafirði - áhugi á samgöngum og flugi kviknar Hörður er fæddur 2. júní 1938 í Reykjavík, sonur Sigurgests Guðjónssonar bifvélavirkja og Vigdísar Hansdóttur húsmóður. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á flugi og flugmálum. Það skýrist væntanlega af því, að ég er fæddur og uppalinn í Skerjafirði, í næsta nágrenni við Reykjavíkurflugvöll. Mínar fyrstu minningar tengjast m.a. því, að ég var að sniglast um á flugvallarsvæðinu, innan um flug- vélar, jarðýtur og önnur tæki um það leyti sem verið var að byggja flugvöllinn. Það kom fyrir að ég týndist þarna á svæðinu og leitað var að mér. Það var ys og þys allt í kringum okkur, og þótt manni hafi að sjálfsögðu að einhverju leyti verið haldið frá þessu, þá fer ekki hjá því, að ýmis atvik hafa setið eftir í minni manns. Mér er t.d. í barnsminni, þegar tveggja hreyfla flugvél langt komin af hafi endaði á húsi handan við okkur við Þjór- sárgötu eftir að hafa áður skemmt þök á tveimur öðrum byggingum. Flugmennirnir fórust og húsið brann til grunna. Skerjafjörðurinn og Grímsstaðaholtið, þar sem afi gerð til að ljúka mastersprófi. Rit- gerð mín hét: Flugumferðin á Norð- ur-Atlantshafi. Ég gæti því sagt, þegar horft er til baka, að ég hafi allar götur frá því í skóla verið tengdur samgöngum og ferðaþjón- ustu með einhverjum hætti.“ Fjörutíu ára stúdents- afmæli í júní „Það var mikið félagslíf í Verzlun- arskólanum. Málfundafélag Verzl- unarskóla íslands starfaði með ágætum og tóku margir, sem síðar urðu þekktir menn í athafnalífi og á öðrum sviðum, þátt í málfundum, skemmtanahaldi og öðru félagslífi. Það gerðist á þessum tíma, þegar innviðir skólahússins voru endur- gerðir af miklum myndarskap, að í framhaldi af því þótti skólanefnd- inni ástæða til þess að níðast ekki meira á húsinu með dansleikjahaldi og öðru slíku, þannig að það var bannað. Vegna þeirrar ákvörðunar varð mikil rimma nemenda við skólayfirvöld. Hápunkturinn á þeim átökum var, að nemandamótsdagur- inn, - helsti hátíðisdagur nemanda, sem haldinn er ár hvert, var felldur niður. Þann dag, sem nem- andamótsdagurinn hafði verið hald- Morgunblaðið/Kristinn HÖRÐUR Sigurgestsson. „Hér í fremri röð til vinstri er Eiður Einarsson, sem var lengi í Seðlabankanum, en hefur látið þar af störfum og snúið sér að því að vinna fyrir sinn trúarhóp. Við hliðina á honum er Helga Sigríður Bachmann, sem hefur lengi verið kennari og við hlið hennar er Bem- hard Petersen, sem vinnur fyrir fyrirtæki fjölskyldu sinnar. Þá er hér Anna Þráinsdóttir, kennari, sem flutti tiltölulega snemma til Noregs og er þar bóndakona í Stóradal ekki alllangt frá Álasundi. Steinunn K. Gunnsteinsdóttir er hér hægra megin við hlið skóla- stjórans. Hún er kennari, giftist til Danmerkur og kennir dönsku þar í landi. Síðan kemur Gunnar Þór Ólafsson, sem vann lengi að útgerð og var eigandi að útgerð og er enn. Við hlið Gunnars er Guðrún Lýðs- dóttir, sem var bankastarfsmaður, ekki veit ég við hvað hún starfar núna. Þá er hér Garðar Sigurgeirs- son, sem var bæjarstjóri í Garðabæ en rekur nú ferðaskrifstofu í Stokk- hólmi, sem selur íslandsferðir. Hér lengst til hægri er Rafn Johnson, sem veitir forstöðu fyrirtæki fjöl- skyldu sinnar, Heimilistækjum. í efri röð frá vinstri er Margeir Sigurbjömsson úr Keflavík. Mar- geir misstum við því miður mjög snemma. Við hlið Margeirs er Einar Ólafsson, hann er einnig látinn fyrir nokkrum ámm. Þá er hér Örn H. Bjarnason, sem ég hef ekki haft spurnir af nýlega og sama gildir um Þórð Guðjohnsen, sem kemur þar næstur í röðinni. Þá er hér Sigurður Jónsson læknir í Reykjavík og við hlið Sigurðar er Sveinn R. Eyjólfs- son, blaðaútgefandi með meiru. Næstur Sveini á myndinni er Hró- bjartur Hróbjartsson, arkitekt, þá Steinar Hallgrímsson, sem ég ekki hef hitt lengi. Þó er hér Gústaf Þór Tiyggvason lögfræðingur í Reykja- vík og við hlið Gústafs er Jón Hjart- arson, sem lengi hefur rekið Hús- gagnahöllina meðal annars. Þriðji frá hægri í efri röð er Óli H. Þórðar- son, sem er arkitekt í Hafnarfirði. Þá er hér við hlið Óla Bragi Krist- jónsson, kunnur lífskúnstner og fornbókasali, og svo er ég sjólfur hér lengst til hægri.“ SJÁ BLS 32 og bætt við latínu og frönsku, einnig efnafræði og gerðar vom mun meiri kröfur til okkar. Þessi lærdómsdeildarhópur var e.t.v. svolítið sundurieitur, og kom sitt úr hverri áttinni. Hann hélt þó allvel saman og það var 22 manna hópur, sem lauk stúdentsprófi vorið 1958, þar af einn utanskóla. Þessi hópur á því 40 ára stúdentsafmæli núna í júní, og við stefnum að þvi að hittast 19.júní nk. Frá því við lukum stúdentsprófi fómm við auðvitað í ýmsar áttir. Margir byrjuðu á háskólanámi, en kannski ekki af alvöru og snera sér að tímabundnum verkefnum, sem í mörgum tilvikum urðu varanlegri en ætlað var í upphafi. Allmarg- ir innrituðu sig í Háskóla Is- lands. Af þeim 22 manna hópi, sem útskrifaðist sumarið 1958, era 13 sem hafa útskrifast með háskólapróf eða kennarapróf hér heima og erlendis og af þessum hópi era nú tveir látnir. Þetta voru góð ár í Verslunarskólanum, agi var tölu- verður og skólinn mótaði okkur verulega. Auðvitað er þetta líka þannig, að maður man betur eftir því skemmtilega. Það vora ótrúlegar framfarir á þessum 40 árum. Flest svið þessa samfélags hafa breyst, og ekki í skrefum heldur stökkum. Það hefur verið mjög ánægjulegt að vera þátt- takandi í og fylgjast með þessum stórstígu breytingum. Þjóðfélagsþróunin hefur að mínu áliti í öllum aðalatriðum verið mjög jákvæð og skilað okkur margí'alt jákvæðara og öflugra samfélagi. Það væri örugglega gaman að verá ungur aftur - að byrja aftur og eiga þetta allt saman eftir! Þegar ég hitti ungt fólk sem er að byrja háskólanám eða að fara utan i fram- haldsnám, þá tekur hjartað oft kipp og ég öfunda það af þeim möguleik- um sem það á. Þessi kynslóð á auðvitað eftir að fást við margskon- ar vandamál og viðfangsefni, en er enn betur í stakk búin til að fást við krefjandi verkefni en við vorum.“ Hörður virðir fyi'ir sér bekkjar- myndina og brosir þegar hann horf- ir yfir hópinn. var ekki um auðugan garð að gresja af hótelum í Reykjavík. Þá var Hótel Borg aðalhótelið í Reykjavík. Þessi rekstur gekk upp, þótt ekki hafi verið spáð vel fyrir honum í upphafi. Mér er það t.d. minnis- stætt, að það sem réði úrslitum um að jákvæð afkoma varð fyrsta sum- arið var, að um það leyti sem við vorum að loka hótelinu þá bilaði Loftleiðaflugvél á Reykjavíkurflug- velli, sem var á leiðinni yfir Atlants- hafið, fullhlaðin farþegum. Við feng- um það verkefni að hýsa og fæða farþegana og það reið baggamuninn það árið. A þessum árum gátu smæstu ákvarðanir orðið mikilvæg-. ar. Mér er sérstaklega minnisstæð- ur fundur í stjórn hótelsins, sem var haldinn til þess að taka ákvörðun um, hvort of mikil áhætta væri fólg- in í því að kaupa eitt straujám eða ekki. Ákveðið var að kaupa straujárnið. Eftir að hafa lokið lokið prófi í viðskiptafræði við Háskólann hér fór ég í framhaldsnám í rekstrar- hagfræði í Bandaríkjunum. Mín sérhæfing í framhaldsnáminu var samgöngur eða flutningastarfsemi. Þá var skylt, að menn skiluðu rit- inn, létu nemendur sig hverfa í síðasta tíma. Þetta var einskonar verkfall. Mér er minnisstætt, að morguninn eftir kom skólastjórinn, dr. Jón Gíslason, og hélt mikla ræðu yfir okkur og skammaði okkur fyrir að hafa farið af vettvangi. Hann bað okkur sérstaklega að gæta okkur á úlfunum undir sauðagæranum. Úlfarnir vora þá verkfallsleiðtog- arnir, foringjar í skólalífinu, sem síðan urðu margir mikilvirkir leið- togar og þátttakendur í þessu sam- félagi. Deilan var svo síðar um vet- urinn sett niður með samkomulagi nemenda og skólanefndar." . Var þessi ágreiningur við skólayf- irvöld þarna um veturinn 1957-58? „Nei, reyndar var þetta veturinn 1954-55, Sem sagt árið, sem við vor- um í 3. bekk. I hverjum árgangi í verslunardeild var um það bil 70 manna hópur. Þessi hópur kom víðs vegar að úr ýmsum skólum. í 3. bekk bættist okkur góður liðsauki, sjö eða átta nemendur frá Siglu- firði, sem með tímanum settu mjög svip á þennan hóp og lauk með okk- ur prófi í 4. bekk, og sum þeirra héldu áfram með okkur til stúdentsprófs. Erfiðasti kaflinn í þessu sex ára námi var örugglega 5. bekkur. Þá var mjög hert að okkur fj áröflunar skyni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.