Morgunblaðið - 23.05.1998, Side 60

Morgunblaðið - 23.05.1998, Side 60
60 LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ KOSNINGAR ’98 Nýju fötin keisarans ER vorsólin búin að eyða langtímaminni Reykvíkinga um þær aðgerðir sem dunið hafa á Reykvíkingum á þessu kjörtímabili? Ætla t.d. íbúðareigend- ur að verðlauna þetta fólk í forystu borgar- mála sem búið er að ,4ækka álögur um 26% á fasteignagjöldum með svokölluðu hol- ræsagjaldi? Það þýðir heil fasteignagjöld í viðbót við þau fern sem þið greidduð áður. Svo er reynt að slá ryld í Valdimar Þórhallsson augu fólks og segja að „börnin eigi ekki að borga brúsann“. í því sam- bandi langar mig að spyrja hvort ekki eigi bara að staðgreiða alla hluti hjá borginni. Kannski má íbúðareigandi sem flytur úr borg- inni senda inn rukkun fyrir fyrr- greindum skítaskatti sem hann ekki nýtir. Hvað með alla leigjend- ur sem ekkert borga? Af mörgu er 3» taka varðandi öll þau gjöld sem dunið hafa á borgarbúum á þessu kjörtímabili og samt virðast margir ætla að verðlauna R-listann með atkvæði sínu, ef marka má skoðanakannanir. Skipulagsmál hafa verið í ólestri svo um munar. Nýbyggingar hafa aukist hjá nágrannasveitarfélögu- unum hér í kring. Ibú- ar gamalla hverfa hafa lítið verið með í ráðum varðandi breytingar á skipulagi eldri hverfa. Helstu stefnumál borgarstjórnarflokks þyrftu að vera þessi: Niðurfelling hol- ræsagjalds. Lækkun á gjaldtöku á sundstöð- um borgarinnar og strætisvagnafargjöldum ásamt ýmsum öðrum þjónustugjöldum. Einsetning allra grunnskóla Reykjavíkur næsta vetur. Stór- aukið öryggi hjólreiðamanna með lagningu hjólreiðabrauta víðsvegar um bæinn og jafnframt að aðskilja hjólreiðamenn, gagngandi vegfar- endur og almenna umferð svo öryggið verði sem best tryggt. Nú eru margir grunnskólar borgarinnai- einsetnir. Það eitt og sér nægir ekki, því bömin eru oft sjálfala eftir skólatíma, nema ef foreldrar yngri barna (sem hafa tök á því fjárhagslega) nýta sér heilsdagsgæslu (ekki heilsdags- skóla). Borgaryfírvöld eru jafn- framt í vandræðum með starfsfólk skóla vegna breyttra aðstæðna og hrúgað er upp á það ræstingu jafn- hliða umönnun barna, sem tæplega fer saman. Kennarai’ vita oft ekki hvernig þeir eiga að nýta tíma sinn eftir hádegi þegar kennslu er oft- ast lokið. Við höfum dregist aftur úr Mörg ný gjöld hafa verið lögð á Reykvík- inga á síðustu fjórum árum. Valdimar Þórhallsson nefnir sérstaklega margum- rætt holræsagjald. mörgum Evrópu- og Asíuþjóðum í menntun barna. Því þarf skólinn að taka sig á og koma til móts við úti- vinnandi foreldra, þannig að hann verði athvarf fyrir böm eftir að skóladegi lýkur. Kæm Reykvíkingar, hugsum vel um framtíð bæjarfélagsins og gef- um ekki fallkandídötum áfram- haldandi setu. Það veldur auknum gjöldum á okkur öll eins og reynsl- an hefur sýnt. Skilum annaðhvort auðu eða setjum x við betri kost- Höfundur er verslunarmaður. Kosningaloforð - aldarinnar A OPNUM fundi í Smáraskóla sl. laugar- dag lýsti fyrsti maður á K-Iistanum því yfir að það væri „augljóst að Kópavogskaupstaður verður að ganga til sérkjarasamninga við sína starfsmenn og þá er ég að tala um leikskólakennara og gmnnskólakennara og aðra starfsmenn Kópa- vogskaupstaðar". Að- spurður um hvað hann teldi að þetta gæti 'ííóstað stóð hann að vonum á gati . Að- Gestur Valgarðsson spurður um hvort hann hygðist þessu bjóða 10%, 20%, 30% eða 40 pró- bara senta hækkun kom þetta spaklega svar frá oddvitanum!: „Hvað okkar Sannleikurinn er sá, segir Gestur Valgarðs- son, að málatilbúnaður Flosa er í besta falli fímmaurabrandarar og útúrsnúningur. íiiik viH fá til þess að það verði ánægt kemur í ljós í þeim viðræð- um.“ Ekki vil ég vera ósanngjarn við Flosa, hann er samt í nógu vondu máli að standa við orð sín ef á reynir, og ég segi því sem svo að starfsfólkið verði þokkalega ánægt með 30% launahækkun. Bæjar- starfsmennirnir era á 19. hundrað. Ekki era allir í fullu starfi en engu að síður má ætla að meðalárslaunin með launatengdum gjöldum séu um 1.200 þús. krónur. 30% af 1.200 þúsundum era krónur 360 þúsund. 3fj0.000.00 x 1800 eru krónur 0§8.000.000.00 sexhundmðátta- tíuogáttamilljónir í launahækkun á ári. Þessi snillingur ætlar svo að fella niður leikskólagjöld fyrir um 70 milljónir og taka samtímis til við að greiða niður skuldir bæjarsjóðs. Rétt er að benda Flosa á að fyrir þennan hluta kosningaloforða hans hægt að greiða niður allar núverandi skuldir Kópavogsbæjar á 7 ár- um eða reisa 9 full- komna leikskóla á einu ári. Enn einn kosturinn væri að byggja full- búinn 500 nemenda skóla og svona tvo til þrjá leikskóla árlega. Og nú spyr ég: Á þessi drengur erindi í áhrifastöðu? Nei! Þeir sem gert hafa Flosa að átrúnaðargoði sínu, þar á meðal heimilisköttur K-listans, Valþór Hlöðversson, bera það gjarnan fyrir sig að við sé lítið að gera: „Flosi sé nú Flosi...“ segja þeir í afsak- andi tón. Sannleikurinn er auðvitað sá að málatilbúnaður Flosa er í besta falli fimmaurabrandarar og útúrsnúningur á kostnað góðra verka framsóknar- og sjálfstæðis- fólks. Það sér það hver maður að Flosi er lítið annað en belgur undir gömul vín krata og komma - skemmtikraftur en ekki sveitar- stjórnarmaður. Og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að kvennalista- konur vilji spyrða sig við þessa revíu. Hugmyndafræði komma og krata er gjaldþrota og á ekkert skylt við kröfu kvenna um fullt jafnrétti. Jafnréttisáætlun Framsóknarflokksins sýnir svo ekki verður um villst að hann vill rétt kvenna til jafns við karla. Ég skora því á konur að kynna sér stefnumið framsóknarflokksins í þessum efnum. Hansína Ásta er glæsilegur fuOtrúi þess besta sem barátta kvenna fyrir auknum rétt- indum hefur fært okkur. Höfundur er 5. muður á lista X-B í Kópavogi. Verkalýðs- foringjar á erfðafestu I NYUTGEFNU kosningariti J-listans í Reykjanesbæ er viðtal við Kristján Gunnars- son verkalýðsforingja. Þar segir að hann telji áratugahefð þess að verkalýðsfélagið eigi mann í bæjarstjórn mjög nauðsynlega og nefnir í því sambandi fyrrverandi formenn þess þá Ragnar Guð- leifsson og Karl Stein- ar Guðnason. Undir- ritaður telur verkalýðs- foringjann vera á mikl- um vílligötum í þessu máli eins og mörgum öðrum. Verkalýðsforingjar era kjörnir til að vinna að bættum hag og laun- Ekki getur Kristján þó státað af því, segir Valur Guðmundsson, að hafa unnið að bættum hag og laun- um verkafólks. um verkafólks og ef þeir leggja sig fram við það er sh'kt ærinn starfí. Ekki getur Kristján þó státað af slíku því margir samningar verkafólks sem hann hefur samið um eru vægast sagt með miklum eindæmum, þótt víða væri leitað. Igulkerja- samningarnir Mörgum era í fersku minni samningamir sem hann gerði við fyrirtækið Islensk ígulker. Þar vora fótum troðin nánast öll áunnin réttindi verkafólks með fulltingi Kristjáns og co. og ef fólk dirfðist að reyna að leita réttar síns þá var því einfaldlega gefið á kjaftinn í orðsins fyllstu merkingu án nokk- urra afskipta verkalýðsfélagsins þó stuðnings væri leitað. Þó skal sagt honum til vorkunnar að hann einn lá ekki hundflatur fyrir þessu fyrir- tæki heldur flestir stjómendur bæjarfélagsins sem dekraðu við það á alla lund. Eigendur fyrirtæk- Valur Guðmundsson isins yfirgáfu síðan byggðarlagið fyrir- varalaust og skildu allt eftir í rúst, ógreidd laun, gjöld og annað. Flugleiðasamningar I ársbyrjun 1996 þegar Flugleiðir ákváðu að semja ekki aftur við flugafgreiðsl- una um starfsemi hlað- deildai’ heldur vinna það sjálfir með eigin starfsólki þá þurfti að semja að nýju við starfsfólkið. Þá gerði Kristján samning fyrir hönd verkafólks án nokkurs samráðs við okkur sem unnum í hlaðdeild að undanskild- um 2 starfsmönnum. Það var ekki fyrr en 6 mánuðum seinna með miklum eftirgangsmunum að við fengum að vita um hvað var eigin- lega samið. Þá kom í ljós að Krist- ján og félagar höfðu fórnað nán- anst öllum áunnum réttindum okk- ar og lækkað laun okkar veralega og þeim okkar sem ekki sættu sig við þessa svikasamninga vai’ ein- faldlega sagt að hypja sig. Þess má geta að þessir tveir vinh’ hans fengu umbun erfiðis síns með yfir- mannastöðu stuttu síðar. Þai-na tókst verkalýðsforingjanum og stjórnmálamanninum á nokkrum vikum að brjóta niður og eyði- leggja mjög hagstæða og viðunandi samninga sem hafði tekið Karl Steinar Guðnason nær 20 ár að byggja upp. Ekki að undra þó að hann vilji nudda sér utan í fyrrver- andi verkalýðsforingja sem þorðu og vildu standa fast á rétti verkafólks við miklu erfiðari aðstæður en nú til dags. Þessir menn unnu flest ef ekki öll þessi störf af hugsjón og heiðarleika án kröfu um eitthvað sjálfum sér til handa. Störf Kristjáns Gunnars- sonar að verkalýðsmálum hér í bæ eru með slíkum eindæmum að fáheyrt er. Vonandi skoða bæjarbúar þau mál vel áður en þeir greiða honum atkvæði sitt í komandi sveitar- stj órnarkosningum. Höfundur er verknmaður. Kemur menningin úr steypusilóum byggingarrisa Kópavogs? I UMRÆÐUM sem fram hafa farið um málefni Kópavogs nú fyrir kosningar hafa menningarmál verið of- arlega á baugi. Núver- andi meirihluti vill eigna sér þau og telur sig guðföður þeirra, eins og ekkert hafí ver- ið að gert fyrir þeirra tíma. Þannig er það oft með góða hluti, flestir vildu þá Lilju kveðið hafa. Það er hins vegar umhugsunarefni á hvern hátt núverandi meirihluti með Gunnar I. Birgisson fremstan í flokki sýnir þá valdníðslu að láta bæjarsjóð greiða hluta kosninga- baráttu sinnar, fyrst með tónleika- haldi og síðan skrautsýningu flokksbróður síns og formanns flokksins þar sem flokksformaður- inn lýsir því yfir að hér sé verið að byggja fyrir landið. Það skil ég reyndar vel að hann vilji taka sér í Birna Sigurjónsdóttir munn því ekki hefur hann lagt byggingu tónlistarhúss á landsvísu það lið sem bragð er að. Ég bið fólk að skilja hér kjam- ann frá hisminu. Nú upp á síðkastið hefur birst auglýsing í Sjónvarpi þar sem einn af okkar ágætu óperusöngvurum lofar menningu og gatna- kerfi bæjarins. Sú menning sem hér um ræðir er ekki sprottin út úr steinsteypusíló- um byggingarrisanna. Nei, hún grundvallast á því blómlega menningarlífi sem alltaf hefur verið undirtónn þessa byggðarlags. Hér má t.d. nefna merkt starf tónlistarskóla Kópa- vogs, skólahfjómsveitar Kópavogs og barnakórs Kársnesskóla svo nokkuð sé nefnt. Erfitt á ég einnig með að sjá að Gerðarsafn hefði nokkurn tíma risið ef ekki hefði Það þarf ekki mikið að breytast í fylgi K-list- ans, segir Birna Sigur- jónsdóttir, svo hann standi uppi sem sigur- vegari kosninganna. komið til hin höfðinglega gjöf Gerðar Helgadóttur, listakonu. Ég vil hins vegar ekki hafa mörg orð um upphrópun óperusöngvarans um ágæti gatnakerfis okkai’, hann er nýfluttur í bæinn og hefur sennilega ekki náð að aka um hann allan, síst af öllu við núverandi aðstæður. í blaðinu Kópavogspóstinum, 8. tbl. ‘98, er talað um lítinn áhuga á kosningunum. Þetta hlýtur að eiga við D-listamenn í Kópavogi, því ekki á það við um Kópavogslist- ann, lista jafnaðarmanna, félags- hyggju og kvenfrelsis, sem býður nú fram í Kópavogi í fyrsta sinn. Kópavogslistinn hefur margt að athuga við verk núverandi meiri- hluta, einkum hvað varðar skólamál, menntamál, umhverfis- mál og félagsmál. Listinn vill gera Kópavog að bæ fjölskyldunnar og fagurs umhverfis, þar sem þess verði gætt að mannlegt líf geti blómstrað og dafnað. Ef marka má nýlega skoðanakönnun um fylgi listanna virðist mikill hluta Kópa- vogsbúa á sömu skoðun. Munurinn sem kemur fram í könnuninni er ekki marktækur að mati þeirra sem til þekkja. Það þarf því ekki mikið að breytast í fylgi K-listans svo hann standi uppi sem sigur- vegari kosninganna. Heitum á okkur að láta það verða að veru- leika í kosningunum 23. maí. Fell- um núverandi meirihluta í bæjar- stjórn Kópavogs. Til þeirra góðu verka heitir listinn á fulltingi þitt lesandi góður. Höfundur er nðstoðarskólastjóri og í 8. sæti á K-listanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.