Morgunblaðið - 23.05.1998, Blaðsíða 86
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
HERBERT var í hljóðveri í London með Óskari Páli sem hljóðblandar
nýju plötuna með honum.
Safnplata
með nokkrum
nýjum lögum
-Hvað hefur þú
verið að fást við
undanfarið, Her-
bert?
„Ég var að koma
írá Bretlandi fyrir
viku þar sem við
Oskar Páll vorum
að hljóðblanda lög
af plötunum mín-
um sem koma svo
út á geisladiski
sem verður eins-
konar yfírlit yfir
ferilinn minn. Sum
lög verða í nýjum
búningi, við gerð-
um t.d. æðislega
skemmtilega dans-
blöndun af „Can’t
Walk Away“ og
síðan erum við að
endurvinna fleiri
lög eins og
„Hollywood". Það
er komin svo mikil
tækni í dag að við
erum svolítið að
hræra í þessum
gömlu lögum. Svo
verð ég með þrjú til fjögur ný lög á
plötunni líka.“
- Eru nýju lögin í svipuðum stíl
og áður eða ertu að gera eitthvað
nýtt?
„Ætli ég sé ekki að verða meira í
takt við tímann; nýju lögin eru í al-
veg nýjum stíl og í anda þess sem
er að gerast í tónlist í dag. Ég hef
verið að vinna þau á tölvum með
ungum plötusnúð sem heitir Vig-
fús. Við sendum svo efnið til Bret-
lands þar sem Óskar Páll
hljóðblandar það. Ef ég ætti að
skilgreina tónlistina nánar myndi
ég segja að þetta væri melódísk
hress danstónlist sem er unnin í
tölvu.“
-Af hverju syngurðu á ensku,
dreifir þú tónlistinni líka erlendis?
„Mér finnst bara svo gaman að
syngja á ensku og mér hefur geng-
ið ágætlega með það hingað til. Svo
tengist það örugglega því að þegar
ég var að byrja í tónlist þá byrjaði
ég á því að líkja eftir öðrum. Ég
var alltaf að pæla í söngvurum eins
og Rod Stewart til dæmis og Paul
Young og þá var ég í því að líkja
eftir því sem ég heyrði. Það var í
raun og veru minn tónlistarskóli
því ég varð fyrir allskonar áhrifum
Um þessar mundir
eru 25 ár liðin frá
því að Herbert Guð-
mundsson hóf litríkan
feril sinn sem tón-
listarmaður. Hann
hefur gefíð út fímm
sólóplötur og er nú
að undirbúa útgáfu
safnplötu sem mun
geyma úrval laga
hans í bland við nýtt
efni. Birna Anna
Björnsdóttir hitti
Herbert og spurði
hann um þetta nýja
verkefni.
og svo þroskaðist
ég, fór að verða
sjálfstæður og
semja sjálfur.
Langstærsti
hluti þess sem ég
hlustaði á var á
ensku þannig að
það lá einhvern-
veginn beinast við
að semja sjálfur á
ensku. Svo er það
auðvitað þannig að
ef sú staða kæmi
upp að maður
kæmist inn á
markað í útlönd-
um, er gott að lög-
in séu á ensku. En
ég hef ekki mark-
visst verið að
reyna að komast
inn á erlenda
markaði, nýju
plötuna er ég t.d.
að gera eingöngu
fyrir ísland."
- Hvað kemur
til að þú gefur út
safnplötu núna?
„Ég flutti til Svíþjóðar ‘93 með
fjölskyldunni en við bjuggum þar í
þrjú ár og rákum kaffihús og ís-
gerð. Einn daginn var hríngt í mig
þar sem ég stóð í búðinni með
svuntuna framan á mér að laga ís
og þá var það útvarpsmaður sem
kynnti sig og spurði mig hvort ég
vissi hvað lagið mitt væri orðið
vinsælt. Ég spurði: „Lagið mitt,
ha? Hvaða lag?“ Þá sagði hann að
„Can’t Walk Away“ hefði verið
spilað í einhverjum þætti, þar sem
leikin var tónlist frá níunda ára-
tugnum, og síðan þá hefði síminn
ekki stoppað og allir væru að
spyrja hvar hægt væri að fá þetta
lag, en þá var það ófáanlegt því það
var gefið út á vínilplötu á sínum
tíma. Þegar ég kom heim ‘96 var
svo ákveðið að endurútgefa plötuna
á geisladiski. Þá byrjaði boltinn að
rúlla og ég hef verið að spila mikið
hér og þar, t.d. fyrir skóla og það
hefur verið mjög mikið að gera hjá
mér. I kjölfarið á þeirri velgengni
var ákveðið að gefa út safnplötu."
Plata Herberts kemur út í haust
en aðdáendur hans munu þó fá að
heyra nýja efnið fyrr því það mun
heyrast á útvarpsstöðvunum og
jafnvel dansstöðunum í sumar.