Morgunblaðið - 17.12.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurskoðuð efnahagsspá Þjóðhagsstofnunar sýnir um 5% hagvöxt
Búist við að kaupmáttur
aukist um 10% á árinu
KAUPMÁTTUR ráðstöfunaitekna á mann eykst
um 10% á þessu ári og um 5% árið 1999 samkvæmt
endurskoðaðri efnahagsspá Þjóðhagsstofnunar.
Reiknað er með að hagvöxtur á þessu og næsta ári
verði um og yfir 5% hvort árið um sig og viðskipta-
jöfnuður verði neikvæður um 35 milljarða króna á
þessu ári og 29,5 milljarða árið 1999. Gert er ráð
fyrir að atvinnuleysi fari minnkandi og verði 2,5%
á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að verðbólga verði
heldur meiri á næsta ári en áður var búist við eða
2,5_% í stað 2% á yfirstandandi ári.
í heild felur þessi endurskoðun í sér svipað mat
á efnahagsþróuninni og áður var lagt fram að því
er fram kemur í yfirliti frá Þjóðhagsstofnun. Hag-
vöxtur hefur verið um og yfir 5% á ári frá árinu
1995 og segir í yfirlitinu að fá dæmi séu um svo
mikinn og jafnan hagvöxt hér. Samtals er hag-
vöxtur áranna 1995-1999 24,7% miðað við þjóðar-
tekjur. I þjóðhagsáætlun var gert ráð fyrir að
kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann myndi
aukast um 8% á þessu ári. Nú er reiknað með því
að staðgreiðsluskyldar tekjur hafi hækkað um
13,5-14% á fyrstu 10 mánuðum ársins eða um 10%
miðað við árið í heild frá fyrra ári.
Endurskoðuð spá felur í sér lítilsháttar lækkun
þjóðarútgjalda 1998, miðað við þjóðhagsáætlun. í
stað tæplega 13% aukningar milli ára er nú spáð
rúmlega 12% vexti þjóðarútgjalda í ár. Þá er gert
ráð fyrir að einkaneysla aukist meii'a á næsta ári
en áður var spáð auk þess sem ný útgjaldaáform
ríkisins leiði til hærri samneysluútgjalda. I heild
er nú spáð 3,3% aukningu þjóðarútgjalda á næsta
ári í stað 1,5% í þjóðhagsáætlun. í þjóðhagsáætlun
var spáð 10% aukningu einkaneyslu á þessu ári og
5% á hinu næsta. í endurskoðaðri spá er gert ráð
fyrir 12% aukningu í ár og 6% aukningu 1999.
Alvarlegt
vinnuslys í
Kópavogi
RÚMLEGA fimmtugur karl-
maður slasaðist lífshættulega í
vinnuslysi í Kópavogi skömmu
fyrir hádegið í gær er hann
varð undir belti vinnuvélar þar
sem hann var við vinnu í grunni
að nýrri verslunarmiðstöð í
Smárahvammslandi. Maðurinn
var að sprengja klöpp í grunn-
inum með stjórnanda vinnuvél-
arinnar er slysið varð. Hann var
fluttur á Sjúkrahús Reykjavík-
ur og liggur alvarlega slasaður
á gjörgæsludeild. Rannsóknar-
deild lögreglunnar í Kópavogi
annast rannsókn málsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Þjóðskjalasafnið flutt
Settur félagsmálaráðherra um kæru
Ingu Jónu Þórðardóttur
Samþykkt
borgarstj órnar
felld úr gildi
VSI og Kaupmanna-
samtökin
Andvígir
ákvæði um
fímm ára
ábyrgð
VINNUVEITENDASAMBAND
Islands og Kaupmannasamtök Is-
lands hafa lýst mikilli andstöðu við
að lögfest verði ákvæði í frumvai-pi
viðskiptaráðherra til laga um lausa-
fjárkaup sem felur í sér að ábyrgðar-
tími seldra vara verði lengdur úr
einu ári í fimm ár. Að mati samtak-
anna á þessi regla sér ekkert for-
dæmi í nágrannalöndunum að því er
fram kemur í umsögn þpirra um
frumvarpið. Lögmaður VSÍ segir að
samtökin geri ekki athugasemd við
að tilkynningarfrestur sem kaupandi
hefur til þess að tilkynna seljanda
um galla á vöru verði lengdur í tvö ár
til samræmis við þær reglur sem í
gildi eru í flestum nágrannalöndum.
I umsögn sinni telja samtökin að
verði umrætt ákvæði frumvarpsins
óbreytt að lögum muni það valda
mikilli óvissu í viðskiptum. ,Ákvæðið
er ekki aðeins óskýrt heldur einnig
alltof víðtækt. Það nær ekki einungis
til steypu og byggingarefnis, heldur
einnig til rafmagnsvöru og annan-a
heimilistækja," segir í umsögninni til
Alþingis.
Ragnar Árnason héraðsdómslög-
maður bendir á að í greinargerð
frumvarpsins sé færður rökstuðn-
ingur fyrir því að hæfílegt sé að
lengja tilkynningarfrest kaupenda í
tvö ár til að gæta jafnvægis á milli
kaupenda og seljenda. Þrátt fyrir
þetta sé svo sett fram sú regla í 3.
málsgrein 32. greinar frumvarpsins
að tekinn verði upp fimm ára frestur
til að tilkynna um galla á vörum. „í
frumvarpinu er lagt til að tekin verði
upp sérregla hér á landi sem gengur
út frá þvi að ef söluhlut er, við „vana-
lega notkun“, ætlað að endast lengur
en í tvö ár, hafi kaupandi fimm ár til
þess að tilkynna um galla á hlutnum.
Við urðum mjög undrandi á þessu
ákvæði. Það lengir stórlega þessa
fresti. Við höfum ekki gert athuga-
semdh' við tillöguna um að lengja
frestinn í tvö ár, og teljum það vera í
samræmi við löggjöf nágrannaþjóð-
anna,“ segir hann.
ÞJÓÐSKJALASAFN íslands
var í gær flutt úr Safnahúsinu
við Hverfisgötu eftir að hafa
verið þar til húsa í 90 ár. Efnt
var til stuttrar athafnar í tilefni
flutninganna og afhenti Ólafur
Ásgeirsson, þjóðskjalavörður,
Salome Þorkelsdóttur, for-
manni hússtjórnar Safnahúss-
ins, lykla Þjóðskjalasafnsins.
Skinnhandrit frá miðöldum
voru flutt brott af lögreglu-
mönnum og komið fyrir í ör-
yggisgeymslu í framtíðarhús-
næði safnsins á Laugavegi 162.
Er ráðgert að opna þar lestrar-
sal í lok sumars 1999. Unnið er
að undirbúningi nýrrar starf-
semi í Safnahúsinu sem á að
hefjast árið 2000.
HALLDÓR Ásgrímsson, settm- fé-
lagsmálaráðherra, hefur fellt úr
gildi samþykkt borgarstjórnar frá 2.
júlí 1998 um að fela Pétri Jónssyni
að taka við störfum Hrannars B.
Arnarssonar í borgarstjórn. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra
ákvað að víkja sæti sökum vanhæfis
við meðferð kærunnar þar sem eig-
inkona hans, Sigrún Magnúsdóttir,
tók þótt í afgreiðslu málsins í borg-
arstjórn. Helgi Hjöi-var, borgarfull-
trúi R-listans, sagði í gær að þessi
niðurstaða kæmi á óvart, en Inga
Jóna Þórðardóttir, oddviti Sjálf-
stæðisflokks, kvaðst fagna úrskurð-
inum.
Hrannar B. Arnarsson óskaði eft-
ir ótímabundnu leyfi frá störfum
sem borgarfulltrúi með bréfi 28. maí
1998. Á fundi borgarstjórnar 2. júlí
sl. var samþykkt með 8 atkvæðum
gegn 7 atkvæðum Sjálfstæðisflokks-
ins að varaborgarfulltrúi frá sömu
stjórnmálasamtökum og sá sem for-
fallast tilheyrir taki sæti í borgar-
stjórn. Sjálfstæðismenn lögðu fram
bókun þar sem mótmælt var að
varamaður í 13. sæti tæki sæti
Hrannars B. Arnarssonar.
Kærandi, Inga Jóna Þórðardóttir,
taldi að með samþykkt borgarstjóm-
ar hefði verið brotið gegn sveitar-
stjómarlögum en í 24. grein þeirra
segi að varamenn taki sæti í sveitar-
stjórn í þeirri röð sem þeir era kosn-
ir þegar aðalfulltrúar þess lista sem
þeir eru kosnir af víkja frá. Inga
Jóna taldi því að fyrsti varamaður á
R-listanum, Anna Geirsdóttir, sem
skipaði 9. sæti á listanum, hefði átt
að taka sæti Hrannars, en ekki Pét-
ur Jónsson sem skipaði 13. sæti.
I úrskurði setts félagsmálaráð-
herra segir að R-listinn hafi verið
formlega borinn fram af Reykjavík-
urlistanum einum en ekki af öðrum
stjórnmálaflokkum eða samtökum.
„Samkvæmt þessu og með hliðsjón
af því að kjósendur verða að geta
treyst því að kjörseðill hafi að
geyma tæmandi upplýsingar um
hvaða stjórnmálasamtök bera fram
framboðslista verður að telja að skil-
yrðum 2. mgr. 35. gr. laga nr. 8/1986
hafi ekki verið fullnægt í því tilviki
sem hér um ræðir. Varamaður átti
því ekki að taka sæti Hrannars B.
Arnarssonar í borgarstjórn sam-
kvæmt ákvæði 2. mgr. 35. gr. heldur
samkvæmt ákvæði 1. mgr. 35. gr.
laga nr. 8/1986, þ.e. í þeirri röð sem
varamenn eru kosnir. Með vísan til
framangreinds verður ekki hjá því
komist að fella hina kærðu sam-
þykkt borgarstjórnar Reykjavíkur
úr gildi.“
„Fannst lögin
vera afdráttarlaus"
Inga Jóna Þórðardóttir kveðst
fagna niðurstöðu setts félagsmála-
ráðherra. „Ég var allan tímann sann-
færð um að við hefðum réttinn okkar
megin og fannst lögin vera afdráttar-
laus hvað þetta varðar." Hún sagði
að nú í framhaldinu myndi borgar-
stjórnai-flokkur sjálfstæðismanna
skoða áhrif ákvörðunarinnar.
Ekki náðist í Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra í gær en
Helgi Hjörvar borgarfulltrúi R-list-
ans sagði að úrskurðurinn kæmi
sannarlega á óvart. „Hann bendh’ til
þess að sveitarstjórnir í landinu
þurfi að endurskoða starfsaðferðir
sínar. Það vekur þó óneitanlega at-
hygli að settur félagsmálaráðherra
undirritar ekki úrskurðinn. Að öðru
leyti mun þetta óveruleg áhrif hafa
og ég á ekki von á því að við munum
áfrýja úrskurðinum enda um minni-
háttar tækniatriði að ræða fremur
en pólitískt mál,“ sagði Helgi.
Sérblöð í dag
VIDSmPTIAIVINNULÍF
FYRIRTÆKI
HB hagnast
minna
Minnkandi
loðnuveiði hefur
áhrií/B1
GISTIHÚS
Flugleiða-
hótel í sókn
Áhersla á sölu- og
markaðsmái/B8
Blaðinu í dag
fylgir fjögurra
síðna auglýs-
ingablað (
stóru broti
fyrir Þín versl-
un „Jólainn-
kaupin".
Flestir veðja á Juventus í
Meistaradeild Evrópu/C1
ísland fékk sterka mótherja í
undankeppni EM kvenna/C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbi.is