Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Margvíslegar gjaldskrárhækkanir samþykktar hjá Reykjavíkurborg Sundgestir, skíðamenn og hundaeigendur greiða meira GJALDSKRÁ sundstaða í Reykja- vík, gjaldskrá fyrir hundahald í Reykjavík og gjaldskrá í lyftur á skíðasvæði Reykvíkinga í Bláfjöllum hækka í byrjun næsta árs. Einnig hækkar aðgangseyrir í Árbæjarsafn um næstu áramót. Verð á einstökum miðum barna og fullorðinna á sundstaði borgarinnar hækkar nokkuð því sumartími, þeg- ar hærra verð hefur verið í gildi, lengist um tvo mánuði. Sumartími er færður aftur til 1. apríl í stað 1. maí og fram til 30. september í stað 31. ágúst. Breytingin tekur gildi 1. apríl nk. Eftir það verður einungis eitt verð fyrir fullorðna, 200 kr., en á vetrartíma hefur gjaldið verið 165 kr. fyrir fullorðna. Vetrargjald, 65 kr., verður áfram fyrir börn, en 100 kr. á sumartíma. 10 miða kort fullorðinna hækkar úr 1.200 kr. í 1.300 kr. og tiu miða kort bama hækkar úr 350 kr. í 400 kr. 30 miða kort fullorðinna hækkar úr 3.000 kr. í 3.600 kr. en á móti lækkar árskort fullorðinna úr 17.500 kr. í 15.000 kr. og árskort barna úr 6.300 kr. í 6.000 kr. Árskort fullorðinna í skíðalyftur í Bláfjöllum hækka úr 10.800 kr. í 11.000 kr. og árskort barna úr 4.900 kr. í 5.000 kr. Hálfsdagskort fullorð- inna lækkar hins vegar úr 800 kr. í 600 kr. en óbreytt gjald verður fyrir hálfsdagskort bama, æfmgakort og æfingakort fyrir yngri en 8 ára. Gjaldskrá fyrir hundahald í Reykjavík hækkar um 4,6-6,2% frá núgildandi gjaldskrá. Gjalddagi er 1. mars ár hvert. Aðgangseyrir fullorðinna í Árbæj- arsafn hækkar úr 300 kr. í 400 kr. Eldri borgarar þurfa framvegis að greiða 200 kr. aðgangseyri en höfðu áður fengið ókeypis aðgang. Þá hækkar aðgangseyrir fyrir hópa 10 eða fleiri úr 150 kr. í 200 kr. á hvern mann. Aðgangseyrir er lækkaður úr 300 kr. í 200 kr. fyrir öryrkja og ókeypis verður inn á safnið á mánu- dögum en þá var aðgangseyrir 200 kr. Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi R- listans, segir að þjónustugjöld borg- arinnar taki mið af kostnaði við þjónustuna og er ætlað að kosta ákveðið hlutfall af heildarkostnaðin- um. Flestar breytingar á þjónustu- gjöldunum tengist því. Hann segir að ákvörðun um hækkun í skíðalyft- ur í Bláfjöllum sé tekin sameigin- lega sveitarfélögunum á suðvestur- horni landsins. Hann segir að að- gangseyrir að sundstöðunum hafí fyrir nokkmm áram dugað fyrir 85% af rekstrarkostnaði sundstað- anna en með breytingu á gjaldskrá næsta verði hlutfallið um 70%. Helgi segir að ekki sé gert ráð fyrir að því að breytingar á gjaldski'ám skili tekjuauka umfram kostnaðar- auka við þjónustuna. „Við hétum því í kostnaðarbaráttunni að lækka hol- ræsagjaldið umtalsvert á kjörtímabil- inu og sömuleiðis orkugjöld. Við höf- um markað þá stefnu sem fram kom í ræðu borgarstjóra við íramlagningu fjárhagsáætlunar að þjónustugjöld borgarinnar verða ekki notuð á kjör- tímabilinu til að auka tekjur heldur einvörðungu sem stjórntæki og til að þekja þann hluta kostnaðar sem þau hafa gert til þessa,“ sagði Helgi. Mikið annríki hjá Flug- leiðum MIKIÐ annríki er hjá Flug- leiðum á þessum árstíma eins og undanfarin ár og hefur ver- ið bætt við aukafiugferðum, til dæmis til Kaupmannahafnar, vegna þess. Segja má að mesti annatíminn sé frá miðjum des- embermánuði og fram undir 10. janúar á næsta ári þegar þeir sem komið hafa heim til Islands um jólin em farnir út aftur. Margrét Hauksdóttir hjá upplýsingadeild Flugleiða sagði að árstíðasveiflur í rekstri félagsins væru mjög miklar og þar bæri sumarið og þennan árstíma sem nú fer í hönd hæst hvað annn'ki snerti og virtist jólatíminn nú ætla að vera svipaður síðasta ári í þeim efnum. Að leik í Morgunblaðið/Golli snjonum EKKI hefur niikill snjór safnast fyrir í Reykjavík undanfarna daga og virtist mest ætla að hverfa í hlákunni í gærkvöldi. Þessi börn í Seljaskóla virtust hins vegar fínna nægan efnivið til að búa til snjókarla í gær. Jeppi fauk út af JEPPABIFREIÐ fauk út af vegin- um í Kerlingarskarði í aftakaveðri um klukkan 13 í gær. Ökumaður- inn, sem var einn í bifreiðinni, til- kynnti slysið úr farsíma, en gat ekki sagt nákvæmlega hvar hann var niðurkominn vegna afleits skyggnis. Lögreglan í Stykkishólmi og meðlimir úr björgunarsveitinni Elliða fundu bifreiðina eftir eina klukkustund og 20 mínútur og var ökumaður hennar fluttur á Heilsu- gæsluna í Borgarnesi með minni- háttar meiðsli. Bifreiðin er hins vegar mikið skemmd og var flutt með dráttarbifreið af vettvangi. A HENGILSSVÆÐINU hefur land risið um 2 cm á ári frá 1992 og stendur nú til að hefja síritandi landrismælingar á svæðinu, sem líkja má við gjörgæslu fjallsins. Verkefnið pr samvinnuverkefni Veðurstofu íslands, Norrænu eld- fjallastöðvarinnar og Raunvísinda- stofnunar Háskóla Islands og hefst innan tveggja mánaða. „Ein túlkun á landrisinu er sú að á svæðinu eigi sér stað kvikusöfn- un,“ segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur hjá Norrænu eldfjallastöðinni. „Þetta er reyndar mjög lítið enn sem komið er og ég tel ekki líkur á eldgosi í bráð, en við viljum fylgjast vel með þessu því þetta er atburðarás sem er í gangi.“ Ekki unnt að spá fyrir um öll eldgos Hann segir að atburðarásin á Hengilssvæðinu geti hætt, en geti líka haldið áfram með sama hraða í langan tíma án þess að nokkuð ger- ist. Mikilvægt er að fylgjast með hraða landrissins því ef það eykst þá aukast líkur á eldsumbrotum. <RINGWN nóltt't&isÝt wi ni n rgi n &r f Kfártgjunn}, OpÍ6 til 22.00 fram aö jóium. Opib í dag 10.00-22.00 KRINGMN Gleðilega hátíð Morgunblaðið/Þorkell Mæðrastyrksnefnd styrkt ÁGÚST Einarsson, forstjóri Stálsmiðjunnar hf., afhenti Unni Jónasdóttur, formanni Mæðra- styrksnefndar, 250.000 kr. í gær. Einhugur var milli starfsfólks og stjórnar Stálsmiðjunnar um að í stað þess að gefa jólagjafír innan fyrirtækisins yrði Mæðrastyrks- nefnd styrkt með rausnarlegum hætti. Hengillinn í gjörgæslu vegna vísbend- inga um kvikusöfnun Aukinn skilning- ur leiðir til betri viðvörunarhæfni Hann vildi þó taka fram að hæfist eldgos í Henglinum yrðu aðeins mannvirki í hættu en ekki fólk. Islendingar eru búnir háþróuð- ustu mælitækjum, sem völ er á til að spá fyrir um eldgos. Sum eld- gos er hægt að spá fyrir um en önnur ekki. Helstu fyrirboðar eld- gosa eru aukin jarðskjálftavirkni, kvikusöfnun inni í eldfjöllum og skyndilegt kvikustreymi úr kviku- hólfi að yfirborði jarðar. Síðast- nefnda atriðið er erfitt að sjá fyrir því sú framvinda getur tekið ör- stuttan tíma, eða innan við hálfa klukkustund. Eldgos í Heklu verða t.d. með þessum hætti og því er erfitt að spá fyrir um eldgos í fjallinu og gefa út viðvörun í tíma. Tvær meginaðferðir era notaðar hérlendis til að fylgjast með eld- fjöllum í því skyni að draga álykt- anir um væntanleg gos í þeim. Það era mælingar á jarðskjálftum og jarðskorpuhreyfingum. Margvísleg tækni er notuð til að meta jarð- skorpuhreyfingar, þar á meðal GPS-landmælingar og mælingar á landbreytingum úr ratsjár- gervitunglum, en báðar þessar að- ferðir má nota til að mæla landris á eldfjöllum. Auk þessara aðferða era notaðar nákvæmar hallamæl- ingar og eins þenslumælar, sem settir era í borholur til að mæla hvort jarðskorpan dregst saman eða þenst út. Markmiðið að geta gefið út viðvörun tímanlega Eitt meginmarkmiðið með mæl- ingum á eldfjöllum er að geta gefið út viðvöran í tæka tíð, en því mark- miði telur Freysteinn að hafi verið náð í síðasta eldgosi á íslandi, sem var í Vatnajökli í október 1996. „Þá var gefin út viðvörun um hættu á yfirvofandi eldgosi kvöldið áður en gosið byi-jaði. Hún var byggð ein- göngu á mælingum á jarðskjálft- um.“ Að sögn Freysteins er óvíst hvaða eldfjall gýs næst á íslandi og hvenær það verður. Hitt er annað mál að hægt væri, með frekari mælitækjum, að fylgjast mun bet- ur með eldfjöllum og breytingum á þeim.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.