Morgunblaðið - 17.12.1998, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hjálparstarf kirkjunnar og Reykjavíkurdeild Rauða krossins hefja úthlutun matarpakka
Rrimlega 600
manns hafa
sótt um aðstoð
EINS og undanfarin ár mun
Hjálparstarf kirkjunnar í samstarfi
við Reykjavíkurdeild Rauða kross-
ins úthluta matarpökkum til þurf-
andi Islendinga um jólin. Að sögn
Hörpu Njáls félagsfræðings, sem
sér um innanlandsaðstoð Hjálpar-
starfsins, hafa yfir 600 manns sótt
um aðstoð en afgreiðsla hefst í dag.
Harpa Njáls, sem hefur farið yflr
umsóknimar og metið, segir að yfir
helmingur umsækjenda sé með
böm á framfæri en rétt innan við
helmingur umsækjenda eru ein-
staklingar. Öryrkjar eru um 57%
hópsins og atvinnulausir 20%. Segir
hún þetta ekki koma sér á óvart
miðað við það sem verið hafi allt
árið. Harpa sinnir innanlandsað-
stoðinni í hálfu starfi og er hún veitt
allt árið. Mánuðina febrúar til júlí
leituðu að meðaltali um 80 manns á
mánuði eftir aðstoð Hjálparstarfs-
ins. Auk þess sem margir þeirra fá
úrlausn með matargjöfum sér
Harpa um að veita ráðleggingar eða
að koma skjólstæðingum til annarra
aðila.
Afgi-eiðsla matarpakkanna fer
fram næstu daga í Skúlatúni 4 í
Reykjavík sem Hjálparstarf kirkj-
unnar hefur fengið afnot af endur-
gjaldslaust. Verður afgreiðslan opin
virka daga milli kl. 10 og 12 og 13 og
16 og síðast afgreitt fyrir hádegi á
aðfangadag.
Um 50 fyrirtæki hafa
lagt fram varning
Fjölmörg fyrirtæki hafa lagt
matarbúrinu lið að þessu sinni og
segir Páll Stefánsson verkefnis-
stjóri að þau séu um 50, innflytj-
endur og framleiðendur, og eru
meðal þeirra kjötbændur sem hafa
ávallt styrkt matarbúrið ríkulega
undanfarin ár. Segir Páll þau hafa
brugðist vel við óskum Hjálpar-
„ Morgunblaðið/Árni Sæberg
UTHLUTUN matarpakkanna á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar og Reykjavíkurdeildar Rauða
krossins hefst í dag f Skúlatúni 4.
starfsins um að leggja fram vörur.
Hann segir þetta vera eitt ánægju-
legasta verkefni sem hann hefur
unnið fyrir Hjálparstarfið þar sem
svo góðar undirtektir hafi fengist.
Verðmæti matvælanna sem hafa
verið gefin að meðtöldu því sem
kaupa þarf er um 5 milljónir króna.
Mögulegt er ennþá að sækja um
aðstoð og er þá fólki bent á að snúa
sér beint til afgreiðslu matarbúrsins
í Skúlatúni 4.
Jólasöfnun Hjálparstarfsins
stendur enn yfir og Mggja gíróseðlar
frammi í bönkum, sparisjóðum og
pósthúsum. Fjármunir söfnunarinn-
ar fara í verkefni Hjálparstarfsins
innanlands og utan, m.a. í löndum
þriðja heimsins og efst á baugi nú
eru bágstaddir á hamfarasvæðun-
um í Mið-Ameríku.
Heilbrigðisráðherra kynnir breytingar á lögum um almannatryggingar
Bætur öryrkja og aldraðra
hækka um 1,5 milljarða 1999
BÆTUR öryrkja og ellilífeyris-
þega hækka um 1.500 milljónir
króna á næsta ári og greiðslur al-
mannatrygginga vegna endurhæf-
ingar hækka auk þess um 50 millj-
ónir kr. Þetta kom fram í máli
Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra á
fréttamannafundi í gær en
ráðherra leggur í dag fram á
Alþingi frumvarp til breytinga á al-
mannatryggingalöggjöfinni, sem
felur í sér ýmsar breytingar með
það að markmiði að bæta kjör ör-
yrkja og aldraðra.
4% hækkun bóta um áramót
Um er að ræða breytingar sem
fela í sér um 500 milljóna kr. hækk-
un bóta umfram þá hækkun sem
kveðið er á um í fjárlagafrumvarp-
inu fyrir næsta ár.
Fram kom í máli heilbrigðis-
ráðherra að ríkisstjórnin hefur
ákveðið að allar bætur almanna-
trygginga hækki um 4% um næstu
áramót og er það nokkru meiri
hækkun en gert er ráð fyrir í fjár-
lagafrumvarpinu, þar sem kveðið
er á um 3,65% hækkun bóta al-
mannatrygginga um áramót.
Frítekjumörk hækka
Ein meginbreytingin sem kveðið
er á um í frumvarpinu er hækkun á
svokölluðum frítekjumörkum, sem
veldur því að bætur byrja að skerð-
ast þegar ákveðnum tekjumörkum
er náð. Koma þessar breytingar
um 18 þúsund einstaklingum til
góða að sögn heilbrigðisráðherra.
Kostnaður ríkissjóðs vegna þess-
ara breytinga verður um 400 millj-
ónir á næsta ári.
„Svigrúm öryrkja og ellilífeyris-
þega sem hafa atvinnutekjur batn-
ar um allt að 125% en í 60 ára sögu
almannatrygginga hafa tekjur
HOLTAGARÐAR
OPID Í DAÖ KL»
Breyttar reglur um bætur öryrkja og ellllifeyrisþega
samkvæmt frumvarpi til breytinga á lögum um almannatryggingar
Tekjumark áður en bætur og réttindi skerðast
Öryrkjar Núverandi reglur Eftir breytingu skv. frumvarpi Hækkun
Hjón, annað bótaþegi 40.224 kr. 90.504 kr. 125 %
Hjón, bæði bótaþegar 28.156 kr. 60.336 kr. 114%
Einhleypingur 20.112 kr. 30.168 kr. 50%
Aldraðir
Hjón, annað bótaþegi 40.224 kr. 60.336 kr. 50%
Hjón, bæði bótaþegar 28.156 kr. 40.224 kr. 43%
Einhleypingur 20.112 kr. 20.112 kr. 0%
maka skert lífeyri. Til þessa eins
eru lagðar rúmlega 400 milijónir,
sem skiptast jafnt á milli öryi’kja
og ellilífeyrisþega," sagði Ingi-
björg.
Sem dæmi um áhrif breyting-
anna munu ráðstöfunartekjur
hjóna, sem eru hvort um sig með
80 þúsund kr. lífeyri, aukast um
16.600 krónur, að mati heilbrigðis-
ráðuneytisins. Frítekjumark hjóna
þar sem annað er bótaþegi vegna
örorku hækkar úr 40.224 kr. í
90.504 kr. Frítekjumark hjá hjón-
um sem bæði njóta ellilífeyris
hækkar úr 28.156 í 40.224 kr., svo
dæmi séu tekin úr frumvarpinu.
Missa ekki réttindi þrátt fyrir
tekjur ef örorka er metin 75%
í frumvarpinu er einnig kveðið á
um að þeir einstaklingar sem metn-
ir eru með a.m.k. 75% örorku missi
ekki réttindi sem þeim eru tryggð í
almannatryggingakerfinu þrátt
fyrir að þeir afli launatekna en skv.
gildandi reglum missa öryrkjar
sem stunda vinnu ýmis þau réttindi
sem þeir hafa haft. Hefur það kom-
ið mjög illa við þá sem þurfa til
dæmis á endurhæfingu að halda, að
sögn Ingibjargar.
I frumvarpinu er að finna breyt-
ingu á skilgreiningu á örorku
þannig að hún verði hér eftir ein-
vörðungu metin út frá læknisfræði-
legu ástandi einstaklingsins, í stað
þess að í núgildandi lögum er ör-
orkuhugtakið jafnframt tengt tekj-
um. Með þessari breytingu munu
öryrkjar halda rétti sínum til ör-
orkuskírteinis og þar með til lægri
greiðsluþátttöku, s.s. vegna læknis-
hjálpai’ og þjálfunar, auk þess að
njóta áfram annarra réttinda, t.d. á
vegum sveitarfélaga.
Endurhæfing skilyrði
örorkubóta
Fram kom á fréttamannafundin-
um í gær að í tengslum við umrætt
frumvarp sé einnig gert ráð fyrir að
tryggingayfirlæknir geti ákveðið að
endurhæfing sé skilyrði örorkubóta
og Tryggingastofnun ríkisins verði
veitt heimild til að koma á fót sér-
hæfðu matstreymi til að meta þörf
og möguleika einstaklinga á að ná
aukinni fæmi með markvissri
líkamlegri og stai’frænni endui’hæf-
ingu, mun fyrr en hingað til hefur
tíðkast eftir sjúkdóma og slys.
Stefnt er að afgreiðslu frum-
varpsins á Alþingi fyrir jólaleyfi
þannig að umræddar bi’eytingar
geti komið til fi-amkvæmda um
áramótin og unnt verði að greiða
öryrkjum og ellilífeyrisþegum bæt-
ur samkvæmt nýjum reglum frá
sama tíma.
Tilfærslur í
veitinga-
rekstri á
Klapparstíg
ÚTLIT er fyrir að kaffihúsið Kaffí
List flytji úr núverandi húsnæði á
Klappai’stíg fyrri hluta næsta árs, að
sögn Þórdísar Guðjónsdóttur sem
rekur staðinn ásamt eiginmanni sín-
um, Agustin Cortes. Hún segir að
fyrirhugað sé að festa kaup á
húsnæði fyrir reksturinn en of
snemmt sé að segja til um hvert
verði flutt.
„Við höfum vei’ið í leiguhúsnæði
síðan 1992, þegar Kaffi List var
stofnað, og viljum nú komast í eigið
húsnæði. Við munum halda reksti’i
áfram á nýjum stað í næsta
nágrenni. Hann verður stærri og
hentar betur þeirri hugmjmd sem
liggur að baki staðnum, en Kaffi List
er elsta starfandi kaffihús með vín-
veitingaleyfi í borginni þótt það sé
ekki gamalt," segir Þórdís.
Leigusamningur við eigendur
kaffihússins rennur út um mitt
næsta ár og segir Þórdís að um tíma
hafi ríkt óvissa með hvernig eigandi
húsnæðisins ætli að ráðstafa því til
fi-ambúðar. „Við höfum ekki fengið á
hreint hvort leigusamningur verðm’
framlengdur síðan nýr eigandi tók
við húsnæðinu. Auk þess hefur ýms-
um hugmyndum um nýtingu þess
verið flaggað, þar á meðal að bx-eyta
húsnæðinu öllu í hótel. Þetta þýðir
óvissu og við getum ekki búið við
slíkt ástand til lengdar," segir hún.
Þegar hefur fengist leyfi fyrir flutn-
ingunum frá Reykjavíkurborg, að
sögn Þórdísar.
Sami eigandi er að húsnæði því
sem Kaffi List er í og Bíóbarinn á
horni Klapparstígs og Hverfisgötu.
Bruni í bát
í slipp
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík
sinnti útkalli í gærmorgun
klukkan 8.18 vegna bnina í 26
tonna plastbáti, sem var í slipp
við Mýi-argötu. Þar rauk úr raf-
magnstengli, sem var í sam-
bandi í stýrishúsi bátsins.
Slökkviliðið lauk störfum á
skammi’i stund, en öll
stjói-ntæki í stýrishúsi bátsins
skemmdust.