Morgunblaðið - 17.12.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Landssfmi Islands vfsar efnisatriðum f kæru INTIS á bug
Efa að kæran eigi erindi
til Samkeppnisstofnunar
Morgunblaðið/Kristinn
OLAFUR Stephensen,
forstöðumaður upplýs-
inga- og kynningarmála
hjá Landssíma Islands,
segir að þau efnisatriði sem fram
koma í kæru INTIS til Samkeppn-
isstofnunar eigi ekki við rök að
styðjast. Jafnframt dragi LÍ í efa
að stór hluti þeirra atriða sem
INTIS nefni eigi erindi til Sam-
keppnisstofnunar, þar sem þau
heyri fremur undir eftirlitshlut-
verk Póst- og símamálastofnunar.
Olafur segir að LÍ hafi hvorki
fengið kæru INTIS í hendur né er-
indi frá Samkeppnisstofnun, og sé
raunar óvíst að slíkt erindi berist
að hans mati, þar sem margt í
kæru INTIS heyri ekki undir þá
stofnun. Þar á meðal megi telja
bókhaldslega aðgreiningu, kostn-
aðaraðgreiningu og fleira af því
tagi.
Aðgreining nú þegar virk
„í öðru lagi er INTIS að tala um
undanþágur og fresti til að mæta
kröfum laga um kostnaðargrein-
ingu og aðgreiningu í rekstri LÍ.
Þar eiga þeir væntanlega við
rekstrarleyfið frá Póst- og fjar-
skiptastofnun sem við fengum í lok
júlí, en samkvæmt því höfum við
frest til áramóta að greina í sundur
ákveðna rekstrarþætti bókhalds-
lega og sömuleiðis að taka í notkun
kostnaðarbókhald. Eg held að það
sé óhætt að segja að hin bókhalds-
lega aðgreining er að veralegu
leyti virk nú þegar og um áramót
tökum við í gagnið nýtt bókhalds-
og upplýsingakerfi sem á að gera
okkur kleift að hafa mun betri yfir-
sýn yfir allan kostnað en áður,“
segir Olafur.
I kæiu sinni gerir INTIS m.a.
kröfu um að birtur verði opinber-
lega stofn- og rekstrarkostnaður
við grunnsamband í CANTAT-3-
sæstrengnum og grunnsambönd-
um innanlands, auk þess að halda
því fram að þessi sambönd séu
verðlögð langt yfir kostnaðarverði.
„Við teljum að þarna séu um sam-
keppnisupplýsingar að ræða, enda
er LÍ fyrirtæki í samkeppni. Póst-
og fjarskiptastofnun og samgöngu-
ráðuneytið sem fylgjast með okkar
rekstri hafa að sjálfsögðu aðgang
að upplýsingum af þessu tagi, en
við afhendum ekki keppinautum
okkar þær á silfurbakka," segir
Ólafur.
„Hvað varðar CANTAT-3 má
t.d. nefna að þar er komin sam-
keppni í millilandasímtölum og
BÚIST er við að Samkeppnisstofn-
un muni í dag ákveða í hvaða far-
veg kæra INTIS vegna Landssíma
Islands fari. Kæran barst stofnun-
inni á mánudag.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs
stofnunarinnar, segir að erfitt sé
að segja til um hvernig kærumeð-
ferð verður háttað með nákvæmum
hætti, en venjan sé sú að hinn
kærði fái kost á að koma sjónar-
miðum sínum á framfæri og kær-
andi geti síðan gert athugasemdir
við þau. I ljósi komandi hátíðar sé
þannig leigir Tal línu í CANTAT-3
af erlendu símafyrirtæki og myndi
hvorugum þjóna, okkur eða keppi-
nautnum, að auglýsa sérstaklega
um hvaða verð er að ræða í slíkum
samningum. Markaðurinn er að
verða harla gagnsær miðað við
það sem hann var og það eru mjög
ríkar kvaðir á þessu fyrirtæki um
allskyns sundurgreiningu á
rekstri og upplýsingagjöf til
margvíslegra eftirlitsaðila, en lög-
um samkvæmt eru sumar upplýs-
ingar einfaldlega undanþegnar því
heldur ólíklegt að svör berist fyrir
áramót.
Gæti tengst eldri inálum
„Ef málið gengur vel fyrir sig
má kannski vænta niðurstöðu í
febrúar eða mars í fyrsta lagi. Þá
er einnig hugsanlegt að einhver
efnisatriði skarist við mál sem við
höfum fjallað um áður, enda höfum
við fjallað um allmörg mál á undan-
förnum misserum sem tengjast
Landssímanum, þar á meðal, á
seinasta ári, um netþjónustu fyrir-
tækisins," segir Guðmundur.
að vera birtar opinberlega af sam-
keppnisástæðum.
Þá segja INTIS að sambönd
þessi séu verðlög langt yfir kostn-
aðarverði. Við tökum ekki undir
þær ásakanir og getum bent á að
margir fleiri eigendur eru að
CANTAT-3 en LI, og við teljum
okkur hafa boðið mjög samkeppn-
isfært verð á samböndum í
strengnum miðað við t.d. erlend
símafélög sem eru keppinautar
okkar á þeim vettvangi. I því sam-
bandi má nefna að LI varð hlut-
skarpastur í útboði á sambandi um
strenginn til Stokkhólms sem önn-
ur norræn símafélög tóku þátt í,
eins og INTIS á að vera fullkunn-
ugt um því að fyrirtækið notast við
þetta samband.“
Engar niðurgreiðslur
Ólafur segir að væntanlega eigi
INTIS aðallega við leigulínur þeg-
ar í kærunni er minnst á grunn-
sambönd innanlands. Hann geti
fullyrt að verð fyrir bæði lengri og
styttri leigulínur hjá LÍ sé vel und-
ir meðalverði á leigulínum í aðild-
ai’ríkjum Evrópusambandsins.
„INTIS setur jafnframt fram all-
margar kröfur varðandi fjárhags-
legan aðskilnað innan LI og í því
sambandi má benda á að internet-
þjónusta LI er hluti af gagnaflutn-
ingsþjónustu sem áskilið er í
rekstrarleyfi okkar að skuli vera
aðskilin frá öðrum rekstri. Nú þeg-
ar er sérstakur efnahags- og
rekstrarreikningur fyrir gagna-
flutningsþjónustu okkar og það er
ekki um neinar niðurgreiðslur að
ræða,“ segir Ólafur.
Varðandi þá kröfu INTIS að öll
viðskipti milli internetþjónustu LÍ
og annarra hluta LI verði verð-
lögð á markaðsverði sem öllum
standi til boða, bendir Ólafur á að
þegar P&S var breytt í hlutafélag
hafi verið skipuð sérstök nefnd til
að leggja mat á eignir félagsins. í
þeirri nefnd áttu sæti einstakling-
ar sem ekki tengdust stofnuninni
á nokkurn hátt. „Allar núverandi
færslur eru í samræmi við niður-
stöðu þessarar nefndar og ríkis-
endurskoðun hefur gefið það álit
sitt að rekstrareiningar fyrirtæk-
isins beri samkvæmt núverandi
bókhaldi sanngjarnan hlut af sam-
eiginlegum kostnaði," segir Ólaf-
ur. „Varðandi kaup gagnaflutn-
ingsþjónustunnar á þjónustu af
öðrum hlutum fyrirtækisins gildir
í öllum tilvikum gjaldskrá, sem
jafnt einingar LI og aðrir geta
gengið að á sama verði, nema hvað
varðar yfirstjórn og stoðdeildir.
Þar er talsvert snúið að ganga að
þeirri kröfu INTIS að finna mark-
aðsverð á þeim hlutum, því það
stendur ekki öðrum til boða en
öðrum rekstrareiningum LI. Eg
geri ekki ráð fyrir að INTIS
myndi koma til okkar og biðja um
afnot af t.d. forstjóra okkar, svo
dæmi sé nefnt um hluta yfirstjórn-
ar. Við lítum svo á að við uppfyll-
um nú þegar öll skilyrði sem lúta
að þessum þáttum.“
Leita til keppinautar
Þá gerir INTIS kröfu um að LÍ
verði meinað að beita áhrifum inn-
an fyrirtækja sem eru í viðskiptum
við INTIS til að þau færi viðskipti
sín til internetþjónustu LÍ. „Ef við
tökum t.d. Skímu sem LÍ á að öllu
leyti eða Margmiðlun sem LÍ á
hlut í, þá hafa þau fyrirtæki ekki
sagt upp neinum samböndum við
INTIS eftir að eignaraðild LÍ í
þeim varð að veruleika," segir
Ólafur. „Þegar menn setja fram
kröfu á borð við þessa, má líka
spyrja hver sé aðstaða INTIS og
hvaða áhrif hefur hún á samkeppn-
isstöðu annarra.
INTIS á rætur að rekja til þess
að Norðurlandaráð setti upp hið
sk. Nordunet, sem felst í tenging-
um á milli háskóla á Norðurlönd-
unum, og var það verkefni niður-
greitt á sínum tíma af fé norrænna
skattgreiðenda. INTIS var síðan
stofnað sem sérstakt fyrirtæki en
hefur mjög náin tengsl við Háskóla
Islands, þar á meðal eignatengsl,
og INTIS er í dag einn stærsti
internetþjónustuaðili á markaðin-
um í því formi að það virðist svo að
segja sjálfkrafa hafa alla þjónustu
við HÍ með höndum og um fimm
þúsund stúdenta hans. Okkur er
ekki kunnugt um að þessi þjónusta
hafi verið boðin út á almennum
markaði. Það er sömuleiðis athygl-
isvert að INTIS hefur það hlutverk
að úthluta hérlendis svokölluðum
internetlénum, en yfirleitt er óháð-
um aðila í hverju ríki falið það hlut-
verk. Við erum því í þeirri stöðu að
þegar LI þarf að sækja um lén fýr-
ir, t.d. okkar heimasíður, að þurfa
að leita til okkar samkeppnisaðila
og greiða honum gjald fyrir auk
þess að fá samþykki hans fyrir
nafni og fleiru, sem er óeðhleg
staða að okkar mati.“
Ennfremur gerir INTIS kröfu
um að LI bjóði aðgang að leigulín-
um án þess að gerð séu skilyrði um
tiltekinn endabúnað í eigu LI.
Ólafur segir að reglur Evrópska
Kæra INTIS á hendur Landssímanum
Niðurstaða fyrst
á næsta ári
efnahagssvæðisins skyldi fyrir-
tækið til að leigja sambönd um
ljósleiðara með ákveðinni band-
breidd. „Endabúnaðurinn ákveður
í raun bandbreiddina og væri hann
ekki fyrir hendi hefðum við enga
leið til að ákvarða hana eða hafa
eftirlit með því hvernig ljósleiðar-
inn væri notaður. Þá gætu menn
raunar skammtað sér bandbreidd-
ina sjálfir. Við lítum því einfald-
lega svo á að þessi endabúnaður sé
óaðskiljanlegur hluti af fjarskipta-
neti LI og leiga fyrir hann er inni-
falinn í leigu fyrir línurnar. Væri
hann ekki fyrir hendi þyrfti hver
og einn kaupandi á sambandi að fá
sinn eigin ljósleiðara, því að enda-
búnaðurinn skiptir upp flutnings-
getunni á ljósleiðaranum,“ segir
hann.
Hafnar fullyrðingum INTIS
Ólafur vísar þeim fullyrðingum
INTIS á bug að LÍ hafi gefið sí-
endurteknar rangar, ófullnægjandi
og villandi upplýsingar um vænt-
anlegar verðbreytingar á leigulín-
um innanlands, og hafnar alfarið
þeirri kröfu að fyrirtækið greiði
þeim skaðabætur sem leigja línur
afLÍ.
„Við enim að vinna að breyting-
um á gjaldskránni fyrir leigulínur
innanlands, sem er flókið ferli og
þarf meðal annars að fara eftir
reglum frá Evrópusambandinu.
Þessi vinna hefur tekið talsverðan
tíma og er ekki lokið. Mér vitan-
lega hafa ekki verið gefnar upp
ákveðnar dagsetningar eða upp-
hæðir varðandi þessar leigulínur,
enda ekki hægt í Ijósi þess að starf-
inu er ólokið.
Það er ekki ljóst í öllum tilvikum
hverju þessi endurskoðun skilar,
en þó má búast við að sumar leigu-
línur lækki í verði, einkum og sér-
ílagi á lengri leiðum, en aðrar línur
t.d. inpan þéttbýlissvæða, muni
hækka í verði. Þetta mun því koma
misjafnlega við notendur, en það er
síðan ákvörðun hvers og eins hvaða
kostir verða fyrir valinu," segir
Ólafur.
Þá heldur INTIS því fram að
LI bjóði nýjum notendum að net-
þjónustunni heilu og hálfu árin
ókeypis og það sé gert með mark-
aðsherferð sem önnur fyrirtæki
geti ekki keppt við. „Þessar full-
yrðingar standast engan veginn. I
fyrsta lagi höfum við staðfestar
upplýsingar um að sumir keppi-
nautar okkar hafa lagt meira fé í
auglýsingar á internetþjónustu
sinni en við höfum gert. I öðru lagi
er ekki um að ræða að við séum að
bjóða svo langan tíma ókeypis,
heldur erum við í einstaka tilvik-
um í samstarfi við aðra aðila um
kynningu á þessari þjónustu, þar
sem LI býður notendum þriggja
mánaða tengingu en samstarfaðil-
inn afganginn. Þeir einir hafa
fengið ársaðgang ókeypis sem
duttu í lukkupottinn í happdrætti
sem efnt var til, og þar er um
mjög takmarkaðan hóp viðskipta-
vina að ræða. Þar að auki byrjuð-
um við ekki að bjóða upp á gjafaá-
skriftir, heldur vorum við að
bregðast við tilboðum keppinauta
okkar. Þá hefur Póst- og fjar-
skiptastofnun staðfest að internet-
þjónusta LÍ og INTIS njóti sömu
kjara hjá annarri rekstrareiningu
Landssímans eins og eðlilegt er,“
segir Ólafur.
„Sömuleiðis má tiltaka að áður
en LI opnaði internetgátt til út-
landa var INTIS eitt um að selja
aðgang að slíkri gátt, og ennþá er
INTIS með 50% stærri gátt til út-
landa en LÍ. En eftir að LÍ fór að
veita þeim samkeppni hefur verð á
netþjónustu farið lækkandi. Nið-
urstaðan af þessari samkeppni er
sú að á Islandi er hlutfallslega
hærra hlutfall heimila en senni-
lega á nokkru öðru byggðu bóli
með internettengingu og hana á
lágu verði miðað við útlönd, þrátt
fyrir aukakostnað sem ætti að
fylgja fjarlægðinni frá öðrum
löndum. Þetta sýnir að samkeppn-
in er virk og af hinu góða, því að
hún skilar neytendum hagsbót-
um.“