Morgunblaðið - 17.12.1998, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ráðaleysi í
Hvíta húsinu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og menn
hans vita ekki hvað taka á til bragðs til að
koma í veg fyrir að fulltrúadeildin sam-
þykki ákærur á hendur honum, skrifar
Urður Gunnarsdóttir. Bendir því flest til
t •ess að réttað verði yfir forsetanum í öld-
ungadeildinni. Enn er þó reynt að fá sam-
þykktar vítur á forsetann, þjóðarinnar
vegna, ekki hans.
Reutere
ÞINGMENN fulltrúadeildar Bandarikjaþings, sem sést hér baðað ljós-
um, taka í dag fyrir ákærur á hendur Bill Clinton Bandaríkjaforseta.
NÆR fullvíst er nú talið að
fulltrúadeild Bandaríkja-
þings muni samþykkja
fjórar ákærur á hendur
Bill Clinton Bandaríkjaforseta og
vísa þeim til öldungadeildarinnar en
þær átti að taka fyrir í dag, fimmtu-
dag. Stuðningsmenn forsetans og
nánustu samstarfsmenn eru afar
svartsýnir og segja að nánast þurfi
kraftaverk til að snúa horfunum
Clinton í hag. Þá eru öldungadeild-
arþingmenn að átta sig á að allt
bendir til réttarhalda í öldunga-
deildinni yfir forsetanum en það á
sér aðeins eitt fordæmi í sögu lands-
ins. Meirihluti þjóðarinnar er enn
andvígur því að þingið samþykki
ákærurnar sem leitt gætu til emb-
ættismissis og í leiðara The New
York Times eru þingmenn nánast
grátbændir um að fara að vilja al-
mennings. „Okkar vegna, ekki
hans,“ er yfirskrift leiðarans.
Þriðjudagurinn reyndist Clinton
afar erfiður því þá lýstu alls sjö
þingmenn repúblikana því yfir að
þeir væru hættir við að styðja hann í
atkvæðagreiðslunni og í gær bætt-
ust þrír í hópinn. I gærkvöldi átti
Clinton að eiga fund með repúblik-
ananum Charles Shays sem hafði
lýst því yfir að hann hygðist greiða
atkvæði gegn ákærunum en væri nú
á báðum áttum. Er Shays álitinn
vera erindreki þeirra flokksbræðra
hans sem eru enn óákveðnir og því
mikilvægt fyrir Clinton að honum
takist að tryggja sér stuðning hans.
„Held að við töpum þessu“
Vonleysis gætir í herbúðum for-
setans þótt stöku maður reyni að
bera sig vel. „Hvort þessu sé lokið?
Hreint ekki. Engin atkvæðagreiðsla
er ljós fyrr en henni er lokið,“ sagði
Paul Begala, ráðgjafi Clintons. I
einkasamtölum eru menn forsetans
hins vegar mun svartsýnni. „Eg
held að við töpum þessu,“ sagði einn
þeirra og talaði fyrir munn margra.
Samstarfsmenn forsetans íhuga
nú ýmsar aðferðir til að bæta stöð-
una, m.a. hefur verið um það rætt að
hann komi fram í sjónvarpi. Með því
er ætlunin ekki að reyna að telja
þingmönnum repúblikana hughvarf
heldur að vekja almenning til vit-
undar um hvað sé í húfi og að sýna
fram á að ákærumar á hendur for-
setanum byggi á flokkapólitík.
Ekki er talið að Clinton muni
grípa til þessa bragðs nema ljóst sé
að ákærurnar fjórar á hendur hon-
um um meinsæri, misnotkun valds
og hindrun framgangs réttvísinnar,
verði samþykktar í fulltrúadeildinni.
Ymsir samstarfsmenn forsetans
og þingmenn demókrata og rep-
úblikana hafa þrýst á hann um að
játa á sig lygar og hafa nokkrir
repúblikananna sem látið hafa af
stuðningi við forsetann síðustu daga,
borið því við að þeir myndu styðja
hann, lægi slík játning fyrir. Clinton
mun hins vegar ekki taka slíkt í mál.
„Getuleysi til að segja
sannleikann“
Það var forsetanum mikið áfall að
missa stuðning repúblikananna sjö á
þriðjudag, einkum mun yfirlýsing
Jack Quinn hafa komið illa við
menn. „Því betur sem ég kynni mér
hin alvarlegu atriði er varða mein-
særi og að hindra framgang réttvís-
innar, því meiri áhyggjur hef ég af
getuleysi forsetans til að segja sann-
leikann eiðsvarinn," sagði Quinn. Þá
var stuðningsmönnum forsetans
brugðið er lagaprófessorinn og
repúblikaninn Tom Campbell hætti
við að styðja Clinton en hann hafði
þá átt langar viðræður við menn úr
starfsliði forsetans til að fá svör við
spurningum sem á honum brunnu
vegna málsins.
I gær höfðu átján repúblikanar
ekki gert upp hug sinn. Til þess að
ákærurnar verði felldar, verður for-
setinn að tryggja sér stuðning svo
að segja allra þeirra, auk þess sem
hann verður að fá þá demókrata sem
eru óákveðnir á sitt band.
Ráðgjafar forsetans segja hann
hins vegar ráðalausan. „Hann gerði
eins og honum var ráðlagt og ávarp-
aði þjóðina í síðustu viku en það skil-
aði engum árangri. Hann skilur það
ekki,“ sagði einn ráðgjafa forsetans
og bætti við: „Helsta áhyggjuefni
mitt er að krafan um afsögn verði
áberandi eftir atkvæðagreiðsluna.
Hvemig stöðvum við það?“
Dole og Castle vilja vítur
Líkurnar á því að mál Clintons
komi til kasta öldungadeildarinnar
hafa aukist mjög, svo og óvissan um
niðurstöðuna þar. Ymsir repúblikan-
ar hafa látið í ljós þá trú að forsetan-
um verði ekki vikið frá og tveir
þeirra, Bob Dole, fyrrverandi leið-
togi þeirra í öldungadeild, og þing-
maðurinn Michael Castle, hafa lagt
til að látið verði nægja að sam-
þykkja harðorðar vítur á forsetann,
auk þess sem Castle hefur lagt til að
forsetinn verði sektaður.
Telur Castle að með þessu sé
komið til móts við almenning sem
telji framferði forsetans fyrirlitlegt
en vilji ekki að hann fari frá. Telur
hann að þjóðinni sé greiði gerður
með því að Ijúka málinu snöfur-
mannlega í stað þess að rétta í því
svo mánuðum skipti þegar ganga
megi að því vísu að niðurstaðan
verði sú sama. Hins vegar sagðist
Castle í gærkvöldi vera vondaufur
um að hann hefði sitt fram.
Undirtektir við þetta hafa verið
misjafnar og forsetinn mun tregur
til að samþykkja mjög harðorðar
vítur þar sem hann yrði að skrifa
undir slíkt skjal og játa þar með á
sig alvarlega glæpi og brot á stjórn-
arskránni. Hann mun þó reiðubúinn
að íhuga það til að komast hjá rétt-
arhöldum í öldungadeildinni.
Þá vona embættismenn í Hvíta
húsinu að nógu margir repúblikanar
reynist fylgjandi tillögu Doles og
Castles og felli ákærurnar. Margir
hafa hins vegar hafnað tillögunni,
m.a. repúblikaninn Arlen Specter,
sem segir hana felast í „siðfáguðum
vítum“ og slíkt sé ekki hægt að
sætta sig við. Þá er talið ólíklegt að
Trent Lott, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, muni fallast á það.
Öldungadeildin getur
vísað málinu frá
Öldungadeildin getur á hvaða
tímapunkti sem er ákveðið að vísa
málinu frá eða samþykkja vítur á
forsetann. Verði ákveðið að rétta í
málinu mun William Rehnquist, for-
seti hæstaréttar, stýra yfirheyrslun-
um.
Það var fylgismönnum Clintons
mikið áfall er demókratinn Joseph
Lieberman gagnrýndi siðferði Clint-
ons úr ræðustól í öldungadeildinni
fyrr á árinu. Hann er einn þeirra
sem hefur lýst því yfir að samþykki
fulltrúadeildin ákærurnar, beri öld-
ungadeildinni „stjórnarskrárleg
skylda“ til að skoða málið.
Til að samþykkja að víkja forseta
úr embætti þurfa tveir þriðju hlutar
öldungadeildarinnar að samþykkja
það en slíkt hefur hingað til verið
talið nær útilokað. Nú fara menn
hins vegar varlegar í sakirnar og
fullyrða ekkert, ekki síst vegna
hinnar óvæntu stefnu sem mála-
reksturinn á hendur Clinton hefur
tekið.
Það hefur ennfremur aukið á
óvissuna að margir öldungadeildar-
þingmenn neita að láta uppi hvort
þeir hyggist greiða atkvæði með því
að víkja Clinton úr embætti eða á
móti og bera því við að þeir geti ekki
gefið upp afstöðu sína fyrirfram
fremur en dómarar.
Ekki er langt síðan möguleikinn á
réttarhöldum í öldungadeildinni yfir
forseta Bandaríkjanna þótti fjarlæg-
ur en nú eru menn að átta sig á
þeirri staðreynd að flest bendir til
þess að sú verði raunin. „Hér áður
var þetta eins og í leikhúsi, óraun-
verulegt,“ segir einn öldungadeild-
arþingmanna, repúblikaninn Chuck
Hagel. „Nú erum við það sem skilur
á milli þess að forsetinn lendi í gálg-
anum eða sleppi. Og það er býsna
mikil ábyrgð."
„Pólitísk hefnd“
Það vekur athygli hve harðorðir
leiðarar áhrifamestu dagblaða
Bandaríkjanna, The New York
Times og Washington Post eru en í
báðum eru þingmenn fulltrúadeild-
arinnar beðnh’ lengst allra orða að
láta nægja að samþykkja vítur á for-
setann. I því síðarnefnda segir að
komi repúblikanar í veg fyrir að
greidd verði atkvæði um vítur,
„verði þeir að gera sér grein fyrir
því að þeir nýti sér vald sitt til að
koma í veg fyrir að menn greiði at-
kvæði samkvæmt samvisku sinni,
eins og þeir halda fram að þeir
geri“.
„Okkar vegna, ekki hans: Fellið
ákærumar til embættismissis" er
yfirskrift leiðarans í NYT. Þar er
farið afar hörðum orðum um forset-
ann, sagt að hans verði minnst fyrir
„mikla hæfileika og... dularfulla
þörf fyrir að ljúga“ auk þess sem
hann er sagður „maður sem ekki er
treystandi, hvort sem maður hefur
tekið í hönd hans, hefur undirskrift
hans eða vitnisburð svarinn við bibl-
íuna“. Þá segir að enginn embættis-
ferill hafi valdið jafnmiklum von-
brigðum frá því að Richard Nixon
hafi setið á forsetastóli. Hins vegar
segir að munurinn á máli Nixons og
Clintons sé sá að í því fyrra hafi
flokkapólitík ekki stýrt gerðum
þingsins, meirihluti bandarísku
þjóðarinnar og þingmanna, þ.á m.
fýrrverandi stuðningsmenn hans,
hafi viljað hann út úr Hvíta húsinu.
Því sé ekki til að dreifa nú. Minnir
leiðarahöfundurinn á að Clinton sé
„ekki eini hluthafinn í þessum hörm-
ungum“ heldur þjóðin öll. Því muni
sagan „fordæma repbúblikana fyrir
að nýta sér stjórnarskrárlegt vald
sem tæki til að ná fram pólitískum
hefndum".
TABULA GRATULATORIA
Nú er verið að leggja síðustu hönd á bók um sögu KR í 100 ár.
Þeir sem hafa hugsað sér að festa kaup á bókinni,
styðja útgáfu hennar og árna félaginu heilla á aldarafmælinu,
eru vinsamlegast beðnir að hafa samband sem allra fyrst i síma
487 4814, fax 487 4853 eða á netfangi: highlander@skyrr.is
Braun VitalScan®
blóðþrýstingsmælir
gerir þér kleift að mæla
blóðþrýsting þinn nákvæmlega á
þægilegan og einfaldan hátt hvar
og hvenær sem er.
Braun fnermoScan®
eyrnahitamælir
mælir raunverulegt hitastig líkamans á
nákvæman, einfaldan og þægilegan
hátt. Mælirinn er lagður í eyrað og
mælir hitann á einni sekúndu.
INGÓLFS
APÖTEK
KRINGLUNNI • SÍMI 568 9970
Smart thinking
Lægra lyfjaverd
Forsetafrúin kulda-
leg við bónda sinn
Washington. The Daily Telegraph.
HILLARY Clinton, eiginkona
Bandaríkjaforseta, er sögð hafa
verið afar kuldaleg í garð manns
síns undanfarnar
vikur. Hafi það
komið berlega í
Ijós í nýafstaðinni
Mið-Austurlanda-
för Clintons, þar
sem hún hafi ít-
rekað neitað að
halda í hönd hans
við opinberar at-
hafnir og staðið
eins fjarri honum
og kostur var. Þá er andrúmsloft-
ið í Hvíta húsinu sagt lævi bland-
ið.
NBC-sjónvarpsstöðin sagði frá
því að forsetafrúin hefði dvalið í
klefa sínum í forsetavélinni á leið
til Israels og ekkert rætt við eig-
inmann sinn. Þá hefði hún ýtt
liendi hans burt er hann reyndi að
halda í handlegg hennar við gröf
Yitzhaks Rabins. í The New York
Post er talað um „kalt stríð“ á
milli forsetahjónanna og sagt að
faðmlög þeirra á almannafæri séu
liðin tíð.
Fjölmiðlar tóku eftir breytingu
á forsetafrúnni eftir að mál Mon-
icu Lewinsky komst í hámæli og
Clinton viðurkenndi framhjáhald.
Fór hún að skýla sér á bak við sól-
gleraugu og gekk nokkur skref
frá bónda sinum. Þá hefur hún
ferðast ein, fór t.d. til Mið-Amer-
íku er hann var í Japan. Sést hún
ekki við hlið hans nema þegar
nauðsyn þykir bera til.
í nýjasta hefti Newsweek er
haft eftir vinum forsetahjónanna
að andrúmsloftið í Hvíta húsinu sé
óþægilegt og ekkert eimi eftir af
„opinskáum og hlýlegum átökum"
hjónanna. í fyrsta sinn á ferlinum
verði Clinton að beijast einn.
Hillary
Clinton