Morgunblaðið - 17.12.1998, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
írakar sakaðir um að svíkja loforð sín um samstarf við vopnaeftirlit Sameinuðu þjóðanna
Y opnaeftirlitsmenn
fluttir frá írak
Bagdad. Reuters.
ALLIR starfsmenn vopnaeftirlits-
nefndar Sameinuðu þjóðanna
(UNSCOM) voru fluttir í skyndi frá
Bagdad í gær eftir að fonnaður
nefndarinnar, Richard Butler, gaf
út skýrslu þar sem hann komst að
þeirri niðurstoðu að Irakar hefðu
ekki staðið við loforð sín um fullt
samstarf við nefndina.
Butler sagði í skýrslunni að írak-
ar hefðu hindrað leit eftirlitsmanna
Sameinuðu þjóðanna að gereyðing-
arvopnum í Irak. Þar sem Irakar
hefðu ekki staðið við loforð sín væri
eftirlitsnefndin ekki fær um að
meta hvort írakar hefðu eytt öllum
gereyðingarvopnum sínum, sem er
meginforsenda þess að viðskipta-
banni Sameinuðu þjóðanna á Irak
frá 1990 verði aflétt.
Líklegt þykir að niðurstaða
skýrslunnar verði til þess að Banda-
ríkjamenn og Bretar búi sig aftur
undir að gera loftárásir á skotmörk
í Irak rúmum mánuði eftir að hafa
hætt við þær á síðustu stundu þegar
írakar höfnuðu síðast samstarfi við
eftirlitsnefndina. Hætt var við árás-
irnar aðeins 15 mínútum áður en
þær áttu að hefjast 14. nóvember
eftir að írakar gáfu eftir og lofuðu
að hindra ekki vopnaleitina.
„Skýrslan ber vott um illvilja og
markmið hennar er einkum að rétt-
læta hernaðaraðgerðir Bandaríkja-
manna og Breta gegn írak,“ sagði
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Iraks.
Hindruðu þrjár eftirlitsferðir
Butler sagði í skýrslunni að írak-
ar hefðu heimilað nokkrar eftirlits-
ferðir en hindrað þrjár og aðeins af-
hent eitt skjal af tólf sem UNSCOM
óskaði eftir. íraskar flugvélar hefðu
einnig elt og ógnað þyrlu, sem eftir-
litsmennirnir notuðu, og grunur léki
á að írakar hefðu fjarlægt skjöl úr
tveimur byggingum áður en eftir-
litsnefndin rannsakaði þær.
UNSCOM var ennfremur meinað
að yfírheyra íraska námsmenn er
tóku þátt í sýklavopnarannsóknum,
sem Butler segir að hafí verið stund-
aðar í íröskum háskólum. Þá var
nefndinni meinaður aðgangur að
höfuðstöðvum íraska stjómarflokks-
ins í Bagdad 10. þessa mánaðar,
þegar írakar settu það skilyrði fyrir
leitinni að aðeins fjórir eftirlitsmenn
færu í bygginguna og að nefndin
sendi formlegt bréf þar sem fram
kæmi að hverju hún hygðist leita.
írakar sögðu að þessi skilyrði
væra í samræmi við reglur sem þeir
hefðu samið um við forvera Butlers,
Rolf Ekeus, sem er nú sendiherra
Svíþjóðar í Bandaríkjunum. Butler
sagði hins vegar að reglunum hefði
verið breytt í viðræðum við Iraka
fyrir ári.
92 starfsmenn vopnaeftirlits-
nefndarinnar voru fluttir með flug-
vél til Manama í nágrannaríkinu
Bahrein. Fjórir leitarhópar fóru frá
Bagdad fyrr í vikunni, en starfs-
menn UNSCOM í írak voru um 200
þegar síðasta vopnaleitin náði há-
marki í vikunni sem leið.
Hópur starfsmanna hjálparstofn-
ana Sameinuðu þjóðanna var einnig
fluttur með rútum til Jórdaníu í
gær. Alls voru 40 manns í rútunum,
aðallega starfsmenn, sem höfðu
fengið frí áður en skýrslan var birt,
og fjölskyldur fjögurra starfsmanna
sem hafði verið ráðlagt að fara frá
Bagdad.
Oðrum starfsmönnum hjálpar-
stofnana var sagt að búa sig undir
að fara frá Irak, en í gær hafði ekki
verið tekin endanleg ákvörðun um
hvort eða hvenær þeir yrðu fluttir á
brott. Að jafnaði starfa um 200
manns í írak á vegum hjálparstofn-
ana Sameinuðu þjóðanna.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) ákvað að kalla alla vopna-
eftirlitsmenn sína í Irak heim.
Reuters
STARFSMENN vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna í írak hlaða
farangri sínum á vörubíl áður en þeir voru fluttir frá Bagdad í gær.
Aldrei er nein lognmolla um þennan frumlega lista-
mann, sem hleypir öllu í bál og brand í kringum sig.
Hér kryfur hann líf sitt miskunnarlaust til mergjar
með orðgnótt og eldmóði.
Útkoma bókarinnar fékk svo á hann, að hann lagðist
undir feld og iðraðist sáran bersögli orða sinna en er
nú aftur að ná jafnvægi.
FJÖLVI
Lífsldók Stei igríms hl i:nr
einróma lof
Bókin fær frábæra dóma:
„Frásögn Steingríms er andheit og
spennuþrungin. Hann hleypur
sem fyrr upp og niður allan skala
móðurmálsins. Ekkert orð verður
fundið sem kalla mætti eyðufyll-
ingu. Lausnarsteinn er þvert á
móti uppfullur af athöfn og hreyf-
ingu. Steingrími hafa hlotnast
verkalaun sköpunargleðinnar og
meira verður tæpast af lífinu
krafist." Mhl. E.J.
ftölsk yfírvöld láta Öcalan lausan
Hyggst dvelja
áfram á Italíu
Tyrkir allt annað en ánægðir
Róm, Ankara. Reuters.
TALIÐ var líklegt að milliríkjadeila
ítala og Tyrkja vegna kúrdíska
skæruliðaforingjans Abdullah Ocal-
ans myndi gjósa upp að nýju eftir
að ítalskur dómstóll ákvað í gær að
sleppa Öcalan úr haldi. Kom þessi
ákvörðun eftir að tilkynnt var að
Þjóðverjar hefðu dregið alþjóðlega
handtökuskipun á hendur Ócalan til
baka, sem þýðir að Italir eiga ekki
von á framsalsbeiðni.
Er Öcalan nú frjáls ferða sinna en
talsmaður hans sagði í gær að Öcal-
an hygðist dvelja áfram í húsi sínu í
Róm og bíða úrskurðar ítalskra
stjórnvalda um það hvort hann fær
hæli sem pólitískur flóttamaður á
Italíu.
Brigslyi-ði gengu milli ríkis-
Jólatilboð
Skrifborðsstólar
itaBBBiaia
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
stjóma Ítalíu og Tyrklands, sem
bæði eiga aðild að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO), í síðasta mán-
uði eftir að ítalir neituðu að fram-
selja Öcalan til Tyrkiands. Öcalan
hafði verið handtekinn við komuna
til Rómar 12. nóvember en ítalska
stjómarskráin bannar hins vegar að
menn séu framseldir til ríkja sem
beita dauðarefsingu.
Kvaðst Ismet Sezgin, varnarmála-
ráðherra Tyrklands, telja að ákvörð-
unin í gær myndi kynda undir deilu
landanna á nýjan leik. „Þetta mun
skaða bæði samskipti Tyrklands og
Italíu og alþjóðalög," sagði Sezgin.
Breytir litlu, segir Ecevit
Pólitískur óstöðugleiki undan-
famar vikur hefur hamlað tilraun-
um Tyrkja til að koma Öcalan fyrir
rétt. Bráðabirgðaríkisstjórn í land-
inu hefur ekki getað komið sér sam-
an um að afnema dauðarefsingu,
svo hægt sé að fá Öcalan framseld-
an frá Italíu, þrátt fyrir að dauða-
dómi hafi ekki verið framfylgt þar í
næstum fímmtán ár.
Gagnrýndi Bulent Ecevit, væntan-
legur forsætisráðherra, Itali íyrir að
leyfa Öcalan að hafa næstum ótak-
mörkuð samskipti við stuðningsmenn
sína og fjölmiðlafólk undanfamar
vikur, en Öcalan hefur verið í eins
konar stofufangelsi í húsi í Rómar-
borg. Taldi hann ekki mikið breytast
við þá ákvörðun að láta Öcalan laus-
an í gær. „Hann var hvort eð er nán-
ast frjáls maður,“ sagði Ecevit.
„Hann gat talað við hvem sem hann
vildi og bjó eins og konungur."
Tyrkir hafa sakað Ocalan um
landráð en hann er leiðtogi skæru-
liðasamtakanna PKK sem um fjórt-
án ára skeið hefur barist fyrir sjálf-
stæði Kúrda í suðausturhluta Tyrk-
lands. Hafa meira en tuttugu og níu
þúsund manns fallið í þessum átök-
um PKK og tyrkneska hersins.