Morgunblaðið - 17.12.1998, Page 29

Morgunblaðið - 17.12.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 29 Brotlending í Taflandi vekur spurningar um flugöryggi í Asíu Nær þúsund manns far- ist í flugslysum á 1V2 ári Singapore. Reuters. FLUGSLYSIÐ í Taílandi í síðustu viku, þar sem 101 lét lífið, hefur beint sjónum manna að flugöryggi í Asíu, en fjórum sinnum fleiri hafa farist í flugslysum þar en annars staðar í heiminum á síðustu átján mánuðum. Nær þúsund manns hafa beðið bana í stórum flugslysum í Asíu síð- an í ágúst á síðasta ári, en sérfræð- ingar segja þó of snemmt að meta hvort það sé eingöngu tilviljun, og varast yfirlýsingar um að flugör- yggi sé bágborið í álfunni. „Jafnvel þótt slysatíðni á ákveðnu tímabili sé lægri á einu svæði en öðru er ekki þar með sagt að þú sért öruggari eða óöruggari í næsta flugi,“ sagði Paul Hayes, yfiiTnaður trygginga- i'annsóknafyrirtækisins Airclaims í London, í samtali við Reuters- fréttastofuna. „Það er ákafiega erfitt, og jafnvel villandi, að reyna að draga gildar ályktanir af tilvilj- anakenndum atvikum í flugi“, sagði Hayes. Engu að síður hafa vaknað spurn- ingar um fiugöryggi í álfunni eftir brotlendingu Airbus-þotu Thai Airways í Taílandi í síðustu viku. Flugmennirnir voru að gera þriðju tilraun til lendingar á flugvellinum í Surat Thani þegar vélin brotlenti á akri, en veður var mjög slæmt, úr- hellisrigning og hvasst. 101 af 146 farþegum lét lífíð, og hafa þá sam- tals 974 látist í flugslysum í Asíu síðan í ágúst 1997, en á þeim tíma hafa þotur frá Kóreu, Indónesíu, Singapúr, Filippseyjum og Taflandi farist. Aðeins varð eitt stórt flugslys annars staðar í heiminum á þessu tímabili, en 229 manns biðu bana er þota Swissair-flugfélagsins hrapaði við Nova Scotia í Kanada í septem- ber síðastliðnum. Fleiri farast með breiðþotum Þrátt fyi-ir þessi áfóll segja sér- fræðingar að hlutfall mannskæðra flugslysa sé ekki miklu hærra í Asíu en annars staðar, eitt dauðsfall á 2,8 milljarða farþegakílómetra, en heimsmeðaltal er eitt dauðsfall á hverja 2,6 milljarða farþegakíló- metra. Ymsir telja þó að nokkur stór flugfélög, sem þykja mjög ör- ugg, skekki myndina. „Ef Singa- pore Airlines, Quantas og Air New Zealand væru ekki með í þessum tölum myndi íjöldi látinna vera slá- andi“, sagði ráðgjafl um flugtrygg- ingar á Nýja-Sjálandi. Tölur sem birtar voru fyrr á þessu ári leiddu í ljós að dauðsfoll- um flugfarþega á ári í Asíu fjölgaði úr að meðaltali 100 árið 1960 í 260 árið 1997, og er aukningin hlutfalls- lega meiri en aukning á flugumferð. Ýmsir telja reyndar að muninn megi skýra með því að nú hafi breiðþotur verið teknar í notkun á mörgum flugleiðum, og því fai-ist mun fleiri í hverju slysi en þegar notaðar voru litlar tveggja hreyfla vélar. Flugumferðarstjórn ábótavant? Flugumferð í Asíu jókst að með- altali um 9% á ári áður en efnahag- skreppa skall á álfunni fyrir einu og hálfu ári. Nokkuð hefur dregið úr flugumferð síðan, en asísk flugfélög halda þó enn í við flugfélög í Evrópu og Norður-Ameríku. Hröð aukning flugumferðar hefur valdið áhyggjum af því að flugum- ferðarstjórn og eftirliti í Asíuríkjum sé ábótavant. Rannsókn flugslyss- ins í Surat Thani leiddi til dæmis í ljós að mikilvægur öi’yggisbúnaður við lendingu hafði verið fjarlægður af flugvellinum til þess að unnt væri að lengja flugbrautina. Ennfremur má nefna að kerflð sem notað er við flugumferðar- stjóm á Indlandi er þriggja áratuga gamait og mælir ekki flughæð og ratsjár ná ekki yfir allt landið. Van- kantar þessir komu berlega í ljós þegar breiðþota frá Sádi-Arabíu og flutningavél frá Kasakstan rákust saman í indverski'i lofthelgi í nóv- ember 1996, með þeim afleiðingum að 349 manns fórust. Indversk flug- málayflrvöld segja að á hverju ári komi upp 12 til 16 tilvik þar sem engu má muna að árekstur verði. Efnahagskreppunni um að kenna? Ýmsir hafa reyndar leitt getum að því að tengsl séu á milli efnahag- skreppunnar í Asíu og aukinnar tíðni flugslysa í álfunni, enda megi telja líklegt að nauðsyn á lækkun kostnaðar komi niður á viðhaldi flugvéla og annars búnaðar. Aðrir benda á að í þeim siysum sem um ræðir hafl slæmu viðhaldi ekki verið um að kenna. Orsakimar hafi mátt rekja til annarra þátta, eins og mannlegra mistaka og veðurs. FRÓÐI sumar eftir Eirík St. Eiríksson blaðainann. 1 bókinni segja kunnir laxveiðimenn frá uppáhaldsveiðián- um sínuin. Er fjailað um Laxá í Kjós, Langá, Norðurá, Þverá/Kjarrá, Miðfjarðará og Hofsá. Viðmælendur höfundar lýsa ánum, veiðistöðum, veiði og staðháttum, segja frá eftir- ininnilegum viðburðum, seni þeir hafa upplifað við veiðiskapinn, og rii’ja upp skemmtilegar veiðisögur. E,f,ÍKtoST.EIRÍKS$ON *► „Maöur leggur þessa bók ekki frá sér fyrr en hún er að fullu lesin því hægt er að ferðast um bakka veiðiánna með því einu að lesa hana. Pað er næstum því hægt að setja í fisk og landa honum." Gunnar Bender í DV 8/12 ‘98. „Það skiptast á skin og skúrir í stangaveiði og sá heimur er vel og rækilega opnaður fyrir lesendum í bókinni „Áin mín“. Hún er vel unnin, fróðleg og skemmtileg aflestrar." Guðmundur Guðjónsson í Mbl. 10/12 '98. uruu Samsung simi * þráðlaus og stafrænn 1 3.900,- stgr. Piiilips Onis símí • þráðlaus og stafrænn • með eða án símsvara Verð frá 16.900,- stgr. Sanyo ferðatækí ■■ með geislaspilara og fjarstýringu 18.900,- stgr. Philips útvarpsvekjari 3.490,- stgr. Philips vasadiskó með útvarpi 4.490,- stgr. Philips ferðatæki með geislaspilara /í 15.900fÉ- s Munið jólabónusinn Ef þú verslar fyrir 7.000 krónur eða meira, fer nafn þitt í lukkupott þar sem dregið er í hverri viku um 100.000 krónur ; ® í Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI S69 15 oo http.//www.ht.ls umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.