Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 47
AÐSENDAR GREINAR
Kattarþvottur land-
búnaðarráðherra
í GREIN sem land-
búnaðarráðherra, Guð-
mundur Bjarnason, rit-
ar í Morgunblaðið og
birt er 15. desember sl.
undir heitinu „Stað-
reyndir um málefni
Stofnfisks hf.“ fjallar
hann á sinn hátt um þá
umræðu, sem fram
hefur farið um málefni
fyrirtækisins. Við lest-
ur greinarinnar er
vandasamt að átta sig
á því hvert ráðherrann
er að fara. í þeim efn-
um finnst mér tveir
skýringarkostir vera
uppi. Annar er sá að
ráðherra sé að reyna
að fara með umræðuna inn á aðrar
brautir en hún hefur verið á hingað
til. Hinn er að kannski hafi ráðherra
aldrei áttað sig á efnisatriðum máls-
ins. Þótt fyrri kosturinn sé líklegri
vil ég ekki útiloka þann síðari, og vil
af þeim sökum reyna að gera betri
grein fyrir málinu.
Samhengisins vegna tel ég nauð-
synlegt að taka fram að Stofnfiskur
hf. er hlutafélag í eigu i-íkisins, sem
ætlunin er að einkavæða og síðan
selja. Sú framkvæmd hefur af hálfu
ríkisstjórnarinnar hvílt á herðum
landbúnaðarráðherra, auk fram-
kvæmdanefndar ríkisins um einka-
væðingu.
í upphafi vil ég upplýsa land-
búnaðarráðherra um að stjórnar-
skrá lýðveldisins íslands kveður á
um að ríkisvaldi skuli skipt í þrennt,
þ.e.a.s. löggjafai-vald (Alþingi),
framkvæmdavaid (ríkisstjómin) og
dómsvald (dómendur). Þetta er
grundvallaratriði. Hugsunin að baki
þessari skiptingu er fyrst og fremst
sú að hver einstakur valdhafi fari
með sinn þátt ríkisvaldsins. Með því
að skipta ríkisvaldinu upp milli
þriggja sjálfstæðra valdhafa er reynt
að koma í veg fyrir að nokkur þeirra
verði svo sterkur að hann geti svipt
þegnana frelsi og beitt þá ofríki að
eigin geðþótta. Hugmyndin um þrí-
skiptingu byggist á því að hverjum
valdþætti er ætlað að hafa eftirlit og
aðhald með hinum; hér er því um
stjómarskrárbundið eftirlit hvers
valdhafa um sig að ræða. Það er
nauðsynlegt að hafa
þetta í huga þegar
metnar em fullyrðingar
ráðherra um að alþing-
ismönnum komi málefni
Stofnfisks hf. ekki við,
eða þá að þeir hafi sömu
stöðu og aðrir einstak-
lingar í samfélaginu,
sem leita eftir því að fá
upplýsingar hjá
ráðherra.
Þá er að mínu mati
nauðsynlegt að gera
ráðherra grein fyrir því
að umræðan um Stofn-
fisk hf. hefur ekki
snúist um það hvort
umrætt rflásfyrirtæki
skuli einkavætt eða
ekki. Hún hefm’ fyrst og fremst
snúið að þeim vinnubrögðum sem
landbúnaðarráðherra hefur viðhaft
við tilraunir sínar til einkavæðingar
fyi’irtækisins.
Gagnrýni á vinnubrögð ráðherra
Svo menn fái glöggvað sig enn
frekar á þeii-ri umræðu sem fram
hefur farið er rétt að rifja upp helstu
athugasemdir sem undh-ritaður hef-
Ráðherrann hefur í
engu skýrt það ráðslag
sitt að halda áfram
einkavæðingu fyrirtæk-
isins, segir Lúðvfk
Bergvinsson, þrátt
fyiár fram komnar
upplýsingar.
ur gert við störf ráðherrans.
Meðal þeirra atriða sem vakið
hafa eftirtekt og spurst hefur verið
fyrir um eru þau sem vitnað er til
hér að neðan. Þau atriði verða þó
ekki tæmandi talin, enda vart mögu-
legt í jafn stuttri grein og raun ber
vitni, en vænt þætti mér um ef
ráðherrann sneri sér að því að reyna
að svara þeim hið fyrsta:
í fyrsta lagi hef ég bent á að í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
málefni fyrirtækisins dags. 14. ágúst
sl. kemur fram, að tekjm’ í bókhaldi
fyrh-tækisins fyrir árið 1997 hafi ver-
ið vantaldar um 14 milljónir. Upplýs-
ingai’ af þessum toga benda til þess
að nauðsynlegt sé að kanna frekar
ársreikning fyrh’tækisins og bók-
hald, áðm- en það verður selt. Hags-
munir ríkissjóðs kalla á það. Þetta
ætti að liggja ljóst fyrir.
I öðru lagi ei-u gerðar athuga-
semdh- í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar um að ekki hafi verið gefnir út
reikningar vegna útfluttra afurða
fyrirtækisins. Stofnunin gerh’ fleh’i
athugasemdh’ í skýrslu sinni.
I þriðja lagi skilaði sérfræðingur,
sem kallaður var til í því skyni að
fara yfir skýringar forsvarsmanna
fyrirtækisins á athugasemdum
Ríkisendurskoðunar, skýi’slu 21.
september sl., þar sem hann kemst
að þeirri niðurstöðu að þær skýri
málin ekki nema að hluta.
I fjórða lagi hefur undirritaður
fengið upplýsingar um að í minnis-
blaði til ráðherra dags. 30. ágúst
1998 hafi yfirmaður lögfræðideildar
ráðuneytisins og skrifstofustjóri
varað ráðherra eindregið við því að
halda áfram með einkavæðingu fyr-
h’tækisins í ljósi skýrslu Ríkisendur-
skoðunar. I sama minnisblaði komi
einnig fram, skv. mínum heimildum,
vamaðarorð starfsmannanna um að
tilvitnaðar færslur í bókhaldi geti
varðað við bókhalds- og almenn
hegningarlög, því verði að kanna
málið frekar. Þá telji þeir enn frem-
ur nauðsynlegt að ráðuneytið skoði
enn frekar tengsl framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, sem er í ríkis-
eigu, og stjórnarmanns fyrirtækis
sem er einn helsti viðskiptaaðili fyr-
irtækisins, en þeir hafa stofnað
saman fyrirtæki á íslandi.
Þau atriði sem vikið er að hér að
framan eru meðal þeirra sem undir-
ritaður hefur gert athugasemdir við
og óskað skýringa á, en þær hafa
ekki fengist. Hverjum manni er
ljóst hvaða afleiðingar það hefur ef
tekjur og eignir eru vantaldar í árs-
reikningi. Fleiri atriði hafa verið
gagnrýnd þótt ekki verði fjallað um
þau að sinni. Má í því sambandi
nefna hinn sérstæða samning við
ríkissjóð, sem gerður var við fyrir-
tækið rétt áður en ætlunin var að
Lúðvík
Bergvinsson
selja það, sem tryggir því rúmlega
tvö hundruð milljónir í tekjur næstu
átta árin. Það verður að bíða betri
tíma.
Þrátt fyrir þessar uplýsingar sem
vísað er til hér að framan ákveður
ráðherra, skv. mínum upplýsingum,
með bréfi dags. 24. september sl. til
einkavæðingarnefndar, að hún skuli
halda áfram einkavæðingu fyrir-
tækisins. A þeirri ákvörðun hefur
verið leitað skýringa en ekki feng-
ist.
„Heilbrigðisvottorð
Ríkisendurskoðunar"
Eg fullyrði að engum af þeim at-
hugasemdum sem vitnað er til hér
að ofan hefur verið svarað. í þeim
efnum bætir grein ráðherrans í
Morgunblaðinu engu við.
A hinn bóginn hefur það vakið
sérstaka eftirtekt mína hversu mikil
leynd hvílir yfir öllum aðgerðum
landbúnaðaiTáðherrans í málinu.
Það var því nokkuð sérkennilegt að
ráðherra skyldi taka það upp hjá
sjálfum sér að birta valda kafla eða
útdrátt úr bréfi, sem Ríkisendur-
skoðun sendi 6. nóv. sl, ef marka
má skrif ráðherrans. Þar kemur
fram að stofnunin telji sig hafa
fengið „ásættanlegar upplýsingar
og skýringar á reikningsskilum
Stofnfisks hf. þann 30. júní sl. og að
þau gefi glögga mynd af efnahagi
Stofnfisks hf.“ Sama útdrátt hafði
ráðherra áður lesið upp í umræðum
á Alþingi.
Það eitt vekur sérstaka athygli,
vegna þeirrar miklu leyndar sem
hvflt hefur á málinu, að ráðherra
skuli taka það upp hjá sjálfum sér
að birta valda kafla úr leyniskjölum
mbl.is
—ALLT/\/= eiTTH\SA£> rJÝTT
sem þingmenn hafa ekki getað
fengið, án þess að það sldpti máli
fyrir starfsemi fyrirtækisins.
Það er mitt mat að þessi útdrátt-
ur skýri ekki þær athugasemdir *
sem Ríkisendurskoðun gerir við
reikningsskil Stofnfisks hf. því
reikningsári fyrirtækisins lýkur 31.
desember það ár. Ársreikningurinn
er áritaður af endurskoðanda 30.
mars 1998. Þó vil ég taka fram að
erfitt er að fjalla um yfirlýsingu
Ríkisendurskoðunar, þar sem und-
irritaður hefur hana ekki undir
höndum í heild sinni, en ítreka að ég
tel að sá hluti sem birtur er segi
ekkert um athugasemdir stofnunar-
innar, sem lúta að bókhaldi, tekju-
færslu og reikningsskilum fyrirtæk- y_
isins á árinu 1997.
Niðurlag’
Eftir stendur því, að ráðherrann
hefur í engu skýrt það ráðslag sitt
að halda áfram einkavæðingu fyrir-
tækisins, þrátt fyrir fram komnar
upplýsingar. Það sem vekur ekki
síður efth’tekt í þessu máli er að
fyrirtækið Stofnfiskur hf. er rekið
með hagnaði, auk þess að vera í lyk-
ilstöðu í laxeldi hér á landi. Því er
enn ei’fiðara en ella að átta sig á asa
ráðherrans við að koma því úr ríkis-
eigu. Mikið hlýtur að liggja við.
Eg vil að lokum hvetja ráðherr-
ann, sem hagsmunagæslumann al-
mennings, að gera frekari gi’ein fyr-
ir gjörðum sínum í þessu máli, því
að mínu viti er algerlega ástæðu-
laust að hafr.a því fyrirfram að
skynsamlegar skýringar kunni að
leynast á framferði ráðherrans.
Höfundur er alþingismaður.
íþróttir á Netinu
mbl.is
__A.LUTA/= €=IT~TH\/A£} NÝTT
RAÐAUGLVSI I I M G A R
Ármúli
Atvinnuhúsnæði á besta stað við Ármúla til
leigu eða sölu. Stærð 296 fm. Laust 1. febrúar
nk. Upplýsingar í símum 568 7977 og 892
5454.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Plastos
Umbúðir hf.
Hluthafafundur
Plastos Umbúða hf.
Hluthafafundur Plastos Umbúða hf. verður
haldinn í húsnæði félagsins í Suðurhrauni 3
í Garðabæ þriðjudaginn 29. desember nk.
kl. 16.00.
Dagskrá fundar:
1. Kosning nýrrar stjórnar.
Stjórn Plastos Umbúða hf.
TIL SÖLU
Til sölu
Kronborg sudupottur
Carnetec rækjuflokkari
Japanslína með körum, vigtum o.fl.
Upplýsingar í síma 894 4320.
Trésmíðavélar til sölu
Vegna breytinga á starfsemi Trésmiðju M.
Guðmundssonar, eru til sölu eftirfarandi tré-
smíðavélar sem allar eru í mjög góðu ásig-
komulagi.
• Límvals 1300 Steton.
• Kílvél 4 hausa Weining.
• Pykktarhefill RS.530 S.A.C.
• Afréttari.
• Bútsög Dewalt.
• Kantlímingarvél B5L SCM.
• Dílaborvél 8 spindla Schleicher.
• Þykktarslípivél TKS 1100 Boere.
• Yfirfræsari Samco
• og ýmislegt fleira tengt trésmíði.
Upplýsingar gefum við á skrifstofu okkar í síma
567 0010.
Hegas ehf.,
Smiðjuvegi 8,
200 Kópavogi.
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur Sjálfstæðisfé-
lags Skóga- og Seljahverfis
verður haldinn í húsnæði sjálfstæðisfélaganna
í Álfabakka 14, 3. hæð, í dag, fimmtudaginn
17. desember, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Guðmundur Hallvarðsson, alþingismaður,
ræðir um stjórnamálaviðhorfið.
Önnur mál.
Sendum íbúum Skóga- og Seljahverfis
okkar bestu óskir um gleðileg jól!
Stjórnin.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 = 17912108 = M.A.*
Landsst. 5998121719 VII
Ég er skínandi sól
Hugleiðsla með Elíasi og Dífu
fimmtudaginn 10. desember kl.
19.30. Aðgangseyrir 300 kr.
Þú er hjartanlega velkomin(n).