Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 51
í
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Vilja Patró eða
Djúpivogur
vera
OFT heyrist að á ís-
1 landi búi tvær þjóðir,
|| íbúar suðvesturhomins
og hinir. íbúar höfuð-
borgarsvæðisins em
afætur sem leggja lítið
sem ekkert til þjóð-
arkökunnar. Höfuð-
borgarbúar dæma aðra
landshluta eftir því
sem sjá má á auglýs-
ingatöflum í sjoppum á
hringveginum og
Hveravöllum og koma
j ætíð fram sem „sér-
fræðingar að sunnan".
Á sama tíma gagnrýna
höfuðborgarbúar íbúa
annarra svæða fyrir að
heimta jarðgöng í gegnum hvern
hól til þess eins að geta flutt með
hraði í höfuðstaðinn og vilji
varðveita íslenska náttúra undir
uppistöðulónum virkjana. Er það
m
j Ég legg til, segir Helgi
Grímsson, að Byggða-
stofnun styrki sam-
starfsverkefni sem
gera kröfur til ungs
fólks og hvetja til
ábyrgðar, víðsýni og
vináttu.
nema von að margir haldi því fram
að byggðastefna undangenginna
áratuga hafi skilað of litlu.
Æskan er driffjöður
framþróunar
Einhversstaðar segir að æska
| landsins sé fjöregg þjóðarinnar.
Náin og gagnkvæm samvinna er
| grundvöllur samheldni og sam-
stöðu. Það er gjöful reynsla ungu
fólki að starfa með jafnöldram sín-
um í ólíkum landshlutum. Slík
reynsla víkkar sjóndeildarhringinn,
veitir tækifæri til að mynda vináttu-
tengsl við ungt fólk sem býr í öðram
landshluta og eykur skilning á hög-
um þeirra. Verkefni sem þroska
með sér anda framtaksseminnar,
Iþar sem unnið er gegn félagslegri
útskúfun og fordómum, gefa ungu
fólki kost á að upplifa á raunvera-
legan hátt hvernig það er að vera
virkir samfélagsþegn-
ar.
Ungt fólk í Evrópu
Kannski við íslend-
ingar getum lært eitt-
hvað af samstarfi EB
og EES. í allnokkur ár
hafa þeir haldið úti
fjölmörgum styrkt-
aráætlunum t.d. Ungt
fólk í Evrópu (Youth
for Europe).
Markmið UFE er að
auka möguleika ungs
fólks á því að kynnast
aðstæðum í öðram
löndum og læra að
vinna með fólki frá
ólíkum menningarheimum og með
ólíkan félagslegan bakgrunn. Með
þátttöku í verkefnunum axlar unga
fólkið ábyrgð sem Evrópubúar og
fær betri skilning á stöðu hvers
annars.
Styrkjum samstarf ungs fólks
Ég legg til að Byggðastofnun taki
hugmyndir um samstarf ungs fólks
upp á arma sína sem lið í byggða-
stefnu hér á landi og styrki sam-
starfsverkefni sem gera kröfur til
ungs fólks og hvetja til ábyrgðar,
víðsýni og vináttu. Verkefnin geta
verið af ýmsu tagi. Þau geta t.d.
fjallað um umhverfismál, náttúru,
menningu, listir, atvinnumál og
fjölmiðla. Fjölmargir aðilar geta
lagt þessu verkefni lið eins og ung-
mennafélög, skátafélög, kristileg
félög, skólar og félagsmiðstöðvar.
Það þarf stundum kjark til þess að
fara upp úr hjólföranum. Gefum
æskunni tækifæri - hún á það skilið.
Höfundur er fræðslustjóri Bandu-
Ings íslcnskra skáta.
Helgi
Grímsson
I
KRINGMN*
Gleðilega hátíð