Morgunblaðið - 17.12.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
Umskipti og
tækifæri
MIKIÐ hefur að undanförnu ver-
ið rætt og ritað um þær breytingar
sem framundan eru í Evrópu og
heiminum öllum þegar 11 ríM Evr-
ópusambandsins (ESB), Austum'ki,
Belgía, Finnland, Frakkland, ír-
land, Italía, Holland, Lúxemborg,
Portúgal, Spánn og Þýskaland, taka
upp sameiginlegan gjaldmiðil nú um
áramót. Ráðstefnur hafa verið
haldnar og lærðar greinar skrifaðar
til að fjalla um þær breytingar sem
leiða af tilkomu evrunnar (euro), en
þær hafa almennt átt það sammerkt
að horfa 1 meira mæli til þeirra
áhrifa sem þessar breytingar hafa á
gengisþróun íslensku krónunnar og
samkeppnismöguleika íslensks
efnahagslífs. Þá hefur evrunni oft
verið ruglað saman við ekuna
(ECU) og því haldið fram að ein-
ungis sé í bígerð að skipta um
reikningsviðmiðun, sem hafi aðeins
áhrif á vinnu fámenns hóps fag-
manna. Verulega hefur skort á að
fjallað væri um hver áhrif þessi
breyting hefur á starf þeirra þús-
unda íslendinga sem daglega fást
við fjárhagsleg samskipti við Evr-
ópu, hvort heldur er í innflutningi
eða í útflutningi, jafnt vöru sem
þjónustu. Islensk fyrirtæki í milli-
ríkjaviðskiptum munu flest þurfa að
breyta verðlagningu sinni og jafnvel
verðstefnu í viðskiptum við önnur
ríki Evrópu á næstu mánuðum og
árum, vegna þessara breytinga.
Eðlilegt er að ýmsar spurningar
komi upp: Hvernig verður reikn-
ingsgerð háttað eftir 1. janúar nk.?
Ber að gefa út reikninga í evru, eða
gömlu gjaldmiðlunum? Er val um
þetta tvennt fram til 2002? Ef svo
er, hvenær er þá skynsamlegast að
skipta? Eru líkur á að gengisþróun
þessara tveggja gjaldmiðla verði
ólík fram til 2002 og á hvorn er þá
réttara að veðja? Hvað verður um
langtímasamninga sem nú eru í ein-
hverjum hinna gömlu gjaldmiðla?
Þarf að endursemja þá eða færast
tölur í þeim sjálfkrafa yfir í evru og
þá á hvaða gengi? Er kannski mis-
jafnt hvernig fara á með samninga í
evru eftir því hverrar þjóðar við-
skiptamenn eiga í hlut? Eru líkur á
að fyrirtæki í þeim aðildarríkjum
Evrópusambandsins sem standa ut-
an evrusamstarfsins, eins og Dan-
mörku og Bretlandi, muni nota
evru?
Evran - nýr gjaldmiðill
1. janúar
Eins og fyrr segir verður Evran
til þann 1. janúar nk. sem gjaldmið-
ill 11 Evrópusambandsríkja, þrátt
fyrir að seðlar og mynt komi ekki í
umferð fyrr en í ársbyrjun 2002.
Nýi gjaldmiðillinn er gjaldmiðill í
öllum skilningi og fjarstæða að líkja
honum við reikningseininguna eku.
Fremur má segja að nú um áramót-
in taki evran við sem gjaldmiðill
þátttökuríkjanna, en gömlu gjald-
miðlarnir 11 haldi áfram takmörk-
uðu gildi í stuttan tíma, sem
greiðslumiðlar. Sá tími sem í hönd
fer er því aðlögunartími, til að gefa
einstaklingum og fyrirtækjum tíma
til að venjast evrunni og breyta
Hinn 1. janúar nk.
verður evran til sem
gjaldmiðill 11 Evrópu-
sambandsríkja, sefflr
Arni Páll Árnason,
í fyrstu grein sinni
um evruna.
reikningshaldi, skýrslugerð, verð-
merkingum og peningakössum, áð-
ur en seðlar og mynt koma í um-
ferð.
Þann 1. janúar 1999 renna gjald-
miðlar þátttökuríkjanna inn í evr-
una, eftir fyrirfram samþykktum
reiknireglum. Þá verður ekan
einnig lögð niður sem sjálfstæð
reikningseining og sameinuð evr-
unni á jöfnu gengi. Eftir næstu ára-
mót verður gengi núverandi gjald-
miðla þátttökuríkjanna því ekki
breytt gagnvart evrunni og hún tek-
ur að lifa sjálfstæðu lífi þaðan í frá.
Gömlu gjaldmiðlarnir; þýska mark-
ið, franski frankinn og hinir 9,
hætta jafnframt að vera eiginlegir
gjaldmiðlar með sjálfstætt mark-
aðsverð. Því mun verða tilgangslítið
að skrá gengi þeirra á gengistöflu,
því gengi þeh-ra mun aldrei framar
breytast innbyrðis og gengissveiflur
þeiiTa allra verða nákvæmlega eins
gagnvart íslensku krónunni, - ná-
kvæmlega eins og sveiflur evrunnar
gagnvart krónunni.
Hversu hratt verður skipt?
Evruseðlar og klink koma ekki í
umferð fyrr en í ársbyrjun 2002 og
leysa gömlu gjaldmiðlana alfarið af
hólmi hálfu ári síðar. Fram að því
munu almenn smásölu-
viðskipti í reiðufé fara
fram með gömlu gjald-
miðlunum og ferða-
menn munu enn um
sinn fá gömlu seðlana í
hendurnar. Tilkoma
evnmnar sem alvöru
gjaldmiðils gerir það
hins vegar að verkum
að öll viðskipti sem
ekki eru bundin seðlum
og mynt geta farið
fram í evru, strax í
byrjun janúar. Nú er
svo komið að minni-
hluti viðskipta er bund-
inn því að seðlar eða
mynt skipti um hendur
Árni Páll
Árnason
og því má ætla að evran verði fljót-
lega fyrirferðarmikil í viðskiptum.
Búast má við að best beri á notk-
un evrunnar í milliríkjaviðskiptum
fyrsta kastið. Þegar gengi gömlu
gjaldmiðlanna gagnvart evrunni
verður fest um næstu áramót verð-
ur evran sá gjaldmiðill sem allar
aðrar greiðslur miðast við og gengi
gömlu gjaldmiðlanna 11 gagnvart
henni verður óumbreytanlegt. Gera
má ráð fyrir að umfang milliríkja-
viðskipta aukist verulega með til-
komu evrunnar, enda er gengisá-
hætta úr sögunni með tilkomu
hennar, að því er varðar viðskipti
innan evrusvæðisins. Það er því
augljóst hagræði af því fyrir fyrir-
tæki sem starfa innan þátttökui'íkj-
anna ellefu eða stunda mikil við-
skipti við evrusvæðið, að færa við-
skiptin yfir í evru eins fljótt og auð-
ið er.
Hverjir verða fyrstir til að
skipta yfír í evru?
Frá og með næstu áramótum
geta fyrirtæki og einstaklingar í
þátttökuríkjunum átt bankareikn-
inga í evru og haldið bókhald og
skilað ársreikningum og skattfram-
tölum í evru. Millifærslur milli evru
og gömlu gjaldmiðlanna verða í
flestum tilvikum án kostnaðar. Fyr-
irtæki og einstaklingar hafa því fullt
val um það hvenær á aðlögunartím-
anum, fram til 1. janúar 2002, þau
færa bókhald sitt og fjármál úr
gamla gjaldmiðlinum yfir í evru.
Þegar haft er í huga hversu mjög
rafrænar greiðslur hafa færst í vöxt
á síðustu árum má telja líklegt að
fjöldamörg fyrirtæki kjósi að skipta
fljótlega úr hinum gömlu gjaldmiðl-
um og láta staðar numið við evruna.
Þannig einfalda þau allt reiknings-
hald og spara fé og tíma.
Mörg stórfyrirtæki sem hafa
- Gœðavara
Gjafdvara — malar- og kafíistell.
AUir veröflokkar.
Hciinsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
starfsstöðvar í flestum
þátttökuríkjanna
hyggjast taka evruna
upp sem grunngjald-
miðil eins fljótt og
hægt er, eftir að fasta
gengið verður birt hinn
1. janúar nk. En breyt-
ingin hugnast ekki að-
eins stórfyrirtækjun-
um. Mörg lítil og með-
alstór fyrirtæki í út-
flutningi, sem selja
víða um Evrópu, munu
án efa grípa fegins
hendi það tækifæri að
nota evruna sem reikn-
ingseiningu í öllum sín-
um viðskiptum. Kostn-
aður vegna gengisyfirfærslna hefur
hingað til verið stærra hlutfall
heildarrekstrarkostnaðar hjá þeim
en hjá stórfyrirtækjunum, auk þess
sem þau stóru hafa átt auðveldara
um vik að tryggja sig gegn gengis-
tapi en smáu fyrirtækin. Breytingin
mun einnig auðvelda litlum og með-
alstórum fyrirtækjum markaðssókn
í Evrópu, þar sem sú samkeppnis-
hindrun sem felst í gengisáhættu og
kostnaði af gjaldeyrisyfirfærslum
verður úr sögunni. Þetta mun
einnig eiga við um fyrirtæki sem
staðsett eru í ESB-ríkjum utan
evrusvæðisins, eins og í Bretlandi,
Danmörku eða Svíþjóð. íslensk fyr-
irtæki í milliríkjaviðskiptum geta
því almennt átt von á því að evr-
ópskir viðskiptavinir óski eftir að
viðskipti fari fram í evru, fijótlega á
næsta ári.
Höfundur er lögmaður í Reykjavík.
Flöskutappi frá
Le Grand vin
Verðkr. 1.595
Sendum í póstkröfu
án endurgjalds.
Klapparstíg 44, sími 562 3614
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Eyrnalokkagöt
Nú einnig
100 gerðir af eyrnalokkum
3 steerbir
Kj?,
árgreiðslustofan
apparstíg (s.mi 5513010)
-t -tSf r _* ,q)R C/
Stærsta bókaverslun landsins
m 1 4 I*|i
?*$$**? 5 # * aíxSjjJfcl. "T' “^FÍ
mm
5r
í jólapakkann!
Margar gerðir. Verð frá 3.950,-
Cardinal 85 R
Med stol. Verð fra 2.890,-
EH33E3
Margar stærðir. Verð frá 2.490,-
Aukahlutir
Fjölbreytt úrval af aukahlutum
Þetta er aðeins lítið brot af
veiðivörum frá Abu Garcia sem
fást í öllum helstu sportvöru-
verslunum landsins.
Mbu
Garcia
for life
EINN, TVEIROG ÞRlR