Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 55 tr SKOÐUN Mér er ekki kunnugt um annað en atvinnuástand hafi verið bæri- legt á t.d. stað eins og Eskifirði á umliðnum árum, samt hefur fólk flust þaðan. Það segir sína sögu. Athygliverð er líka könnunin frá Noregi, sem sýnir að margt ungt fólk vill ekki vinna við stóriðju. Hið sama mun koma í ljós hér, er fram líða stundir. Álver eni ekki ákjósan- legir vinnustaðir. Stóriðja er at- vinnugrein gærdagsins. Framtíð Austurlands er ekki fólgin í stóriðju, heldur í margs kyns atvinnustarfsemi, sem byggist m.a. á því, sem landið sjálft og hafið umhverfis hefur upp á að bjóða, þessi tvö forðabúr, lífbeltin tvö, sem Kristján heitinn Eldjárn nefndi svo. Það ásamt smærri iðnaði og ýms- um hátæknistörfum, sem byggjast á menntun og þekkingu, að ógleymdri ferðaþjónustunni, mun verða vega- nesti okkar inn í nýja öld. Þetta veit ég, að fjöldi Austfirð- inga gerir sér ljóst. Þá er þess ógetið, sem kannski er alvarlegast, að með því að reisa nýtt álver í Reyðarfirði erum við Islend- ingar að auka losun gróðurhúsaloft- tegunda út í andrúmsloftið um mörg prósent og ganga þannig þvert gegn ályktunum Kýótó-fund- arins í Japan fyrir réttu ári, sem við þó í orði kveðnu viljum vera aðilar að, en stjómvöld hafa ekki enn séð sér fært að undirrita. Ríkisstjórn Islands vill fá auka mengunarkvóta á þeim forsendum, að við ætlum að framleiða ál með „hreinum og endurnýjanlegum orkugjöfum“, eins og það er nefnt, í stað þess að nota orkugjafa, sem brenna. En er sú orka „hrein“ og vistvæn, sem fæst með eyðileggingu vistkerfa og ósnortinna víðerna? Verða menn ekki líka að svara þeirri spurningu. Sannleikurinn er sá, að með þess- ari afstöðu_ hafa stjórnvöld hvorki hagsmuni íslands né heimsbyggð- arinnai- að leiðarljósi, því mengun er þegar orðin hrikaleg um heims- byggð alla og þekkir engin landa- mæri. Gagnvart þeirri ógn erum við öll á sama báti. 5. Hveiju á að fórna? Vill maðurinn þá engar virkjanir yfírleitt? kann einhver að spyrja. Einhverju verðum við þó að fórna, ef við ætlum að lifa í landinu og rétt er það. Þá get ég sagt það, að ég vil ekki virkjun, sem hefur í för með sér eyðileggingu Eyjabakkasvæðisins eða annarra náttúruverðmæta á ör- æfunum norðaustan Vatnajökuls. Ég vil ekki reisa fleiri mengandi ál- ver á íslandi. Nóg er komið. Auðvitað þurfum við að virkja eitthvað til innanlandsnotkunar, en sem betur fer er ýmissa kosta völ í því efni, sem ekki hafa í för með sér verulegt tjón á náttúrunni. Þá kosti eigum við nú að skoða í fullri alvöru. Nú eigum við að staldra við og skoða aðra kosti. Því eitt er alveg ljóst, að hér eftir ættu virkjanir að vera reistar í sátt við landið og fólkið í landinu. Annað gengur ekki, því svo mjög hefur við- horf almennings breyst á síðustu árum gagnvart umhverfi og nátt- úruvernd. Þetta verða stjómmála- menn að skilja, annars daga þeir uppi eins og nátttröllin. Við íslendingar eigum viðkvæmt og fagurt land, sem við þurfum að gá vel að. í ósnortnum víðáttum landsins eru fólgin mikil verðmæti, sem eru meira virði en stóriðja, jafnvel í krónum talið. „Umhverfið er a.m.k. jafn mikilvægt og þorsk- stofninn," segir Ragnar Arnason, hagfræðiprófessor við Háskóla ís- lands, og hann telur, að óspillt nátt- úran eigi eftir að auka arðsemi sína á næstu áratugum og hún sé stór- lega vanmetin nú í dag í útreikning- um á arðsemismati virkjana og stór- iðju. Við eigum mikla framtíð sem ferðamannaland, ef við höldum skynsamlega á málum og skipu- leggjum þá hluti vel. Erlendir ferðamenn munu ekki flykkjast hingað til að skoða uppistöðulón eða álver, af slíku hafa þeir nóg í eigin löndum. Þeir munu koma til að skoða ósnortin víðerni, sem bjóða þreyttu borgarfólki upp á hvíld og endurnæringu til líkama og sálar. Náttúran, óspillt landið og miðin, er og verður dýi-mætasti auður þjóðarinnar. Að halda öðru fram er ekkert annað en vísvitandi blekking. Að eyðileggja náttúruverðmæti Mmm 57 Negro Sími / Fax: 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is fyrir skammvinnan gróða er að ganga á höfuðstól landsins, og það hefur aldrei þótt gott búmansráð. Þess vegna verðum við að fara var- lega í umgengni við landið. Eyðilegging náttúrunnar er og hefur ætíð verið fylgifiskur græðginnar, hinnar takmarkalausu græðgi mannsins, sem öllu vill fóma fyrir skjótfenginn gróða. Það er slík stefna sem er að eyðileggja jörðina okkar. Græðgin er í andstöðu við lífið og verk Guðs í sköpuninni, hún er and- stæð sköpunarvilja Guðs, eins og hann birtist hvarvetna í lífríkinu. Þess vegna hlýtur kirkja Krists að láta sig þessi mál varða, hún getur beinlínis ekki skotið sér undan því. í þessu máli get ég bæði talað sem prestur og náttúruunnandi, það fer vel saman. Vafalaust munu einhverjir setja þann, sem hér heldur á penna, í hóp með „öfgafullum" náttúruverndar- mönnum, eins og ýmsir tíðka um þessar mundir. Eg læt mér það í léttu rúmi liggja. Eg vil ekki fórna náttúruperlum fyrir skammvinnan gróða, ekki miklum verðmætum fyrir h'tinn ávinning. Hvað vilt þú, Austfirðingur góður, hverju vilt þú fóma? Höfundur er söknarprestur og býr á Mælifelli í Skagafirði. TILBOÐ fliósmyndastofa Gunnars Sngimarssonar Suðurveri, sími 553 4852 Borgartúni 29 - Simi 5621717 - l ax 562 1772 Húsnæði óskast Okkur vantar raðhús eða hæð í Heimum, Lækj- um eða Háaleitishverfi fyrir ákveðinn fjársterkan kaupanda. Óskum eftir einb.-, rað- eða parhúsi í Folda-, Hamra- eða Rimahverfi á verðbilinu 12-15 millj. Staðgreiðsla í boði. Óskum eindregið eftir 2ja herb. íbúð á 1. hæð eða jarðhæð í austur- eða vesturborg. Indæll kaupandi. eða rúnnaðir • Sturtuhorn • Sturtul • Baðkars, sturhíkjífar vlö Felismúla Sími 588 7332 OPIÐ: lánud. - föstud. kl. 9-18, laugard Xlönduð vara ðffsfæðustu verðuwrf RAÐGREIÐSLUR |, EUHOCARD raðgreiðslur v/Nesveg, Séltjarnarnesi. Sfmi 561 1680 Opið alla daga til jóla Helgar kl. 11-17 Virka daga kl. 12-18 KOLAPORTIÐ Þú finnur líklega hvergi lægrn * verð en í Kolaportinu Leikföng, fatnaður, skartgripir, geisladiskar antikmunir, gjafavara, matvæli, sælgæti bækur, skór og ótal margt fleira

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.