Morgunblaðið - 17.12.1998, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 61 '
MINNINGAR
væri að minnsta kosti tíu árum yngri
en ég er. Þegar ég sagði honum svo
að ég væri nú skriðin yfir á fertugs-
aldurinn gerði hann sig hissa í fram-
an og sagði svo: Hvernig ætli geti
staðið á því að svona forljótur, gam-
all kall eins og ég á svona fallega af-
komendur? Svo breiddist prakkara-
legt bros yfir andlitið og hann skelli-
hló. Minnið var kannski farið að
svíkja hann en kímnigáfan var alltaf
á sínum stað og iðulega gerði hann
mest ginn að sjálfum sér. Þetta var
auðvitað tóm vitleysa í honum. Arni
afi var nefnilega reglulega fallegur
og þannig mun ég muna hann alla
mína tíð.
Margrét Ornólfsdóttir.
Lyklinum stungið í skrána uppi á
tíundu hæð í Sólheimum, dyrnar
opnaðar og það fyrsta sem blasti við
var afi Árni í stólnum sínum. Með
sérstakri sveiflu veifaði hann hend-
inni og sagði: „Hæhæ!“ með afarödd-
inni sinni. Svo byrjaði hann á að
bjóða kók úr ísskápnum (ef ekki einu
sinni, þá tvisvar) og spurði hvort
eitthvað væri að frétta. Ef ekki, þá
bætti hann við að engar fréttir væru
góðar fréttir. Svona var þetta í hvert
skipti. þar áður voru það amma og
afi í Sólheimunum, tópas, súkkulaði
og Ólsen ólsen. Allir merkilegu hlut-
irnir; skápurinn með styttunum,
himinhátt rúmið og skúffa úttroðin
af litabókum.
Nú vantar eitthvað. Það vantar afa
sem hefur alltaf verið til. Þó að fimm
og hálft ár séu liðin frá því að amma
dó finnst mér ég vera að kveðja hana
fyrst núna, ásamt afa. Þau voru alltaf
til í mínum heimi. Fyrsta minningin
mín er furðulega skýr mynd af því
þegar við amma og mamma kvöddum
afa sem var á leið í enn eina reisuna.
Síðan eru að minnsta kosti fimmtán
ár. í kjölfarið fylgja ótal minningar
um þau tvö og allar af hinu góða.
Hvorki amma né afi skömmuðu mig
nokkurn tímann eða sýndu mér neitt
annað en væntumþykju. Afi var í
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningargreina
birtist daglega í Morgunblaðinu.
Til leiðbeiningar fyrir greina-
höfunda skal eftirfarandi tekið
fram um lengd greina, frágang
og skilatíma:
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Þar sem pláss er
takmarkað, getur þurft að
fresta birtingu minningar-
gi’eina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna skilafrests.
Berist grein eftir að skilafrestur
er útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
mínum augum ævintýramaðui’ sem
sigldi um heimsins höf. Eg hef alltaf
átt auðvelt með að ímynda mér hann
ungan og myndarlegan í framandi
löndum. Hann var sérstakur per-
sónuleiki, ljúfur og glaðlyndur en líka
ótrúlega þrjóskur eins og afkomend-
ur hans. Það sem ég á þó aldrei eftir
að gleyma, öðru fremur, er húmor-
inn. Afi Arni var enn að segja brand-
ara þegar ég sá hann síðast rétt áðm-
en hann dó. Hann hafði skemmtilega
lúmskan húmor sem verður örugg-
lega enn í fjölskyldunni eftir hundrað
ár.
En hver á nú að segja „hæhæ!“
með þessum glaðlega, syngjandi
tóni? Hver á að hringja í okkur á
hverjum degi? Hver á að hlusta á út-
varpið, horfa á sjónvarpið og lesa
blöðin allt í senn? Hver á að spyrja
mig hvort ég sé nokkuð búin að trú-
lofa mig? Það er óhugsandi að nokk-
ur geti fyllt skarð afa. Við eigum öll
eftir að sakna hans og hugsa til hans.
Elsku afi Árni, ég er viss um að nú
eruð þið amma búin að hittast, ung,
hraust og glæsileg, og jafnvel komin í
siglingu um Suðurhöf. Eg er líka viss
um að við hittumst aftm’ þótt það
verði ekki á þessu plani. Þá getum
við tekið einn slag upp á gamla tíma.
Astarkveðja,
Salka.
Látinn er samstarfsmaður til
margra ára, Árni Þ. Egilsson. Við
unnum saman á Fjarskiptastöðinni í
Gufunesi í 35 ár. Árni var frábær fé-
lagi, vel gefinn, hugmyndaríkur og
félagslyndur, og ávallt léttur í skapi.
Hann var víðförull, hafði ferðast
mikið sem ungur loftskeytamaðm-,
bæði á skipum og flugvélum, lét vel
að tjá sig, og sagði því oft skemmti-
legar sögur af ferðalögum sínum og
kynnum af samferðamönnum, ís-
lenskum og erlendum. Árni átti
mörg áhugamál, m.a. þjóðmálin og
heimsmálin, eins og svo margir Is-
lendingar af hans kynslóð. Hann
hafði yndi af tónlist og lestri góðra
bóka, og á tímabili hafði hann mikinn
áhuga á ljósmyndun, tók talsvert af
myndum, sem hann framkallaði og
stækkaði sjálfur. Hann var einnig
liðtækur skákmaður og keppti
stundum fyrir Landssímann í keppn-
um milli opinberra stofnana. Ámi
var radíóamatör, og stundaði slík
fjarskipti af miklum áhuga í nokkur
ár. Hann hafði samband við radíó-
amatöra um allan heim, á ýmsum
tíðnum stuttbylgjunnar. Um tíma
hafði Ámi einnig áhuga fyrir golfi,
og held ég að hann hafi verið liðtæk-
ur golfari. En fyrst og fremst var
Árni frábær loftskeytamaður, bæði
afgreiðslumaður og tæknimaður,
enda voru honum fljótlega falin trún-
aðarstörf í Gufunesi. Þar gegndi
hann störfum yfirvarðstjóra og
tæknifulltrúa í 38 ár, eða þarjúl hann
lét af störfum árið 1985. Áður en
Árni hóf störf í Gufunesi (1946) hafði
hann starfað sumarlangt á loft-
skeytastöðinni á Siglufirði, og tíu ár
á skipum Eimskipafélags Islands,
þ.m.t. öll heimsstyrjaldarárin. Hann
var einnig tæpt ár loftskeytamaður á
flugvélum Loftleiða. Árni var friður
maður, myndarlegur á velli og mikið
snyrtimenni. Honum lét vel að hafa
mannaforráð, gerði kröfur, en fór vel
að fólki, og var ákveðinn þegar þess
þurfti við.
Vegna tækniþekkingar sinnar voru
Árna oft falin ýms sérverkefni. Minn-
ist ég þess m.a., að þegar Gufunes
tók að sér rekstur fyrstu jarðstöðvar
á íslandi, árið 1969, fyrir geimvís-
indastofnun Þjóðverja, þá var honum
falið að annast ýmsar mikilvægar
prófanir og mælingar, sem gera
þurfti í upphafi rekstrarins. Síðan
var hann einn aðalmaðurinn í þessum
rekstri, sem stóð yfir í sex ár.
Ámi átti mörg ágæt ár eftir að
hann lét af störfum, og dvaldist þá
oft á Spáni, en í seinni tíð var heilsan
farin að gefa sig.
Árni var góður samferðamaður, og
ég þakka honum samfylgdina. Eg
votta aðstandendum innilega samúð.
Stefán Arndal.
Frænka mín,
VIGFÚSÍNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR
frá Garðbæ,
síðast til heimilis
á Sólvöllum,
verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugar-
daginn 19. desember kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á
Sólvelli, heimili aldraðra á Eyrarbakka.
Fyrir hönd ættingja,
Aðalheiður Sigfúsdóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ SIGFÚSDÓTTIR,
Grenimel 35,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á
morgun, föstudaginn 18. desember, kl.
13.30.
Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Jakobsson,
Sigfús Guðmundsson, Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir,
Guðni Guðmundsson, Steinunn Sigurðardóttir,
Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur Kristinn Ólafsson,
Hafdís Guðmundsdóttir, Guðmundur Gíslason,
ömmubörn og langömmubörn.
+
Við þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og heiðruðu
minningu móður okkar,
BERGÞÓRU LÁRUSDÓTTUR,
síðast til heimilis
í Víðilundi 24, Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyflækningadeildar FSA og á hjúkrunar-
heimilinu Seli.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðiríka jólahátíð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Alda Jónatansdóttir, Gunnar Hjörtur Baldvinsson,
Magnús Jónatansson, Sigríður Jósteinsdóttir,
Jóna Þrúður Jónatansdóttir, Ari Jón Baldursson,
Sævar Jónatansson, Þórunn Þorgilsdóttir,
Björgvin Smári Jónatansson, Svava Ásgeirsdóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma og systir,
HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Goðheimum 8,
Reykjavík,
sem lést 9. desember síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtu-
daginn 17. desember, kl. 15.00.
B. Andrea Hilmarsdóttir, Hjörtur L. Jóhannsson,
Ingvar B. Hilmarsson, Vilborg A. Ragnarsdóttir,
Hilmar Þór Hilmarsson,
Kristján Finnbjörnsson, María Kristinsdóttir,
systkini og barnabörn.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HERMANNS VILHJÁLMSSONAR
fyrrv. verkstjóra,
Víðilundi 24,
Akureyri,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Seli miðviku-
daginn 2. desember, fer fram frá Akureyrar-
kirkju föstudaginn 18. desember kl. 13.30.
Aðalbjörg Sigurðardóttir,
Hjörtur Hermannsson, Rannveig Gísladóttir,
Svala Hermannsdóttir, Bárður Guðmundsson,
Sigurður Hermannsson, Antonía Lýðsdóttir,
Stefán Ó. Hermannsson, Guðrún Pétursdóttir,
Brynjar Hermannsson, Sigríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar, tengdafaðir, '
afi og langafi,
GÍSLI R. J. JENSSON,
Gnoðarvogi 22,
er lést sunnudaginn 13. desember sl., verður
jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 18.
desember kl. 15.00.
Inga Hjartardóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og langafabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HELGU STRÖM SCHJETNE,
Norðurbrún 1.
Nína Schjetne, Guðjón Haraldsson,
Laila Schjetne, Pétur Kristjánsson,
María Schjetne, Þorgeir Axel Örlygsson,
Guðný Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, systur, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖNNU HJARTARDÓTTUR,
Vesturgötu 69.
Bjarni Magnússon,
Guðlaug Magnúsdóttir, Frank P. Hall,
Björg Magnúsdóttir, Örn Henningsson,
Magnþóra Magnúsdóttir, Árni Thorlacius,
Ingibjörg Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.