Morgunblaðið - 17.12.1998, Side 66

Morgunblaðið - 17.12.1998, Side 66
66 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ljóska Smáfólk YE5,MAAM,ID LIKE TO BUY A CHRI5TMA5 PRE5ENT POR A &IRL I UJA5 THINKIN5 MAYBE A PAIR OF GL0VE5... Já, frú, mig langar að kaupa jólagjöf handa stelpu sem ég þekki... Ég var að hugsa kannski um hanska... Kæmi það að gagni að lýsa henni? Nú, hún er með tíu fingur ... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 I kjallaranum ... dú, dú-á! Frá Smára Frey og Tómasi Gunnari: VIÐ félagarnir vorum að spekúlera um daginn... það væri svo sem ekki í frásögu færandi, því við spek- úlerum nefnilega ansi oft. En núna finnst okkur að það sé kominn tími til að deila þessum hugrenningum með öðrum. Við vorum að velta því íyrir okk- ur fyrir hverja hinar svokölluðu „unglingabækur“ eru? Svona í fyrstu myndi maður halda að þær væru fyrir unglinga... en ekki er allt sem'sýnist. Við félagarnir höfum nú verið að reyna að skrifa svona bækur, þ.e. unglingabækur, og við höfum stefnt að því statt og stöðugt að skrifa þær fyrir unglingana. En svona erum við nú bara skrítnir! Eftir okkur hefur verið haft að ef „áttræð gamalmenni fíluðu bækurn- ar okkar þá værum við á villigötum" (viðtal í DV, 5. desember, 1998). Astæðan fyrir þessu er einfaldlega sú að kynslóðabilið er breitt, mjööög breitt. Líf unglinganna nú til dags er án efa (og sem betur fer) á svolítið öðrum nótum en fyrir sex- tíu árum. Við höldum því fram að ef unglingarnir eigi að „fíla“ bók, þá sé það nokkuð ljóst að afi þeirra og amma geri það ekki. A sama hátt má segja að ef bók væri sérstaklega skrifuð fyrir elliheimilin, þá væri það væntanlega hennar dauðadóm- ur ef unglingarnir myndu „fíla“ hana geðveikt. Okkur þætti gaman að sjá upplit- ið á t.d. Degi B. Eggertssyni, ef hann myndi líta augum gagnrýni um bók sína um Steingrím Her- mannsson, sem skrifuð væri af stúlku sem væri vart komin af gelgjuskeiði. Hún myndi segja: „Bókin tottar súrt“, og Dagur myndi ekki einu sinni vita um hvað hún væri að tala! Segir þetta ekki méira en mörg orð? Ekki alls fyrir löngu rákum við augun (ái) í bókagagnrýni í Morg- unblaðinu (1. desember, 1998) þar sem forsvarsmaður bókmenntarýni blaðsins virðist hafa brugðið sér á elliheimilið Grund (gæti líka hafa verið Sólvangur) til þess að finna gagnrýnendur á unglingabók. Við spyijum: Eru þetta réttlætanleg vinnubrögð? Ef þetta gamalmenni myndi dæma okkar bók (Berthold), þá yrðum við án nokkurs vafa mun ánægðari með slæman dóm en góð- an. Attrætt gamalmenni á ekki að „fíla“ bókina okkar ... það á frekar að hneykslast, þ.e.a.s. ef það á að gera eitthvað. Fyrst og fremst á maðurinn ekkert að lesa bókina, hún er ekki ætluð honum. Toppnum í þessum öfugugga vinnubrögðum er svo náð þegar rit- höfundar unglingabókanna (ef rit- höfunda má kalla, þessi helv. kvik- indi, allavega eru þeir flokkaðir sem einhvers konar B-höfundar) not- færa sér þessa dóma gamlingjanna til þess að auglýsa og upphefja bækur sínar. Og það er ekkert verið að nefna það að rýnirinn sé háaldr- aður, nei, nei! Að lokum ætlum við að vitna í dóminn sem gamlinginn fram- kvæmdi svo eftirminnilega (fyrir miðdegisblundinn 1. desember sl.): „Vissulega á slíkt sjónarmið rétt á sér, en krumpuð öldungssál mín biður þennan snjalla höfund að hasta á hanagalsöskur táninganna, sýna þeim, að spariklædd orð eru líka til um hugsanir þeirra allar...“ og „.. þannig snart hann mig, gamlingjann...“ P.S. Höfundar gætu með rentu kallað sig rithöfunda, en kjósa að gera það ekki, í ljósi þess að þeir hafa ekki snefil af sjálfsvirðingu, og þar að auki skrifa þeir „bara“ fyrir ung- linga! SMÁRI FREYR, . TÓMAS GUNNAR, höfundar bókai-innar Berthold. Yndisleg't á Hótel Örk og Kaffi Lefolii Frá Ragnari Thorarensen: OFT les maður í blöðunum skammargi-einar frá fólki sem telur sig hafa fengið lélega þjónustu á einhverjum veitingastað eða í ein- hverri verslun. Pað ætti að vera jafnsjálfsagt að skrifa í blöðin þegar maður fær einhvers staðar góða þjónustu. Þeir staðir sem standa sig vel eiga það skilið. Það er jafn auð- velt að hrósa eins og að skammast. Helgina 4. til 6. des. dvaldi ég ásamt konu minni á Hótel Örk í Hveragerði. Okkur hafði verið gef- inn helgarlykill og hlökkuðum við mikið til dvalarinnar enda höfðum við heyrt margt gott um hótelið, matinn og þjónustuna. í stuttu máli sagt stóðust allar okkar vænt- ingar og gott betur. Þjónustan, maturinn og allt andrúmsloft var til mikillar fyrirmyndar. Við áttum yndislega helgi og erum ráðin í að fara aftur sem fyrst. Hveragerði er líka mjög fallegur bær og þar er ákaflega gott að fara í góða göngutúra. Annar staður sem kom okkur mjög skemmtilega á óvart þessa helgi var veitingastaðurinn Kaffi Lefolii á Eyrarbakka. Við höfðum heyrt af staðnum, en ekkert um þjónustuna eða hvað væri þar yfir höfuð á boðstólum. Það verð ég að segja að sé eitt allra skemmtileg- asta og besta veitingahús sem við höfum komið á. Maturinn er frábær og þjónustan sömuleiðis. Ég hvet því fólk eindregið til þess að bregða sér til Eyrarbakka og líta við á Kaffi Lefolii. Það verður ekki svikið af því. Ég vil að lokum þakka aðstand- endum beggja staðanna fyrir þær góðu minningar sem við hjónin tók- um með heim frá þeim. RAGNARTHORARENSEN, Galtalind 4, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.