Morgunblaðið - 17.12.1998, Blaðsíða 68
68 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ilagnarsson
Bridsfélag Hreppamanna
Agætis þátttaka hefir verið í
spilamennskunni í haust og venju-
lega spilað á fjórum borðum. Byrjað
var á einmenningi í haust sem lauk
með sigri Gunnars Marteinssonar,
en hann hlaut 212 stig samtals. Við-
ar Gunngeirsson varð í öðru sæti
með 208 og Jóhannes Sigmundsson
þriðji með 193.
Topp 16, sem er silfurstigamót,
var spilað í haust og þar sigraði
Magnús Gunnlaugsson með skorina
117. Sigurjón Vilhjálmsson varð
annar með 104 og Pórdís Bjarna-
dóttir þriðja með 101.
Að venju var bridsmaður ársins
valinn, en þetta árið ber Karl Gunn-
laugsson þennan virðulega titil hjá
félaginu. Hann var með 21 stig sam-
tals en Gunnar Marteinsson varð
annar með 18 stig.
Hausttvímenningnum er nýlega
lokið með sigri Ásgeirs Gestssonar
og Guðmundar Böðvarssonar. Þeir
fengu 242 stig og unnu keppnina ör-
ugglega. Viðar Gunngeirsson og
Gunnar Marteinsson urðu í öðru
sæti með 204 og Halldór Gestsson og
Garðar Olgeirsson þriðju með 201.
Spilað er á mánudagsskvöldum
kl. 20:30 á Flúðum.
skóeeMU
Reykjavíkurvegi 50
S: 565 4275
VAGA
B0ND
Litur: Svartur
Stærðir: 36-46
TILB0Ð:
Verö áður kr."7:9§6:
Verð nú kr. 5.900,-
Bridsfélag Kópavogs
Síðari hluti aðventubrids fór fram
fimmtudaginn 10. des.
tírslit:
Magnús Aspelund - Steingrímur Jónass. 150
Leifur Kristjánss. - Heimir Tryggvas. 123
Gísli Tryggvas. - Ámi Már Björnss. 121
Bestum samanlögðum árangri í
aðventubrids (2 kvöld) náðu:
Magnús Aspelund - Steing. Jónasson 63,54%
Leifúr Kristjánss. - Heimir Tryggvas. 59,05%
Freyja Sveinsdóttir - Sigríður Möller 55,50%
Hefðbundinn jólaleikur félagsins
fer fram fimmtudaginn 17. des. og
hefst kl. 19:45 í Þinghóli, Hamra-
borg 11, Kópavogi.
Jólamót BR og SPRON
3ja minningarmótið um Hörð Þórð-
arson hefst kl. 12 sunnudaginn 27. des-
ember. Spilaður er tvímenningur með
Mom-ad sniði. Spilaður er tvímenning-
ur með Monrad sniði. Auk silfui'stiga
era rausnarleg verðlaun í boði.
1. verðlaun 50.000 kr.
2. verðlaun 30.000 kr.
3. verðlaun 20.000 kr.
4. verðlaun 10.000 kr.
Einnig verða veitt 6.000 kr. auka-
verðlaun fyrir efsta kvennapar,
efsta par yngri spilara, efsta par í
flokki (h) eldri spilara og blandaðra
para. Dregið verður um BR
Flugelda og era spilarar hvattir til
að minnast frumkvöðlanna og mæta
til leiks í hátíðarfjöri. Þátttökugjald
er 2.000 kr. á spilara en frítt fyrir
spilara yngri en 20 ára.
BR óskar spilurum gleðilegra
jóla.
Bridsfélag Hreyfils
ÁGÆT þátttaka var í jólarúbert-
unni sl. mánudagskvöld eða 27 pör.
Ingunn Sigurðardóttir og Eiður
Gunnlaugsson signiðu með 37 í plús
en Leifur Kristjánsson og Gísli
Ti’yggvason veittu þeim harða
keppni með 34. Birgir Kjartansson
og Árni Rristjánsson urðu þriðju
með 22 en næstu pör voru Árni Már
Björnsson og Heimir Tryggvason
með 19 sem og Birgir Sigurðsson og
Sigfús Bjamason með sömu tölu.
Spilamennskan hefst aftur í
Hreyfilshúsinu 4. janúar. Félagið
óskar spilurum og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla og farsæls
nýárs.
Englakoddaver
með barnabien
fást á eftirfarandi stöðum:
Kirkjuhúsintiy Reykjavík,
Bókab. Grímsba Reyhjavík,
Bókaskemmunni, Akranesi,
ósbter ,Blönduósi,
Legg og skek /sajirði,
Blóma- og gjafavversL, Sauðárkróki,
Lipurtá, Akureyri,
Blómasetrinu, Húsavík,
KASKHöfn,
Eyjablómi Vestmannaeyjum.
Reynslan sýnir að börn læra bænina á
koddanum sínum og leiðir það huga þeirra á
bjartari braut fyrir svefninn.
Þrjár mism. bœnir og tveir litir.
Dreifing: Lislfengi ehf., s. 561 0865.
wivtv. centrum. is/^oktavia
e-maib oktavia@centrum.is
LLOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN
Litir: Svartir • Stærðir: 40-47
Tegund: Lorenzo • Verð kr. 1 T .990
Yfir 50 tegundir til
D0MUS MEDICA
við Snofrabrout • Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8—12 • Reykjavik
Sími 5689212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
í DAG
VELVAKAMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Tilboðsverð
ÚTSALA, afsláttur, pnítt,
verðlækkun, og nú það
nýjasta; tilboðsverð á
kennitölum. Er landinn
svo heltekinn af peninga-
fikn og svo djúpt sokkinn í
græðgi, að hann er tilbú-
inn að selja sálu sína fyrir
nokkra aura til þess eins
að geta keypt fleiri sjón-
vörp og frystikistur?
Erum við orðin svo sið-
blind að sjá ekki það sið-
ieysi sem látið er viðgang-
ast í kerfinu? Afhverju er-
um við að hjálpa einu fyr-
irtæki að kaupa annað?
Hvað er það sem fær okk-
ur til að selja kennitölur
okkar? Við erum jafnvel
reiðubúin að drösla ömmu
gömlu niður í banka svo
allir geti nú makað krók-
inn.
Eflaust hef ég móðgað
marga og enn aðrir eru
reiðir, en það var alls ekki
ætlunin, og ef þeir hinu
sömu eru komnir alla leið
hingað í lestrinum, þá bið
ég þá afsökunar. Ég vil að-
eins vekja fólk til umhugs-
unar.
Ekki selja ykkur svona
ódýrt, látið ekki arma kol-
krabbans ná ykkur.
Peningalyktin er í loft-
inu, hún er ljúf, en andið
henni ekki svo djúpt að þið
kafnið.
Kveðja,
Pétur
Vitni vantar
LJÓSHÆRÐA konan sem
vildi aðstoða konu sem
datt í götuna milli kl. 17-18
1. desember sl., á móts við
bensínstöðina við Ár-
múla/Háaleitisbraut, er
beðin að hafa samband í
síma 588 4079 eða 552 2150
og tala við Rannveigu.
Amal og
næturgestirnir
MIG langar til að benda
fólki á að fara á sýninguna
Amal og næturgestimir.
Ég fór á þessa sýningu sl.
laugardag í Neskirkju og er
þetta alveg frábær sýning
og fallegt verk. Hvet ég fólk
eindi'egið til að sjá þetta
verk og ætti það að fara
með börnin með sér því það
er þroskandi fyrir þau og
gott fyrir fólk að gleyma
sér ft'á hinu daglega amstri
svona rétt fyrir jólin.
Ánægður áheyrandi.
Diddú með góðan
geisladisk
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma því á framfæri að
fólk væri ekki svikið sem
keypti geisladiskinn henn-
ar Diddúar íyrir jólin. Seg-
ir hún að geisladiskurinn
sé alveg yndislegur og gott
lagaval á honum. Eins vildi
hún benda á að geisladisk-
ur Siggu Beinteins og Kri-
stjáns Jóhannssonar væru
mjög góðir.
Tapað/fundið
Ökuskírteini týndist
ÖKUSKÍRTEINI týndist
annaðhvort í apóteki eða
banka. Skírteinið er ekki
með réttu heimilisfangi.
Þeir sem hafa fundið það
hafi samband í síma
561 4161.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust sl.
sunnudag í kirkjugarðin-
um í Grafarvogi. Upplýs-
ingar í síma 567 6905.
Myndavél og filmur
týndust
TÝNST hefui' myndavél
og tvær filmur í svörtum
poka í síðustu viku. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 557 6535.
Handtaska týndist
BRUN handtaska sem
innihélt m.a. bleika lykla-
kippu týndist í Efra-Breið-
holti laugardaginn 5. des-
ember sl. Finnandi er vin-
samlega beðinn að skila
henni til lögreglunnar í
Breiðholti.
Síður, svartur frakki
týndist á Hótel Borg
FRAKKI, svartur alveg
Læða týndist frá
Njálsgötu
LÆÐA týndist frá heimili
sínu við Njálsgötu mið-
vikudaginn 9. des. Hún er
rauð og bröndótt, hvít í
framan, á bringu, kvið og
fótum og með fæðingar-
blett á nefinu. Þeir sem
kynnu að hafa orðið ferða
hennar varir eru vinsam-
legast beðnir að hafa sam-
band í síma 551 9146 eða
898 3014. Fundarlaun.
síður, aðskorinn með stór-
um kraga, týndist á Hótel
Borg, eldhúsi, 21. nóvem-
ber. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 5811915.
Dýrahald
Lítill högni týndist
í Smárahverfi
GRÁBRÖNDÓTTUR
högni, frekar lítill með
hvíta bringu og hvítar
loppur og mikið sperrt
eyru, týndist í Smára-
hverfi fyrir 2 vikum. Hann
var ólarlaus og ómerktur.
Þeir sem hafa orðið hans
varii' hringi í síma
554 5254.
Síamsfress týndist
í Hafnarfirði
SÍAMSFRESS týndist frá
Ai-narhrauni í Hafnarfirði í
kringum 18. nóvember.
Hann er gráblár að lit,
með lið í rófu, eyrnamerkt-
ur en ólarlaus. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 897 7956.
SKAK
IJinsjúu Mai'geii'
Pétursson
STAÐAN kom upp á
Ólympíuskákmótinu í
Elista í haust. Zotlan
Almasi (2.650), Ung-
verjalandi, hafði hvítt
og átti leik, en Igor
Efimov (2.530), Ítalíu,
var með svart.
21. Hxí8+! (Annars
gæti svartur reynt að
bjarga sér með lang-
hrókun) 21. - Hxf8
22. Dxh6+ - Kg8 23.
h3 (23. Bf4! var ennþá
sterkara) 23. - Hxg3
24. Rxg3 - Dd6 25.
Dg6+ - Kh8 26. Hfl
- e5 27. Dh5+ og svartur
gafst upp.
Guðmundar Arasonar mót-
ið, það fjórða í röðinni,
stendur nú yfir í Iþróttahús-
inu við Strandgötu í Hafnar-
firði. Fjórða umferðin er
tefld í kvöld og hefst kl. 17.
HVÍTUR leikur og vinnur.
COSPER
Þtí rnátt ekki hreyfa fótinn, því þá bftur hann fastar.
Víkverji skrifar...
JÓLIN nálgast með guðs orði,
gjöfum og gleði á flestum heimil-
um. Gæðunum er þó missldpt og
sums staðar eru erfiðleikar eins og
endranær. Þar setja bág heilsa, and-
legir eða líkamlegir sjúkdómar, og
fjárhagsleg eða félagsleg vandamál
svip á jólahaldið. Á þeim bæjum er
tæpast eins hratt hlaupið í jólakapp-
hlaupinu og þorri landsmanna gerir.
Samkvæmt upplýsingum frá líkn-
arfélögum er mikið um að fólk leiti
aðstoðar nú fyrir jólin og jafnvel
síst minna en undanfarin ár. Góð-
ærinu virðist eitthvað vera mis-
skipt. í fréttabréfi Öryrkjabanda-
lags íslands fyrir þessi jól kemur
fram „að rúmur helmingur skjól-
stæðinga Hjálparstarfs kirkjunnar
og Rauða kross íslands er öryrkjar
- fólk sem vegna fötlunar og veik-
inda hefur ekki til hnífs og skeiðar."
Er ekki rétt að staldra aðeins við
áður en lokaspretturinn er tekinn
fyrir hátíðarnar?
GLÆSILEGT afrek sund-
kappans Arnar Arnarsonar
gladdi landsmenn um síðustu helgi.
Iþróttafréttamenn huga þessa dag-
ana að vali á íþróttamanni ársins og
Hafnfirðingurinn ungi hlýtur að
verða á blaði fréttamanna. Þar
verður hann örugglega í góðum fé-
lagsskap því athyglisverð íþrótta-
afrek hafa verið unnin á árinu sem
senn kveður. Upp í hugann koma
bæði einstaklings- og hópíþróttir og
í raun er ótrúlegt hversu vel ís-
lenskir íþróttamenn standa sig á al-
þjóðlegan mælikvarða.
Handknattleiksmenn hafa oft
staðið sig betur heldur en á þessu
ári, en einn er þó sá maður sem
stöðugt kemur á óvart. Þótt hann
sé að verða fertugur er hann enn
meðal fremstu íþróttamanna
landsins, þótt hann gangi ekki heill
til skógar er hann hvað eftir annað
meðal markahæstu leikmanna Is-
landsmótsins í handknattleik og
vinnur leiki nánast upp á eigin
spýtur. Sigurður Valur Sveinsson
er sannarlega krydd í annars held-
ur bragðdaufan handbolta nú um
stundir. Er ekki kominn tími til
fyrir handknattleiksforystuna -
eða íþróttafréttamenn - að heiðra
Sigurð á einhvern hátt fyrir frá-
bæra frammistöðu og einstaka
leikgleði?
xxx
KUNNINGI Víkverja var
kampakátur er þeir spjölluðu
saman í vikubyrjun. Fyrst hagnað-
ist kunninginn um rúmlega fjögur
þúsund krónur með því að kaupa
bréf í Búnaðarbankanum fyrir sig
og fjögurra manna fjölskyldu sína.
Síðan náði hann sér í 10 kíló af
sænskum kalkún og taldi sig hafa
hagnast um tvö þúsund krónur til
viðbótar - og kjötið var skattfrjálst.
Þvílík fjármálasnilld, hugsaði skrif-
ari.