Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ
>
72 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
FÓLK í FRÉTTUM
ÚR myndinni Thin Red Line.
MARTIN Sheen og Sissy Spacek í hlutverkum sínum í Badlands.
MARTIN Sheen og Terrence
Malick við tökur á Badlands.
TERRENCE
MALICK
Malick er einnig
handritshöfundur,
tónlistin í höndum
Hans Zimmer og tök-
unum stýrir John
Toll. Valinn maður í
hverju rúmi. Frásag-
an tekur við af Héð-
an til eilífðar. Nú er
sögusviðið eyjan Gu-
adalcanal, þar sem
háðir voru mann-
skæðustu bardagarn-
ir í Kyrrahafsstrfð-
inu við Japani í síðari
heimsstyrjöldinni.
Sagan var kvikmynd-
uð 1964, af Andrew
Morton, með Jack
Warden og Keir Dul-
lea, (2001: A Space Odyssey)með
lítt eftirminnilegum árangri. Þá
má geta þess í framhjáhlaupi, að
nýjasta mynd þríeykisins góð-
kunna, Merchants/Ivory-
/Jhabvala, A Soldiers Daughter
Never Cries, og á að fara að
sýna í borginni, er einmitt byggð
á ævi James Jones.
Terrence
Malick
Texasbúinn Malick
(1943 -), er hámennt-
aður. Hélt til náms í
Oxford, á styrk frá
Rhodes, stundaði síð-
ar nám við Harvard
háskólann. Nam að
lokum kvikmynda-
gerð við American
Film Institute, út-
skrifaðist ‘69. Starf-
aði sem blaðamaður
við Newsweek, Life
og The New Yorker,
sfðan sem lektor í
heimspeki við þá
virtu menntastofnun,
Massachusetts
Institution of
Technology frá ‘68.
Leikstýrði Badlands, sinni fyrstu
mynd fimm árum síðar, Days of
líeaven lauk hann ‘78. Skrifaði
handrit Pocket Money ‘72,
Deadhead Miles, myndar
Zimmermans, ‘82. Síðan hefur
verið hljótt um Malick utan þess
að fjölmiðlar hafa annað slagið
verið að orða hann við hin og
Þægilegur
jóladjass
AÐ ÞESSU sinni verður fjallað
um Terrence Malick, mann sem
á aðeins tvær myndir að baki, en
gerðar af slfkum hæfileikum að
flestir eru á einu máli um að eru
sígildar. Ástæðan fyrir því að
hann er gerður að umfjöllunar-
efni er ekki síst að um jólin verð-
ur frumsýnd stríðsmyndin The
Thin Red Line, þriðja mynd
mannsins frá upphafi. Slíkt telst
til stórviðburða í kvikmynda-
heiminum. Einsog við var að bú-
ast hefur spurst út að hér sé
enginn eftirbátur fyrri mynda
hans á ferð, heldur verk sem
komi til með að keppa við The
' Truman Show, Björgun óbreytts
Ryans, og einhverjar fleiri, um
Oskarsverðlaunin í ár. Það sýnir
best þá virðingu sem borin er
fyrir þessum afkastalitla einfara,
að margir af frægustu leikurum
samtímans buðu honum liðveislu
þá það fréttist að hann væri að
hugsa sér til hreyfings eftir
hartnær tuttugu ára hlé. Enda
er The Thin Red Line, sem er
gerð eftir sjálfsæfisögulegri
skáldsögu James Jones (fram-
hald Héðan til eilífðar), stjörnum
prýdd: Leikhópurinn einn fyllir
mann löngun til að sjá myndina.
Sean Penn, George Clooney,
John Cusack, Woody Harrelson,
fara allir ineð stór hlutverk, í
þeim minni bregður fyrir urmul
heimskunnra andlita, einsog
John Travolta, Nick Nolte,
Mickey Rourke og Gary Oldman.
TOIVLIST
Geisladiskur
SVÖLJÓL
Geisladiskur með jölalöguin úr ýms-
>. um áttum í djössuðum útsetningum
og flutningi „Jólakatta" sem eru:
Gunnar Hrafnsson kontrabassi, Hjör-
leifur Orn Jónsson trommur, Karl O.
Olgeirsson rhodespíanó, Snorri Sig-
urðsson trompet. Söngur: Móeiður
Júníusdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson,
Skapti Ólafsson, Rósa Ingólfsdóttir
og Hamrahlíðarkórinn. Básúnur og
blfstur í einu lagi: Samúel J. Samúels-
son. Upptökumenn: ívar Ragnarsson
og Hróbjartur Róbertsson. Utgef-
andi: Sproti. Lengd: 43:11 mín.
ERLENDIS hefur útgáfa á
jólaplötum í djössuðum útsetning-
um farið vaxandi á undanförnum
árum og er vissulega virðingar-
vert þegar menn reyna að fínna
nýja fleti á „gömlu, góðu“ jólalög-
unum. Eina slíka tilraun er að
fínna á geisladisknum „Svöl jól“,
sem djasssveitin Jólakettir er
skrifuð fyrir. Þótt diskur þessi sé
ekki líklegur til að valda neinum
straumhvörfum í íslensku djass-
tónlistarlífi er tónlistin á honum
engu að síður þægileg tilbreyting
frá hinni hefðbundnu framsetn-
ingu gamalla jólalaga, sem búið er
að jaska út á öldum Ijósvakans ár-
um saman.
Svöl jól innihalda 12 jólalög, þar
\ af helmingur eingöngu leikinn af
fígrum fram af Jólaköttum, þeim
Gunnari Hrafnssyni á kontra-
bassa, Hjörleifi Erni Jónssyni á
trommur, Karli 0. Olgeirssyni á
rhodespíanó og Snorra Sigurðs-
syni trompet. Þessi „instru-
rnental" hluti plötunnar þykir mér
betri helmingurinn og í flutningi
* sínum viðra þeir félagar ýmsar
snjallar hugmyndir og skemmti-
legar fléttur, án þess þó að fara
yfír mörkin í „djassgeggjun“
þannig að venjulegt fólk ætti
einnig að geta notið þessarar tón-
listar. Jólakettir standa allir fylli-
lega fyrir sínu sem djassleikarar
og þá sérstaklega Gunnar Hrafns-
son, sem sýnir víða skemmtileg
tilþrif á bassann. Eins finnst mér
„rhodes“ hljómurinn í píanói Karls
koma vel út í þessum útsetning-
um, sem eru vel útfærðar þegar á
heildina er litið. Lögin sem Jólak-
ettir leika einir á plötunni eru:
Nóttin var sú ágæt ein, Jólasvein-
ar ganga um gólf, Jólasveinninn
minn, Litli trommuleikarinn, Pað
á að gefa börnum brauð og Jóla-
þessi verkefni - sem aldrei hafa
komist á koppinn. Slúðurdálka-
höfundar hafa ekki legið á liði
sínu að útskýra ástæðurnar fyrir
löngum fjarvistum hans úr sviðs-
ljósinu, þær verða látnar liggja á
milli hluta hér. Það sem skiptir
öllu máli er að þessi sérstæði
listamaður er að kveðja sér
hljóðs að nýju, jólamyndin The
Thin Red Line, getur orðið mæli-
kvarðinn á hvort hann eigi í
rauninni heima í hópi útvaldra,
eða hvort hann er, eftir allt sam-
an, aðeins tveggja mynda maður.
Malick hefur þó ekki setið auð-
um höndum, Það er vitað mál að
hann er einn af virtustu „hand-
ritalæknum" Hollywood, ásam
William Goldman og John Sayles.
Þegar minni spámenn eru sigldir
í strand, eru þessir andlegu
dráttarbátar gjarnan kallaðir til
aðstoðar og ósjaldan hefur þeim
tekist að koma lagi á klúðrið.
Þær góðu fréttir eru nýjastar
af Malick, að hann sé farinn að
undirbúa næstu mynd, og hafi
rætt við þau Tim Robbins og
söngurinn og sé ég ekki ástæðu til
að gera upp á milli þeirra í þessari
umfjöllun.
Þegar kemur að framlagi söngv-
aranna verður málið hins vegar
flóknara enda eru þeim dálítið mis-
lagðar hendur í túlkun sinni. Móa
syngur Jólasveinninn kemur í
kvöld og gerir það vel að mínu
mati, á sinn sérkennilega hátt.
Sjálfsagt á þó einhverjum eftir að
þykja hún hljóma eins og „gömul
galdranorn“, svo notuð sé nærtæk
samlíking. Mér finnst röddin í Móu
hins vegar „flott“, enda verið ein-
lægur aðdáandi hennar frá fyrstu
tíð. Páll Oskar flytur Hin helga
nótt og Það aldin út er sprungið og
syngur „eins og engill“ að vanda.
Hins vegar hef ég ákveðnar efa-
semdir um að Skapti Olafsson og
Rósa Ingólfs hafi verið réttu kandi-
datarnir í lögin sem þau flytja, þótt
vissulega sé alltaf gaman að heyra í
gömlum þjóðsagnapersónum.
Skapti syngur lagið Sleðaferð, sem
Ellý Vilhjálms söng svo listavel á
hljómplötu fyrir nokkrum árum og
kannski er það minningin um þann
flutning sem gerir samlíkinguna
óhagstæða fyrir Skapta? Rósa
syngur lagið Nú minnir svo ótal
margt á jólin og finnst mér flutn-
ingur hennar dálítið á skjön við
annað efni á diskinum. Lagið Jól
hljómar vissulega vel í flutningi
Hamrahlíðarkórsins, en á heldur
ekki heima á þessum diski að mínu
mati. Þó má kannski segja að allt
sé þetta nú til gamans gert, til að
létta lundina yfir jólin, og því ef til
vill óþarfi að vera með sparðatíning
af þessu tagi í svona umfjöllun.
Þegar á heildina er litið er þessi
diskur vel heppnaður og á eflaust
oft eftir að „malla“ undir á fóninum
hjá mér yfir jólin.
Sveinn Guðjónsson
Juliu Robins um að taka að sér
aðalhlutverkiðn. Framtíð þessa
verkefnis er tvímælalaust undir
því komin að The Thin Red Line
standi undir væntingum og fái
viðunandi aðsókn. Ein aðalástæð-
an fyrir brotthvarfi Malicks telja
menn að hafi verið hinar dræmu
viðtökur myndanna hans tveggja.
Þær kolféllu báðar, þrátt fyrir
einmuna hrós gagnrýnenda og
fjölda verðlauna, bæði heima fyr-
ir og á Cannes 1979.
Sígild myndbönd
BADLANDS, (1973)
irirkV.í
Hrífandi frumraun leikstjórans er
lauslega byggð á sönnum atburð-
um; morðæði sem rann á unga
elskendur í Nebraska á sjötta ára-
tugnum. Hinn 25 ára Kit
Carruthers (Martin Sheen), hóf
drápin á föður (Warren Oates)
hinnar 15 ára kærastu sinnar,
Holly Sargis (Sissy Spacek), sem
leist ekki meira en svo á hinn til-
vonandi tengdason. Þótt hann líkt-
ist ofurstjörnu samtímans, James
Dean. Eftir morðið lögðu þau á
glóralausan flótta um norðvestur-
fylki Bandaríkjanna og skildu eftir
sig fimm lík til viðbótar. Firna
áhrifarík, áreitin en jafnframt
áferðai-falleg, þrátt fyrir allt. Holly
rekur blóðidrifna atburðarásina án
nokkurrar samúðar með fórnar-
lömbunum. Kit, félagi hennar, er
aðlaðandi, óáreiðanlegur náungi,
rómantískur morðingi. Svo öragg-
ur um stjörnusess sinn í banda-
rískri glæpasögu að hann merkir
staðinn þar sem hann er hand-
samaður og felur lögreglunni um-
sjá með eigum sínum. Myndin er af
mörgum talin sú besta á sjöunda
áratugnum. Gjörólík öllum öðrum
myndum um svipað efni, svosem
Bonnie and Clyde, ljóðræn, allt að
því notaleg, með vissri samúð með
aðalpersónunum í stað þess að
gera þær að dæmigerðum, brjáluð-
um óvættum.
DAYS OF
HEAVEN, (1978)
irtckV,i
Birtan og lýsingin er minnisstæðust
í þessari undur áferðarfallegu
mynd, sem er tekin af snillingnum
Nestor Almendros (Oskarsverð-
launin), mestmegnis í töfrabirtu
ljósaskiptanna. Sérkennileg og að
lokum raunaleg frásögn um ástar-
þríhyming á sveitabæ í Texas á öðr-
um áratug aldarinnar. Að efni og
uppbyggingu svipar henni til
frumraunar leikstjórans. Ungir
elskendur (Richard Gere og Brooke
Adams) flýja glæpamál í borginni og
ráða sig í vinnu hjá efnuðum hveiti-
bónda (Sam Shephard), undir því yf-
irskini að þau séu systkini. Þegar
bóndinn fer að líta „systirina" hýra
auga, taka þau að brugga honum
banaráð. Aftur leiðir Malick söguna
áfram með hugsunum stúlkunnar og
kemur inná ástir, efnahag og stöðu
aðalpersónanna, hið félagslega
ranglæti sem á þeim bitnar, í bland
við ógleymanlega fegurð umhverfis-
ins. Dregur þannig athyglina frá
hinum mannlega þætti að einhverju
leyndardómsfullu og ójai-ðnesku í
aftureldingu og aftanskini.
Sæbjörn Valdimarsson