Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 80

Morgunblaðið - 17.12.1998, Síða 80
4 r Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPINKERFIHF hnt HEWLETT IfíM PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Bætur almannatrygging-a hækka um 4% um áramót Frítekjumörk ör- orku- og ellilíf- eyrisþega hækka FRITEKJUMORK vegna bóta ör- yrkja og ellilífeyrisþega hækka umtalsvert um næstu áramót verði lögfest frumvai-p sem Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra leggur fram á Alþingi í dag. Þá hef- ur ríkisstjórnin ákveðið að allar bætur almannatrygginga hækki m 4% um næstu áramót. W1 Samanlagt munu bætur öi-yrkja og ellilífeyrisþega á næsta ári hækka um 1.500 milljónir króna vegna ýmissa breytinga sem ákveðnar hafa verið, að því er fram kom í máli heilbrigðisráð- herra á fréttamannafundi í gær. Auk þess munu greiðslur al- mannatrygginga vegna endurhæf- ingar hækka um 50 milljónir kr. Um er að ræða um það bil 500 millj. kr. aukin útgjöld ríkissjóðs j.umfram þær hækkanir sem gert hefur verið ráð fyrir í fjárlaga- frumvarpinu fyrir næsta ár. Hækkun frítekjumarkanna mun koma um 18 þúsund einstaklingum til góða að sögn ráðherra en kostn- aður ríkisins vegna þessarar breyt- ingar verður um 400 millj. kr. á næsta ári. Sem dæmi um áhrif breyting- anna munu ráðstöfunartekjur hjóna, sem eru hvort um sig með 80 þúsund kr. lífeyri, aukast um 16.600 krónur, að mati heilbrigðis- ráðuneytisins. Frítekjumark hjóna þar sem annað er bótaþegi vegna örorku hækkar úr 40.224 kr. í 90.504 kr. Frítekjumark hjá hjón- um sem bæði njóta ellilífeyris hækkar úr 28.156 í 40.224 kr., svo dæmi séu tekin úr frumvarpinu. ■ Bætur/6 Tími litlu jólanna Morgunblaðið/RAX TIMI jólaskemmtana fer nú í hönd og litlu jólin eru vinsæl og vel sótt af yngstu kynslóðinni eins og vera ber. Þessi börn á Flúðum skemmtu sér vel og fögnuðu jólasveinunum. Þeir komust á vettvang í tæka tíð þrátt fyrir að lítið væri um snjó þar um slóðir enda hefur hann trúlega bara fokið burt ef marka má veðurlýsingu barnanna í glugganum. Akureyri Folda til gjaldþrota- skipta KVEÐINN var upp úrskurður um gjaldþrotaskipti ullariðnaðarfyrir- tækisins Foldu í gær að ósk stjórnar fyrirtækisins. Eignir Foldu eru metn- ar á 163 milljónir króna, en skuldir fyrii-tækisins nema um 206 milljón- Hermann Sigursteinsson, fram- kvæmdastjóri Foldu, sagði að reynt hefði verið að safna nýju hlutafé í fyr- irtækið, en 40 milljónir hefði vantað til að hægt hefði verið að halda áfram rekstri. 30 manns starfa hjá fyrirtækinu. Þeim var sagt upp í sumar, en upp- sagnarfrestur þess framlendur. Atti hann að renna út á morgun, 18. des- ember. Þorsteinn Amórsson, formað- ur Iðju, félags verksmiðjufólks, sagði að þetta væri svartur dagur í sögu iðnaðar á Akureyri: „Það er gremju- legt að menn hafi ekki verið tilbúnir að leggja þessu fyrirtæki lið.“ I Ekki náðist/14 * Arangurslausar viðræður um sameiginlegt framboð Fulltrúar Kvennalist- ans gengu af fundi MIKIL óvissa er um frekari þátt- töku Kvennalistans í viðræðum við A-flokkana um sameiginlegt fram- boð í Reykjavík en viðræðum í kjörnefnd flokkanna lauk án árangurs þegar fulltrúar Kvenna- listans gengu af fundi á tíunda tíní- anum í gærkvöldi. Að sögn Kristínar Blöndal, eins þriggja fulltrúa Kvennalistans, lögðu þær fram breytingartillögur á fundinum í gær. Fulltrúar A- flokkanna hafi hins vegar lagt fram breytingartillögur á móti sem hafi gengið miklu skemmra og þær hafi með engu móti getað fallist á. „Við getum ekki túlkað þetta öðru vísi en svo að þeir hafi með þessu vísað okkur úr samningaviðræðunum," sagði Kristín. „Við tilkynntum á fundinum að við þrjár treystum okkur ekki til að halda áfram þessum viðræðum og að við myndum skila umboðinu til Kvennalistans. Við höfum ekki vald eða vilja til að slíta umræðunum, það þarf bakland okkar að gera fyrir hönd samtakanna, en við komumst ekki lengra. Okkur finnst að það hafi orðið trúnaðarbrestur," sagði hún. Tekist á um 3. og 4. sætið og stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur Að sögn Gísla Gunnarssonar, fulitrúa Alþýðubandalagsins í kjör- nefndinni, buðu A-flokkamir að Kvennalistinn fengi einn frambjóð- anda í eitt af fjórum efstu sætun- um við val á framboðslista í vænt- anlegu prófkjöri og að annar fram- bjóðandi Kvennalistans fengi eitt af sætum fimm til átta. Kvennalist- inn vildi hins vegar fá eitt af þrem- ur efstu sætunum og eitt af sætum fjögm- til átta, að hans sögn. „Þær vildu ekki fara neðar með efri mann sinn en í þriðja sætið en sam- kvæmt okkar tillögu var möguleiki á að hann hefði lent í fjórða sæti. I báðum tilfellum var hins vegar gert ráð fyrir því að annar maður- inn yrði í áttunda sæti. Það slitnaði á þessu,“ sagði Gísli, Að sögn talsmanna Kvennalist- ans fólst einnig í tillögu A-flokk- anna að Jóhönnu Sigurðardóttur yrði í sjálfsvald sett fyrir hvaða lista hún byði sig fram í væntan- legu prófkjöri og töldu þær að það gæti þýtt að fulltmi Kvennalistans yrði að víkja. Deilurnar hafi fyrst og fremst snúist um þetta. Morgunblaðið/Ásdís Bókaverslun Máls og menningar Eldur í rafmagnstöflu SPRENGING varð í rafmagnstöflu í tbókaverslun Máls og menningar við Laugaveg í gærkvöldi og kom upp nokkur eldur í töflunni. Verslunin var opin og tókst starfsmönnum að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang og er ekki talið að mikið tjón hafi orðið. Gagnagrunnsfrumvarp Gert ráð fyrir afgreiðslu í dag Landssamband smábátaeigenda Réttar- staða trillu- karla verði könnuð STJÓRN Landssambands smá- bátaeigenda samþykkti á fundi sínum sem haldinn var á þriðju- dag að könnuð verði til hlítar staða félagsmanna sambandsins með tilliti til atvinnuréttar- verndar eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Arthúr Bogason, formaður LS, segir að í ljósi frumvarps um breytta fiskveiðistjórnun smábáta hafi hann þyngstar áhyggjur af at- vinnurétti þeirra sem stundað hafi smábátaútgerð, þegar rétt- indunum verði útdeilt tU allra. Hann segir að á fundinum hafi einnig komið fram áhyggjur manna af stöðu sóknardagabát- anna. Réttur þeirra tU sjósókn- ar og atvinnu verði varinn af hörku og gerður þannig úr garði að menn geti lifað af því. I TriIlukarlar/22 ÞRIÐJU og síðustu umræðu um frumvai-p ríkisstjórnarinnar um mið- lægan gagnagrunn á heilbrigðissviði lauk síðdegis í gær. Búist er við að atkvæðagreiðsla verði um frumvarpið í dag en áður verða greidd atkvæði um frávísunar- tUlögu sem formenn allra fjögurra þingflokka stjórnarandstöðunnar bera fram. Talsmenn meirihlutans töldu að málið hefði fengið mikla og faglega umfjöllun og væri framfaraskref. HeUbrigðisráðherra sagði að mótað- ar yi'ðu sérstakar reglur sem notaðar yrðu til að ákveða greiðslu af hluta arðs af grunninum í ríkissjóð. Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks óháðra, gagnrýndi ríkis- stjórnina harðlega fyrir málsmeð- ferð í sambandi við frumvarpið, sagði að um hneyksli væri að ræða. Orðalag frumvarpsins væri svo óskýrt að stuðningsmenn vissu í reynd ekki hvað þeú væru að sam- þykkja. ASKASLEIKIR I Mótaðar verða/6 7Aoi^ a DAGAR TIL JÓLA J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.