Morgunblaðið - 15.05.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 15.05.1999, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 MORGUNBLADIÐ FRÉTTIR Forystumenn í Yerkalýðshreyfíngunni Ekkí á döfínni að lækka félagsgjöld Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Sænskur sig- ur í Skeifu- keppninni SIGURINN í keppninni um Morg- unblaðsskeifuna á Hólaskóla kom í hlut sænsku stúlkunnar Söndru Maríu Marin en lokaþáttur keppn- innar fór fram á uppstigningardag. Hlaut hún 8,49 í einkunn. Reið- mennskuverðlaun Félags tamninga- manna hlaut Viðja Hrund Hregg- viðsdóttir og Eiðfaxabikarinn fyrir besta hirðingu hlaut önnur sænsk stúlka, Lisa Rosell. FORYSTUMENN í verkalýðs- hreyfíngunni segja það ekki á döf- inni að lækka félagsgjöld sinna fé- lagsmanna eða aðildarfélaga. Eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. fimmtudag lækka iðgjöld til Sam- taka atvinnulífsins, sem stofnuð verða næsta haust með sameiningu Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambandsins, úr 0,34% í 0,21%. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Islands, segir að ekki sé hægt að taka mið af iðgjöldum VSI í þessu samhengi. „Þar er allt önnur starfsemi og samtökin eru að stækka. Þótt vinnuveitendur lækki sín gjöld vegna breyttra starfshátta þarf það ekki að þýða að aðrir breyti sínum gjöldum. Eg vil vekja athygli á því að á aðalfundi okkar í mars var ákveðið að 15% af okkar félags- gjöldum rynnu í nýjan sjóð, starfs- Formaður Verslunar- mannafélags Islands, segir að ekki sé hægt að taka mið af iðgjöldum VSÍ og endurmenntunarsjóð. Einnig var samþykkt að önnur 15% rynnu í vinnudeilusjóð. I raun og veru renna því ekki nema 70% af félags- gjöldunum í starfsemi félagsins,“ sagði Magnús L. Sveinsson. Tap á félagssjóði Eflingar Halldór Björnsson, formaður Eflingar - stéttarfélags, segir ekki í bígerð að lækka félagsgjöldin. „Það eru öll félögin með sama gjald, eða 1% af öllum launum. Yrði samþykkt að lækka gjöldin gætum við ekki rekið félagið. Við rákum fé- lagið á síðasta ári með tapi á félags- sjóði. Síðastliðið ár hefur verið okk- ur afar kostnaðarsamt vegna sam- einingarinnar. Eg sé ekki að við getum farið niður fyrir 1% af laun- um. Það er þess vegna ekki á dag- skrá,“ sagði Halldór. Grétar Þorsteinsson, formaður Alþýðusambands Islands, sagði það ekki í umræðunni eins og er að lækka félagsgjöldin. Verkalýðsfé- lögin greiða skatt til landssam- bandanna og Alþýðusambandsins af félagsgjaldi sem inn kemur. „Ég sé ekkert samhengi milli lækkunar iðgjalda hjá VSÍ og hjá okkur. Sú umræða hefur ekki verið í gangi þar sem félög hafa verið að samein- ast að sameiningunni ætti að fylgja lækkun félagsgjalda. Þvert á móti hefur verið rætt um að með sam- einingu ætti að tryggja mun víð- tækari og betri þjónustu við félags- mennina," sagði Grétar. Vekja athygli á umferðar- málum Umferðaröryggisfulltrúar verða starfandi í sumar á vegum Um- ferðarráðs og Slysavarnafélags Is- lands eins og undanfarin tvö sum- ur. Þeir verða á Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norður- landi og Austurlandi. Hlutverk þeirra er að vekja athygli á um- ferðarmálum og hvetja sem flesta til að leggja þeim lið heima í hér- aði. Umferðarröryggisfulltrúarnir vinna í samstarfi við lögreglu, Vegagerð, sveitarfélög, skóla og fijáls félagasamtök. Sigurður Helgason hjá Umferð- arráði segir að langflest banaslys á landinu í fyrra hafl orðið úti á landsbyggðinni. Þetta hafi það í för með sér að athyglinni núna verði sérstaklega beint að þeim þætti sem snýr að umferð á þjóð- vegum. Ber þar hæst umfjöllun um ökuhraða, um öryggi farþega og ökumanna í bflum, sbr. notkun bfl- belta og öryggisbúnaðar fyrir börn í bflum. Hrannar Björn Arnarsson er ánægður með niðurstöðu skattrannsóknarstjóra Skattamálin hjá yfírskattanefnd SKATTRANNSOKNARSTJORI hefur falið yfírskattanefnd að úr- skurða um skattamál Hrannars Björns Arnarssonar, sem skipaði 3. sæti Reykjavíkurlistans í síðustu borgarstjórnarkosningum. „Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu skattrannsóknarstjóra og þann farveg sem málið er komið í,“ sagði Hrannar Bjöm í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta þýð- ir að það verður ekki gefin út ákæra og ekki óskað eftir opinberri rann- sókn og það er það sem skiptir öllu í þessu máli.“ „Ég vona bara að niðurstaðan komi fljótt þannig að það styttist í þennan farsæla endi,“ sagði Hrann- ar Björn, en hann sagðist jafnvel búast við niðurstöðu eftir 4 til 5 mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu yfirskattanefndar hef- ur hún allt að 8 mánuði til að úr- skurða um mál. „Þegar niðurstaða er komin í málið mun ég klára það í samræmi við yfirlýsinguna sem ég gaf út 25. maí síðastliðinn, en þar sagði ég að ég myndi ekki taka sæti (í borgar- stjórn) fyrr en niðurstaða lægi fyrir og það verður ekki fyrr en málið er til lykta leitt hjá yfirskattanefnd." Yfirskattanefnd ákvarðar um skattsektir í þeim málum sem skatt- rannsóknarstjóri ber undir hana. Hún starfar sem óháður úrskurðar- aðili í ágreiningsmálum um ákvörð- un skatta, gjalda og skattstofna, sem á eru lögð af skattstjórum og ríkisskattstjóra. Þá úrskurðar hún um kærur vegna bindandi álita rík- isskattstjóra í skattamálum. Morgunblaðið/ FRÁ FYRSTA fundi umferðaröryggisfulltrúanna í húsi Slysavarnafélagsins í gær. Siglinganefnd Tryggingastofnunar heimilt að greiða aðgerðir eftir að þær eru gerðar Orfá tilvik greidd á undanförnum árum SIGLINGANEFND Trygginga- stofnunai-, sem styrkir læknisað- gerðir á íslendingum á erlendri grundu, getur samþykkt erindi sem berast eftir að ferð hefur verið farin, að því tilskildu að öll málsatvik séu ljós að mati nefndarinnar og kostn- aður innan eðlilegra marka. Sigl- inganefnd hafnaði í fyrra beiðni Ingu Jónu Ingimarsdóttur um greiðslu sjúkra- og lækniskostnaðar í Englandi vegna bakaðgerðar sem hún gekkst undir, m.a. á þeim for- sendum að hún hefði átt að bíða eftir úrskurði nefndarinnar áður en hún hélt utan. Una Björk Ómarsdóttir, ritari nefndarinnar, segir að tilvik sem þessi séu fá. Til samanburðar má nefna að nefndin hefur samþykkt að greiða kostnað við alls 446 aðgerðir erlendis frá árinu 1995. Tryggingaráð tók ákvörðun um fyrrgreinda málsmeðferð á fundi sín- um 8. september árið 1995, en jafn- framt þessu var bókað að greiðsla fyrir aðgerð sem þegar hefur verið innt af hendi, skuli aldrei ákvörðuð lengra aftur í tímann en tvö ár. Einnig að meginreglan skuli vera sú að sótt sé fyrirfram til siglinganefnd- ar um greiðslu sjúkratrygginga. Stuðst við álit sérfræðinga Inga Jóna gekkst undir aðgerð á baki vegna sjúkdóms sem læknar hérlendis töldu illviðráðanlegan og var aðgerðin framkvæmd í Bretlandi í júní í fyrra. Læknii' stúlkunnar sendi siglinganefnd Tryggingastofn- unar beiðni um að sjúkra- og læknis- kostnaður hennar vegna bakaðgerð- arinnar yrði greiddur. Nefndin sendi erindið til umsagnar nokkurra sér- fræðinga sem höfðu haft stúlkuna til meðferðar og seinasta haust ákvað nefndin að hafna erindinu, á grund- velli þeirra umsagna. Synjunin var meðal annars miðuð við að Inga Jóna hefði átt að bíða eftir úrskurði nefnd- arinnar áður en hún hélt utan. Þá hafi ekki verið um bráðvanda að ræða, auk þess sem hægt hefði verið að framkvæma umrædda aðgerð hérlendis. í samtali við Morgunblaðið sagði Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar, að þar sem lög- maður fjölskyldu Ingu Jónu hafi áfrýjað úrskurði siglinganefndar til tryggingaráðs, sé honum óhægt um vik að tjá sig um málið fyrr en trygg- ingaráð hafi komst að niðurstöðu. Brýn nauðsyn skilyrði Una Björk segir að samkvæmt 35. grein almannatryggingalaganna sé skilyrði fyrir greiðslu sjúkrahús- kostnaðar erlendis að sjúklingi sé brýn nauðsyn að vistast á sjúkrahúsi erlendis, vegna þess að ekki sé unnt að veita honum nauðsynlega hjálp á íslensku sjúkrahúsi, þ.e. að nauðsyn- lega læknismeðferð sé ekki unnt að veita hérlendis. Ástæða þess geti verið hvort heldur sem er að tækja- búnaður eða sérfræðikunnátta sé ekki fyrir hendi hér á landi. Hvert einstakt tilvik sé metið fyrir sig. „Helstu tilvikin sem siglinganefnd hefur samþykkt greiðslur til, eru líf- færaflutningar, hjartaaðgerðir, að- gerðir eða meðferðir vegna illkynja sjúkdóma, bæklunarsjúkdómar, nýrnasjúkdómar, flogaveiki o.fl. Sumar aðgerðii- vegn þessara sjúk- dóma er unnt að framkvæma hér á landi en aðrar eru það flóknar að þær verður að framkvæma erlendis og eru því greiddar af Trygginga- stofnun ríkisins," segir Una Björk. „Líffæraflutningar eni í rauninni einu aðgerðirnar sem má ganga út frá að fari fram erlendis, en allar aðrar aðgerðir fara eftir eðli málsins, þ.e. hversu flókið tilvikið er og með- ferðin sem það krefst.“ I 35. grein almannatryggingalaga segir meðal annars að sjúkratrygg- ingadeild gi-eiði kostnað við sjúkra- húsvist, sé sjúkratryggðum brýn nauðsyn á að vistast á erlendu sjúkrahúsi vegna þess að ekki sé hægt að veita honum nauðsynlega hjálp í íslensku sjúkrahúsi. Sama gildi um kostnað við dvöl, lyf og læknishjálp, sem nauðsynleg sé er- lendis að lokinni sjúkrahúsvistinni þar. Heilbrigðisáðherra skipi nefnd, þ.e. áðumefnda siglinganefnd, til að úrskurða um hvort fyrrgreind skil- yrði séu fyrir hendi, svo og hvar sjúkratryggðir skuli vistaðir erlend- is. Ef sjúkratryggður sé vistaður á öðrum og dýrari stað en nefndin hef- ur ákveðið, gi'eiði sjúkratrygginga- deild aðeins þann kostnað sem greiða hefði átt á þeim stað sem hún ákvað. í siglinganefnd sitja þeir Þórður Harðarson prófessor og Asgeir Hai’- aldsspn, prófessor frá Landspítalan- um^Ásgeir B. Ellertsson yfirlæknir og Ólafur Örn Arnarson, yfirlæknii’ frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur, og Sig- urður Thorlacius tryggingayfirlækn- ir sem er jafnframt fomaður nefnd- arinnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.