Morgunblaðið - 15.05.1999, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Gúmmí-
kúlnahríð
á Vestur-
bakka
ÍSRAELSKIR her-
menn skutu í gær
gúmmíhúðuðum kúlum
og táragasi að Palest-
ínumönnum, sem mót-
mæltu auknum bygg-
ingarframkvæmdum
gyðinga á Vesturbakk-
anum. Hafa þeir síð-
astnefndu lagt undir
sig ný svæði þar að
undanfömu en þeir
óttast, að slík útþensla
verði stöðvuð beri
Ehud Barak, frambjóð-
andi Verkamanna-
flokksins, sigurorð af
Benjamin Netanyahu
forsætisráðherra og
leiðtoga Likudflokks-
ins í kosningunum á
mánudag. Hér stumra
nokkrir Palestínu-
menn og ísraelskur
hermaður yfir öldmð-
um Palestínumanni,
sem fékk gúmmíhúð-
aða kúlu í höfuðið.
Reuters
Tímamótaúrskurður bandarísks alríkisdómara
Gögn í Alger Hiss-
málinu gerð opinber
New York. Reuters, AFP.
BANDARISKUR alríldsdómari úrskurðaði á fimmtudag að gera skyldi
opinber gögn sem notuð voru í hinu umtalaða Alger Hiss-njósnamáli fyrir
hálfri öld síðan. Hiss, sem var fyrrverandi starfsmaður í bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu, var dæmdur fyrir njósnir á vegum Sovétríkjanna í víð-
frægum réttarhöldum árið 1950 en alla tíð siðan hefur nokkur vafi þótt
leika á því hvort Hiss var sekur.
Bandarískum stjórnvöldum hef-
ur fram að þessu tekist að halda
leynd yfir málsgögnum en Peter
Leisure, dómari við bandarískan
alríkisdómstól, úrskurðaði í gær að
það væri í þágu almennings að hin
sögufrægu gögn - sem m.a. inni-
halda vitnisburð Richards Nixons,
sem seinna varð forseti Bandaríkj-
anna - yrðu gerð opinber, og að
þessir hagsmunir almennings
vægju mun þyngra en sú nauðsyn
sem hvíldi á að halda gögnunum
leyndum.
Urskurðurinn er sagður nokkur
sigur fyrir sagnfræðinga sem lengi
F y r
<é>
*mL\
f
3.495 kr
6*995 kr
vH«PaÍ,S 2.995 kr'
Buxur
Jakki
Stretch skyrtur 1.995 kr.
889 kr.
2.995 kr.
V-hálsmáisbolir
stutterma
Sandalar
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
hafa viljað fá að sjá öll gögn máls-
ins. Hiss var árið 1950 dæmdur
fyrir meinsæri eftir að hann hafði
svarað neitandi ásökunum um að
hann hefði stundað njósnir á veg-
um Sovétríkjanna. Tvisvar hafði
rannsóknarkviðdómur verið kallað-
ur saman á tímabilinu 1947-1950 til
að rannsaka ásakanir á hendur
Hiss, og komst sá fyrri að þeirri
niðurstöðu að saksækja skyldi
Hiss.
Leisure sagði sérstaklega mikil-
vægt að staðreyndir þessa máls
yrðu lýðum ljósar því t.a.m. vekti
málið upp grundvallarspumingar
um lýðræði í Bandaríkjunum, mál-
frelsi, rétt fólks til einkalífs, það
vald sem stjórnvaldið gæti tekið
sér við rannsókn sambærilegra
mála og um hlutverk rannsóknar-
kviðdómanna. Sagði dómarinn
jafnframt að ekki væri hægt að sjá
að þjóðarhagsmunir yltu á því að
gögnunum yrði áfram haldið leynd-
um. Ekki er enn ljóst hvort hið op-
inbera mun áfrýja úrskurði dómar-
ans.
Þrýsti Nixon á um að
Hiss skyldi saksóttur?
í úrskurði dómarans var bent á
að rannsóknir fræðimanna
beindust m.a. að því að komast að
raun um að hversu miklu leyti
nefnd Bandaríkjaþings um „óam-
erískt framferði" hefði beitt sér í
málinu þegar rannsóknarkviðdóm-
ur kom saman, og hvort sá mögu-
leiki væri fyrir að hendi að nefndin
hefði beitt svo miklum þrýstingi að
áhrif hefði haft á þá ákvörðun kvið-
dóms að Hiss skyldi saksóttur.
ALGER Hiss árið 1992. Hann
lést árið 1996, 92 ára að aldri.
Hann sat á sínum tíma þrjú og
hálft ár í fangelsi fyrir njósnir á
vegum Sovétríkjanna.
„Hvað þetta varðar þá liggur
fyrir að Richard Nixon bar vitni
fyrir rannsóknarkviðdómnum og
getgátur hafa verið uppi um að í
vitnisburði sínum hafi hann mjög
barist fyrir því að Hiss yrði sak-
sóttur fyrir meinsæri," sagði í
dómnum.
Það voru ýmis samtök banda-
rískra sagnfræðinga sem farið
höfðu fram á að málsgögn yrðu
gerð opinber. „Loksins mun al-
menningur geta dæmt um það
sjálfur hvort réttlætinu var fiill-
nægt með málshöfðuninni á hendur
Alger Hiss og sakfellingu sem
fylgdi í kjölfarið,“ sagði David Vla-
deck, sem sótti málið fyrir hönd
fræðimannanna.
Sumar-
tilboð
Salemi með
setn og handlaug
á fæti á aðeins
16.7901
:
HÚSASMIÐIAN
Sími 525 3000