Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
Varan er til
en bragðið
vantar
Er vöruúrval í íslenskum matvöruverslun-
um sambærilegt við það sem gengur og
gerist annars staðar í heiminum? Stein-
grímur Sigurgeirsson veltir þessu fyrir
sér og er ekkert allt of ánægður með
ástandið, út frá sjónarhorni sælkera, þótt
vissulega hafi það batnað stórlega.
AÐ hafa orðið miklar
breytingar á íslenskum
matvörumarkaði á síð-
ustu árum. Það eru ekki
mörg ár síðan margt af því sem
við teljum sjálfsagt í dag var tal-
inn munaður, árstíðabundin lúx-
usvara eða var bara hreinlega
ekki fáanlegt. Ferskt lambakjöt
allt árið. Nýir ávextir. Ferskir
kjúklingar. Ætar kartöflur. Inn-
fluttir ostar. Svona mætti lengi
telja. Hverjum dettur í hug að
halda því fram í dag að íslensku
þjóðinni stafi heilsufarsleg hætta
af því að fá að kaupa ferska
kjúklinga en ekki gaddfreðna?
Varla ekki einu sinni sömu mönn-
unum er halda því fram í dag að
það væri stórskaðlegt fyrir okkur
að fá að kaupa innflutt
kjöt. Vissulega neytir
stór hluti þjóðarinnar
erlendra matvæla (þar með talið
kjöts) þegar hún fer til útlanda.
Það er hins vegar í útlöndum, þar
sem önnur heilsufarsleg lögmál
gilda en hér á landi. Líklega yrðu
menn fárveikir ef þeir neyttu
sömu matvæla hér heima á Is-
landi. Yfirlýst markmið er að
vernda innlenda framleiðslu, sem
til lengri tíma er varla hollt. Is-
lensk matvælaframleiðsla á mikla
möguleika en þeir möguleikar
verða vart nýttir fyrr en að menn
standa fyrir stöðugri samkeppni
frá öðrum löndum.
En smám saman hverfa þau höft-
in, eitt af öðru, og aðstæður hér á
landi verða líkari því sem gengur
og gerist annars staðar á Vestur-
löndum.
Frumkvæði og metnaður
En auðvitað snýst þetta ekki ein-
ungis um höft heldur einnig frum-
kvæði og metnað einstaklinga og
íyrirtækja. Það er margt sem má
gera en er ekki gert. Að sama skapi
hafa einstaklingar og fýrirtæki átt
frumkvæði að því að bæta matar-
menningu okkar með ýmsum hætti
og bæta við þá flóru sem fyrir er.
Nú í vikunni mátti hér í blaðinu
lesa um ungan bónda sem hafið hef-
ur ræktun á kanínukjöti til sölu í al-
mennum verslunum. Þar með hefur
hann fjölgað valkostum okkar neyt-
endanna um einn. Garðyrkjubænd-
ur hafa einnig stóraukið ræktun
sína á ferskum krydd-
jurtum og gert okkur þar
með kleift að búa til
ferskt pestó, nota kóríander í ind-
versku réttina okkar, rósmarín í
uppskriftirnar frá Provence og svo
framvegis. Að auki má nú yfirleitt
fá innfluttar kryddjurtir á veturna.
Þá er það ekki lengra síðan en
fyrri hluta ársins 1995 að ég fagn-
aði því hér í þessum dálki að hafin
væri innflutningur á frosnum,
frönskum haguette-brauðum. Það
var frönsk kona búsett hér á landi
sem átti frumkvæði að þessu og hóf
rekstur sinn í lítilli verslun á
Laugaveginum. Nú eru þessi
brauð, sem allir þeir sem ánetjast
hafa franskri eða ítalskri matar-
menningu vita að eru ómissandi, fá-
anleg í flestum stórmörkuðum og
Sælkerinn
MORGUNBLAÐIÐ
VERSLUNARGESTIR kaupa inn í verslun á höfuðborgarsvæðinu fyrir tæpum tveimur áratugum. Ýmislegt
hefur breyst í vöruúrvali síðan.
allnokkur bakarí eru þar að auki
farin að leggja mikinn metnað í
brauðbakstur af þessu tagi. Vissu-
lega eru þau misjöfn að gæðum, en
þar sem þau eru best eru þau mjög
góð.
Þá er nú hægt að ganga að
margs konar sérvöru vísri, ekki síst
ítalskri, í fjölmörgum verslunum.
Góðri ólífuolíu, ólífum, sólþurrkuð-
um tómötum, Polenta-mjöli, sinn-
epi, ediki, sveppum og svo framveg-
is. Að ekki sé nú minnst á hið frá-
bæra úrval asískra kryddtegunda
og matvæla sem nú er víða á
boðstólum. Jafnvel alvöru
súkkulaði með 80% kakóinnihaldi
frá Valrhona, einhverjum besta
súkkulaðiframleiðanda veraldar, er
nú fáanlegt hér á landi þótt því mið-
ur séu sölustaðir þess of fáir. Þetta
súkkulaði er sífellt meira notað af
betri matreiðslumönnum hér á
landi en almennir neytendur geta
nær einungis gengið að því vísu hjá
Konditori Kopenhagen á Suður-
landsbraut auk þess sem ég hef
rekist á það hjá Gallerí kjöti.
En margt má þó enn betur fara.
Þrátt fyrir að opnað hafi verið fyrir
innflutning osta er allt of lítið um
spennandi osta á markaðnum. Ekki
hjálpar ostakvótinn, þetta austan-
tjaldsfyiirbæri, sem að auki er í allt
of ríkum mæli notaður í ómerkilega
erlenda fjöldaframleiðsluosta og
smurosta.
Grænmeti er einnig einn þeirra
þátta sem farið hafa batnandi en
eiga langt í land með að verða við-
unandi. Jú, jú, grænmeti og ávextir
eru vissulega til allt árið (ég er enn
tiltölulega ungur en man þó þá tíð
er epli og mandarínur voru tengdar
jólunum) en því miður skortir mikið
upp á að bragðgæðin séu í topp-
standi. Islensku og hollensku
tómatamir ná aldrei sömu dýpt í
bragði og Miðjarðarhafstómatar
frá Italíu og Frakklandi, er ræktað-
ir hafa verið í náttúrulegum hita og
sól. Þá er salat-framboð yfirleitt
sorglegt og þá fyrst og fremst
vegna þess hve úrvalið er af skorn-
um skammti. Ein til ývær tegundir
virðast eiga að duga Islendingum.
Þetta er ekki einungis einhver
sérviska í mér heldur hafa margir
af bestu matreiðslumönnum lands-
ins sagt það við mig í einkasamtöl-
um að þeir telji grænmetisúrvalið
vera einn þeirra þátta, sem hái
þeim hvað mest við matargerð.
Menn eiga hreinlega ekki kost á því
að kaupa betra grænmeti jafnvel á
hærra verði. Erlendir gestakokkar,
sem hingað koma, reka jafnframt
upp stór augu er þeir sjá hvað í
boði er.
Fleiri flokka, meiri breidd
Nú er það yfirleitt svo í löndun-
um í kringum okkur að vörur eru
fáanlegar í mörgum gæðaflokkum.
Það er hægt að fá hræbillegan
kjúkling á stórmörkuðum í Frakk-
landi og Bretlandi en einnig geta
menn borgað töluvert meira fyrir
og fengið séralda kjúklinga frá
ákveðnum framleiðendum er
rækta fuglana við náttúrulegri að-
stæður en stóriðnaðurinn. Það er
hægt að kaupa ódýrt grænmeti og
fjöldaframleidda osta í stórversl-
unum en að sama skapi stendur til
boða að fara í sérhæfðar matar-
búðir og kaupa bragðmikið græn-
meti, yfirleitt lífrænt ræktað, frá
suðurhluta Evrópu eða osta frá
minni framleiðendum. I nýlegri
heimsókn í matarbúðina Hediard í
París var til að mynda nýkomin
fyrsta uppskeran af jarðarberjum
frá Périgord í Frakklandi, safarík,
sæt og bragðmikil. Þau kostuðu
um fjögur hundruð krónur fyrir
einn lítinn bakka. Það er hægt að
fá ódýrari jarðarber í Reykjavík
en þau eiga ekkert sameiginlegt í
bragði með þessum berjum, ein-
ungis nafnið. A sama stað voru í
boði kirsuber er kostuðu um 5.000
krónur kílóið. En þau voru þess
virði, hvert ber lítil bragðsprengja.
Þetta er að mínu mati það sem
helst vantar upp á í matvælum í
dag hér á landi. Vörurnar eru til
en þær eru ekki í úrvalsflokki. Það
eru til ,jarðarber“, „tómatar" og
„franskir ostar“ en ekki í hæsta
gæðaflokki. Auðvitað eru ekki allir
reiðubúnir að borga hærra verð
fyrir betra hráefni en þeir eru
margir sem eru tilbúnir að gera
það og auðvitað eiga menn að eiga
þess kost. Maturinn verður ekki
betri en hráefnin sem eru notuð.
Afhverju stafar sein magatæming?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Ég hefi nýlega fengið
rannsókn og sjúkdómsgreiningu á
sársauka og uppþembu í maga eða
undir bringspölum strax og ein-
hverrar fæðu er neytt, sama hversu
lítið það er. Tjáði rannsóknarlæknir
á Landspítala mér á nærgætinn
hátt að um væri að ræða þarmalöm-
un, en við þessu væri til meðal og
myndi ég fá ávísun á cisapridum,
þ.e. Prepulsid 10 mg, 1 töflu þrisvar
á dag fyrir mat. Nú hefi ég tekið
þetta lyf í viku og finn alls engan
mun. Þætti mér því gott ef einhvers
staðar væri að hafa útskýringu á
því hvers kyns fyrirbæri þessi sjúk-
dómur er, hvort hægt er að lækna
hann og eða hvað tekur við. Ég er
72 ára og hefí alla tíð verið frekar
hraust, en nú undanfarin tvö ár hefi
ég bæði undirgengist mjaðmaskurð
vegna slitgigtar og fengið tvö bak-
brot vegna beinþynningar og er ég
undir leiðsögn og meðferð hjá
sjúkraþjálfara vegna þess. Én
Þarmalömun
þennan vetur hefi ég verið illa hald-
in af flensu sem ekki vill fara, og
hef! reyndar vegna þessarar miklu
inniveru þyngst talsvert frá í haust,
sem er ekki minn stíll ef ég er bæði
jafnvægishrædd og útþanin og
þannig mjög afskræmd og úr lagi
gengin frá minni sjálfsvitund. Ég
vildi góðfúslegast fara þess á leit við
þig að þú skrifaðir um þennan
vanda, lýstir honum og af hverju
hann kemur. Hvort forðast ber ein-
hverjar fæðutegundir o.fl.
Svar: Rannsóknin hefur af lýsing-
unni að dæma leitt í Ijós að hvorki
er um að ræða magasár, þindarslit
né annan vefrænan sjúkdóm sem
geti skýrt óþægindin. Þá berast
böndin að því sem kallað er
starfrænn sjúkdómur og getur þar
verið um að ræða eins konar
þarmalömun eða seina magatæm-
ingu, sem stundum tengist því sem
kallað er bakflæði í vélinda (þegar
súrt magainnihald rennur upp í vél-
inda). Óþægindin sem fylgja þessu
eru einkum verkir, uppþemba og
brjóstsviði eða nábítur og eru oft-
ast verst eftir máltíðir. Oþægindi af
þessu tagi eru algeng og því miður
er lítið sem ekkert vitað um orsak-
ir. Stundum gengur vel að lækna
þessa kvilla með lyfjum eins og því
sem nefnt er í bréfinu en stundum
gengur það illa. Um mataræði er
ekki hægt að gefa almennar ráð-
leggingar vegna þess hve einstak-
lingsbundið þetta er, en hver og
einn verður að prófa sig áfram.
Óþol fyrir mjólkursykri getur
stundum lýst sér svona og er sjálf-
sagt að prófa að forðast vörur sem
innihalda mjólkursykur í 1-2 vikur
og sjá hvort það hjálpar. Einnig er
rétt að minnka eða forðast sykur
Eirðarleysi í
fótleggjum
og fitu í einhvem tíma og það er
líka gott fyrir vigtina. Ef þetta dug-
ir ekki er sjálfsagt að tala aftur við
lækninn sem sá um rannsóknina.
Spurning: Tvær konur hafa
hringt vegna pistilsins um eirðar-
leysi í fótleggjum. Önnur ráðlagði
sykurbindindi frá miðjum degi,
sagði það hafa breytt miklu hjá sér.
Hin sagði lækni hafa ávísað á sig
lyfinu Madopar (100+25 mg) fyrir
ári, hún tekur 1-2 hylki fyrir svefn-
inn og hefur ekki fundið fyrir þessu
síðan, en hún var mjög slæm með
tilheyrandi næturvökum, göngu um
gólf, köldum fótaböðum o.þ.h. Hún
segist hafa látið þjáningasystkini sín
vita, og öllum hafi reynst lyfið vel.
Svar: Ef einfalt ráð eins og sykur-
bindindi hjálpai’, er það frábært, ég
hef ekki heyrt um það áður og legg
til að sem flestir prófi það. í pistlin-
um var sagt frá því að lyfið levó-
dópa, sem er notað við Parkinsons-
veiki, hjálpaði einstaka sinnum.
Madopar er lyf við Parkinsonsveiki
og inniheldur m.a. levódópa.
Skammturinn sem nefndur er hér
að ofan er lítill og ekki líklegur til
að valda alvai-legum aukaverkun-
um. í rannsóknum sem gerðar hafa
verið hjálpar þetta lyf einungis í
einstaka tilfellum en fyrir þá sem
era illa haldnir getur verið þess
virði að prófa.
•Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim
liggur á hjarta. Tekið er á mtíti
spurningum á virkum dögum í síma
5691100 og bréfum eða símbréfum
merkt Vikulok, Fax: 5691222.
Einnig gela lesendur sent fyrir-
spurnir með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar:
elmag(S>hotmail.com